Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 1. MARS 1990. 3 Fréttir Þrjú tonn af pappír 1 ræðumar á fundi Norðurlandaráðs: Taka þrjú hundruð þúsund Ijósrit Niðri í kjallara Háskólabíós var komið fyrir prentstofu þar sem eru þijár ljósritunarvélar. Þar vinna nokkrir starfsmenn við að ljósrita allar ræöur sem haldnar eru á þing- inu og einnig nefndarálit og tillögur sem koma fram. Er áætlað að um 300.000 ljósrit verði tekin á Norðurlandaráösþing- inu og er unnið við það frá klukkan 8 á morgnana til klukkan 22 á kvöld- in. Þarf um 3 tonn af pappír í þessi ljósrit. Þessi ljósritunarstarfsemi hófst strax á mánudaginn en þá voru tekin á milh 50 og 60.000 ljósrit. Þijár vélar eru notaðar við ljósritunina og koma þær frá Nóni hf. Þá er hægt að fá aðgang að vélum hjá Nóni ef vélamar niöri í Háskólabíói hafa ekki undan. Hefur þegar þurft að grípa til þess. Þess má geta að Nón er stærsta ljós- ritunarstofa landsins og lætur nærri að afköstin þar séu um 100.000 ljósrit á mánuði. Noröurlandaráð þrefaldar því mánaðarafköst stærstu ljósritun- arstofu landsins og það sem meira er - það gerist bara á fimm dögum. Þá má nefna að meðalgjald fyrir ljós- rit er um 10 krónur þannig að þessi 300.000 ljósrit myndu því kosta um 3 milljónir króna. Sjálfsagt má þó semja um einhvern magnafslátt í þessu tilviki. Þá er rétt að geta þess að þetta er ekki allt pappírsflóðið á þinginu því mikið af prentuöum bæklingum og blöðum lá þegar fyrir í upphafl þings- ins. Síðan má gera ráð fyrir að niður- stöður þingsins komi út í bókum og blöðum eftir þingið. -SMJ Selfyssingum fjölgar og umsvif aukast Regína Thorarensen, DV, Selfosá: Karl Björnsson bæjarstjóri sagði við mig að fólkinu færi heldur fjölgandi í Selfossbæ. 1. desember síðastliðinn voru skráðir íbúar 3.848. Á annað hundrað manns eru á fastri launa- skrá hjá Selfossbæ árið um kring. Miklar framkvæmdir eru hér í bí- gerð og verða meiri þegar vorar og aUur snjórinn er farinn. Selfossbær er vaxandi bær enda miðstöð þjón- ustu og verslunar á Suðurlandi og aukast umsvif mikið með hveiju ár- inu sem líður. Það er mikið um að bændur og búalið þeirra flytji hingað þegar þeir hætta búskap í sinni heimabyggð, enda ódýr hús hér. Verð á rafmagni og hitaveitu er alltaf í lágmarki á Selfossi. Ég flutti hingað frá Eskifirði og er orkuverðið hér smámunir miðað við það sem gengur og gerist á Austfjörðum. Við búum í 130 fermetra íbúð og var mánaðarreikningurinn 3.208 krónur - þetta eru smáaurar miðaö við verð- ið fyrir austan. Störfin á Norðurlandaráðsþinginu geta orðið lýjandi, sérstaklega þegar mikil kvöldvinna er þeim samfara. Hér heldur einn af norrænu fréttamönnun- um á einu hinna fjölmörgu þingskjala sem dreift er á þinginu. DV-mynd GVA Tapa 1800 tonnum Vestmannaeyingar tejja aö þeg- ar sóknarmarkið verður aflagt meö þeim kvótalögum sem taka gildi næsta haust muni þeir missa 12 til 15 þúsund lesta afla af bol- fiski við breytinguna yfir í afla- matk. Þetta aflatap hefði að sjálf- •sögðu verið algert rothögg fyrir þá. En sem betur fer reyndist þetta rangur útreikningur. Fiski- félag íslands hefur reiknað dæ- mið út og þá kemur í Ijós að Vest- maimaeyingar munu missa 1800 lestir þorskigilda við breyting- una. -S.dór KYOLIC Eini alveg lyktarlausi h vítlaukurinn. 2ja ára kælitæknivinnsla (20 mán. + 4 mán.) sem á engan sinn líka iveröldinni. Hefur meiri áhrif en hrár hvítlaukur. Er gæðaprófaður 250 sinnum á framleiðslutímanum. Á að baki 35 ára stöðugar rann- sóknir japanskra visindamanna. Lífrænt ræktaður í ómenguðum jarðvegi án tilbúins áburðar eða skordýraeiturs. Öll önnur hvítlauksframleiðsla notar hitameðferð. Hiti eyðileggur hvata og virk efna- sambönd i hvítlauk og ónýtir heilsu- bætandiáhrif hans. - KY0LIC DAGLEGA - Það gerir gæfumuninn KYOLICfæst í heilsuvöru- og lyfjaverslunum og víðar. Heildsölubirgðir LOGALAND heildverslun, sími 1 -28-04 Hhortda 19 9 0 Bíllinn sem geislar af PRELUDE a.oi-/s HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900 I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.