Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1990, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990.
3
Fréttir
Keflavik:
Einar J. Gíslason er aö láta af störfum sem forstöðumaður Hvítasunnusafnaðarins:
Alþýðuílokksfólk í Keflavík
hefur ákveðið að bjóða fram
sömu menn í efstu saatum og sátu
þar í síðustu bæjarstjómarkosn-
ingum. Guðflnnur Sigurvinsson,
bæjarstjóri í Keflavík, sagði að
baýarfulltrúarnir hefðu sagst til-
búnir í prófkjör en (jölmennur
félagsfundur heföi ákveðið aö
uppstillingarnefnd raðaði upp
listanum. Vilji félagsmanna er sá
að hafa sömu menn í efstu sæt-
um. Því er ekki gert ráð fyrir
neinum verulegum breytingum á
lista Alþýðuflokksins.
Við síðustu kosningar vann Al-
þýðuflokkurinn stórsigur, jók
fylgi sitt úr 918 atkvæðum í 1.716.
Bæjarfulltrúum flokksins fjölg-
aði við það úr tveimur í fimm og
við það náði flokkurinn hreinum
meirihluta.
Framsóknarmenn í Kefiavík
hafa ákveðið að hafa opið próf-
kjör. Það verður síðustu helgi í
febrúar eða þá fyrstu í mars.
Sjálístæðismenn í Keflavík hafa
tilkynnt framboð sitt. Á þeirra
lista er Ellert Eiríksson sveitar-
stjóriíefstasæti. -sme
Ráöherrabflamir:
- segir JúIíusSólnes
„Ef skattareglur um þessa bOa
eru eitthvað óljósar verður auð-
vítað að setja ákveðnar reglur um
þá,“ sagði Júlíus Sólneshagstofu-
ráðherraen ríkisskattstjóri hefur
sagt aö ráðherrabílamir verði
skattlagðir sem fríðindi.
„Ég held nú aö þessi ráðherra-
laun séu ekki það há aö nokkur
maður þoli það. Kannski væri
besta leiðin bara að skila öllum
þessum bílum inn,“ sagði Július.
-SMJ
Rækjufram-
leiðendur
Rækjuframleiðendur á ísafiröi,
sem verið hafa með togarann
Hafþór RE á leigu, en hann er i
eigu Hafrannsóknastofnunar,
vilja kaupa skipið og hafa gert
tilboð í það. Tilboðiö kom í lok
síðasta árs en þá hafðí ekki veriö
tekin ákvörðun um að selja skip-
ið. Hún var tekin síðar. Að sögn
Vignis Thoroddsen hjá Hafrann-
sóknastofnun er sala togarans
alfarið í höndum sjávarútvegs-
ráðuneytisins. Þar er aðeins einn
maöur sem getur svarað til um
máliö en hann er erlendis.
Hafþór RE hét áöur Baldur og
var notaður sem varðskip i síð-
asta landhelgisstríðinu. Skipiö
var sett í klössun í Skotlandi í
fyrra og er því í góðu ásigkomu-
lagi nema hvaða spilkerfið er
mjög lélegt. Hefúr skipið verið frá
veiöum nokkrum sinnum vegna
þess og nú er spil skipsins bilað.
Rækjuverksmiðjur á ísafirði
hafa leigt skipið undanfarið sem
fyrr segir. Aðeins einn mánuður
er eftir af leigutimanum. Kauptil-
boð þeirra er á þann veg að alls
óvíst er um hvort þvi verður tek-
iö. -S.dór
Ætlar að tilnefna
eftirmann sinn
„Fjöldamargt ungt fólk í Hvíta-
sunnusöfnuðinum er sáróánægt með
aö Einar J. Gíslason ætii sér að til-
nefna eftirmann sinn án þess að leit-
að verði eftir vilja safnaðarins. Hann
vísar bara í að það sé Guðs vilji að
haga málum svo en við viljum fá að
hafa lýðræðislega kosningu," sagði
heimildarmaður DV úr hópi safnað-
armanna við blaöið.
í kvöld verður fundur í söfnuðin-
um þar sem Einar J. Gíslason, sem
verið hefur forstöðumaður hans frá
árinu 1971, ætlar að tilnefna eftir-
mann sinn. Einar lýsti því yfir á
fundi í haust að hann ætlaði aö segja
af sér sem forstöðumaður og ti.1-
kynna í febrúar hver yrði eftirmað-
urinn. Nú er komið að þeim fundi en
í millitíðinni hefur verið að magnast
í söfnuðinum óánægja með meint
einræði Einars.
„Þetta er eins og verið hefur í
Kremi. Forystan vill ákveða sjálf
hverjir taka við af henni en margir
í söfnuðinum og þá sérstaklega ungt
fólk vfil taka upp lýðræðislegri að-
ferðir og kjósa leynilegri kosningu,"
sagði heimildarmaður DV.
Engar skýrar reglur eru til í Hvíta-
sunnusöfnuðinum um hvernig skuli
velja nýja forystumenn. Á sínum
tíma var Einar J. Gíslason valinn af
forvera sínum og hann hefur sagt að
sama regla skuli gilda áfram. Þegar
DV vildi ræða málið við Einar neit-
aði hann að segja nokkuö um mál-
efm safnaðarins.
Talið er að Einar ætli að tilnefna
Hafliöa Kristjánsson í stöðu for-
stöðumanns á fundinum á morgun.
Hafliði hefur verið forstöðumaður í
forfollum Einars síðustu misseri.
Talið er að Hafliði hafi verulegt fylgi
innan safnaðarins þótt margir fylgis-
menn hans vilji frekar kjósa hann
beinni kosningu en eftir tilnefningu
Einars.
Annar hluti safnaðarins vill kjósa
Garðar Ragnarsson sem nýlega kom
til landsins eftir að hafa veriö for-
stöðumaður Hvítasunnusafnaðar í
Danmörku. Þótt enginn viti með
vissu hve margir í söfnuðinum fylgja
Garðari hefur hann stuðning
margra. Sumir stuðningsmenn Haf-
hða hafa aftur á móti sagt að þeir
gangi úr söfnuðinum verði Garðar
valinn.
„Óánægjan er ekki mest með þessa
menn heldur með Einar sem enn vill
ráða öllu þótt hann hafi misst tiltrú
safnaðarins. Söfnuðinum helst ekki
lengur á fólki, kirkjan er hálftóm
enda má ekki einu sinni klappa við
messur. Einar mun tilnefna á fundin-
um en það kemur svo í ljós á hvort
einhver þorir að malda í móinn.
Hann er gamli leiðtoginn sem menn
hafa verið taldir óguðlegir fyrir að
rísa upp gegn,“ sagði heimildarmað-
urinn. -GK
Sauðárkrókur:
Gamla flug-
stöðin flutt
ÞórhaDur Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
Gamla „flugstöðin“ á Alexanders-
flugvelii hefur öðlast nýtt hlutverk,
það er að vera afdrep skíðafólks í
skíðaparadís Sauðárkróksbúa í landi
Heiöar á Laxárdalsheiði. Hvað skúr-
inn verður þar lengi er óvíst þar sem
sífellt er í athugun hvar framtíðar-
skíðasvæöi Sauðkrækinga verður.
Á dögimum voru félagar í skíða-
deild Tindastóls ásamt starfsmönn-
um Sauðárkróksbæjar og stórvirk-
um vinnuvélum að koma skúrnum
fyrir. Meiningin er síðan að ganga
vel frá honum á næsta sumri, setja
t.d. í hann rafmagnskyndingu.
Veður var hið besta efra flutnings-
daginn og talsverð umferð, enda ný-
búið að moka Laxárdalsheiði.
„Flugstöðinni“ komið fyrir á vörubíl.
DV-mynd Þórhallur
sting sem skuar ser
ánægju og endursölu
3ja ára ábyrgð
i 11*1*11 11*11 BW|ÍlS(
1 iLvufll IJlf11 PJ á f ml il 111
B 1 |L A|S| |N| m m |G L| m íul iGlAl m ÍDlAÍGi öl [G Sf m m m El m IÁÍGI Ð m 1-1 |17i