Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 1. MARS 1990. Flutningar Óskað er tilboða í flutning áfengis, bjórs, tóbaks og iðnaðarvara fyrir Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins frá höfnum í Evrópu og Ameríku næstu 24 mánuði. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri og verða tilboð opnuð þar mánudaginn 12. mars nk. kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS ÐORGARTUNI 7 105 REYKJAVIK Svæðameðferð og létt rafmagnsnudd ásamt acupunchturmeðferð með lacer Sérhæfing við bólgu í herðum, baki og höf- uðverk. ELSA HALL, Langholtsvegi 160, síml 68-77-02. wvt MENNTAMÁLARÁÐ U N EYTIÐ Lausar stöður Dósentsstaða á sviði aðgerðarannsókna (aðalgrein) og tölfræði íviðskipta- og hagfræðideild Háskóla islands erlaustil umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhóli, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykja- vik, fyrir 1. apríl 1990. Laus er til umsóknar staða lektors í íslensku við Kennaraháskóla íslands. Meginverkefni íslenskar bókmenntir með áherslu á forn- bókmenntir og þjóðsögur. Auk viðurkennds háskólaprófs í grein sinni skulu umsækjendur hafa próf í uppeldis- og kennslufræðum ásamt þekkingu á og reynslu af íslenskukennslu. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt frá 1. ágúst 1990. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf, sem þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og upplýsingar um námsferil og störf. Þau verk, er umsækjandi óskar að dómnefnd fjalli um, skulu einnig fylgja. Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Sölvhóli, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 24. mars nk. Menntamálaráðuneytið Nú er hægt aó hringja inn smáauglýsingar og greiða með korti. Þú gefur okkur upp: nafn þitt og heimilisfang, síma, kennitölu og gildistíma og númer greiðslukorts. • Hámark kortaúttektar í síma kr. 6.000,- • Mpf SMÁAUGLÝSINGADEILD ÞVERHOLTI 11 — ; SÍMI 27022 Útlönd__________________________________________ðv Kosningar til fylkisþinga á Indlandi: Stef nir í tap Kongress verskri pólitík. Fréttaskýrendur telja að þrýstingur á afsögn Gandhis, leið- toga Kongressflokksins, aukist ef flokkurinn tapar stórt. Kongress- flokkurinn hélt völdum í öllum þeim átta fylkjum þar sem gengið var til kosninga í gær en samkvæmt fyrstu tölum um úrslit kosninganna ætlar hann að tapa í kosningunum. í kjöl- farið yrðu þá valdaskipti í átta fylkj- um Indlands. Líkur benda til að hinn hægri sinn- aði BJP-flokkur - flokkur hindúa - beri sigur úr býtum í að minnsta kosti þremur fylkjum. í tveimur öðr- um fylkjum hafði Janata Dal-flokk- urinn, flokkur V.P. Singh, núverandi forsætirsáðherra, góða forystu en í þremur fylkjum var ekki hægt að segja til hvemig úrslit færu. Ósigur Kongress-flokksins í þessum kosn- ingum kann að reynast Gandhi dýr- keyptur, jafnvel svo að hann neyðist til að segja af sér embætti leiðtoga flokksins. Heimildarmenn innan flokksins telja þó ekki að flokkurinn muni klofna í kjölfar kosninganna. Kosningar þessar hafa einkennst af blóðugum átökum. Talið er að að minnsta kosti níutíu hafl látist í deil- um í fylkinu Bihar en þar hafa átök- in verið mannskæðust. Reuter Fyrstu tölur um niðurstöður kosn- inga til þings í átta fylkjum á Ind- landi - þar sem hindutrúarflokkar virðast ætla að bera sigur af hólmi en Kongress-flokkur fyrrum forsæt- isráðherra Rajiv Gandhis að tapa - gefa í skyn að framundan séu viða- miklar breytingar og tilfærslur í ind- Fréttaskýrendur telja að þrýstingur á að Gandhi, fyrrum forsætisráðherra Indlands og núverandi leiðtogi Kongress-fiokksins, segi af sér formennsku í flokknum kunni að aukast. Símamynd Reuter Kalifomía: Jarðskjálfti í Los Angeles Snarpur jarðskjálfti gekk yfir suð- urhluta Kalifomíu-fylkis í gærkvöldi að íslenskum tíma. Síðla dags að staðartíma hristi hann allt og skók en olli engum dauðsfóllum. Sérfræð- ingar hjá bandarísku jarðfræðistofn- uninni sögðu að jarðskjálftinn hefði mælst 5,5. á Richter-skala en slíkir skjálftar geta valdið töluverðum skemmdum í þéttbýli. í nágrenni Los Angeles féllu marg- ar grjótskriður vegna skjálftans og lokuðust margir vegir vegna grjóts sem hrundi á þá. En vegirnir í borg- inni, sem byggðir em með tilliti til þess að þeir standist jarðskjálfta, skemmdust ekki. Fjörutíu hæða byggingar í stór- borginni Los Angeles hristust til þeg- ar jarðskjálftinn gekk yfir, bifreiðar hentust til á vegum borgarinnar og vörur hrundu úr hillum verslana. Rafmagnslínur féllu og í kjölfar skjálftans varð rafmagnslaust víða í austur-hluta Los Angeles. Snemma í morgun var aðeins vitað um þrjú slys sem rekja má til jarðskjálftans. í október síðastliðnum létust 67 þegar harður jarðskjálfti gekk yfir svæðið norðan Los Angeles, yfir borgina San Francisco. Sá skjálfti mældist 7,1 á Richter-skala. Reuter Shamir lofar skjótri ákvörðun Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, sagði í gær að stjórn sín myndi fljótlega ákveða hvort hún myndi samþykkja tillögur Banda- ríkjastjórnar um friðarviðræður við Palestínumenn. í ræðu seinna um daginn sakaði Shamir Bandaríkin um að vera að reyna að þrýsta á ísra- el um að gefa eftir og gæti það ógnað öryggi landsins. Tilraunir Bandaríkjanna til að koma á viðræðum í Kaíró um tillögur Shamirs um kosningar á herteknu svæðunum hafa vakið deilur um hverjir eigi að verða fulltrúar Palest- ínumanna. Shamir óttast aö viðræðurnar geti leitt til að ísraelsk yfirvöld þurfi að hafa samskipti viö Frelsissamtök Palestínumanna, PLO, þrátt fyrir yfirlýsingar yfirvalda um að þau muni aldrei semja viö það sem þau kalla hryðjuverkasamtök. Shamir ætlar að halda fund með þremur helstu ráðherrum sínum á föstudag áður en innra ráðuneytið tekur ákvörðun í þessum máli en Verkamannaflokkurinn krefst þess að slík ákvörðun verði tekin í næstu viku. Reuter Forsætisráðherra ísraels, Yitzhak Shamir, sagði i gær að fljótlega yrði ákveðið hvort israelsk yfirvöld myndu samþykkja tillögur Bandarikjastjórn- ar um friðarviðræður við Palestinumenn. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.