Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1990, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1990, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990. Spumingin Hafa ráðherrar of há laun? Þórhallur Arason skrifstofumaður: Ég hugsa að þeir vinni fyrir sínum launum. Ingi Þór Ólafsson verslunarmaður: Mér finnst að þeirra markmið ætti að vera aö draga saman eins og við hin. Heiðdis Hermannsdóttir, vinnur á sólbaðsstofu: Nei, ég held að þeir haíl mjög sanngjörn laun miðað við vinnu. Sigurður Grétarsson skrifstofumað- ur: Þegar allar sporslur eru teknar með eru launin of há. Sigurður Vilhjálmsson verslunar- maður: Ég veit ekki hvað þeir hafa en miðað við vinnu eru þeir ábyggi- lega vel borgaðir. Sigríður Haraldsdóttir landfræðing- ur: Nei, ætli það. Ég vona að þeir vinni fyrir þeim. Lesendur Kaupmáttur og meðaltekjur Einar Árnason skrifar: Nú er lokið við að gera einhveija þá skynsamlegustu kjarasamninga sem ég man eftir aö gerðir hafi verið hér á landi á síðari tímum. Stéttarfé- lögin eru hvert á fætur öðru að sam- þykkja samningana sem félagsmenn þeirra gera sér grein fyrir að verða að halda hvað sem á dynur. - En það verður einnig að vera gagnkvæmt og er ekki síður mikilvægt að allir þeir sem sátu vinnuveitendamegin við samningsborðið skilji það. Það er t.d. mjög á valdi kaup- manna, hvernig úr þessum kjara- samningum spilast fyrir launamenn. Það er ekki sama hvort fólk verður vart við að nauðsynjavörur hækka skyndOega og fer þá að leggja inn kvartanir til Verðlagsstofnunar og kæra viðkomandi verslun - eða hvort fólk fmnur að vöruverð stend- ur í stað frá því sem það var viö undirskrift kjarasamninga. Þetta getur og mun spila mjög inn í það hvort kjarasamningar halda eða ekki. Þannig er einnig að sjálfsögðu um aðrar hækkanir eða stöðugleika verðlags hjá hinu opinbera. Kaupmáttur hefur farið mjög lækkandi hjá almenningi frá því fyr- ir ári svo ekki sé nú tekið mið af lengri tíma. Verður þá líka aö taka mið af þeim krónum sem eftir eru þegar búið er að draga frá skatta og önnur gjöld til hins opinbera. Meðal- tekjur eru nú með því lægsta sem hefur veriö í landinu um lengri tíma. Það er því nauðsynlegast af öllu að verðlagi verði haldið íostu eins og laununum, gengisskráningu veröi ekki breytt vegna þrýstings einnar eða annarrar atvinnugreinar og með þessu verði gaumgæfilega fylgst og um það birt yfirlit mánaðarlega svo .að fólk geti treyst því að allt fari fram eins og ætlað var. Einn er þó sá hlutur sem ráðamenn verða að gera upp við sig og það er hvort ekki sé kominn tími til að skera niður allar tölur einu sinni enn með því að taka tvö núll aftan af krón- unni, svona til samræmis við verð- bólguna sem ætti að vera komin nið- ur undir eða jafnvel undir 10%-in síðla hausts. - Það ætti að vera eðli- leg framkvæmd að gera þessa tilraun samhliða lækkandi verðbólgu. Nema bíða eigi þar til við tengjumst mynt- kerfi Evrópuþjóðanna sem hlýtur að gerast samhliða öðrum þeim samn- ingum sem við hyggjumst gera við þær þjóðir. „Kaupmáttur hefur farið mjög lækkandi hjá almenningi frá því fyrir ári,“ segir m.a. í bréfinu. Veitingahöllin á lágu nótunum: Á réttri leið árshátið Steinunn Hlynsdóttir skrifar: Vegna mikillar umræðu meðal sjúklinga Grensásdeildar Borg- arspítalans hefur nú verið ákveð- ið að halda árshátið og stofna styrktarsjóð og félag um leið. Til- gangur félagsins verður fyrst og fremst aö hafa vakandi auga meö öllu því sem hægt er að bæta úr og svo því sem vantar á stofnun- ina. Árshátíðin verður í endaðan mars en okkur er vandi á hönd- um. Við viljum að sjálfsögðu ná til fyrrverandí sjúklinga sem hafa dvalið á Grensási til endurhæf- ingar og jafnvel gesta þeirra. - Allir eru velkomnir. - Þeir sem hafa áhuga eru beðnir að koma nú við á Grensási sem fyrst eða skrá sig í síraa 91-673221 til þess að hægt sé að velja góðan sal, miðað við fjölda gesta. - Komura nú saman og hittum gamla félaga og skemmtum okkur vel. Auglýst veröur í raðauglýsing- um Mbl. og DV þann 15. mars og þá sagt nánar frá hvenær árs- hátíðin verður og hvar miðasala fer fram. Þeir sem vilja einung- is gerast félagar hafi einnig sam- band. Hringið í síma rnilli kl. 14 og 16 eða skrifið ATH.; Nafn og sími verður að fylgja bréfum. Þ.B.S. skrifar: Það hefur varla verið gerlegt fyrir venjulegt fjölskyldufólk að fara út saman til aö borða, svona til upplyft- ingar af og til, vegna þess hve verð- lag er hátt á matsölustöðum. Og þarf ekki þá dýrustu til. Sem dæmi má nefna að hálfur kjúklingur með frönskum kartöflum, salati og sósu kostar um eða yfir 900 krónur á skyndibitastöðum og 'A úr kjúklingi með kartöflum, salati og sósu kostar rúmar 600 krónur. - Þetta veit ég fyrir víst því ég hefi nýlega kannað máiið. Mér var því kærkomið að lesa aug- lýsingu þess efnis frá Veitingahöll- inni um að þar á bæ væri verið að taka mið af kjarasamningum og bjóða fólki ódýrari máltíðir en áður var. - Þarna var auglýst þríréttuð máltíð (súpa, aðalréttur og eftirrétt- ur) frá kr. 610 upp í kr. 1.010 en þá var líka um að ræða lambalundir Ökumaður skrifar: Ég vil taka undir með þeim sem hafa verið að skrifa um auglýsinga- bruðl Bifreiðaskoðunar íslands sem er að hvetja fólk til að koma með bíla sína til skoðunar. Er einvher þörf á því að auglýsa og auglýsa núna sérstaklega? Og hvers vegna auglýsa þeir þá ekki verðið líka? - Nú vita fæstir að greiða þarf aukalega meng- unarmælingu svokallaða, þannig að verðið fyrir skoðunina er samtals kr. 2.700. meö bernaissósu í aðalrétt. Ég fór eftir auglýsingunni sl. sunnudag ásamt fleirum úr íjöl- skyldunni og þetta reyndist allt eins og auglýst var og þarna borðaði mað- ur í hreinu og þægilegu umhverfi þessar þríréttuðu máltíðir, eftir vali hvers og eins - í stað þess að greiða rúmar 900 krónur fyrir kjúklinginn einan á skyndibitastað. Mér frnnst að nú sé sannarlega komið að skyndibitastöðunum að lækka sitt verð talsvert. Það er ekki lengur hægt að bjóða fólki skyndi- máltíðir eins og fisk eða kjúklinga fyrir sama verð og verið er að bjóða þríréttaðar máltíðir aiinars staðar. - Álagningin á máltíðir á skyndibita- stöðum hefur verið óhemju há miðað við hvað tíðkast erlendis þar sem laun eru þó mun hærri en hér. Von- andi er þetta að breytast til hins betra. Þökk sem þeim sem ganga á undan með góðu fordæmi. Eg myndi vilja fá sérstakar skýr- ingar frá Bifreiðaeftirlitinu á því hvers vegna verið er að skikka öku- menn til að láta mæla mengunar- magn í útblæstri hér í Reykjavík en ekki úti á landi. - Einnig væri fróð- legt að fá umræðu frá fólki um þessa stofnun, Bifreiöaskoðun íslands, sem virðist vera að fara út fyrir þann ramma sem stofnuninni er settur með því að skikka fólk til að greiða fyrir mengunarmælinguna. Bifreiðaskoðun og auglýsingar Er nýjabrumið i símatækninni ekki enn liðið hjá? Símasinnuð þjóð Ingi skrifar: Maður gæti haldið að síminn hefði haldið innreið sína til landsins á allra síðustu árum og nýjabrumið væri ekki farið af ennþá. Auglýsingar sem gengið hafa í fjölmiðlum um farsíma, ný símtæki og hvaðeina sem tengist símatækninni bera með sér einstak- lega litla skynsemi að mínu mati. - Mér finnst eins og verið sé að höfða til gamalla unglinga sem finnst vera eitthvert sport i því að láta kalla sig upp gegnum síma hvar sem þeir eru staddir. Það er eins og auglýsendur haldi að fólki nú á dögum finnist það eins og himnasending að geta látið „ná í sig“ hvar sem er eða að þeir geti hringt um borg og bí ef þeim býður svo við að horfa! Þetta er liðin tíð og ég held að fiestum finnist það ein- mitt vera hin mesta plága að þurfa að gegna símtali á öðrum tímum en bráðnauðsynlegt er vegna vinnu eða neyðarþjónustu. Á dögum hraða og spennu eins og þeirrar sem hér hefur fest rætur (og er gjörólík þeirri sem annars staðar • þekkist) er það hverjum manni mik- ill léttir að vera laus við síma og kalltækjatækni þá sem hér er orðin iandlæg og ofnotuð á flestum vinnu- stöðum landsins. - Það eru því áreið- anlega fáir sem finnst mikið til um frekari ágang að loknum vinnudegi og vilja sem minnst vita um farsíma og kalltækjanáttúru þá sem nú virð- ist eiga að endurvekja hjá þjóðinni, til viðbótar því sem fyrir er hjá svo símasinnaðri þjóð sem við íslending- ar erum. Bamavemdamefndir: Lögum þarf að breyta Einar Ingvi Magnússon skrifar: Að morgni þess dags er bréf þetta er ritað (8. febr. sl.) fékk bréfritari ánægjulega símhringingu. í síman- um var kona sem hafði fengið síma- númer hans hjá DV, eftir að hafa les- ið grein sem hann skrifaði fyrir skömmu um mannréttindi og að- gerðir barnavemdarnefndar. Konan tjáöi bréfritara aö stofnaður hefði verið félagsskapur fólks sem barnaverndamefnd hefði tekið böm- in af. í samtali bréfritara við konuna kom fram að tilfellin, sem hún vissi um, skiptu hundruðum. Fólk stæði varnarlaust gagnvart aðgerðum barnavemdarráðs og þeim lögum, sem heimila ráðinu að taka börn af foreldrum. Lögum þessum þarf að breyta, að áliti bréfritara, viðmælanda hans í símanum og fjölda annarra foreldra. Foreldrum er ekki gefið nóg ráðrúm, ef þeir á annað borö fá það. - Börnin eru okkur dýrmæt og ef foreldrar eiga í tímabundnum erfiöleikúm þarf að vera til barnahjálp og hópar sem aðstoða og hjálpa en ekki einráðar barnaverndamefndir sem dæma börn af hjónum og einstaklingum svo hundruðum skiptir miskunnarlaust - undir yfirskini mannúðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.