Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1990, Blaðsíða 1
Annar hluti Söngvakeppni sjónvarpsstöðva verður á laugardagskvöldið og
verða þá kynnt síðari sex lögin sem valin voru til undankeppninnar. í síð-
ustu viku voru valin þrjú lög til keppni í úrslitakeppninni sem fram fer 10.
febrúar. Það lag sem fékk flest atkvæði var Eitt lag enn sem flutt var af
Grétari Örvarssyni og Sigríði Beinteinsdóttur en þau sjást hér á myndinni
vera að flytja lagið. Hvort það lag stendur uppi sem sigurlag kemur ekki í
ijós fyrr en laugardaginn 10. febrúar þegar búið verður að velja önnur
þrjú lög til áframhaldandi keppni.
Rás 1 á þriðjudögum - leikrit vikunnar:
Dauðinn á hælinu
Leikrit vikunnar að þessu sinni er
fyrsti hluti framhaldsleikritsins,
Dauðinn á hælinu, sem byggt er á
skáldsögu eftir Quentin Patrich. Út-
varpsleikritsgerð er eftir Edith Ran-
um. Þýðandi er Sverrir Hólmarsson
og leikstjóri Þórhallur Sigurðsson.
Aðalpersóna leiksins, sem er í fjór-
um þáttum, er leikstjórinn Peter
Duluth. Hann er niðurbrotinn maður
eftir dauða konu sinnar sem fórst í
leikhúsbruna á Broadway. Hann
ákveður að leggjast inn á einka-
heilsuhæli fyrir vel stæða tauga-
sjúklinga. Hann kemst þó fljótlega
að því að þar er ekki allt með felldu
og á nóttunni heyrir hann sína eigin
rödd hvísla aðvaranir um aö morö
verði bráðlega framið á staðnum.
Með helstu hlutverk fara Siguröur
Skúlason, Sigurður Karlsson, Helga
Jónsdóttir, Valdimar Flygenring,
Pétur Einarsson, Rúrik Haraldsson,
Guðlaug María Bjamadóttir, Jóhann
Sigurðarson og Steindór Hjörleifs-
son. Leikritið er endurflutt á fimmtu-
dögum kl. 15.03.
Sjónvarp á simnudögum:
Kontrapunktur
Síðastliðna þijá mánuði hefur ver-
ið í Ríkisútvarpinu spurningaþáttur-
inn Kontrapunktur. Er spurninga-
keppnin fólgin í að þekkja hin ýmsu
tóndæmi. Úrslitakeppnin hér heima
var svo haldin í Norræna húsinu og
var henni sjónvarpað. Þar kepptu
tveir stigahæstu keppendumir, Rík-
harður Öm Pálsson og Valdemar
Pálsson, til úrslita og sigraði Valde-
mar.
Mátti líta á keppnina hér heima
sem undirbúning fyrir samnorrænu
keppnina sem fram fer í Osló. Rík-
harður og Valdemar era nú, ásamt
þriðja keppandanum, Gylfa Baldurs-
syni, komnir til Osló og munu þreyta
harðvítuga keppni við frændur okk-
ar á hinum Norðurlöndunum.
Keppnin fer fram í Tónhstarhá-
skólanum og era 400 áhorfendur.
Keppnin er löng, ellefu þættir, og
verður úrshtakeppnin 5. apríl. Fyrst
keppa löndin innbyrðis. íslenska hð-
ið þurfti aö fá undanþágu til að geta
teldð þátt í keppninni vegna þess að
í sveitinni er enginn kvenmaður en
það er skilyrði. En vegna þess að
þetta er í fyrsta skipti sem ísland
tekur þátt í keppninni var þessi und-
anþága veitt.
Má búast við að við erfiða keppi-
nauta verði að eiga fyrir íslenska lið-
ið því þáttur þessi nýtur mikilla vin-
sælda á Norðurlöndum og þátttak-
endur þaðan hafa farið í gegnum
mun erfiðara próf en íslensku þátt-
takendurnir gengu í gegnum.
Hver geta okkar manna er í byijun
kemur ekki í ljós fyrr en á sunnudag-
inn en þátturinn hefst kl. 16.40.
Tveir af þremur landsliðsmönnum Islands sem taka þátt í samnorrænu
spurningakeppninni Kontrapunktur, Valdemar Pálsson og Ríkharður Örn
Pálsson. Á myndina vantar Gylfa Baldursson.
Sjónvarp á mánudögum:
Að stríði loknu
Að stríði loknu (After the
War) er mjög vandaður breskur
framhaldsmyndaflokkur sem
hvarvetna hefur fengið góöa
dóma og mikla umfjöllun. Það
er hinn þekkti rithöfundur
Frederic Raphael sem hefur
skrifaö handritið.
Fjaha þættirnir, sem eru tíu,
um tvo skólastráka, Michael og
Joe, sem hittast fyrst við lok
síðari heimsstyijaldarinnar.
Bakgrunnur þeirra er ólíkur.
Michael kemur úr bresku aðal-
stéttinni og hefur htið kynnst
hörmungum stríðsins en Joe er
flóttamaður frá meginlandi
Evrópu sem hefur lifað í ótta
nasismans. Báðir era þeir gyð-
ingar.
Verða þeir óvinir eða verða
þeir vinir? Það er spumingin
sem velt er upp í fyrsta þættin-
um. Allavega finna þeir á sér
að leiðir þeirra eiga eftir að
hggja saman hvort sem það er
th góðs eða hls fyrir þá.
Að stríði loknu gerist á þrem-
ur áratugum og lýsir þeirri
kynslóð sem vex upp þegar
heimsfriður er en byltingar-
tímar á öðrum sviðum. Leiðir
félaganna liggja í margar áttir.
Leikhús, hstir, blaðamennska
og póhtík verður starfsvett-
vangurþeirra. -HK
Michael og Joe í fyrsta þættinum, ungir og óreyndir. Það eru Nicholas Fletc-
her og Nicholas Dastor sem leika þá félaga i byrjun.
Nýjasta tækni og vísindi:
Sigurður Richter á fimmtán ár
og hátt í 300 þætti að baki
Sigurður Richter hefur séð um Nýj-
ustu tækni og visindi i fimmtán ár.
Arið 1990 verður hið sextánda í
röðinni er sjónvarpsáhorfendur fá
heyrt og séð Sigurð Richter fjalla um
nýjustu tækni og vísindi.
Þótt dijúg vinna liggi að baki hveij-
um einstökum þætti er staffið hhð-
arbúgrein hjá Sigurði. Hann er dýra-
fræðingur að mennt og hefur sér-
hæft sig í sníkjudýrafræði. Vinnur
hann að rannsóknum í greininni á
tilraunastöðinni að Keldum. Þá
kennir hann einnig líffræði við Há-
skóla íslands og sér um þátt í Morg-
unblaðinu sem heitir íslenskar rann-
sóknir. Af þessu má sjá að það er í
mörgu að snúast hjá Sigurði, fyrir
utan störf í Sjónvarpinu.
Nýjasta tækni og vísindi hefur í
raun ekki mikið breyst frá því þátt-
urinn hóf göngu sína fáum árum eft-
ir að sjónvarpsútsendingar hófust
hér á landi. Reynt er að vera með sem
fjölbreyttast myndefni. Helsta breyt-
ingin er að nú er íslenskt efni í þátt-
unum, helst ein íslensk mynd í hverj-
um þætti.
Þar sem íslenskar myndir um
rannsóknir hggja ekki á lausu hefur
Sigurður sjálfur beitt sér fyrir gerð
stuttra heimildarmynda, leitað uppi
verðug umfjöhunarefni, ritað hand-
rit og séð um frágang á hátt í þrjátíu
shkra stuttmynda, jafnan þó í sam-
ráði við sérfræðinga á viðkomandi
sviðum.
Ein slík íslensk kvikmynd verður
í næsta þætti sem er á þriðjudaginn
kl. 21.50. Er hún endursýnd og fjallar
um skammdegisþunglyndi. Hún var
á dagskrá um sama leyti í fyrra en
mun ekki eiga síður við nú en þá.
Stöö 2 á þriðjudögum:
Raunir Ericu
Raunir Ericu (The Labours of
Erica) er nýr breskur gaman-
myndaflokkur í sex þáttum. Aðal-
persónan er Erica sem Brenda
Blethyn leikur. Hún hefur eytt lífi
sínu í tvær persónur. Þetta byijaði
aht þegar eiginmaður hennar dó á
brúðkaupsnóttinni. Síðan þá hefur
tími hennar eingöngu farið í að
stjana í kringum son sinn, Jeremy,
og vinnuveitanda sinn sem hún
hefur staðið í ástarsambandi við
ahtof lengi eða í tólf ár.
Þegar þættimar heflast er Jer-
emy sextán ára og gengur vel í
vinnu og þarf htið á móður sinni
að halda. Yfirmaður hennar nýtur
að vísu enn ásta með henni en
mörgum öðrum í leiðinni. Erica
tekur því þá örlagaríku ákvörðun
að segja elskhuganum upp um leið
og hún segir upp í vinnunni. Hún
finnur grein í blaði sem heitir: Tólf
hlutir sem ég ætla að gera áður en
ég verð fertug og ákveður að lifa
samkvæmt þessum reglum í fram-
tíðinni...
Brenda Blethyn leikur Ericu sem
gjörbreytir lifsstil slnum.