Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 1. MARS 1990. Spumingin Ertu flughrædd(ur)? Árni Gústafsson verslunarmaður: Nei, það er ég ekki. Ingibjörg Sigurjónsdóttir fóstru- nemi: Nei, það hef ég aldrei verið. Þorvaldur Eydal nemi: Nei. Gurðíður Haraldsdóttir nemi: Já, oft- ast er ég það. Hafdís Sæmundsdóttir, vinnur i Hag- kaupi: Nei. Sigrún Geirdal fóstrunemi: Nei, ég er ekki flughrædd. Lesendur Svipar saman í Moskvu og Reykjavík: Ferðahugur eða frelsisþrá? Óskar Sigurðsson skrifar: í tveimur dagblöðum las ég frétt um að launþegar í Verslunar- mannafélagi Reykjavíkur hefðu beðið í allt að 14 klukktíma eftir því að fá að kaupa orlofsferðir hjá ferðaskrifstofu einni í borginni. í fréttum blaðanna (alla vega þeirra sem ég las) var hvergi getið um veröið á þessum ferðum heldur ein- ungis sagt að hér væri um „niður- sett“ verð að ræða á 500 sætum. Ég hélt nú að það skipti öllu máli aö upplýsa lesendur um verðið. En hvað er það sem knýr íslenska launþega til að híma á götuhornum í 14 klukkustundir til að kaupa or- lofsferð til Evrópu? Er þörfm svona mikil fyrir lægri fargjöld að sérs- takt „prógram" sé nauðsynlegt fyr- ir láglaunafólkiö? - Salan gekk vel og ljóst er að mikill ferðahugur er í fólki - var haft eftir forstjóra ferðaskrifstofunnar sem seldi miö- ana. En er hér einvörðungu „ferða- hugur“ sem ræður ferðinni? Getur hugsast að hér spili frelsisþrá ein- hverja rullu? - í Moskvu bíður fólk langtímum saman eftir nauðsynj- um, einkum matvælum, og leggur hart að sér við að bíða ef það veit að von er á nýrri sendingu hjá ein- hverri versluninni. Hér er blessun- arlega nóg af matvælum enn sem komið er (gæti þó skjótt skipast með það eins og annað). En hér á íslandi er til staðar nánast óbærileg andleg kúgun og frelsishöft sem lýsir sér m.a. í því að fólk sækist mjög eftir því að komast úr landi sem oftast. Það er ekki til að státa af að fólk skuli þurfa að fara í stríðsárabið- raðir til að kaupa orlofsferðir á sæmilegum kjörum og leiðir hug- ann að því hversu við erum enn langt frá því að geta um frjálst höf- uð strokið í samskiptum við um- heiminn á sviði ferðalaga til og frá landinu. Að enn skuli tíðkast að landsmenn séu dregnir í dilka eftir því hvort þeir eru launþegar í rétt- um félögum og hvort þeir leggi á sig næturlanga bið á götum úti um hávetur má auðvitað rekja til ofur- valds verkalýðsfélaganna og stjórnmálamannanna sem skópu þau yfir hinum vinnandi þegnum. En biðraðirnar eftir ódýrum or- lofsferðum staöfesta enn og aftur að það er ekki bara ferðahugurinn einn í venjulegum skilningi sem kemur fólki til að lengja þær ár frá ári heldur og miklu fremur þráin eftir frelsi og að komast úr landi lagaboða og hafta sem knýr fólk til að grípa hvert tækifæri til undan- komu. Þetta er aö skapi íslenskra stjórnmálamanna. Svona vilja þeir hafa það. Helst að fólkið þakki þeim „liðlegheitin" í verki með því að mynda biðraðir. Og fólkið gegnir kallinu, kúgað fólk gerir það alltaf. Þakklæti til strætóstjóra Jóhanna Þórisdóttir skrifar: Ég stenst ekki niátið lengur og verð að koma þakklæti mínu á framfæri. - Þannig er mál með vexti að ég nota Strætisvagna Reykjavíkur mjög mikið og þá helst leið nr. 4. Það er ekki oft nú á dögum sem rnaður rekst á kurteisa og yfirveg- aða strætisvagnabílstjóra. Venju- lega eru vesalingsmennirnir orðnir úttaugaðir og þreyttir. - En í sam- bandi við þetta vil ég benda á einn vagnstjóra, á leið 4, sem virðist allt- af jafnrólegur og góðmennskan uppmáluö. Það er oftar en einu sinni sem ég hef séð dæmi um það. Ég fann ekki aðra leið til að benda á hann en að taka niður númerið á vagninum síðasthðinn fimmtu- dag (22. febr.). Númeriö á vagnin- um var R-14150. Já, svona mikið lagði ég á mig til að koma á fram- færi kærri þökk til þessa indælis- manns sem á svo sannarlega þús- und þakkir skildar. íslenskur skáldskapur á kreppuskeiði Lúðvíg Eggertsson skrifar: Nú virðist vonlaust að gefa út skáldsögu eða taka kvikmynd nema hún greini frá morði og sam- fórum. Að öðrum kosti vekja slík verk enga athygli. Þannig er komið smekk samtíðarinnar. Það plli mér nokkurri undrun þegar Thor Vilhjálmssyni voru út- hlutuð verðlaun Norðurlandaráðs fyrir bók sína „Grámosinn glóir“. Svo fékk ég Grámosann lánaöan. Á10. bls. mátti lesa að ófrískri konu hefði verið drekkt. Ekki þurfti aö fara lengra en á 22. og 23. síðu og þá var sögumaður kominn ofan í heitt bað. Stúlka, grönn um mitti og mikil um mjaömir, sameinaðist honum þar og leikurinn endaði á bjarndýrsfeldi. Þar með var báðum kröfum um hlutgenga nútímabók fullnægt. Þessi höfundur hefur nú sótt um - og fengið - heiðurspening franskra menningarmála fyrir þýddar bækur og kynningu á frönskum kvikmyndum. Ekkert verk eftir hann sjálfan hefur þó enn komið út í Frakklandi - en það stendur víst til bóta. íslenskur skáldskapur er nú á kreppuskeiði. En að mínu mati glatar fólk trúnni á bókmennta- verðlaun ef þau eru veitt einungis verðlaunanna vegna. Farið í „Lúxuskaffi“! Starfsfólk Ábendingar hf. skrifar: í DV fóstudaginn 16. febr. birtist grein um „Lúxuskafii“ í greina- flokknum „Kafiihúsagagnrýni“, þar sem greinarhöfundar láta eins og þeir hafi ekki annað þarfara að gera en að ráðast á kafíihúsið „Lúxus- kafii“. Þeir finna allt að staðnum, meira að segja að Færeyska sjó- mannaheimilið sé útsýnið úr glugg- um staðarins. Ekki vitum við með vissu hvað þessir sömu greinarhöfundar myndu segja ef þeir litu út um glugga á ákveönum matsösíustað í Banka- stræti og er staðsettur á móti Banka- stræti 0! „Lúxuskafii" nýtur mikillar hylli af þvi fólki sem kemur þangaö í kafii- og matartímum sínum dag eftir dág og sest niður til að njóta góöra veitinga á hagstæðu verði og sérlega persónulegrar þjónustu starfsfólks- ins. Og það segir sig sjálft að ef hús- fyllir er í öllum matar- og kafíitímum og góður reytingur af fólki þess á milli þá er fólk ánægt með staðinn. Það er ábyrgðarhlutur að sleppa hverjum sem er meö lausan penna að vopni á síður eins stærsta og virt- asta dagblaðs landsins, fólki sem ekki þekkir súkkulaðikrem og kallar það „óskilgreint jukk“. Það hefur örugglega margt annað þarfara að gera en aö taka að sér aö vera gagn- rýnendur. Viö vonum sem lesendur DV og stuðningsmenn að þessir „greinar- höfundar" hugsi sig um áður en þeir misskilja aftur sögnina að „gagn- rýna“ því í okkar huga á gagnrýni að vera uppbyggileg, benda á galla og kosti en ekki að vera óskiljanlegar árásir og sleggjudómar. - Og við vilj- um enda þennan pistil með því að benda fólki á að fara í „Lúxuskafíi“ og dæma fyrir sig sjálft. Allir Islendingar I eyðnipróf Einar Ingvi Magnússon skrifar: Fyrir skömmu átti ég áhugavert samtal við konu úr heilbrigðisstétt. Þessi kona stakk upp á því að allir landsmenn yrðu skikkaðir í eyðni- próf og fengju síðan skírteini á borð við sjúkrasamlagsskírteini þar sem þeir gætu sannað hvort þeir væru smitaðir af eyðniveiru eða ekki. Þetta væri mikið þjóðarörggi og myndi, samfara fræðslu um smitleið- ir, hefta útbreiðslu þessa banvæna sjúkdóms. Ég var innilega sammála konunni. Sérstaklega þegar vitað er að yfir 200 manns ganga um Reykjavíkurborg smitaðir af eyðni og skemmtistaðir og viðskiptavinir þeirra eru margir. Lausn á vanda gengisskráningar Halldór skrifar: í útvarpsfréttum þann 23. febr. sl. var sagt frá því að kviknað hefði í Seðlabankahyggingunni innanverðri og því var bætt viö aö af þeim sökum héldist gengisskráningin óbreytt þann daginn. Mér finnst hér vera komin snilldar- leg lausn á verðbólguvandamálinu: Ef kveikt er í rafmagnstöflum allra bankanna breytist gengisskráningin ekkert meir!! - Kannski eru lausnirn- ar einfaldari en viö héldum...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.