Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1990, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1990, Síða 6
."22 FÖSTUDAGUR 2. FEBRCAR 1990. Kvikmyndahúsin - Kvikmyndahúsin > Bíóhöllin: Læknanemar Kvikmyndaklúbbur íslands: Fjársjóður herra Ame Fjársjóður herra Arne, sem Kvikmyndaklúbbur íslands sýnir í Regnboganum á laugardaginn, er sænsk kvikmynd frá 1919 eftir Mauritz Stiller en hann og Victor Sjöström eru fyrstu meistarar sænskrar kvikmyndagerðar. Þekktasta kvikmynd Stillers er tví- mælalaust Gösta Berlings Saga sem fór sigurför um heiminn. Þar lék aðalhlutverkið leikkona sem Stiller uppgötvaði, Greta Gustavs- son sem síðar varð Greta Garbo. Fjársjóður herra. Arne er ein af þekktustu kvikmyndum hans og vilja sumir segja að hún sé besta mynd hans. Sagöi meðal annars einn fremsti kvikmyndagerðar- maður á fyrri hluta aldarinnar, F.W. Mumau, að Fjársjóður herra Ame væri sú kvikmynd sem kæm- ist næst því að vera fullkomin. Sögusviðið er lok 16. aldar þegar skoskir málaliðar í lífverði Johans III Vasa gera uppreisn. Þrír fangar úr lífverðinum, sem fangelsaðir hafa verið fyrir undirróður, flýja. Reiðubúnir að fórna öllu til að freista þess að komast heim til föð- urlandsins koma þeir í sókn herra Arne, myrða nær alla íbúana og halda áfram flóttanum til strandar. Þeir hafa tekið peningakistil herra Arne með sér en neyðast til að skilja hann eftir á ísi lögðum firði vegna þyngsla og verða sjálfir strandaglópar vegna íssins. Eini íbúinn sem komst undan málahðunum er Elsalil, fósturdótt- ir herra Arne. Hún kemst í skjól hjá fiskimönnum við ströndina. Elsalil og einn málahðanna verða ástfangin án þess að hún viti að hann er ábyrgur fyrir dauða fóstur- foreldra hennar... Myndin hlaut á sínum tíma mikið lof gagnrýnenda og áhorfenda og hefur lokaatriði myndarinnar, þar sem röð af svartklæddum mann- verum mjakast eftir ísnum, verið tahð eitt best gerða myndskeið kvikmyndasögunnar. Sýning myndarinnar verður á laugardag- inn kl. 15.00. Atriði úr Fjársjóði herra Arne sem sýnir líkfylgd. í dag frumsýnir Bíóhöllin alveg glænýja kvikmynd, Læknanemar (Gross Anatomy). Gerist hún með- al læknanema á stóru sjúkrahúsi og fjallar um fyrsta árs nemendur sem eru eins og gefur að skilja áhugasamir um námið. Það er að segja ahir nema Joe Slovak. Hann er gáfaður, glaðlyndur náungi sem er ahs ekki tilbúinn aö fórna áhyggjulausu lífemi fyrir lærdóm- inn. Hann ákveður því að sjá hvað hann kemst langt í læknanáminu án þess að líta í bók. Aðalkennari hans, Rachel Wo- odruff, sér strax að Joe er efni í afburða lækni. Hún ákveður því að setja fyrir hann próf án þess að hann viti sjálfur um það. Með því ætlar hún að sjá hvort borgi sig að snúa honum til betri vegar. Aðalhlutverkin leika Matthew Modine, Daphne Zuniga og Christ- ine Lathi. Modine hefur sannað sig á undanfömum árum og er í dag sjálfsagt einn albesti ungi leikarinn í Hollywood. Hann vakti fyrst veru- lega athygli er hann lék í kvikmynd Alan Parkers, Birdy. Þar lék hann ungan mann sem var iha farinn á taugum. Þá vakti leikur hans í nýj- ustu kvikmynd Stanleys Kubricks, Full Metal Jacket, athygli. Af ný- legum kvikmyndum sem hann hef- ur leikið í má nefna Orphans og Married to the Mob. Leikstjóri Læknanema er Thom Eberhardt og er þetta önnur mynd hans. Áður en hann sneri sér að kvikmyndaleikstjórn leikstýrði hann mörgum fræöslumyndum fyrir bandaríska almenningssjón- varpið PBS. Hlaut hann mörg verð- laun og viðurkenningar fyrir störf sín. Má nefna Emmy verðlaunin og svo Golden Mike Awards sem eru veitt fyrir frábæra heimildar- þáttagerð í sjónvarpi. Fyrsta kvikmynd hans sem leik- stjóri var Night of the Comet, sem var ein af þessum myndum sem kosta sama og ekki neitt (Meira að segja ódýrari en íslenskir kvik- myndagerðarmenn segja að mynd- ir þurfi að kosta) en stórgróði varð af. Síðasta kvikmynd hans áður en hann leikstýrði Gross Anatomy var Without a Clue þar sem Michael Caine og Ben Kingsley leika Sherlock Holmes og dr. Watson. -HK BIOBORGIN sýnir myndina Bekkjarfélagið (Dead Poet Society) sem hefur fengið mjög góðar viðtökur hvar sem hún hefur verið sýnd. Fjall- ar hún um nokkra nemendur sem stofna með sér leynifélag með óopin- beru samþykki kennara síns. Leikstóri er Peter Weir. Aðalutverkið, kenn- arann, leikur Robin Williams. Á myndinni sjást nemendur mótmæla með að standa uppi á borðum. LAUGARASBIO sýnir sakamálamyndina Losti (Sea of Love) sem segir frá lögreglumanni einum sem er að eltast við fjöldamorðingja sem vel- ur fórnarlömb sin eftir einkamálaauglýsingum dagblaðs. Al Pacino og Ellen Barkin leika aðalhlutverkin og hafa þau fengið mikið hrós fyrir leik sinn. Matthew Modine og Daphne Zuniga leika tvo læknanema sem hafa ólík- ar skoðanir á náminu. Sýningar Art-Hún, Stangarhyl 7, Reykjavík Að Stangarhyl 7 eru sýningarsalur og vinnustofur. Þar eru til sýnis og sölu olíu- málverk, pastelmyndir, grafík og ýmsir leirmunir eftir myndlistarmennina Erlu B. Axelsdóttur, Helgu Ármanns, Elín- borgu Guðmundsdóttur, Margréti Salome Gunnarsdóttur og Sigrúnu Gunnarsdóttur. Opið alla virka daga kl. 13-18. Árbæjarsafn, sími 84412 Opið eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 84412. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 í safni Ásgríms stendur yfir sýning á myndum Ásgríms frá Þingvöllum. Á sýn- ingunni eru 25 verk, aðallega vatnslita- myndir, en einnig nokkur olíumálverk. Sýningin stendur fram í febrúar og er opin um helgar og á þriðjudögum og funmtudögum kl. 13.30-16. Ásmundarsalur, Freyjugötu 41, Bjami Ragnar og Ulla Hosford opna sýn- ingu á verkum sínum á morgun kl. 16. Sýningin stendur til 18. febrúar og er opin daglega kl. 14-20 og um helgar ki. 14-22. FÍM-salurinn, Garðastræti Hafsteinn Austmann listmálari opnar sýningu á vatnshtamyndum laugardag- inn 3. febrúar kl. 14. Gallerí Borg, Pósthússtræti 9 Sýning á verkum „gömlu meistar- anna“. öll verkin eru til sölu. 1 Grafík-galieri Borg, Austurstræti 10, er nú blandað upphengi. Grafík-myndir eftir um það bil 50 höfunda, litlar vatns- Uta- og pastelmyndir og stærri oUumál- verk eftir marga af kunnustu Ustamönn- um þjóðarinnar. Gallerí „einn-einn“, Skólavörðustíg 4a Samsýning listamanna af yngri kynslóð- inni. Opið daglega kl. 14-18. Gallerí List, Skipholti 50 Til sölu verk eftir þekkta íslenska Usta- menn. Opið á afgreiðslutíma verslana. J. Hinriksson, Maritime Museum, Súðarvogi 4 Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku- daga, fimmtudaga, fóstudaga og laugar- daga. Kjarvalsstaðir v/Miklatún Þar standa yfir þrjár sýningar. í vestur- sal sýnir Þorlákur Kristinsson (TolU) ol- íumálverk. í vesturforsal sýnir Guðný Magnúsdóttir leirmuni. í austurforsal sýnir Bragi Þór Jósefsson ljósmyndir. í austursal er sýningin „Kjarval og landið", verk í eigu Reykjavikurborgar. Listasafn ASÍ, v/Grensásveg Ljósmyndasýning Ljósbrots, ljósmynda- félags framhaldsskólanema, veröur opn- uð laugardaginn 3. febrúar kl. 14. Frá árinu 1987 hefur Ljósbrot haldið sýningar á verkum nemenda viðs vegar af landinu. 11 framhaldsskólar taka þátt i sýning- unni í ár. Alls eru um 180 myndir á sýn- ingunni. Sýningin verður opin til 11. fe- brúar og er aðgangur ókeypis. Listasafn Einars Jónssonar er opið alla daga kl. 13.30-16 nema mánu- daga. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega ki. 11-17. Katel, Laugavegi 20b (Klapparstígsmegin) Til sölu eru verk eftir innlenda og er- lenda Ustamenn, málverk, grafik og leir- munir. Sýning í Odda, nýja hugvisindahúsinu, er opin daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri Ustamenn þjóðarinnar. Að- gangur að safninu er ókeypis. Listasafn Islands, Fríkirkjuvegi 7 Mynd mánaðarms heitir „Mynd“ og er eftir Gunnar Öm Gunnarsson. Leiðsögn í fylgd sérfræðings er á fimmtudögum kl. 13.30-13.45. Safnast er saman í and- dyri safnsins og er leiðsögnin öllum opin og ókeypis. Sýning á íslenskri myndlist 1945-1989 í eigu safnsins stendur nú yfir í öllum sýn- ingarsölum. Almenn leiðsögn um þá sýn- ingu er á sunnudögum kl. 15. Listasafnið er opiö alla daga nema mánudaga kl. 12-18. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70 Þar stendur yfir sýning á verkum er Sig- uijón gerði á árunum 1960-62. Þetta era aðaUega verk úr járni. Þá eru einnig sýnd aðfóng og gjafir sem safhinu hafa borist undanfarin ár, þar á meðal myndir frá árunum 1936-46 sem hafa verið í einka- eign í Danmörku. Sýningin, sem mun standa uppi í vetur, er opin laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 og ÖU þriðjudags- kvöld kl. 20-22.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.