Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1990, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1990, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990. Utlönd Bandaríkjamönnum rænt Byssubátur á eftirlitsferö fyrir (raman húsið í Kólumbfu þar sem (opp- fundur um eituriyf jamál hefst á morgun. simamynd Reuter Vínstrí sinnaðir skæruliðar rændu tveimur bandarískum borgurum í Medellin í Kólumbíu í gær og efnt var til mótmælaaðgerða víðsvegar í Bogota um leið og undirbúningur fyrir toppfund um eiturlyfjamál stóð sem hæst. Fundinn, sem hefst á morgun, mun George Bush Bandaríkjafor- seti sitja auk forseta Kólumbíu, Bolivíu og Perú. í ríkisútvarpinu í Kólumbíu var greint frá því í gærkvöldi að öörum Bandaríkjamanninum hefði verið sleppt og að hinum yrði sleppt innan fárra klukkustunda. Báðir Bandaríkjamennirnir höíðu búið lengi í Me- dellin. Sendiherra Bandaríkjanna kvað litla hættu því samfara fyrir Banda- ríkjaforseta að fljúga til Cartagena til fundar við hina forsetana þrjá og arí þar heldur en á götu í New York. Barist í Hong Kong Lögreglan í Hong Kong beitti í gær táragasi til aö bæla niður óeirðir í í flóttamannabúðum Víetnama. Um þtjú hundruð flóttamenn börðust innbyrðis með heimatilbúnum vopnum. Tuttugu og sjö manns eru sagöir hafa særst, þar af sautján Víetnamar, áður en lögreglu tókst að koma ró á eftir þriggja klukkustunda bardaga. Skömmu eftir dögun í morgun, er lögregla og starfsmenn flóttamanna- búðanna voru enn að leita vopna, brutust út átök milli um sjötíu Víet- nama. í þeim átökum særðust nitján manns. 100 þúsund hylltu Mandela Nelson Mandeia ásamt Winnie konu sinni að lokinni ræðu sinni í Soweto í gær. Simamynd Reuter „Lifi Mandela“, „Viö elskum þig, afi" hrópuðu hundraö þúsund stuðningsmenn blökkumannaleið- togans aldna á knattspyrnuvelli í Soweto í gær þar sem efnt hafði verið tfl hátíöahalda í tflefni heim- komu Mandela. í ávarpi sínu til mannfjöldans í gær hvatti Nelson Mandela til agaðrar og hógværrar baráttu tfl að binda enda á kyn- þáttaaöskilnaðarstefhuna. Hann hvatti blökkumenn til að snúa sér aftur aö námi og bætti við að binda þyrfti enda á ofbeldi í út- hverfum borganna. Mandela for- dæmdi einnig átök þau sem brotist hafa út víða um landið eftir að hann var látinn laus. Walter Sisulu, einn leiðtoga Af- ríska þjóðarráösins, kvaðst í gær búast viö því að ráöið myndi bráð- sbnamynd Reuter lega hefja viðræður við suöur-afrísk yfirvöld. Heimfldarmenn Afriska þjóðarráösins sögöu í gær aö framkvæmdanefnd þess myndi funda í dag og á morgun um umbætur þær sem de Klerk, forseti Suður-Afríku, heföi boöaö. Mannræníngjar handieknir . Þrír vopnaðír ungir menn voru handteknir í Kanada í gær eftir að hafa tekið ellefu menntaskólanema, sem voru á ferð í skólabíl, í gíslingu. Eftir samningaviðræður viö mannræningjana útvegaði lögreglan þeim bíl og leyfði þeim aö hafa einn gisl með sér en hann var tahnn vera vin- ur eins mannræningjanna. Þremenningamir ókur norður frá Prince George og á hliðarveg þar sem þeir voru umkringdir og handteknir. Engan námsmann sakaði við at- burðinn. Mandela boðinn velkominn heim. Samningaviðræður um fækkun hefðbundinna vopna: Samkomulag um fjölda hermanna Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, James Baker og Edu- ard Sévardnadze. Símamynd Reuter Utanríkisráðherrar Vesturs og Austurs tilkynntu í gær að langþráð samkomulag um fækkun hermanna stórveldanna í Evrópu hefði loksins náðst og segja fréttaskýrendur aö með þessu hafi líkumar aukist á að samningur um fækkun hefðbund- inna vopna í Evrópu, svokallaður CFE-samningur, náist á þessu ári. Samkvæmt samkomulaginu er Bandaríkjamönnum heimflt að hafa þijátíu þúsund fleiri hermenn í Evr- ópu en Sovétmönnum. Þetta þýðir að Gorbatsjov Sovétforseti hefur gef- ið verulega eftir í afstöðu þjóðar sinnar tfl fækkunar hefðbundinna vopna. Þá er htið á þetta samkomu- lag sem persónulegan sigur fyrir Bush Bandaríkjaforseta. Samkomulagið endurspeglar tfl- lögur sem Bandaríkjaforseti lagöi fram fyrir tveimur vikum og fela í sér að hvort stórveldi fyrir sig hafi eigi fleiri en 195 þúsund hermenn í Mið-Evrópu en að Bandaríkjastjórn væri heimflt að hafa aukalega þrjátíu þúsimd hermenn utan Mið-Evrópu, þ.e. í Bretlandi, Ítalíu, Grikklandi og Tyrklandi. í fyrstu hafnaði Sovét- forseti þessum tfllögum, vildi jafn- ræði og lagði tfl aö hvort stórveldi fyrir sig hefði annað hvort ekki fleiri en 195 þúsund hermenn í ríkjum Evrópu utan Sovétríkjanna eða þá 225 þúsund. Með tfllögum sínum vís- aði Sovétforseti á bug hugmyndum um að Bandaríkin heföu þijátíu þús- und hermanna aukalið. Nú virðist sem Gorbatsjov hafi fallist á að há- mark fyrir hvort stórveldi fyrir sig verði 195 þúsund hermenn í Mið- Evrópu auk þess sem Bandaríkin megi hafa þrjátíu þúsund hermenn í löndum utan Mið-Evrópu. Samkomulag um fækkun hefð- bundinna vopna, CFE-samningur, myndi breyta hernaöarstöðunni í Evrópu en þar ríkir ójafnvægi mflh Austurs og Vesturs bæði hvað varð- ar fjölda hermanna og stríðstóla. Talið er að Moskva þurfi að kalla tfl baka aflt að 405 þúsund hermenn frá Miö-Evrópu samkvæmt skilmálum slíks samnings en fulltrúar Varsjár- bandalagsins og Atlantshafsbanda- lagsins vonast tfl aö hann náist á þessu ári. Bandaríkin'hafa nú 305 þúsund hermenn í Evrópu. Fulltrúar banda- rískra stjómvalda hafa sagt að þau þyrftu fleiri hermenn í Evrópu en Sovétríkin vegna þess að kæmi tfl ófriðar væru Bandaríkin verr stödd en Sovétríkin, þyrftu að senda liðs- auka þvert yfir Atlantshafið. Það var utanríkisráðherra Kanada, Joe Clark, sem tflkynnti um sam- kpmulagið í gær en utanríkisráð- herrar Varsjárbandalagsins og Atl- antshafsbandalagsins funda nú í Ottawa í Kanada um svokallaða „opna lofthelgi". „Samkomulagið um fjölda hermanna ryður úr vegi einni af helstu hindrunum fyrir samkomu- lagi um fækkun heföbundinna vopna,“ sagði Clark. Reuter Sex þjóða nefnd sett á laggirnar Á ráðstefnunni um opna lofthelgi í Ottawa sátu m.a., frá vinstri: utanríkisráð- herra Sovétríkjanna, Eduard Sévardnadze, bandaríski utanríkisráðherrann, James Baker, Hans-Oietrich Genscher, utanrikisráðherra Vestur-Þýska- lands, Roland Dumas, franski utanrikisráðherrann, Douglas Hurd, utanrikis- ráðherra Bretlands og austur-þýski utanríkisráðherrann, Oskar Fischer. Símamynd Reuter Samkomulag hefur náðst um að sett verði á laggimar sex þjóða nefnd fulltrúa fjórveldanna, sigurvegar- smna frá síðari heimsstyrjöldinni, og fulltrúa þýsku ríkjanna til að hafa yfirumsjón með sameiningu Austur- og Vestur-Þýskalands. í yfirlýsingu, sem gefin var út í Ottawa, segir aö fjórveldin, þ.e. Bandaríkin, Frakk- land, Sovétríkin og Bretland, auk Austur- og Vestur-Þýskalands, muni fjalla einkum um hvemig leysa beri öryggisvandamál sem upp kunna að koma við sameiningu þýsku ríkj- anna. í Ottawa sátu utanríkisráð- herrar tuttugu og þriggja þjóða Atl- antshafsbandalagsins og Varsjár- bandalagsins á fundi um opna loft- helgi aðildarríkjanna, svokaflaða „open skies“ hugmynd. Að því er skýrt var frá í gær náðist í grundvall- aratriðum samkomulag um opna lofthelgi aðfldarríkjanna en ákveðið hefur verið að unnið veröi að form- legu samkomulagi á næstu tveimur vikum. Fulltrúar aðfldarríkjanna munu því funda áfram í Ottawa í að minnsta kosti hálfan mánuð. í yfirlýsingunni um þýsku ríkin í gær sagði að viðræður ríkjanna sex - en utanríkisráðherrar þeirra fund- uðu um Þýskaland í gær - mundu hefjast fljótlega. Hugmyndir um sameinað Þýskaland voru efst á baugi á fundi ráðherranna í Ottawa. Bandaríkin og bandalagsríki þeirra í Nato vflja að sameinað Þýskaland verði aðih að Atlantshafsbandalag- inu en Sovétríkin kjósa frekar að þaö verði hlutlaust. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.