Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Side 13
FIMMTUDAGUR 1. MARS 1990.
13
Lesendur
JÖFUR - ÞEGAR ÞÚ KAUPIR BÍL
FAVORIT1990
H! KDMINN TILIANDSINS
C-vítamín með
kalsíum
Það er kalsiumefnið i ESTHR C-vitamin-
inu, 20 mg, sem myndar rétt sýrustig,
pH 7, og gerir upptöku þess og virkni
meiri. Veqjulegt C-vitamín hefur sýru-
stigið 2,3-2,7 pH. ESTER C-vitaminíð
veldur ekki magaöþægindum. Likami
okkar getur ekki framleitt C-vitamin og
þarfnast þess stöðugt.
Það auðveldar upptöku jáms úr fæð-
unni, styrkir bein, tennur og bandvefí
og hjálpar húðinni til að halda mýkt
sinni. í hverri ESTER C-vitamintöfíu eru
200 mg af hreinu C-vitamini og 20 mg
af kalsium.
Ráðlagður dagskammtur er 1 tafía.
Fæst i heilsubúðum, mörgum apótekum
og mörkuðum.
Dreifing: Bio-Selen
umboðið, sími 76610
Rís miðborgin
úr öskustónni?
ESTER
£-vitamin
med calcium
Vitamin- 09 mineralpræparat
,v' 100 tabletter
EFFEKTIV
ENEUTRAL
Gunnar Jónsson skrifar:
Nú er aftur aö komast á dagskrá
umræöa um miðborg Reykjavíkur
og þá smán sem henni hefur veriö
sýnd undanfarna áratugi. Það er líkt
og aö vakna af svefni eftir langt og
strangt skemmtanahald kvöldiö áöur
aö vakna upp við þá staðreynd að
miðborg sjálfrar höfuöborgarinnar
hefur veriö látin mæta afgangi á
meðan ýmis hverfí þjónustu og versl-
unar ásamt opinberum byggingum
hafa risið í nýrri hverfum.
Þrátt fyrir að mikið hafi verið talað
um að miðborgin verði látin rísa úr
öskustónni hefur henni nánast ekk-
ert verið gert til góða á undanfórum
árum. Maöur er ekki að tína upp
framkvæmdir sem nánast má flokka
undir viðgerðir og viðhald, eins og
t.d. skiptingu Lækjargötu meö járn-
handriði eða þótt girðing við Stjórn-
arráðshúsið hafi verið málað eftir
langvarandi ábendingar.
Engin merkjanleg endurskipulagn-
ing hefur átt sér stað í miðborginni
og engin framkvæmd er þar sem gef-
ur til kynna að þar eigi eða megi
búast við andlitslyftingu í náinni
framtíö. - Ekki einu sinni á jólum
er kostað til almennilegrar lýsingar
á eina torgi borgarinnar, Lækjar-
torgi! Þarna er allt dautt og drunginn
svífur yfir hvert sem litið er. - Ljót-
asti blettur borgarinnar er vafalaust
sá sem snýr að vegfarendum er þeir
ganga eða aka niður Bankastrætið
og líta beint fram (á Lækjartorgið og
vinstra megin Austurstrætis) og svo
til vinstri þar sem eru kofaskriflin í
Lækjargötu og reyndar í Brekkunni
líka.
En hætt er við að sjónarmiðin sem
ríkt hafa verði ríkjandi enn um sinn,
a.m.k. á meðan sú kynslóð er lifandi
sem af ímyndaðri þjóðernisást hefur
ríghaldið í leifar niðurlægingarinnar
frá gamla tímanum og telur að t.d.
húskumbaldar í Bakarabrekkunni
séu merki um „forna frægð“! Allt eru
þetta hrófatildur og eldsmatur í besta
falli. Þetta ætti fyrir löngu að vera
horfið af sjónarsviðinu.
Ekki er von til þess að endurskipu-
lagning miðborgarinnar verði að
veruieika í nánustu framtíð, svo háir
eru þeir þröskuldar sem þarf að stíga
yfir til þess að geta gert raunhæfar
úrbætur. Nefna má takmörkun á
byggingu háhýsa vegna staðsetning-
ar Reykjavíkurflugvallar. En háhýsi
m.a. væru kærkomin lausn á upp-
byggingu miðbæjarkjamans, ekki
síst með það að markmiði að losna
að einhverju leyti við það veðravíti
regns og vinda sem gnauða óaflátan-
lega á þessu svæði. En það er að vísu
aldrei of seint að huga að framtíöinni
í þessum efnum. Aftur tekur við ný
kynslóð og henni mun ef til vill létt-
ara að losa sig við músarholusjónar-
mið og minnimáttarkennd gagnvart
gagnsemi og glæsileika en þeirri sem
hér hefur um vélað.
Fríar
heim-
sendingar?
„3917-6769“ skrifar:
Mig langar til aö nefna svolítið
sem fer óskaplega 1 taugarnar á
mér, Það er þegar Pizzasmiðjan
er að bjóða fríar heimsendingar.
- Þannig er aö ég bý í Breiðholti
og þar eru pizzastaðir eins og
annars staöar í borginni, og einn
þeirra, Eldsmiðjan, Kleifarseli,
býður heimsendingu fyrir 100
kr., ef maður er í Breiðholti. Þar
kostar pizza 700 kr., en sams kon-
ar pizza í Pizzasmiðjunni er á
1.100 kr.
Þannig að það munar 300 kr. á
þeim. Þar að auk eru pizzurnar
frá Pizzasmiðjunni yfirleitt kald-
ar, þegar þær koma og tíkarlega
lítið á þeim, t.d. ekki pepperóni
heldur spægipylsa. Þegar svo
kvartað er við þann sem kemur
með þetta heim er.fátt um svör.
Frá Eldsmiöjunni kom pizzan
eftir 18 mínútur og segja mér
fróðir menn aö þaö taki um 8
mínútur að elda pizzuna. Það sem
meira er; ég bý meira að segja
nær Pizzasmiðjunní, en þar tekur
þetta allt frá 30 mín. upp í klukku-
tíma. - Fólk lætur sko oft blekkj-
ast af auglýsingum.
•WjSÍ&Ía
igurför FAVORIT heldur áfram. Hann náöi þeim frábæra árangri að vera
valinn í FYRSTA SÆTI í keppninni um GULLNA STÝRIÐ í Vestur-Þýska-
landi í flokknum VERÐGILDI (Value For Money), fyrir ofan Ford Fiesta
og Mazda 323.
FAVORIT er hannaöur af ítalanum NUCCIO BERTONE, en vél og fjöörun (sjálfstæö fjöðrun
á hverju hjóli), er hönnuö í samvinnu viö PORCHE verksmiðjurnar. Útkoman er frábær. Sér-
lega rúmgóöur bíll með frábæra aksturseiginleika. Góð sæti, létt stýri, ásamt skuthurð og
fellanlegum aftursætum, gera FAVORIT að sérstaklega liprum og fjölhæfum fjölskyldubíl.
FAVORIT:
VÉL: 1289 cc 63 DIN hö.
5 gíra, 5 dyra.
VERÐ: KR. 464.800.-
(Tollgengi janúar 1990)
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEG! 2 • KÓPAVOGI • SÍMI 42600
OPIO MÁNU. - FÖSTUD. 9 - 18
LAUGARD. 13-17