Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Page 9
tflkMTUDAGUR 1. MARS 1990.
9
Það er um forsjá hinnar sjö ára gömlu Hiláry, sem hér sést, sem harðvítug-
ar deilur standa nú á Nýja-Sjálandi. Simamynd Reuter
Baráttan um Hilary:
Fjölskyldumál
sem vekur
heimsathygli
Fáar deilur um umráðarétt yfir
barni hafa vakið jafnmikla athygli
og deilur þeirra Erics Foretich og
Elizabeth Morgan um forsjá sjö ára
gamallar dóttur þeirra, Hilary. Telp-
an hefur dvalist hjá móðurforeldrum
sínum á Nýja-Sjálandi í tæp tvö ár
og það er einmitt á Nýja-Sjálandi sem
Foretich og Morgan munu heyja bar-
áttu um dóttur sína.
Foretich og Morgan hafa deilt í
nokkur ár um yfirráðarétt yfir Hil-
ary, ekki bara fyrir dómstólum held-
ur einnig í sjónvarpsviðtölum sem
milljónir Bandaríkjamanna hafa
fylgst með. Móðirin, Ehzabeth Morg-
an, sakaði föður telpunnar, Eric For-
etich, um að hafa misnotað Hilary
kynferðislega en hann vísar slíkum
ásökunum á bug. Morgan faldi telp-
una fyrir Foretich og sór þess dýran
eið að hann skyldi aldrei fá að koma
nálægt henni. Morgan var dæmd til
fangelsisdvalar í ágúst 1987 fyrir að
neita að segja bandarískum dómara
hvar stúlkan væri niðurkomin en
var sleppt úr fangelsi í september.
Foretich, sem alla tíð hefur vísað
ásökunum Morgan á bug, komst að
því fyrir viku að dóttir sín, sem hann
hefur ekki séð né heyrt í rúmlega tvö
ár, væri á Nýja-Sjálandi. Hann fór til
því til Nýja-Sjálands síðastliðinn
mánudag og sagðist mundu fara með
dóttur sína heim. En þrátt fyrir það
hefur hann ekki farið til borgarinnar
Christhurch á Suðurey, þar sem Hil-
ary hefur dvalið á móteli hjá afa sín-
um og ömmu frá þvi í júlí árið 1988.
Rod Hansen, lögfræðingur í Auck-
land, sagði í gær að Foretich og for-
eldrar hans vildu gjama sjá Hilary
en að þau teldu að nærvera þeirra í
Christhurch myndi aðeins auka enn
álagið sem er á telpunni.
Fréttamenn víða að hafa setið um
hótelið frá því um síðustu helgi til
að freista þess að ná myndum af telp-
unni. Þessi ásækni hefur farið mjög
fyrir brjóstið á íbúum Christhurch
sem sumir hveijir hafa hreytt ónot-
um í fréttamennina. Hörð gagnrýni
hefur komið fram á framkomu
fréttamanna í þessu máh.
Fjölskyldudómstóll á Nýja-Sjálandi
mun taka ákvörðun um hver fær
yfirráðarétt yfir Hilary og verður
rétturinn lokaður. Ekki er ljóst hvort
Elizabeth Morgan verði viðstödd
réttarhöldin. Bandarísk yfirvöld
gerðu vegabréf hennar upptækt í
kjölfar þess að hún neitaði að segja
hvar Hilary væri niðurkomin. Hún
hefur farið fram á að fá vegabréf sitt
í hendurnar á ný.
Mál þetta hefur vakið mikla at-
hygh í Bandaríkjunum sem og Brét-
landi þar sem margir fylgjast með
þessu viðkvæma fjölskyldumáli. Nú
hefur nýsjálenskur dómari bannað
birtingu frétta af gangi mála á Nýja-
Sjálandi og farið þess á leit við frétta-
menn að þeir virði það bann. Á Nýja-
Sjálandi eru í gildi lög sem banna að
birtar verði fregnir af fjölskyldumál-
um sem eru fyrir dómstólum nema
rétturinn heimili það.
Reuter
Utlönd
Mikill stuðningur
við verkfall
norskra sjómanna
Axel Ammendrup, DV, Osló:
Góð þátttaka var í tveggja tíma ahs-
herjarverkfahi sem sjómenn í Norð-
ur-Noregi og víða á strandlengjunni
efndu til í gær. Efnt var til verkfahs-
ins til að leggja áherslu á aukinn
þorskveiðikvóta og að stjórnvöld
komi th móts við vanda sjómanna
sem er mikill í Norður-Noregi og
reyndar á allri strandlengjunni.
Sjómenn fóru í verkfah við upphaf
þorskveiðitímabilsins, 15. janúar, og
kröfðust þá aukins þorskveiðikvóta.
Þá lofuðu stjórnvöld að komið yrði
með lausnir á vanda þeirra innan
fimmtán daga. Síðan hefur ekkert
gerst og eru sjómenn óánægðir með
Austur-þýski herinn, sem var eitt
helsta stolt Varsjárbandalagsins allt
þar til í nóvember síðastliðnum, er
að leysast upp að sögn heimildar-
manna innan Nato, Atlantshafs-
bandalagsins. Þúsundir hermanna
hafa hlaupist á brott og agi innan
hersins er í molum. „Austur-þýski
herinn starfar ekki lengur sem hern-
aðarvél,“ sagði einn háttsettur emb-
ættismaður Nato. „Þetta er ótrúlegt
- allsendis óUkt Austur-Evrópu."
Einn talsmanna austur-þýska
hersins neitaði því að herinn gæti
ekki lengur starfað sem „hemaðar-
vél“ en viðurkenndi þó að liðhlaup
og minnkandi agi heföu dregið úr
viðbragðsstöðu hersins.
Atlantshafsbandalagið telur að
fækkað hafi um helming í austur-
þýska hernum en hann hafði á að
skipa 173 þúsund mönnum áður en
BerUnarmúrinn gaf sig og landa-
mærin voru opnuð í nóvember síð-
astUðnum. „Hermenn láta hreinlega
ráðleysi stjómvalda eins og þeir
segja.
I verkfaUinu í gær var mikU sam-
staða í Norður-Noregi. Enginn sjó-
maður lagði úr höfn þessa tvo tíma
og vora víða haldnir fjölmennir úti-
fundir. Það voru ekki bara sjómenn
sem tóku þátt í útifundunum. Margir
lögðu niður vinnu þessa tvo tíma til
að sýna samstöðu sína.
Sveitarstjórnin í Karlsöy í Troms
hvatti tU að mynda bæjarstarfsmenn
tíl að taka þátt í verkfalUnu og sagði
að ekki yrði dregið af þeim kaup á
meðan það stæði en þetta er í and-
stöðu við samþykkt samtaka sveitar-
stjórna í Noregi. Ekki verður þó gert
neitt meira úr því máU.
ekki sjá sig,“ sagði annar heimildar-
maður. „Sumir hafa flúið vestur á
bóginn en aðrir hafa tekið upp önnur
störf í landinu. Margir telja að herinn
sé til einskis nýtur. Þessi frægi, aust-
ur-þýski agi heyrir sögunni til.“
Margir foringjar í austur-þýska
hernum hafa farið til Vestur-Þýska-
lands og sótt um stöður í vestur-
þýska vestur-þýska varnarhernum,
Bundeswehr.
Talsmaður austur-þýsku stjórnar-
innar, Wolfgang Meyer, kvaðst gær
ekki hafa neinar upplýsingar um
leyniskýrslur Nato og vísaði spurn-
ingum um þetta mál til varnarmála-
ráðuneytisins.
Hermenn í austur-þýska hernum
lögðu niður vinnu í janúar til að
mótmæla ströngum aga, slæmum
aðbúnaði og átján mánaða her-
skyldu. Yfirvöld hafa heitið því að
taka mótmæh þeirra til athugunar.
Reuter
Nyjar
spumingar
um kynlíf
og hjónaband
Úrval
tímarit fyrir alla
rBÍLARn
TIL SÖLU
Jeep Cherokee Laredo ’86,
4ra dyra, 6 cyl., 2,8, sjálfskiptur,
selec-trac, rafdr. rúður og læs-
ingar, litur steingrár og rauður
að innan.
Daihatsu Rocky ’87,
ekinn 45 þús. km, útvarp, kass-
etta, vel með farinn bill.
Einnlg á staðnum:
M. Benz 230 E '87
M. Benz 300 D ’82
Volvo 740 GL ’86
Volvo 240 GL '82
Toyota Corolla '88
Nissan Micra '89
Monza Classic ’88
VW Golf CL '87
Vegna mikillar sötu
vantar allar gerðir
bila á staðinn.
BÍLASALAN
Smiðjuvegi 4. Kóp.. simi 77202
Opió laugardag kl. 10-18
A-þýski herinn
að leysast upp
- segja heimildarmenn innan Nato
Kam )7
Fellagörðum - Breiðholti III \ 4|
(í Dansskóla Heiðars)
Almenn námskeið
Karon skólinn kennir ykkur:
• rétta likamsstöðu
• rétt göngulag
• fallegan fótaburð
• andlits- og handsnyrtingu
• hárgreiðslu
• fataval
• mataræði
• hina ýmsu borðsiði og alla almenna
framkomu o.fl.
Módelnámskeið
Karon skólinn kennir ykkur:
• rétta líkamsstöðu
• rétt göngulag
• fallegan fótaburð
• sviðsframkomu
Öil kennsla í höndum færustu
sérfræðinga.
Allir tímar óþvingaðir og frjálslegir.
Ekkert kynslóðabil fyrirfinnst í Karon
skólanum.
Innritun og upplýsingar í
sima 38126 kl. 15-20.