Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990.
5
Kvikmyiida í Köln:
Gera heimild-
arniynd um
Jóhanna Sigþóiad., DV, V-Þýskalandi:
Nú standa yör í Köln í Vestur-
Þýskalandi tökur á íslenskri
kvikmynd um tónskáldiö Atla
Heimi Sveinsson sem stundaöi á
sínum tíma nám í Köln. Ásamt
Atla Heimi eru þar nú staddir
Baldur Hrafnkell Jónsson, fram-
leiðandi og stjómandi kvikmynd-
arinnar, og Guðmundur Emils-
son, tónlistarstjóri Rikisútvarps-
ins.
Samstarfí þeirra Baldurs
Hrafnkels og Guðmundar er
þannig háttað að sá síðarnefndi
er Baldri til aðstoðar um tónlist- :
arlega hiið málsins. Kom ríkis-;
sjónvarpið til samvinnu við Bald-
ur á síðustu stigum myndarimv
ar. Hann hefur verið aö fást við
þetta verkefni síðastiiðin þijú ár.
Áætlað er að myndin verði sýnd
í ríkissjónvarpinu í apríl; næst-
komandi og verður hún um 30
mínútna löng.
„í svo stuttri mynd er enginn
vegur að lýsa ferli Atla Heimis liö
fyrir lið,“ sagði Baldur Ifrafnkell
í samtali við tréttaritara DV. „Ég
ætla á hinn bóginn að kynna tón-
skáldið Atla Heimi og það sem
hann er að fást við. Það er ógern-
ingur að taka nema brot af ferli
hans. Tii dæmis sleppum við allri
leikhústónlist Atia. Þetta verður
eins konar kvikmyndalegt „port-
rett“ af listamanninum."
. Ekki kvaöst Baldur Hrafnkell
geta tjáð sig um kostnaðinn við
gerð slíkrar myndar þar sem
verkinu væri ekki lokið og engar
heildartölur lægju fyrir,
Eför að hafadvalið tvo daga við
tökur í Köln heldur hópurinn til
Parísar þar sem Atli Heimir dvel-
ur um þessar mundir við tón-
smiðar. Þar verður lokiö við töku
myndarinnar.
Embætti húsameistara:
Að sögn Steingrims Hermanns-
sonar forsætisráðherra getur vel
komið fil greina að leggja niður
embætti húsameistara ríkisins.
Það yrði þó að skoöa í tengslum
við aðrar breytingar varðandi
framkvæmdir ríkisins.
Þetta kom fram þegar forsætis-
ráðherra svaraði fyrirspum frá
Guðna Ágústssyni um reglur þær
er giltu um heimildir til húsam-
eistara til að sinna fyrir einkaað-
ila sams konar störfum og hann
er ráöinn til hjá liinu opinbera.
Sagði Guöni að tnistök væru al-
geng hjá embætti húsameistara
og þar færu kostnaðaráætlanir
iðulega úr bðndunum.
Forsætisráðherra sagði að eng-
ar sórstakar reglur giltu fyrir
húsameistara um einkastörf
hans. Þar gilti það sama og með
aðra opinbera starfsmenn sem
verða að gera ráðuneytunum
grein fyrir sínum störfutn fyrir
utan opinberar starfsskyldur.
Sagöi forsætisráðherra aö Garðar
Halldórsson húsameistari heföi
gremt honum frá öllum þeim
störfum sem hann hefði verið
beöinn um.
-SMJ
Fréttir
Reglugerð um brunavamir brotin 1 Borgarleikhúsinu:
Sætaraðir eru lengri en
krafist er í reglugerð
- „heildaröryggi“ hússins á að vera í lagi
Stóri salurinn í Borgarleikhúsinu stenst ekki reglugerð um
brunavarnir. Sætaraðir eru lengri en vera skal.
Stóri salurinn í Borgarleikhúsinu
nýja stenst ekki kröfur sem gerðar
eru í reglugerð um brunavarnir í
opnum sölum af þessari gerð. í reglu-
gerðinni segir að aðeins skuli vera
24 sæti í hverri sætaröð en ef þau eru
fleiri á að skipta röðinni með gangi.
Lengstu sætaraðir í Borgarleikhús-
inu eru með 36 sætum. Allar raðirnar
eru með fleiri en 24 sætum.
Allt frá því hönnun hússins hófst
var gert ráð fyrir lengri sætaröðum
en reglur kveða á um og við lokafrá-
gang hússins voru nokkrar sætarað-
ir lengdar enn.
Upphaflega var þetta frávik frá
reglunum samþykkt árið 1975 af
Bárði Daníelssyni, þáverandi bruna-
málastjóra. Þegar húsið var tekið í
notkun var þetta frávik enn sam-
þykkt en endanleg brunaúttekt á
leikhúsinu hefur ekki verið gerð.
Guðmundur Gunarsson hjá Bruna-
málastofriun sagði í samtaii við DV
að reglugerðin tæki af öll tvímæh um
að sæti mættu ekki vera fleiri en 24
í hverri röð. Hins vegar hefði undan-
þágan verið veitt með tilliti til
„heifdaröryggis hússins". Þá er sér-
staklega farið fram á að vel sé gætt
að eftirliti og viðhaldi á brunavama-
kerfupum.
Með heildaröryggi er átt við að
húsið uppfyllir aðrar öryggiskröfur
til hins ýtrasta. Þar kemur einkum
til álita að í húsinu er sjálfvirkt
slökkvikerfi og viðvörunarkerfi.
„Öryggisins í húsinu er svo vel gætt
aö því má hkja við að menn séu
bæði með belti og axlabönd á buxun-
um,“ sagði Guðmundur.
Það eru einkum leikarar sem leggja
áherslu á að sætaraðir í leikhúsinu
séu ekki rofnar með gangvegum. Er
þá hugsað til þess að sætin standa
þéttar og salurinn þarf ekki að vera
eins stór og ella.
-GK
á raftœkjum og eldhúsáhöldum.
AFSLATTUR ALLTAÐ 70%!!
Nokkur dœmi um verð: ~
Einar Farestveit & Co hf.
Borgartúni 28 — S 16995 og 622900
Fullt verð Útsölu verð Þú sparar
BLOMBERG bökunarofn, hvíturmeðgrilli 41.900 29.900 12.000
TOSHIBAörbylgjuofn ER 5740 ásamt töfrapotti Rafmagnsgólfofnar 31.890 4.690 24.600 " 1.900« 7.290 2.790
Töfrapottar fyrir örbylgjuofna 1.490 990 500
Ennfremur alls konar eldavélar, gufugleypar, kæliskápar
og frystiskápar meö 10-20 % afslætti, kaffivélar, brauð-
ristar, pelahitarar, partígrill, hraðsuðukatlar, eldhúsvaskar
og margt fleira með allt að 40 % afslætti. /
• Öll útsfiluverð eru slaðgr. verð.
nw
PETRA krullujárn með hitablæstri.
Fullt verð: 2.190. Útsöluverð: 990.
Þú sparar 1.200.
BLOMBERG 4 hellu eldavél með
klukku. Blástursofn, grill, kjötmælir,
sjálfhreinsibúnaður, hitaskúffa og
margt fleira. Fullt verð: 89.900.
Útsöluverð: 59.900. Þú sparar
30.000.
Athugið að allar gerðir TOSHIBA örbylgjuofna verða seld-
ar með 10% afslætti meðan á útsölunni stendur og að
þeim fylgir öllum frír töfrapottur að auki!
Nú er um að gera að hafa hraðar hendur, því aðeins er um
takmarkað magn að hverri vörutegund að ræða!
BLOMBERG kæliskápur, hvítur. 3
stjörnu frystihólf, vinstri eða hægri
opnun, hæð 85 cm. Fullt verð:
33.900. Útsöluverð: 25.900. Þú
sparar 8.000.