Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 1. MARS 1990.
5
Fréttir
íslenska á fundum Noröurlandaráös:
Bna málið sem
ekki er fullgiH
„Það er að sjálfsögðu hægt að tala
íslensku hér í ræðustóli en það verð-
ur þá að tilkynna það með nokkrum
fyrirvara," sagði Páll Pétursson, for-
seti Norðurlandaráðs, en íslenska er
eina Norðurlandamálið sem ekki er
fullgilt í ræðustóli í Háskólabíói.
Fyrir nokkrum árum var töluverð
umræða um að gera íslensku að full-
gildu máli og færði meöal annars
Eiður Guðnason, þingflokksformað-
ur Alþýðuflokks, það í tal. Eiöur, sem
ekki situr þingið að þessu sinni, sagði
að ekki hefði þótt ástæða til að flytja
formlega tillögu um að fullgilda ís-
lenskuna, meðal annars vegna þess
að hægt væri aö fá að flytja ræður á
íslensku með því að óska eftir því
sérstaklega.
Ekki virðast vera neinar hugmynd-
ir um að hreyfa við þessu máli aftur
og sagði reyndar Páll Pétursson að
það væri hans skoðun að það væri
verra að láta túlka mál sitt. Viss
hætta væri á að ekki væri vel eftir
tekið og taldi hann meðal annars að
Finnar hefðu slæma reynslu af því.
Þá hefur einnig verið nefnt að ákveð-
in hætta sé á að einangrast ef íslensk-
ansénotuð. -SMJ
Pappirsflóð er árlegur viðburður í kringum Norðurlandaráðsþing en hér
blaða nokkrir þinggestir í hluta blaðabunkans sem lagður var fram i gær.
Má fremst á myndinni greina Vilhjálm Einarsson, skólameistara á Egilsstöð-
um og fyrrverandi frjálsíþróttakappa. DV-mynd GVA
Schliiter flytur „minningar-
ræðu“ um Norðurlandaráð
„Flest þau vandamál sem við átt-
um að leysa erum við fyrir löngu
búnir að leysa. í framtíðinni verður
dagskrá þessa fundar þynnri og þýð-
ingarminni," sagði Paul Schluter,
danski forsætisráðherrann, i ræðu-
stóli á fundi Norðurlandaráðs og
þótti mörgum sem hann hefði talað
yfir moldum ráðsins.
Schluter sagði að aðilar að hinni
norrænu samvinnu hefðu ekki skilið
sinn vitjunartíma og ásakaði fulltrúa
Norðurlanda um að vilja ekki taka
þátt í þeim breytingum sem væru að
eiga sér stað í Evrópu. Sagði Schluter
að ekki væri hægt að komast hjá því
að tengjast Evrópubandalaginu nán-
ar. Hann tók þó fram að hann væri
ekki að tala um að hætta norrænu
samstarfi.
Hinir dönsku fulltrúarnir gerðu
mikið úr ræðu Schluters og sagði
Ólafur G. Einarsson, formaður ís-
landsdeildar Norðurlandaráðs, að
margt í þeirri umræðu ætti heima í
danska þinginu en ekki á þingi Norð-
urlandaráðs. Sagði Ólafur að þing-.
menn danskra jafnaðarmanna og
kommúnista hefðu fyrir sið að mis-
túlka ummæli Schluters á Norður-
landaráðsþingi.
„Schiuter er mjög undrandi á þeirri
andstöðu sem er á Norðurlöndunum
við tengslin við Evrópubandalagið
og spáir því beint að Svíþjóð og Nor-
egur komi þangað inn,“ sagði Ólafur.
-SMJ-
Fundur Noröurlandaráðs:
Kostar 200 milljónir?
„Auðvitað kostar slíkt Norður-
landaráðsþing talsvert á heildina lit-
ið en ef við lítum á dæmið út frá ís-
lenskum sjónarhóli þá er þetta mikil
hagur. Ég átti til dæmis samtal viö
Konráð, hótelstjóra á Sögu, í gær þar
sem hann sagðist telja það mikinn
hvalreka að fá shkan fund á svona
dauðum tíma,“ sagði Páll Pétursson,
forseti Norðurlandaráðs, þegar hann
var spurður um kostnað vegna Norð-
urlandaráösþingsins sem nú fer fram
í Háskólabíói.
Menn greinir á um hver kostnaður-
inn er af þinginu fyrir norræna
skattborgara. Hefur því verið haldið
fram að hann sé nálægt 200 milljón-
um króna en Páll taldi það vera of
háa tölu.
Páll sagðist hafa heyrt því haldið
fram að ferðir og uppihald þingfull-
trúa kostuöu um 100 milljónir króna
og ljóst væri að það fjármagn færi til
íslenskra fyrirtækja að mestu leyti.
Þá benti Páll á að þingfulltrúar versl-
uðu væntanlega eitthvað hér á landi
sem einnig kæmi þjóðarbúinu vel.
Undirbúningur við þinghaldið
sjálft, leiga og undirbúningur Há-
skólabíós, kostar um 20 milljónir.
Sagöi Páll að það væri að verulegum
hluta greitt úr sjóðum Norðurlanda-
ráðs en íslensk stjómvöld greiddu
þó einhvern hluta þess.
Páli sagöi að ljóst væri að íslend-
ingar færu yfirleitt vel út úr sam-
starfi við hinar Norðurlandaþjóöirn-
ar fjárhagslega. íslendingar greiddu
sem svaraði 1% af kostnaði Norður-
landaráðs en fengju til baka sem
jafngildur aðili. Sú taia næmi sem
svaraði 260 krónum á íslending. Það
jafngiidir 65 milljónum króna.
-SMJ
ÞAÐ ER LANIOLANI!
að viö eigum mikiö urval af
BODDI-VARAHLUTUM
á ótrúlega góðu verði, t.d.:
bretti - vélarhlífar - hurðir - hurðarbyrði - stuðara - grill - fram-
stykki - svuntur - sílsa og margt fleira.
Útvegum varahluti með skömmum fyrirvara.
Því að kaupa notað þegar nýtt er jafnvel ódýrara?
Greiðslukjör - Póstsendum
BILLINN
Skeifunni 5 S 688510
h/f
5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
SÉREBOD HELGARINNAR
Þú þarft ekki að leita lengra
Grundarkjör
Opiö: Mánud.-fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud.
REYKJAVÍKURVEGI 72, HAFNARFIRÐI.S. 53100 9-20 9-21 10-18 11-18
GARÐAT0RG11, GARÐABÆ, S. 656400 9-19 9-20 10-18 11-18
FURUGRUND 3. KÓPAV0GI.S. 46955 OG 42062 9-20 9-20 10-18 11-18
STAKKAHLÍÐ 17, REYKJAVÍK, S. 38121 9-20 9-20 10-16 Lokað
BRÆÐRABORGARSTÍG 43, REYKJAVÍK.S. 14879 9-20 9-20 10-16 Lokað
VERSLANIR FYRIR ÞIG