Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1990, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1990, Qupperneq 7
MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1990. 23 Iþróttir „Keflvíkingar gætu náð langt“ - segir Viöar Guöjónsson, hinn gamalreyndi badmintonspilari Ægir Már Kárasan, DV, Suðumesjum: „Ég er alveg sannfærður um að Keflvíkingar gætu náð langt í bad- minton það sem ég hef séð til þeirra, þeir haía keppnisandann í lagi en það vantar forystu til að taka þetta að sér, sýna þessu áhuga og stofna deild innan ÍBK,“ sagði Viðar Guðjónsson en hann hefur meðal annars unnið til margra verðlauna í badminton, orðið þrisvar sinhum íslandsmeist- ari í tvíliðaleik og íjórum sinnum Reykjavíkurmeistari og einnig unnið til verðlauna í eldri flokki karla. Viðar hefur spilað og æft í 35 ár með TBR en hann fluttist til Kefla- víkur 1988. „Ég kom hingað til Kefla- víkur fyrir 25 árum til að sýna bad- minton. Þá virtist vera áhugi en hann hefur ekki vaknað sem skyldi. í dag er aðstaðan mjög góð í Keflavík, sér- staklega í nýja húsinu sem er alveg kjörið fyrir badmintonspilara en það vantar efniviðinn. Það verður að taka á þessum málum sem fyrst og byrja á að stofna deild þar sem áhug- inn myndi vakna óg badminton yrði spilað sem keppnisíþrótt og stefnt að einhveiju. Værir þú tilbúinn til að aðstoða við að stofna deild ef til þín værileitað? „Já, ég er tilbúinn að aðstoða ef til mín yrði leitað og ég er viss um að hér gætu leynst snjallir badminton- spilarar. Til aö byija með væri hægt að gera eins og þeir hjá TBR, þeir gefa 9 ára bekk Langholtsskóla spaða, sem þurfa ekki að vera dýrir, og það skilar sér mjög vel til baka. • Þarna sjáum við Viðar Guðjónsson til hægri á myndinni og með honum er Þorsteinn Þorsteínsson. Þetta er hans fyrsti vetur í badminton og hefur hann alltaf mætt á æfingar og sýnt geysilegan áhuga. DV-mynd Ægir Már Með því væri hægt að fá yngri krakk- ana til að byija æfingar. Frá Stykkis- hólmi hafa komið bestu spilarar landsins eins og Lovísa Sigurðar- dóttir, formaður TBR, og Ágúst Bjartmann. Það geta allir stundað þessa íþrótt. Hún er mjög erfið'sem keppnisíþrótt en mér finnst mjög er- fitt að hætta þar sem ég hef verið lengi í íþróttinni. Ef ekki verður gert neitt í málunum hér í Keflavík þá mun ég sækja æfmgar til Reykjavík- ur,“ sagði Viðar Guðjónsson. Golfað á gamlársdag á Króknum - spennandi og jöfn keppni Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki: Golfleikarar á Sauðárkróki hafa getaö stundað íþrótt sína af kappi í vetur. Þrjú golfmót voru haldin hjá Golfldúbbi Sauðárkróks rétt fyrir og á jólafóstunni og á gamlársdag var haldið mót í frábæru veðri, blanka- logni og hitastig sem á vordegi. Kepp- endur á mótinu voru tæplega 20 og var keppni mjög jöfn og spennandi. í keppni án forgjafar sigraði ungling- urinn efnilegi, Örn Sölvi Halldórs- son, og með forgjöf lék Gunnar Guð- jónsson best. • Þeir eru kallaðir meistaragengið en náðu samt ekki að sigra á mótinu. Frá vinstri: Steinar Skarphéðinsson, Magnús Rögnvaldsson og Einar Einars- son. DV-mynd Þórhallur motid • Landsbankamót Hauka í körfubolta fór fram í fþróttahúsi Hafnarfjarðar um áramótln. Keppt var f 3 ffokkum. ÍBK sigraði f 6. og 8. flokkf en Haukar i 7. flokki. Myndin er af 8. flokki ÍBK ásamt þjálf- arnum, Stefáni Arnarssyni, til vinstri. Lengst til hægri eru Ólafur Magnússon, formaður körfuknatt- ieiksdeildar Hauka, og Bjaml Magnússon, útlbússtjórl Landsbankans f Breiðholti. DV-mynd Hson KYNFULLNÆGJA KVENNA Nýtt fimm vikna námskeið að hefjast fyrir konur. Upplýsingar og innritun í síma 30055 alla virka daga milli kl. 10 og 17. Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, kynfræðingur. HARNY Hárgreiðslu- og rakarastofa Nýbýlavegi 22 • Sími 46422 • 200 Kóp. KMS sjampó og næring HÁRGREIÐSLU- 0G RAKARAST0FAN / KLAPPARSTlG. 29, RVÍK ® 13010 • 12725 VHSUBHIR OG IIEinNGM Við höfum vistlega og þægilega veitingasali fyrir 10-130 manns. Höfum opnað nýjan veislusal að Bæjarhrauni 2. Salimir henta vel fyrir hvers konar mannfagnaði. Allar veitingar Uettingohú/ið GAPt-mn v/Reykjanesbraut, Hafnaifirði Símar 54477, 54424, 51857

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.