Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1990, Page 7
FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1990.
23
íþróttir helgarinnar:
íslandsmótið
í badminton
- verður háð um helgina í Laugardalshöll
íslandsmeistaramótið í badminton fer fram um helgina í Laugardals-
höll. Hér er Guðmundur Adolfsson badmintonleikari að munda spaðann
á fjölum Laugardalshallar.
íslandsmeistaramótið í badmin-
ton fer fram á laugardag og sunnu-
dag og verður keppt í Laugardals-
höllinni. Það má búast við mjög
skemmtilegri keppni og víst er að
það verður hart barist um íslands-
meistaratitlana í karla- og kvenna-
flokki. Keppnin hefst kl. 10 báöa
dagana.
Körfuknattleikur
Ekkert verður leikið um helgina
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik
vegna bikarkeppninar. Þrír leikir
eru í bikarkeppni karla um helg-
ina. í kvöld leika ÍBK-B og Grinda-
vík síðari leik sinn og fer leikurinn
fram í íþróttahúsinu í Keflavík og
hefst kl. 20. Á sunnudag eru tveir
leikir og er þar sömuleiðis um síð-
ari viðureignir liðanna að ræða.
Kl. 16 leika í Njarðvík UMFN og
UBK og kl. 20 leika í Hagaskóla
Víkverji og ÍR.
Í1. deild karla eru flmm leikir. í
kvöld leika á Akranesi í A og UMFB
kl. 20.30 og kl. 20 leika í Digranesi
UBK og Léttir. Tveir leikir eru á
laugardag og fara þeir báðir fram
í Hagaskóla. Kl. 14 leika ÍS og
UMFB og á eftir Víkveiji og UMSB.
Á sunnudag leika á Laugarvatni
UMFL og Snæfefl kl. 14.
í 1. deild kvenna er nágranna-
slagur í kvöld þegar ÍBK tekur á
móti UMFG í Keflvík kl. 20.
Handbolti
1. deild karla er kominn í frí
vegna undirbúnings íslenska
landsliðsins fyrir HM í Tékkósló-
vakíu síðar í þessum mánuði. í 1.
deild kvenna eru tveir leikir á
sunnudag. Kl. 19 leika í Laugar-
dalshöll Fram og FH og strax á eft-
ir, kl. 20.15, leika Víkingur og Val-
ur.
í 2. deild karla eru tveir leikir á
dagskrá. í kvöld leika í Njarðvík
UMFN og Þór Akureyri og á laug-
ardag fá gömlu kempurnar í B-liöi
Vals Þór í heimsókn á Hlíðarenda
og hefst leikurinn kl. 16.30.
íþróttir í sjónvarpi
íþróttaþátturinn í Ríkissjónvarp-
inu hefst að venju kl. 14 á laugar-
dag. Þá verða fyrst sýndar myndir
frá meistaragolfi atvinnumanna.
Það er framhald af móti sem sýnt
var um síðustu helgi á velli sem
Jack Nicklaus er hönnuður að. Kl.
15 verður stórleikur í beinni út-
sendingu þegar Liverpool og Ever-
ton eigast við á Anfield Road. Þætt-
inum lýkur svo með beinni útsend-
ingu úr sjónvarpssal frá þorramóti
í gfimu.
Á stöð 2 eru íþróttir á laugardag
og sunnudag. Kl. 17 á laugardag
verða sýndar myndir frá einvígi
þeirra Alex Higgins og Steve Davis
í snóker. Á sunnudag hefst þáttur-
inn kl 13.30. Áætlað er að sýna í
beinni útsendingu leik frá ítölsku
knattspyrnunni ef svo verður ekki
þá verður leikur Juventus og Inter
Milan frá því um síðustu helgi
sýndur ásamt svipmyndum frá
öðrum leikjum. NBA körfuboltinn
verður á sínum stað. Leik KA og
ÍS í blaki karla verða gerð skil og
þá verða sýndar svipmyndir frá
úrslitaleik Fram og Fylkis á ís-
landsmótinu í innanhúsknatt-
spyrnu. Þá verða sýndar myndir
frá íslandsmeistaramótinu á bad-
minton ásamt erlendri íþrótta-
syrpu.
-GH
STYRKUR TIL NOREGSFARAR
Stjórn sjóðsins Þjóðhátíðargjöf Norðmanna auglýsir eftir umsókn-
um um styrki úr sjóðnum vegna Noregsferða 1990.
Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur sjóðsins „að auðvelda ís-
lendingum að ferðast til Noregs. í þessu skyni skal veita viður-
kenndum félögum, samtökum og skipulegum hópum ferðastyrki
til Noregs í því skyni að efla samskipti þjóðanna, t.d. með þátttöku
í mótum, ráðstefnum eða kynnisferðum sem efnt er til á tvíhliða
grundvelli, þ.e.a.s. ekki eru veittir styrkir til þátttöku í samnorræn-
um mótum sem haldin eru til skiptis á Norðurlöndunum. Ekki
skal úthlutað ferðastyrkjum til einstaklinga eða þeirra sem eru
styrkhæfir af öðrum aðilum."
í skipulagsskránni segir einnig að áhersla skuli lögð á að veita
styrki sem renna til beins ferðakostnaðar en umsækjendur sjálfir
beri dvalarkostnað í Noregi.
Hér með er auglýst eftir umsóknum f'rá þeim aðilum sem uppfylla
framangreind skilyrði. í umsókn skal getið um hvenær ferð verður
farin, fjölda þátttakenda og tilgang fararinnar. Auk þess skal til-
greina þá upphæð sem farið er fram á.
Umsóknir óskast sendar til stjórnar sjóðsins, Forsætisráðuneytinu,
Stjórnarráðshúsinu, Reykjavík, fyrir 1. mars 1990.
Útboð
Byggingarnefnd flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli
býður út frágang lóðar fyrir listaverkið „Þotuhreið-
ur“. Helstu verkþættir eru gerð undirstöðu fyrir lista-
verk, fráveitulagnir og málbikun tjarnarbotns (grunn-
flötur um 2.000 m2)
Útboðsgögn verða afhent á Almennu verkfræðistof-
unni hf., Fellsmúla 26 Reykjavík, frá og með fimmtu-
deginum 1. febr. 1990 gegn 30.000 kr. skilatrygg-
ingu. Fyrirspurnir og óskir um upplýsingar skulu
berast Almennu verkfræðistofunni eigi síðar en 8.
febr. 1990.
Tilboðum skal skilað til byggingarnefndar, Varnar-
málaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Skúlagötu 63,
105 Reykjavík, fyrir kl. 14.00 fimmtudaginn 15. febr.
1990.
Byggingarnefnd flugstöðvar
á Keflavíkurflugvelli.
Árg. ’87, skinandi fallegur bill, svartur og glæsi
. legur, vél 2,8 lítra, 5 gira, beinskiptur, ekinn
33.000 m. Ath. skipti á ódýrari. Uppl. hjá Bílasöl-
unni Blik, Skeifunni 8, simi 686477._______________ í
TIL SÖLU
Norræna húsið
Á laugardaginn kl. 15 verður opnuð sýn-
ingin Aurora 3 í sýningarsölum Norræna
hússins. Á sýningunni eru verk eftir 20
unga norræna myndlistarmenn, fjóra frá
hverju Norðurlandanna. Frá íslandi taka
þátt í sýningunni Georg Guðni, Guðrún
Hrönn Ragnarsdóttir, Kristinn G. Harð-
arson og Svava Björnsdóttir.
Sýningin verður opin daglega kl. 14-19
og henni lýkur sunnudaginn 11. mars.
Þá stendur einnig yfir sýning á ljósmynd-
um eftir Bruno Ehrs.
Nýhöfn,
Hafnarstræti 18,
Guðrún Einarsdóttir sýnir málverk í
Nýhöfn. Á sýningunni eru olíumálverk
unnin á sl. ári. Þetta er önnur einkasýn-
ing Gúðrúnar. Sýningin stendur til 14.
febrúar. Hún er opin virka daga kl. 10-18
og um helgar kl. 14-18.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfirði, s. 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18
eða eftir nánara samkomulagi í síma
52502.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
SPRON
Álfabakka 14,
í Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis,
útibúi Álfabakka 14, Breiðholti, stendur
yfir sýning á múrristum eftir Gunnstein
Gíslason. Gunnsteinn hefur haldið
nokkrar einkasýningar og tekið þátt í
fjölda samsýninga. Sýningin mun standa
yfir til 27. apríl nk. og er opin frá mánu-
degi til fostudags kl. 9.15-16. Sýningin er
sölusýning.
Vinnustofa Ríkeyjar,
Hverfisgötu
Þar eru til sýnis og sölu postulínslág-
myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir.
Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga og fóstudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
Srfnið er opiö alla daga nema mánudaga
kl. 11-16.
Myntsafnið á Akureyri,
Aðalstræti 58, s. 24162
Opið er kl. 13.30-17 alla daga vikunnar.
Daði Guðbjörnsson sýnir í
Gallerí RV
i dag, 2. febrúar, opnar Daði Guðbjörns-
son sýningu í Gallerí RV, Réttarhálsi 2.
Daði hefur tekið þátt í fjölda samsýninga,
bæði hérlendis og erlendis. Sýning Daða
er nú 12. einkasýning hans. Á sýningunni
eru aðallega olíumyndir en eirrnig nokk-
uð af grafikmyndum. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 8-17. Henni lýkur 23.
febrúar.
Listkynning á Akureyri
Menningarsamtök Norðlendinga og Al-
þýðubankinn hf. kynna að þessu sinni
listakonuna Rut Hansen. Á kynningunni
eru 9 málverk, unnin með ohu á striga,
og eru 2 verkanna frá 1985 en önnur frá
árinu 1989. Kynningin er í útibúi Al-
þýðubankans hf. á Akureyri, Skipagötu
13, og er opin á afgreiðslutíma. Síðasti
sýningardagur er í dag, 2. febrúar.
Toyota LandCruiser, dísil, árg. 1988, ekinn 43.000
km, hvítur, upphækkaður, 33" dekk + aukadekk á
felgum.
BÍUSALU SKEUM HI.
Skeifunni 11, Rvk.
Sfmi 689555 (4 línur)