Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1990, Page 17
16
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990.
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990.
17
Iþróttir
Iþróttir
Sportstúfar
Hysen með óvenju-
legt áhugamál
Gunnax Gurmarsson, DV, Svlþjóð:
Ægir Már Kárascai, DV, Suðumesjum:
Jón Kr. Gíslasonkörfuknattleiks-
maður var á fóstudaginn útnefndur
íþróttamaöur Suðumesja 1989 eins
og fram hefur komið í DV. Um leiö
var hann kjörinn körfuknattleiks-
maður Suðurnesja og jafnframt
þjálfari ársins á Suðumesjum.
Onnur í kjörinu varð Karen Sæv-
arsdóttir, golfkona úr GS, og þriöji
Sigurður H. Bergmann, júdómaöur
úr Grindavík. Þau vom að sjálf-
sögðu útnefnd best í sínum íþrótta-
greinum. Besti knattspyraumaður-
inn var kjörinn Grétar Einarsson
úr Víðj, besti handknattleiksmaö-
urinn Ólafur Thordersen úr Njarð-
vík, besti fimleikamaðurinn Jane
Petra Gunnarsdóttir úr ÍBK, besti
ftjálsíþróttamaöurinn Már Her-
mannsson, ÍBK, besti sundmaður-
inn Eðvarð Þór Eðvarðsson úr
Njarövík, besti hestamaðurinn
Þóra Brynjarsdóttir og besti
skotmaðurinn Theodór Kjartans-
son.
Heiðursmerki afhent
Við sama tækifæri fengu Finnbogi
Björnsson úr Garði, Marel Andrés-
son úr Sandgerði og Gunnar Þórar-
insson úr Njarðvík aflient silfur-
merki Knattspymusambands ís-
lands. Bogi Þorsteinsson hlaut
heiðurskross ÍSÍ, æðsta heiðurs-
merki sambandsins. Þá fengu Ingi
Gunnarsson og Sigurður Steind-
órsson gullmerki ISÍ, og Hilrnar
Hafsteinsson gullmerki KKÍ.
Starfsmerki KKI fengu Jón Jó-
hannsson, Sigurður Valgeirs-
son, Helgi Hólm og Stefan Bjarka-
son.
Glenn Hysen, sænski
knattspyrnumaöurinn
sem leikur með enska
toppliðinu Liverpóol, á
sér óvenjulegt áhugamál. Hans
uppáhalds tórastundaiðja er nefni-
lega aö gera símaat!
Hysen gerði hressilegt at í þekkt-
um sænskum dægurlagasöngvara
fyrir skömmu - hringdi í hann og
fór þess á leit að hann myndi koma
fram í hófi sem haldiö væri til heíð-
urs markveröinum kunna, Pat
Jennings, í Albert Hall í Lond-
on.
Söngvari þessi gerði einu sinni
frægt lag sem hét „Jenny, Jenny“,
og Hysen bað hann að breyta text-
anum í „Jennings, Jennings!“
Söngvarinn tók mjög vel í þessa
málaleitan og hefur væntanlega
orðið bilt við daginn eftir, þegar
Hysen hringdi aftur í hann og baðst
afsökunar en þann hátt hefur hann
jafnan á gagnvart þeim sem hann
brekkir.
Fimleikamót
framundan
Þrjú stór fimleíkamót
eru framundan í þessum
máhuði. Það fyrsta er
unglingamót í áhalda-
fimleikum seni fram fer í iþrótta-
húsinu Digranesi á laugardaginn.
Þar er reiknað meö miklum fjölda
þátttakenda. Daginn eftir veröur
meistaramót í fimleikastiganum
haldið í húsi Gerplu i Kópavogi en
þar var ný og glæsileg fimleika-
gryfia tekin í notkun fyrr í þessum
mánuöi. Á því móti keppa aðeins
þeir sem hafa náð ákveönum stiga-
fiölda. Loks verður Skrúfumótlð
árlega haldið í íþróttahúsinu á Sel-
tjarnarnesi laugardaginn 24. febrú-
Þorbergur skoraði fimm
mörk er Saab tryggði sig
í úrslitakeppni All Svenskan.
• Gunnar Gunnarsson skoraði 7
mörk þegar lið hans Ystad tapaði á
heimavelli Redbergsiid, 22-26.
Þorbergur Aðalsteinsson og félag-
ar hans hjá Saab tryggðu sér sæti í
úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildar-
linnar í handknattleik þegar hðið
sigraði Lugi á útivelli, 22-23, um síð-
ustu helgi. Saab skoraði sigurmarkið
þegar aðeins 6 sekúndur voru til
leiksloka. Þorbergur lék nú á ný eftir
meiðsli sem hafa hrjáð hann og lék
hann mjög vel og skoraöi 5 mörk í
leiknum og var besti maöur Saab í
síðari hálfleik.
Ystad, hð Gunnars Gunnarssonar,
lék á útivelli gegn Redbergslid og
töpuðu, 26-22. Leikurinn var í jám-
um allan tímann, staðan í leikhléi,
12-12, og þegar aðeins 5 mínútur
voru til leiksloka hafði Redbergslid
eins marks forystu, 22-21. Gunnar
átti mjög góðan leik og var marka-
hæstur með 7 mörk.
Þetta var síðasta umferðin fyrir
HM í Tékkóslavakíu því nú hefst
lokaundirbúningur sænska lands-
Ystad lá gegn Redbergslid
liðsins fyrir keppnina. Tvær um-
ferðir eru eftir af deildinni, Red-
bergslid er í efsta sæti með 34 stig,
Drott í öðru með 33 stig og Saab í
þriðja sæti með 27 stig. Þessi þrjú lið
hafa tryggt sér sæti í úrslitakeppn-
inni en hörð barátta er um fiórða
sætið, Irsta og Guif hafa bæði 22 stig
og Ystad hefur hlotið 20 stig. Ystad á
eftir að leika gegn Guif á heimavelli
og í síðsustu umferðinni gegn Drott
áútivelli. -GH/GG
Öruggur sigur IBK
- ÍBK sigraöi Þór, 133-103, í bikarkeppninni í körfu
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Það er ömggt að þeir þurfa að hafa
fyrir því aö slá okkur út úr bikar-
keppninni. Þess má geta að við unn-
um Tindastól með yfir 30 stigum á
heimavelli og því ætti okkur ekki að
takast að vinna Keflavík á heima-
velli okkar?“ sagði Gylfi Kristjáns-
son, liðsfióri Þórsara, eftir að Kefla-
vík sigraði Þór í fyrri leik liðanna í
bikarkeppninni, 133-103, eftir að
staðan í hélfleik haíði verið 59-36.
Jafnræði var með liðunum fyrstu
sjö mínúturnar, síðan kom góöur
kafli Keflvíkinga breyttu stöðunni
úr, 18-17, í, 31-17, og eftir það má
segja á Þórsar hafi ekki náð að ógna
Keflvíkingum.
Bestu menn Keílvíkinga voru þeir
Guðjón Skúlason, Sandy Anderson
og Sigurður Ingimundarson. Hjá Þór
vom bestir Dan Kennard, Konráð
Óskarsson og einnig átti Eiríkur Sig-
urðsson góða spretti í síðari hálfleik
en Þórsliðið virkaöi baráttulaust og
má taka varnarleikinn til athugunar.
Stig ÍBK: Guðjón 36, Anderson 25,
Sigurður 21, Magnús 19, Falur 16,
Albert 7, Einar 5 og Kristinn Ingólfs-
son 5.
Stig Þórs: Kennard 39, Konráð 24,
Guðmundur 12, Jóhann 8, Eiríkur 8,
Jón Örn 8, Björn 2 stig.
• Á árshátíð Blaksambands l'sland var tilkynnt hverjir hetðu orðið hlutskarpastir í kjöri leikmanna á bestu
og elnilegustu ieikmönnum hvorrar deildar og besta dómaranum. Hér að ofan getur að líta þetta góða og
efnilega fólk. Efri röö frá vinstri: Kári Kárason, ÍS, efnilegastur; Oddný Ertendsdóttir, Breiðabliki, best; Þor-
varður Sigfússon, ÍS, beslur; Jóna Lind Sævarsdóttir, efnilegust. Fremst er Björn Guðbjörnsson, besti dómar-
inn. DV-mynd gje
)t
Framarar biðu á dögunum sinn
fyrsta ósigur í 2. deildar keppni
karla í handknattleik. Þeir
sóttu þá Selfyssinga heim og
heimamenn sigruðu, 32-28.
Framarar hafa þegar tryggt sér
sæti í 1. deild.
Þá unnu Haukar mikilvægan
sigur á Þórsurum á Akureyri,
19-22. Ljóst er að Haukar,
Breiðablik og Selfoss slást um
að fylgja Fram 11. deildina.
Ármenningar féllu í 3. deild
þegar þeir töpuðu í Keflavík,
26-21. Loks vann B-lið FH sigur
á B-liði Vals, 26-22. Staðan í 2.
deiid er þessi:
IBK.
.14 12 1 1 354-303 25
„14 8 1 5 356-318 17
„14 8 0 6 312-303 16
„14 8 0 6 341-349 16
„14 7 2 5 335-319 16
„13 7 0 6 312-304 14
„14 5 3 6 331-321 13
.14 5 1 8 305-311 11
.13 3 1 9 296-343 7
l 14 1 1 12 280-351 3
• Héðinn Gilsson var markahæstur i islenska liðinu
gærkvöldi og skoraði 7 stórglæsileg mörk. Hér er hann einbeittur á svip og skömmu siðar hirti rúmenski markmaðurinn knöttinn úr netinu.
DV-mynd Brynjar Gauti
Gult spjald á strákana
- íslendingar nokkuð frá sínu besta og Rúmenar björguðu andlitinu með 23-24 sigri
Islenska landsliðinu í handknatt-
leik tókst ekki að sigra Rúmena í
þriðja og síðasta leik þjóðanna í
Laugardalshöll í gærkvöldi. Rúmen-
ar lögðu nú allt í sölurnar og sigr-
uðu, 23-24, eftir að hafa haft yfir í
leikhléi, 12-16. Já, Rúmenar skoruðu
hvorki fleiri né færri en 16 mörk í
fyrri hálfleik og það var fyrst og
fremst mjög slakur varnarleikur
okkar manna í fyrri hálfleik sem
gerði sigurvonir þeirra að engu í
þessum leik. Allt annað var nú aö sjá
varnarleikinn en í leikjunum tveim-
ur á undan og því fór sem fór. í síð-
ari hálfleik gengu hlutirnir betur fyr-
ir sig og þá tókst Rúmenum aðeins
að skora 8 mörk eða helmingi færri
en í fyrri hálfleik.
Þegar sex mínútur voru til leiks-
loka og staðan 20-24 komu þrjú ís-
lensk mörk og þegar ein mínútu var
eftir höíðu okkar menn knöttinn og
voru aö auki einum leikmanni íleiri.
Þessa stöðu tókst ekki að nýta og
Rúmenar fögnuðu sigri.
Guðmundur og Héðinn
bestir í íslenska liðinu
Ef á heildina er litið virkuðu leik-
menn íslenska hðsins frekar þungir
og þreytulegir og lengi leiks voru
þeir á hælunum í vörninni. Jákvæðir
punktar voru þó nokkrir í leik ís-
lenska liðsins. Um tíma var staðan
ógæfuleg, 15-21, en strákamir gáfust
ekki upp og sýndu mikinn báráttu-
vilja í lokin. Guömundur Hrafnkels-
son átti enn einn stórleikinn í mark-
inu og varði 17 skot. Var ekki við
hann að sakast í fyrri hálfleik er
vörn íslenska liðsins var sem gata-
sigti. Héðinn Gilsson átti líka mjög
góðan leik og sýndi snilldartilþrif í
sókninni. Aðrir voru nokkuð frá sínu
besta. Úrslitin í gærkvöldi ættu að
koma mönnum niður á jörðina og
má segja að okkar menn hafi fengið gula
spjaldið.
• Mörk íslands: Héðinn Gilsson 7,
Júlíus Jónasson 4/3, Kristján Arason
3, Þorgils Óttar Mathiesen 2, Guð-
mundur Guðmundsson 2, Jakob Sig-
urðsson 1, Sigurður Gunnarsson 1,
Valdimar Grímsson 1, Gunnar Bein-
teinsson 1 og Óskar Ármannsson 1.
• Markahæstur í liði Rúmena var
vinstri handar skyttan Robert Lice
með 7 mörk en þeir Stinga og Berbece
skoruðu 4 hvor.
• Dómarar voru þeir Rudinsky og
Mosa frá Tékkóslóvakíu og voru þeir
undarlega slakir. í það minnsta virtist
flautan mosavaxin í höndunum á þeim
í lokin þegar Rúmenar spiluðu á van-
kunnáttu þeirra og töföu leikinn ós-
part án þess að klukkan væri stöðvuð.
-SK
Sagt efftir landsleikinn í gærkvöldi
„Við vorum slakir í fyrri hálfleik en
í þeim síðari náðum við upp góðri bar-
áttu og áttum góða möguleika á að
jafna leikinn,“ sagði Þorgils Óttar
Mathiesen. „Rúmenar voru mjög
ákveðnir og voru greinilega staðráðnir
í að vinna leikinn. Ég er mjög ánægður
með vörnina og markvörsluna í leikj-
unum þremur en við gerðum of marga
feila í sókninni og því verðum við að
kippa í lag,“ sagði Þorgils Óttar.
Leikurinn var mjög góður, þó aðal-
lega í síðari hálfleik hjá íslenska lið-
inu,“ sagði Einar Þorvaröarson.
„Vörnin og markvarslan í leikjunum
gegn Rúmenum er eins og best gerist
og mér sýnist þetta allt vera á réttri
leið,“ sagði Einar.
„Við vorum of seinir í gang í vöm-
inni og það munaði greinilega um Al-
freð í vömina," sagði Héðinn Gilsson,
besti leikmaður íslenska landsliðsins í
gærkvöldi ásamt Guðmundi mark-
verði. Ég er bjartsýnn þrátt fyrir þetta
tap en við þyrftum samt ýmislegt að
lagfæra í sókninni," sagði Héðinn Gils-
son. -GH
Stúfar frá ensku knattspyrnunni
Guirnar Svembjömsson, DV, Englandi:
• Manchester United hefur ekki enn
gefið upp vonina um að krækja í al-
mennilegan framheija. Áhugi United
og reyndar fleiri liða beinist að Steve
Bull, markamaskínu Wolves, en þeir
síðastnefndu eru ekki til viðtals vegna
einnar og hálfrar milljóna punda til-
boðs sem hefur komið frá United.
• Mark Hughes, framheiji Manc-
hester United, er annálaður harðjaxl
og þegar kappinn fékk skurð á höfuðið
í leik gegn Millwall um síöustu helgi
kom ekki til greina að fara af leikvelli.
Hughes var saumaður saman í hálfleik
og skoraði síðan sigurmark United í
síðari hálfleiknum.
• Brighton hefur keypt sovéska
landsliðsmanninn Seirgei Gotsmanov
frá Dynamo Minsk. Gotsmanov hafði
dvalið hjá Brighton í mánuð áður en
kaupin vora gerð en kaupverðið hefur
ekki verið gefið upp.
• Lutek Miklosko, landsliðsmark-
vörður Tékka, leikur sinn fyrsta leik
fyrir West Ham á morgun þegar vara-
lið félagsins sækir Reading heim.
Frank McAvennie, sem fótbrotnaði síð-
asta haust mun sennilega leika sinn
fyrsta leik eftir meiðslin í þesum sama
leik.
• Leikmenn skoska landsliðsins fá
fimm þúsund pund hver ef þeim tekst
að komast áfram eftir riðlakeppnina á
Ítalíu í sumar. Andy Roxborgh, þjálfari
liðsins, segir að ef einhverjir leikmenn
verði óhressir með þessa bónus-
greiðslu, muni hann einfaldlega finna
einhveija aðra í þeirra stað.
• Joe Jordan hefur samþykkt
þriggja ára samning við Bristol City.
Samþykkt Jordans var þó eingöngu
munnleg og kappinn mun því væntan-
lega skrifa undir formlega á næstu
dögum.
• Bobby Robson, landsliöseinvaldur
Englendinga, var á Stamford Bridge á
laugardaginn var og fylgdist grannt
með nokkrum leikmönnum Chelsea og
Tottenham. Meðai þeirra leikmanna,
sem voru undir smásjá Robsons, var
Paul Gascoigne, miðvallarspilari Tott-
enham. Gascoigne ger'ði sjálfum sér þó
lítinn greiða með frammistöðu sinni í
leiknum því fyrir utan slakan leik var
Gascoigne áminntur í 8. skipti á þessu
keppnistímabili og þótti heppinn að fá
ekki rauöa spjaldið.
• Liverpool og Glasgow Rangers eru
nú bæði á höttunum eftir Mark Wright,
varnarmanni Derby County. Wright
sem 26 ára á eftir sjaután mánuði af
samningi sínum við Derby County og
myndi kosta að minnsta kosti tvær
milljónir punda.
• Brian Horton, stjóri Oxford Un-
ited, fór ekki fögrum orðum um lið sitt
eftir tap á heimavelli gegn WBA á
heimavelli á laugardaginn var. Horton
sagði aö frammistaða sinna manna
hefði verið til háborinnar skammar,
hugarfarið hefði ekki verið rétt og
nokkrir leikmenn liðsins væru hrein-
lega lélegir knattspyrnumenn.
• Áhorfendum á leik Everton og
Charlton á dögunum blöskraði svo
blótsyrðin í Nevil Southall, markverði
Everton, að þeir sáu sig tilneydda til
að láta lögregluna skerast í leikinn.
Lögreglan notaði tækifærið í leikhléi
til að vara Southall við frekari blóts-
yrðum en kappinn fékk tiltal fyrir
nokkrum vikum fyrir sams konar
hegðun.
• Jack Charlton, stjóri írska lands-
hðsins, rakar nú inn peninga í kjölfar
árangursins meö írska landsliðið að
undanförnu. Charlton fær allt að fimm
þúsund pund á dag fyrir nokkur viðtöl
og fyrir að reka inn nefið á nokkrum
stööum.
• Alan McLoughlin, miövallarspil-
ari Swindon Town, er á leið í 1. deiid
en þó ekki endilega með Swindon. So-
uthampton, Miilwall og Derby County
hafa öll augastað á McLoughiin.
• Ron Atkinson er ennþá að taka til
hjá Sheffield Wednesday. Um daginn
seldi hann Imre Varadi til Leeds United
og lánaði Steve McCall til Carlisle og
nú bendir allt til þess að Steve Whitt-
on fari suður til Brighton og Deve
Bennett í hina áttina til Sunder-
land.
stúfar
HRúmenar voru í sjö-
unda himni meö ferð
sína hingað til lands
en 19 ár eru síöán
landslið þeirra var á ferö hér á
landisíðast. Forráöamenn liðsins
komu að máh viö menn innan
stjórnar HSÍ og vildu að sam-
skipti þjóðanna í handknattleik
yrðu eíid til muna. Eftir heims-
meistarakeppnina 1 Tékkósló-
vakíu er ætlunin aö setjast niður
og skipuleggja enn frekara sam-
starf á næstu árum.
Heimsókn Búmena .
kostnaðarsöm fyrir HSI
Ferð rúmenska landsliðsins
hingað til lands var mjög kostn-
aðarsöm fyrir HSf. Með liðinu
kom alls 21 einstaklingur og er
talið að heimsókn þeirra hafi
kostað HSÍ eina og hálfa milfjón
króna. Dýrasti liðurinn var flugiö
en HSÍ þurfti að greiða hæsta
verð vegna þess að ilia stóð á flugi
alla leið frá Búkarest til Keflavik-
ur.
islendingum boðið
á mót í Rúmeníu
Rúmenska handknattleikssam-
bandið hefur boðið íslenska
landsliðinu ásterkt sexlanda mót
í nóvember. Mótið yrði þá að öll-
um iíkindnm haldið í höfðuborg
landsins, Búkarest. Hugur erinn-
an HSÍ að taka þessu boði Rúm-
ena
Verslunareigendur
tóku Rúmenum vel
Leikmenn rúmenska landsliösins
fengu kóngaviötökur i versiun-.
um í Reykjavík meðan á dvöl
þeirra stóð hér á landi. Verslun-
areigendur tóku þeim opnum
örmutn og segir sagan að einn
skókaupmaður við iaugaveginn
hafl gefið hverjum leikmanni tíu
skópör. Skóskortur hefur verið
mikið vandamál í Rúmeníu um
margra ára skeið.
Sex sæti lausfrá
Danmörku til Tékkó
Hópur ísiendinga, sem býr í Dan-
mörku og Svíþjóð, ætlar að leggja
leið sína á heimsmeistarakeppn-
ina í handknattleik í Tékkósló-
vakíu. DV sagði frá þessari ferð
á dögunum en sætafiöldi er tak-
markaður við 32. Hópurínn legg-
ur af stað í áætlunarbifreið frá
Kaupmannahöfn 3. marsogverð-
ur komið til Bratislava 5. mars
j>egar keppnin í milliriölunum
hefst og síðan verður fvigst með
úrslitakeppniimi í Prag. Enn eru
sex sæti laus í þessa ferð og eru
þeir sem áhuga hafa að tryggja
sér sæti, bent á að hringja í Viðar
í síma 42-652096 í Kaupmanna-
höfn. Ferðin kostar 28 þúsund
krónur og innifalið er ferðir, gist-
ing og fæði.
HSÍ njósnar
um Kúbumenn?
Mikil leynd hefur verið yfir und-
irbúningi Kúbumanna fyrir
heimsmeistarakeppnina í Tékkó-
slóvakíu. Kúba leikur sem kunn-
ugt er í sama riðli og íslendingar
í keppninni. Nú liefur HSÍ liaft
spurnir af því aö Rúmenar leiki
við Kúbu tvo landsleíki í Rúmen-
iu 23. og 24. febrúar. Kúbumenn
voru síðast á keppnisferðalagi í
Evrópu í fyrra. HSÍ er aö vinna
að því þessa dagana að senda
marrn til Rúmeníu á leikina og
táka þá upp á myndsegulband.
Kúba lék í úrslitakeppni HM í
Sviss 1986 og kom þá geysilega á
óvart meö frammistöði simii og
áttu annan markahæsta ieik-
mami keppninnar.