Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1990, Side 8
24
íþróttir
Sport-
stúfar
íslandsmótið í innanhússknatt-
spymu var á dagskrá um helgina
í Laugardalshöll og var keppt í
2. og 5. deild. Valur Reykjavík,
KA, Breiðablik, Þór Akureyri, og
Njarðvík komust upp í 1, deiid. í
5. deild uröuliö Ungmennafélags-
ins Fram, Eyfellings, og Pjölnis
hlutskörpust og leika næst í 4.
deild.
• Breytingar hafa verið geröar
á þjálfaramálum hjá 1. deildar liði
Hauka í kvennahandknattleik.
Árni Hermannsson hefur látið af
störfum sem þjálfari og við starfi
hans tók Sigurgeir Marteinsson.
• Lýsismótið í borötennis fór
fram um helgina. Kjartan Briem,
KR, sigraði í mfl. karla, Ásta Ur-
bancic, Eminum í mfl. kvenna,
Vignir Kristmundsson Erninum
í 1. fl. karla, Pétur Kristjánsson
Stjömunni í 2. fl. karla og Rakel
Þorvaldsdóttir UMSB í 1. fl.
kvenna.
• TBR-mótiö í badminton fór
fram um helgina. Þórdís Edwald
vann sigur í kvennaflokki og
vann mótið í 8. skipti í röð. Hún
vann Guðrúnu Júlíusdóttur í úr-
slitum 11-5 og 11-2. Þórdís vann
einnig í tvíliðaleik ásamt Ingu
Kjartansdóttur. í karlaflokki
vann Broddi Kristjánsson, vann
Guðmund Adolfsson 15-8 og 17-16
i úrshtum. Broddi og Þorsteinn
Páll Hængsson unnu Guðmund
Adolfsson og Jóhann Kjartans-
son í tvíliöaleik, 18-13, 14-18 og
15-12. í tvenndarleik sigruöu þau
Guðrun Júlíusdóttir og Guð-
mundur Adolfsson.
Kristján Bemburg, DV, Belgiu:
• Anderlecht vann verðskuld-
aðan sigur á íjögurra liða mótinu
á Kanaríeyjum í knattspyrnu.
Anderlecht lék til úrslita gegn
Hamburger frá V-Þýskalandi og
unnu eins marks sigur, 1-0.
Þremur minútum eftir aö Arnór
kom inn á átti hann mikinn þátt
í sigurmarkinu. Griins skoraði
sigurmarkiö. Amór lék htið meö
Anderlecht á mótinu þar sem
þjálfarinn vildi stilla upp liðinu
sem kemur til með að leika gegn
Waregem í 1. deild. Þá veröur
Amór í leikbanni vegna þriggja
gulra spjalda.
• Sigutjón Kristjánsson og fé-
lagar í Boom léku í belgísku bik-
arkeppninni í gær gegn Germinal
og endaði sá leikur 2-2. Sigurjón
kom inn á i leikhléi en staðan í
leikhléi var 2-2- Germinal heldur
áfram í keppninni en höíð vann
fyrri leikinn, 1-0.
• Ruud Krol var sagt upp störf-
um sem þjálfari belgíska hðsins
Mechelen. Daginn fyrir síðari
bikarleik Mechelen og Lokeren.
Ástæðan fyrir brottrekstrinum
er sögð sú að leikmenn hösins
hafi misst alla trú á hinum hol-
lenska þjálfara, Krol var rekinn
þrátt fyrir að hðiö sé i 2. sæti 1.
deildar og hafi aðeins tapaö
tveimur leikjum undir hans
stjórn á keppnistímabilinu.
• Heistu úrsht í spænsku
knattspymunni um helgina urðu
þessi: Real Oviedop-Real Madrid
0-1, Real Soceidad-Sevíha 2-1,
Vallecano-Atletico BUbao 0-0,
Atletico Madrid-Sporting Gijon
0-1, Barcelona-Real Zaragoza
3-1, Tenerife-Malaga 2-1, og Real
Mallorca-Real VaUadoUd 1-1.
• NapoUhefuraðeinseinsstigs
forskot í ítölsku knattspymunni
eftir leUd helgarinnar en helstu
úrsUt uröu þessi: AscoU-Roma
1-1, Atalanta-Lecce 2-1, Bari-
Sampdoria 0-2, Cesena-Cremo-
nese 1-1, Genoa-Fiorentina 1-1,
Inter MUan-Bologna 3-0, Juvent-
us- Verona 2 -1, Lazio AC Milan
1-5, og Udinese-Napolí 2-2.
MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1990.
Guðmundur Torfason um mark sitt gegn Hibemian um helgina:
ERt glæsilegasta
markið til þessa
- Guðmundur gerði sigurmarkið gegn Hibs og átti að auki tvö skot í stöng
„Viö unnum meiri háttar sigur gegn Hibernian í
Edinborg og um leið var þetta okkar besti leikur á
. tímabilinu. Liöinu hefur gengið allt í haginn í síð-
ustu leikjum og nú erum við komnir mjög nálægt
öðrum liðum sem eru um miðja deildina. Með sama áfram-
haldi er aldrei að vita hvort við verðum með í baráttunni
um Evrópusæti þegar upp verður staðið í vor. Ég er óhrædd-
ur við framhaldið,“ sagði Guðmundur Torfason, knatt-
spyrnumaður hjá skoska félaginu St. Mirren, í samtali við
DV í gærkvöldi.
Guðmundur Torfason heldur
áfram að slá í gegn með félagi sínu
St. Mirren í skosku úrvalsdeild-
inni. Guðmundur skoraöi sitt 12.
mark á keppnistímabilinu gegn
Hibernian og er nú fjórði marka-
hæsti leikmaður úrvalsdeildarinn-
ar þegar 23 umferðum er lokið.
Skoskir fjölmiðlar fara lofsamleg-
um orðum um frammistöðu Guð-
mundar í Edinborg á laugardaginn
var'og í einu þeirra, Daily Mail,
fékk Guðmundur níu í einkunn og
var vahnn i liö vikunnar hjá blaö-
inu í þriðja skipfið í röð. Aðeins
einn annar leikmaður fékk níu í
einkunn eftir leikina á laugardag,
Paddy Connolly frá Dundee United.
í fjölmiðlum í Skotlandi í gær
kemur fram að St. Mirren hafi gert
bestu leikmannakaupin í Skotlandi
fyrir þetta keppnistímabil en St.
Mirren greiddi belgíska liðinu
Genk 250 þúsund sterlingspund
fyrir Guðmund. Þegar þetta er haft
til hhðsjónar og frammistaða hans
er þetta gjafverö, sögðu fjölmiðlar
í Skotlandi í gær.
Guðmundur skoraði eina mark
leiksins gegn Hibernian með hjól-
hestaspymu í fyrri hálfleik og sagöi
Guðmundur í samtalinu viö DV í
gærkvöldi að markið væri eitt það
glæshegasta sem hann hefði skorað
á ferlinum. Guðmundur átti síðan
hörkuskot í stöng og þaðan fór
knötturinn í hina stöngina og út í
teiginn. Skömmu fyrir leikslok
skaut Guðmundur í samskeytin úr
aukaspyrnu af tuttugu og fimm
metra færi. St. Mirren var þar með
fyrsta félagið til að sigra Hibernian
á heimavehi, Easter Road, á keppn-
istímabilinu í vetur.
„Árangur erfiöra æfinga er aö
koma í ljós og ég held að það sé
óhætt að segja að ég sé að leika
mitt besta keppnistímabil til þessa.
Hnjámeiðsh hafa angrað mig und-
anfarið og um tíma var haldið aö
ég yrði ekki leikhæfur gegn Hi-
bemian en það fór betur en á horfö-
ist,“ sagði Guðmundur Torfason.
Glasgow Rangers með
góða forystu
Glasgow Rangers er komið með
fjögurra stiga forystu í skosku úr-
valsdeildinni eftir 3-0 sigur á
Dundee á Ibrox. Aberdeen, sem er
í öðru sæti, vann Dunfermline, 4-0.
Celtic tapaði fyrir Dundee United á
útivehi, 0-2.
Úrsht á laugardaginn urðu þessi:
Aberdeen - Dunfermhne.......4-1
Dundee Utd - Celtic........2-0
- -
im
0 Guðmundur skoraði eitt glæsilegasta mark sem hann hefur skorað
á ferlinum er St. Mirren sigraði Hibernian, 0-1, á útivelli.
Hibernian - St. Mirren....0-1
Motherweh - Hearts.........0-3
Rangers - Dundee...........3-0
Staðan er þessi:
Rangers......23 14
Aberdeen.....23 12
Hearts.......23 11
4 32-12 33
6 37-20 29
7 40-25 27
Celtic...y...23
DundeeUtd....23
Motherwell ....23
Hibernian....23
Dunfermline..23
St. Mirren...23
Dundee.......23
7 7 28-21 25
10 6 25-24 24
9 8 30-32 21
7 9 21-27 21
6 10 25-35 20
5 11 21-39 19
7 14 28-52 11
-JKS
Alfreð átti stórleik
og skoraði tíu mörk
- gott gengi Islendinganna í spánska handboltanum um helgina
„Þetta var mjög auðveldur leikur
hjá okkur enda lékum við gegn einu
af botnliðunum.
Varamenn okkar fengu mikið að
spreyta sig og ég lék ekki mjög mikið
með en er engu aö síður ánægður
með minn hlut í leiknum," sagði
Kristján Arason, leikmaður með
Teka í spánska handboltanum, í
samtah við DV í gærkvöldi.
Kristján og félagar sigruðu Malaga
26-14 og skoraði Kristján 3 mörk í
leiknum.
Hafði Teka mikla yfirburði í leikn-
um og nánast formsatriði að ljúka
honum.
Alfreð Gíslason í
miklum ham með 10 mörk
Alfreð Gíslason átti sannkallaðan
stórleik með liði sínu Bidasoa um
helgina er hðið sigraði Michehn
Vahadohd, 29-23. Alfreð skoraði 10
mörk í leiknum.
• Ath Hilmarsson er meiddur á
hendi og lék ekki með Granollers er
hðið vann gífurlega mikilvægan úti-
sigur á hinu sterka hði Atletico
Madrid, 18-20. Geir Sveinsson átti
góðan leik með Granohers en tókst
ekki að skora. Geir fiskaði hins vegar
þrjú vítaköst í leiknum sem öh gáfu
mörk. Leikurinn var sýndur í beinni
útsendingu á spánska sjónvarpinu.
• Barcelona er í toppsæti 1. deild-
arinnar á Spáni er keppnin er tæp-
lega hálfnuð en einni umferð er ólok-
ið í fyrri umferðinni. Barcelona er
með 26 stig en í öðru sæti er Granoll-
ers með 23 stig. Teka er með sömu
stigatölu en lakara markahlutfall.
Atletico Madrid er í fjórða sæti með
22 stig og Bidasoa í 5. sæti með 20 stig.
• Líklegt verður að teljast að Barc-
elona verði meistari og er liðið mjög
sterkt um þessar mundir. Á dögun-
um var mjög sterkur leikmaður
keyptur til hðsins en þar er á ferð
júgóslavneski landshðsmaðurinn
Portner sem er með bestu hand-
knattleiksmönnum heims í dag.
-SK
• Alfreð Gíslason skoraði 10 mörk
fyrir Bidasoa um helgina.