Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1990, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1990, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990. 27 Afrnæli Jóhamia Kristjónsdóttir Jóhanna Kristjónsdóttir, blaða- maður og rithöfundur, Skáholti, Drafnarstíg 3, Reykjavík, er fimm- tugídag. Jóhanna fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk stúdents- prófi frá MR1959 og stundaöi nám í guðfræði við HÍ1961-64. Jóhanna var blaðamaður við Vik- una 1958-59, stundaði blaða- mennsku og þýðingar á eigin vegum fyrir dagblaðið Tímann 1962-66 og var síðan búsett í Grikklandi 1966-67. Auk náms og blaða- mennsku stundaði Jóhanna smá- barnakennslu 1962-64, var í síldar- vinnu, við afgreiðslustörf, blaðaút- burð og fleira. Hún hefur verið blaðamaður á Morgunblaðinu frá þvííoktóberl967. Jóhanna var formaður Félags ein- stæðra foreldra 1969-79, ritari fé- lagsins 1979-82, formaður þess aftur 1982-87 og formaður húsnefndar fé- lagsinsfrál976. Eftir Jóhönnu hafa komið út skáldsögumar Ást á rauðu ljósi, 1960, Segðu engum, 1963, og Miðam- ir vom þrír, 1967. Þá hefur hún sent frá sér ferðaminningarnar Fíladans og framandi fólk, 1988 og Dulmál dódófuglsins 1989. Þá hefur Jóhanna þýtt bækumar Tunglskinsnætur í Vesturdal, Réttur er settur (ásamt Jökh Jakobssyni), Eyjan (ásamt Dl- uga Jökulssyni), Anna og Kristján. Jóhanna hefur svo skrifað fjölda greina í innlend og erlend tímarit. Jóhanna giftist 31.8.1957, Jökh Jakobssyni rithöfundi, f. 14.9.1933, d. 25.4.1978, syni Þóru Einarsdóttur húsmóður og séra Jakobs Jónsson- ar, rithöfundar og lengst af sóknar- prests við Hallgrímskirkju í Reykja- vík. Jóhanna og Jökull skildu 1969. Börn Jóhönnu og Jökuls em El- ísabet Kristín Jökulsdóttir, f. 16.4. 1958, rithöfundur í Reykjavík, en sambýhsmaður hennar er Ingi Bær- ingsson og eiga þau tvo syni, tvíbur- ana Garp og Jökul, f. 1984, auk þess sem sonur Elísabetar og Guðjóns Kristinssonar er Kristjón Kormák- ur, f. 1976; Illugi Jökulsson, f. 13.4. 1960, blaðamaður og rithöfundur í Reykjavík en sambýhskona hans er Guðrún Snæfríður Gísladóttir og eiga þau eina dóttur, Veru Sóleyju, f. 1989; Hrafn Jökulsson, f. 1.11.1965, blaðamaður og rithöfundur í Reykjavík, í sambýh með Ragnheiði Brynjólfsdóttur, en sonur Hrafns og Elísabetar Ó. Rónaldsdóttur er Þor- steinn Máni, f. 1984. Dóttir Jóhönnu ogHöskulds Skarphéðinssonar skipherra er Kolbrá Höskuldsdóttir, f. 20.10.1971, nemi ogsjómaður. Bróðir Jóhönnu er Bragi Krist- jónsson, f. 17.7.1938, fornbóksah í Reykjavík, kvæntur Nínu Björk Ámadóttur en synir þeirra em Ari Gísh, Valgarður og Ragnar ísleifur. Systir Jóhönnu er Valgerður Krist- jónsdóttir, f. 12.11.1945, bókaútgef- andi í Reykjavík, gift Birni Theó- dórssyni en fósturdóttir þeirra er Kristín Pétursdóttir. Foreldrar Jóhönnu: Kristjón Kristjónsson, f. 8.10.1908, d. 6.1.1984, framkvæmdastjóri í Reykjavík, og kona hans, Ehsabet ísleifsdóttir, f. 18.9.1910, gjaldkeri í Reykjavík. Kristjón var sonur Krist-jóns, b. í Útey í Laugardal, Ásmundssonar, b. á Apavatni efra í Laugardal, Ei- ríkssonar, b. á Gjábakka í Þingvalla- sveit, bróður Jóns, langafa Ólafs Ragnars Grímssonar. Eiríkur var sonur Gríms, b. á Nesjavöhum í Grafningi, Þorleifssonar, b. á Nesja- völlum, ættfoður Nesjavallaættar- innar, Guðmundssonar, b. í Norður- koti í Grímsnesi, Brandssonar, b. á Krossi í Ölfusi, Eysteinssonar, bróð- ur Jóns, föður Guðna í Reykjakoti, ættfóöur Reykjakotsættarinnar, langafa Hahdórs, afa Hahdórs Lax- ness. Guðni var einnig langafi Guðna, langafa Vigdísar Finnboga- dóttur. Móöir Ásmundar var Guðrún Ás- mundsdóttir, b. á Vallá á Kjalar- nesi, Þórhallssonar, og konu hans, Helgu Alexíusdóttur. Móðir Helgu var Helga Jónsdóttir, b. á Fremra-- Hálsi í Kjós, Ámasonar, ættföður Fremra-Hálsættarinnar. Móðir Kristjóns Kristjónssonar var Sigríður ljósmóðir, systir Vig- dísar, ömmu Þorkels Bjarnasonar hrossaræktarráðunautar. Sigríður var dóttir Bergsteins, b. á Torfastöð- um í Fljótshlíð, Vigfússonar, b. á Grund í Skorradal, Gunnarssonar. Móðir Vigfúsar var Kristín Jóns- dóttir, b. á Vindási á Landi, Bjarna- sonar, b. á Víkingslæk, Halldórsson- ar, ættföður Víkingslækjarættar- innar. Móðir Bergsteins var Vigdís Auðunsdóttir, prests á Stóruvöhum, Jóhanna Kristjónsdóttir. Jónssonar, langafa Jóns, foður Auð- ar Auðuns og bróður Amórs, lang- afa Hannibals Valdimarssonar, fóð- ur JónsBaldvins. Móðir Sigriðar var Kristín Þor- steinsdóttir, b. á Norður-Hvoh í Mýrdal, Magnússonar. Móðir Þor- steins var Sigríður Þorsteinsdóttir, systir Bjarna amtmanns, foður Steingríms Thorsteinssonar skálds. Móðir Sigríöar var Kristín Hjartar- dóttir, b. á Norður-Hvoh, Loftsson- ar, bróður Ólafs, langafa Ingigerðar, langömmu Páls, fóður Þorsteins for- sætisráðherra. Elísabet er dóttir ísleifs, kaup- manns og gamanvísnaskálds á Sauðárkróki, bróður Dórótheu, ömmu Elsu Kristjánsdóttur, oddvita í Sandgeröi. ísleifur var sonur Gísla, b. á Ráðagerði í Leiru, Hahdórsson- ar, b. í Skeiðháholti á Skeiðum, Magnússonar. Móðir Halldórs var Guðrún Ámadóttir, prests í Steins- holti, Högnasonar „prestafóður" Sigurðssonar. Móðir ísleifs var Elsa Jónsdóttir, b. í Hvammi undir Eyja- fjöllum, Sveinssonar, ogkonu hans, ðlafar Þórðardóttur, systur Hlað- gerðar, ömmu Jóns Laxdals tón- skálds, afa Ragnars Amalds. Móðir Ehsabetar var Valgerður Jónasdóttir, b. í Keldudal í Hegra- nesi, Halldórssonar og konu hans, Helgu Steinsdóttur, systur Kristín- ar, ömmu Jóns skjalavarðar og Margrétar, deildarstjóra í félags- málaráðuneytinu, Margeirsdóttur. Andlát Kvikmyndir Leidrétting Chris Rea - The Road To Hell Heljarinnar góð plata Chris Rea á nokkuð langan feril að baki sem tónlistarmaður og hefur notið mikilla vinsælda á meginlandi Evrópu um langt árabh. Og þar sem tónhstarfólk af því svæði er lítt þekkt hér á landi er það ekki fyrr en á ahra síðustu ámm að nafn Rea skýtur upp kolhnum hér, eða um líkt leyti og vinsældir hans fara að vaxa verulega í Bretlandi. Svona stjórnar breski markaðurinn því hvað berst hingað til lands frá Evrópu. En betra er seint er aldrei og ég held hka að Chris Rea hafi aldrei ver- ið betri en einmitt nú, það sannar hann og sýnir á þessari plötu, The Road to Hell. Nafn plötunnar virkar vissulega fráhrindandi en það gerir innihaldið aldeilis ekki. Rea leikur það sem kaha mætti mjúkt rokk og minnir að sumu leyti á J.J. Cale en líka á Dire Straits. Rea er líkt og Mark Knopfler góður laga- smiður, gítarleikari og söngvari. Og á þessri plötu tekst honum virkilega vel upp á öllum sviðum, lögin eru hvert ööru betra, gítarleikarinn góður og sem söngvari er hann eink- ar sjarmerandi, með þæghega hása rödd. Chris Rea er greinilega í mikilli sókn og þar held ég aö hann hafi tekið hvað mestum framforum sem lagasmiður. Áður fyrr datt hann riiður á eitt og eitt verulega gott lag. Nú eru lögin jafnari að gæðum og á þessari plötu að minnsta kosti öh í hæstu gæðaflokkum. -SþS- Föðurnafn fegurðardrottningar Suðurlands misritaðist í frétt blaös- ins á mánudag. Eyjadísin sem sigraði heitir Dís Sigurgeirsdóttir og er eitt af fjórum börnum Katrínar Magnús- dóttur og Sigurgeirs Jónssonar sem bæði eru kennarar í Vestmannaeyj- um. Eiríkur Loftsson lést í St. Jósefsspít- ala í Hafnarfirði 2. febrúar. Bálfór hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ása Theodórs andaðist í hjúkrunar- heimihnu Droplaugarstöðum þriðju- daginn 13. febrúar. Unnur Guðjónsdóttir, Bárugötu 14, Reykjavík, lést í Landspítalanum 12. febrúar. Jarðarfarir Minningarathöfn um Guðjón Ingva Gíslason, sem lést af slysförum 17. nóvember, fer fram frá Akranes- kirkju fóstudaginn 16. febrúar kl. 14.00. Kristrún Bernhöft verður jarðsungin fimmtudaginn 15. febrúar kl. 15.00 frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Einar Benedikt Ólafsson sjávarlíf- fræðingur, Lundi, Svíþjóð, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, miðvikudaginn 14. febrúar, kl. 15.00. Kristján Theodórsson frá Húsavík, til heimhis á Dalbraut 18, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarö- arkirkju fimmtudaginn 15. febrúar kl. 15.00. Útfór Helgu Þórðardóttur fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 15. febrúar kl. 14.00. Tilkyrmingar Skógræktarfélag Reykjavíkur Sigurður Blöndal, frv. skógræktarstjóri, og Arnór Snorrason skógfræðingur flytja erindi og sýna myndir frá skógum Síber- íu nk. fimmtudagskvöld í Norræna hús- inu kl. 20.30. Bílaleigumál ríkisins á einn stað Innkaupastofnun ríkisins hefur fyrir hönd allra ríkisstofnana og ríkisfyrir- tækja gert samning við bílaleiguna Geysi fjórða árið í röð. í samningunum felst um helmingslækkun á gialdi bílaleigubíla. Sex thboð bárust og átti bílaleigan Geysir hf. lægsta tilboðið. Innkaupastofnun rík- isins hefur lagt mikla áherslu á að þær ríkisstofnanir sem þurfa á bílaleigubílum að halda notfæri sér samninginn við Geysi hf. Á síðustu árum hefur það boriö við að ríkisstofnanir hafa ekki nýtt sér samninginn við Geysi en forsenda þess- arar lækkunar á verði er að allar ríkis- stofnanir nýti sér samninginn. Bílaleigan Geysir hf. er nýtt fyrirtæki sem yfirtók bílaleigima Geysi sf. sem áður starfaði og hafa ný nýir eigendur komið inn í fyr- irtækið. Bílaleigan er efdr sem áður th húsa að Suðurlandsbraut 16 í Reykjavík. Framkvæmdastjóri er Hafsteinn Hásler. Fundir ITC Melkorka Opinn fundur ITC Melkorku verður haldirm í dag, miðvikudaginn 14. febrúar, kl. 20 í Menningarmiðstöðinni í Gerðu- bergi í Breiðholti. Stef fundarins er: Lærður veit mikið, en reyndur meira. Á dagskrá er m.a. fræðsla um thlöguflutn- ing. Gestur fundarins er Sólveig Ágústs- dóttir ITC írisi. Upplýsingar veita Guð- rún í sima 46751 og Ema í síma 76345. Fundurinn er öllum opin. Mætið stund- víslega. Kvennadeild Flugbjörgunar- sveitarinnar í Reykjavík Aðalfundur verður haldinn í félagsheim- ilinu í Nauthólsvík í kvöld, 14. febrúar, kl. 20.30. Á dagskrá verða venjuleg aðal- fundarstörf og önnur mál. Tapaðfundið Úipa tapaöist á nýársnótt Hvit, svört og gul úlpa tapaðist úti á Granda á nýársnótt. f úlpuvasanum var úr. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 22313. Námskeið Grönn allt lífið Helgarnámskeið fyrir ofætur verður haldið helgina 24. og 25. febrúar nk. Nám- skeiðið stendur yfir laugardag kl. 9-16 og sunnudag kl. 10-17 og er haldið í Ris- inu, Hverfisgötu 105. Upplýsingar og skráning hjá Axel Guðmundssyni, Vest- urgötu 16, 3. hæð, sími 625717. Tónleikar Tónleikar í Háskólabíói Sinfóníuhljómsveit fslands og Tónlistar- skólinn í Reykjavík halda tónleika í Há- skólabíói funmtudaginn 15. febrúar nk. og hefjast þeir kl. 20.30. Tónleikar þessir eru fyrri hluti einleikaraprófs nemenda frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Á efnisskránni em eftirtalin verk: Konsert í d-moh fyrir flautu og strengi eftir C.P.E. Bach, eirheikari á flautu Ama Kristín Einarsdóttir, Fantasía fyrir sópran-saxa- fón og kammersveit eftir Vhla Lobos, ein- leikari á saxafón Vigdís Klara Aradóttir og Píanókonsert nr. 2 í f-moh op. 21 eftir Chopin, einleikari á píanó Hulda Braga- dóttir. Stjómandi er PáU P. Pálsson. Miðasala er í Ginhi við LæKjargötu og við innganginn. Aðgangseyrir er kr. 500. Fjöfrniðlar Breskar njósnamyndir eru raeð langdregnasta sjónvarpsefni sem um getur. Beinar handboltalýsingar eru aftur á móti með þ ví hraðasta þótt tíminn hjá áhorfandanum líöi í öfugu hlutfalli viö hraöann á skjánum. Sjónvarpið liefur undanforin þriðjudagskvöld sýnt njósnaþáttaf gömlu geröinnl. Það er greinilegt að sagan, sem sögð er í Að leikslokum, hefur orðið til meöan allt var á rétt- um kili í heimnum; óvinurinn var á sínum stað og þeir góðu vissu hvar þeir stóðu. Þetta var áður en Rúm- enar klipptu merki kommúnista- ílokksinsúr flöggumsínumogfán- um. Hallur Hallsson vildi reyndar eigna sér að merkið alræmda var tekið úr þeim fána Rúmeniu sem blakti í Laugardalshöllinni í gær. Hann hefði betur sleppt þeirri um- hyggjusemi við andstæðinga okkar því nú loksins náðu þeir aö sigra okkarmenn. Það var reyndar undarlega staöið að málum viö útsendinguna því Handknattleikssambandið vildi lengi fram eftir degi meina að engin útsending yrði frá leiknumogfyllti því höllina áður en mönnum Stöðv- ar 2 tókst aö koma því tii skila að þeir hefðu leikinn á skjánum hjá sér. Rúmenarnir voru því nokkuö frekir til plássins í gær og að leiks- lokum hjá Sjónvarpinu var sýnd fréttaskýring um byltinguna í Rúmeníu. Þar var dregin upp mynd af hálfráðvilltum bjartsýnismönn- rnn sem hafa skýrari hupiyndir um hvaða merki skuli vera á flöggum og hvaða götum beri virðingar sess en aö stjóma landinu. Þetta var ágætur þáttur og gagnrýnni en flest það sem áður hefur verið sýnt fiá byltingarmönnum í Rúmeníu. Gísli Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.