Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 1. MARS 1990. 11 Teppadeild, s. 28605. Fyrir fundinn með fréttamönnum urðu hörð orðaskipti milii Gro og Syse að sögn NTB-fréttastofunnar. saman í bíó og það á aftasta bekk. Við þessa gamansemi dró úr spenn- unni en fyrir fundinn höfðu orða- skiptin milli þeirra verið óvenju hörð. Gro vill greinargerð Tilefni fundarins voru fullyrðingar í blöðunum um að Syse hefði ekki upplýst Bush Bandaríkjaforseta um andstöðu margra Norðmanna gegn auknum vopnabirgðum í Noregi eins , og Gro hafði beðið hann um. Syse hafði gagnrýnt samþykkt Verka- mannaflokksins um vopnabirgðirn- ar áöur en hann kom heim úr Banda- ríkjaför sinni. Gro Harlem Brund- tland sagði þá gagnrýni ekki á rökum reista. Syse vildi meina að deilan hefði komið upp vegna rangra og ónauðsynlegra frétta í dagblöðunum og þótti mönnum sem hann hefði látið undan. Kvað Syse nauðsynlegt að Norð- menn kæmu sér saman um stefnu í öryggis- og afvopnunarmálum. Brundtland mælti ekki gegn því en lagði jafnframt áherslu á aö hún vissi andstöðunni gegn áætlununum um vopnabirgðir Bandaríkjamanna í Noregi. Syse kvaðst hafa orðiö við þeirri beiðni. Vinstri menn í Noregi, með Verka- mannaflokkinn í broddi fylkingar, og nokkrir borgaralegir flokkar eru nú sagðir reiðubúnir að hefja baráttu gegn áætlunum Atlantshafsbanda- lagsins um frekari geymslu á vopn- um og eldsneyti í Noregi fyrir flota bandalagsins. Það er haft eftir Gro aö klofningur sé innan stjórnarinnar um afstöðuna til málsins og þykir mönnum líklegt að hún hafi rétt fyr- ir sér. Bandaríkin hafa látið í ljós ósk um að mega geyma vopn við Trond- heimsfjord í Mið-Noregi og við Sör- íjord fyrir austan Tromsö í Norður- Noregi. Auk þess vilja bandarísk yfirvöld stækka flugvöll í Nordland í Norður-Noregi svo að flugvélar At- lantshafsbandalagsins geti lent þar. „Fáránleg stefna á tímum afvopnunar“ Ástæðan til þess að deilurnar um Útlönd Noregur: Deila um stef nu í öryggismálum Ágreiningur kom upp milli Jans P. Syse, forsætisráðherra Noregs, og Gro Harlem Brundtland, leiðtoga Verkamannaflokksins í Noregi, á þingi Norðurlandaráðs, sem nú er haldið í Reykjavík, um hver hefði sagt hvað og hvenær í sambandi við vopnabirgðir Bandaríkjamanna í Noregi. Norska fréttastofan NTB greinir frá því að áður en Gro og Syse hittu fréttamenn aö máli í Reykjavík hefðu þau ræöst við í hálftíma. Þegar að fundinum meö fréttamönnunum kom höfðu þau tekið sér sæti á aft- asta bekk í Háskólabíói. Syse sló á létta strengi og sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem hann og Gro væru ekki hvert væri markmið stjórnar- innar því hún hefði ekki kynnt stefnu sína. Oskaði Brundtland eftir grein- argerð um málið á þingi. Klofningur I stjórninni Forsætisráðherrann hafði fengið tilkynningu um að Verkamanna- flokkurinn hefði lýst því yfir að Bandaríkjamenn ættu ekki að fá að geyma fleiri vopn í Noregi en þeir eiga þar nú þegar. Gro sagði á fund- inum með fréttamönnum að innan Verkamannaflokksins hefðu menn verið sammála um að ekki væri tími til að taka skýra afstöðu til málsins. Hún staðfesti hins vegar að hún hefði beðið Syse um að greina Bush frá vopnabirgðirnar harðna nú er þró- unin í Austur-Evrópu og breyting- arnar á sviði öryggismála sem henni fylgja. Andstæðingar aukinna vara- birgða vopna segja það fáránlega stefnu á tímum afvopnunar. Stuðn- ingsmenn áætlananna telja það hins vegar nauðsynlegt þegar Banda- ríkjamenn eru að fækka í her sínum í Evrópu. í norska vamarmálaráðuneytinu segja menn að Bandaríkjamenn sjálf- ir séu þeirrar sköðunar að þörfm á auknum vopnabirgðum í Noregi og öðrum Evrópulöndum muni aukast þegar þeir fækka í liði sínu í Vestur- Evrópu. NTB MUNIÐ MERKJASÖLUNA RAUÐIKROSS ÍSLANDS Islandsklúbbur Nýr klúbbur hefur tekið til starfa og nefnist hann Lífs- afl, íslandsklúbbur, og mun hann þjóna öllu landinu í heild sinni. Takmark klúbbsins er að efla mannrækt og kryfja dulrænar hliðar á lífinu. Ódýrára Meðlimir Lífsafls fá námskeið og einkatíma 10% ódýr- ara. Leiðbeinendur Fjölmargir leiðbeinendur vinna í gegnum Lífsafl og má þar nefna: Garðar Garðarsson, NLP Pract, en hann er þekktastur fyrir Hugeflisnámskeiðin og einkatíma við reykingum og fælni. Friðrik Páll Ágústsson, Prof. Reb., en hann heldur námskeið í hugrækt - heilun - líföndun og er með einkatíma í árulestri. Leifur Leópoldsson „vökumiðill“ sem býður upp á almenna heilun og er með námskeið í að efla næmi og þroska innsæi. Sigrún Ólafsdóttir er með námskeið'í macrobiotic-matreiðslu og Lone Svargo með einkatíma og námskeið í Shiatsu og Pulsing-nuddi. Árgjald Til að gerast meðlimur þarf að hafa samband við klúbb- inn og skrá sig og greiða árgjald sem er 2.500 kr. Upp- hæðina er hægt að greiða með greiðslukorti. Lífsafl Skrifstofa Lífsafls er opin alla virka daga frá kl. 9-13 og er tekið við skráningu fyrir klúbbinn, í einkatíma og á námskeið. Lífsafl mun gefa út fréttabréf reglulega. Lífsafl, íslandsklúbbur Sími 91-622199 ÚRVAL á næsta blaðsölustað Úrval tímarit fyrir alla SMÁAUGLÝSINGAR 0PIB! MAnudoga - fostudaga. Laugardaga. 9.00 - 14.00 Sunnudaga. 18.00 - 22.00 |PV| Þverholti 11 s: 27022 LÁnU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A VALDA ÞÉR SKAÐA!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.