Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1990, Síða 28
28
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1990.
LífsstíU
Kafbátur í sundlaugunum
- bylting í botnhreinsun
„Við fengum þennan kafbát í októ-
ber og það má segja að það hafi orðið
bylting í botnhreinsun á lauginni,"
sagði Kristján Ögmundsson, forstjóri
Sundlauganna í Laugardal, í samtali
við DV. Kafbáturinn, sem er fjar-
stýrður, er látinn aka eftir botninum
einu sinni í viku og hreinsa upp sand
og óhreinindi sem fjúka í laugina.
Áður en kafbáturinn kom til sögunn-
ar var laugin afar sjaldan, eða aldr-
ei, tæmd til þess að þrífa hana.
Grannt er fylgst með hreinlæti í
sundlaugunum, að sögn Kristjáns.
Sundlaugaverðir taka sýni af vatn-
inu 6-8 sinnum á dag og mæla klór-
magn í vatninu og sýrustig þess.
Æskilegt klórmagn er 1,5-2,0 ppm.
Sýrustigið er talið æskilegt um 7
ph en vatnið er frá náttúrunnar
hendi talsvert súrara eða um 9 ph.
Sé vatnið mjög súrt veldur það sviða
í augum sundlaugagesta sem kenna
klómum um. Hátt sýrustig í vatninu
er meinlaust að öðru leyti en hægt
er að lækka það með því að blanda
sóda í laugarvatnið en slíkt er afar
sjaldan gert.
Á sólardögum, þegar umferð er
mikil í laugunum, lækkar klórmagn-
ið vegna uppgufunar og sýrustigið
lækkar vegna húðfitu sem losnar af
sundlaugagestum. Við slíkar aðstæð-
ur þarf að auka klórrennsli í laugina
talsvert mikið frá því sem venjulega
er.
„Það verður að vera strangt eftirlit
með hreinlæti hér. Hingað koma 700
þúsund manns á ári,“ sagði Kristján
Ógmundsson.
Sundlaugin í Laugardal tekur 2.600
tonn af vatni. Heildarnotkun vatns í
sundlauginni á hveijum degi er um
1.300 tonn. Einhver hluti þess fer í
sturtur og þess háttar. Því má gera
ráð fyrir að laugarvatnið endumýist
tæplega þriðja hvem dag. Stöðug
hringrás er á vatninu og fer það í
gegnum hreinsibúnað en bætt í það
heitu vatni til þess að halda hitastig-
inu uppi í 28-29 gráðum. Þvi end-
umýjast vatnið hraðar á vetrum en
á summm því yfirborðskæling r
lauginni er talsverð.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur tek-
ur reglulega sýni af laugarvatninu
og af gólfum í sturtuklefum og víðar.
Eftirlitið heimsækir sundlaugamar
að jafnaði einu sinni í mánuði.
„Eftirlitið fer þannig fram að fylgst
er með almennu hreinlæti og tekið
klórsýni. Sé klórmagn innan settra
marka er óþarft að taka sýni og at-
huga bakteríur. Reynslan hefur sýnt
það og því eru sjaldan eða aldrei tek-
in slík sýni nú í seinni tíð,“ sagði
Tryggvi Þórðarson heilbrigðisfull-
trúi í samtali við DV. Sé klórmagnið
undir mörkum er beðið meðan því
er kippt í lag. Tryggvi sagði að slíkt
væri sjaldgæft en kæmi þó fyrir öðru
hveiju.
Aðrar sundlaugar á vegum Reykja-
víkurborgar em undir svipuðu eftir-
liti og áþekkar hreinlætisreglur við-
hafðar. -Pá
Neytendur
Bandaríkin:
Tískudrykkur
uppajina tek-
inn úr umferð
Perrier ölkelduvatn, sem verið hef-
ur mikill tískudrykkur ungra uppa í
Ameríku undanfarin ár, hefur nú
verið tekið úr umferð. Ástæðan er
sú að drykkurinn reyndist innihalda
þrefalt meira magn af benseni en
leyfilegt er. Fyrirsjáanlegt er að
Perrier mun ekki' fást í Bandaríkjun-
um í 2-3 mánuði.
Talsmaður fyrirtækisins ytra sagði
að bensenið, sem er olíuefni, hefði
ekki fundist í neðanjarðarlindum
þeim í Frakklandi sem vatnið er tek-
ið úr. Því hlyti drykkurinn að hafa
mengast á leiðinni og yrði gallinn
fundinn eins fljótt og kostur væri svo
ómengað Perrier fengist aftur sem
fyrst.
72 mfiljónir flaskna voru teknar úr
umferð að frumkvæði framleiðand-
ans en sala á Perrier í Bandaríkjun-
um nemur 13 milljónum dollara á
mánuði. Heilbrigðisyfirvöld í Banda-
rikjunum kváðust ekki mundu hafa
krafist sölustöðvunar vegna þess hve
lítið magn af benseni greindist í þeim
sýnum sem tekin voru.
Perrier ölkelduvatn fæst hérlendis
og hefur að sögn verslunarmanna
selst vel fram til þessa. Innflutnings-
miðstöðin h/f er umboðsaðili á ís-
landi. Bjöm Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri sagöist þegar hafa haft
samband við Hollustuvernd ríkisins
og beðið um rannsókn á því litla
magni sem hér væri á lager.
„Það sem við erum að selja er hins
vegar tappað á í september og því
úr allt annarri sendingu en þeirri
sem mengun greindist í,“ sagði Bjöm
í samtali við DV.
-Pá
Forráðamenn Sundlauganna í Laugardal segja hafa orðið byltingu í botnhreinsun eftir að þeir fengu þennan fjar-
stýrða kafbát sem látinn er þrífa laugina einu sinni í viku. DV-mynd BG
Ríki í Miklagarði
Um næstu mánaðamót verður opn-
uð ný útsala Áfengis- og tóbaksversl-
unar ríkisins í Miklagarði við Sund
en ÁTVR tók á leigu 250 fermetra
húsnæði í austurenda hússins um
miðjan janúar og er innréttingum að
mestu lokið.
Af þessum ástæðum hafa að und-
anfornu staðið yfir miklar breyting-
ar á anddyri og kassalínu í Mikla-
garði og á þeim breytingum að vera
lokið 1. mars.
Við þessar breytingar mun skapast
betri aðstaða og þjónusta á kössum
í þjónustumiðstöð og veitingastofu.
Einnig verður aðkoma og brottför
úr versluninni öll þægilegri.
-Pá
Húshitunarkostnaður:
Selfoss lægri en Reykjavík
Bæjarveitur Selfoss hækkuðu
taxta sína 1. febrúar, rafmagn um
7% og heita vatnið um 20%. Þrátt
fyrir þessa hækkun er rúmmetri
af heitu vatni ódýrari hjá Bæjar-
veitum Selfoss en hjá Hitaveitu
Reykjavíkur. Rúmmetrinn kostar
36.90 krónur á Selfossi eftir hækk-
un en 39.40 krónur í Reykjavík.
Bæjarveitur Selfoss hækkuðu
taxta sína síðast í apríl 1989 og þá
- þrátt fyrir 20% hækkun
um 8%. Reykjavikur sem hækkaði sína rafmagnið um 9,5%. Að sögn Guð-
„Fyrir áramót var sent bréf frá
iðnaðarráðuneytinu til allra orku-
fyrirtækja þar sem þess var farið á
leit að hækkanir yrðu í algjöru lág-
marki,“ sagði Guðrún Skúladóttir,
skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneyt-
inu. „Þaö má segja að þetta hafi að
mestu gengið eftir því engar hækk-
anir hafa orðið á rafmagni nema á
Selfossi og hjá Rafmagnsveitum
taxta um 10% en ætlar að lækka
aftur um 2,5% 1. mars eftir að séð
varð hvernig verðlagsþróun yrði,“
sagði Guðrún.
Hitaveitur Akraness og Borgar-
fjarðar og Hitaveita Akureyrar
hækka sína taxta um hver mánaða-
mót í samræmi við byggingarvísi-
tölu. Orkubú Vestfjarða hækkaði
1. janúar heita vatnið um 10% og
rúnar var hér um að ræða hækkun
sem frestað var í október 1989.
Iðnaðarráðuneytið ber saman
húshitunarkostnað 400 rúmmetra
húsnæðis á hinum ýmsu svæðum
á landinu og ber hann saman við
kostnaðinn af því að kynda með
olíu. Á Selfossi er þessi kostnaður
um 28% miðað við olíukyndingu,
33% í Reykjavík en á veitusvæði
Orkubús Vestíjarða og hjá Hita-
veitu Akureyrar er þessi kostnaður
tæp 80% af því sem kosta myndi
að kynda með olíu. Það er því meira
en tvöfalt dýrara að kynda ein-
býlishús á Akureyri og Isafirði en
íReykjavíkogáSelfossi. -Pá