Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Side 25
FIMMTUDAGUR 1. MARS 1990.
33
Sviðsljós
Hjónin Gréta Lind Kristjánsdóttir og Sverrir Hermannsson ásamt öðrum hjónum, Matthíasi Á. Mathiesen þingmanni og konu hans, Sigrúnu Þorgilsdóttur.
Sverrir Hermannsson sextugur
Sverrir Hermannsson, bankastjóri
Landsbankans, átti stórafmæli sl.
mánudag, 26. febrúar, er hann varð
sextugur.
Að sjálfsögðu var haldið upp á
tímamótin og var boðið til veislu að
Hótel Sögu milli kl. 17 og 19.
Óli Kr. Sigurðsson, forstjóri Olís, óskar Sverri til hamingju.
Meðal þeirra sem heiðruðu Sverri með nærveru sinni á afmælisdaginn
voru Indriði G. Þorsteinsson, ritstjóri Timans, Gylfi Þ. Gíslason, fyrrv.
menntamálaráðherra, og Þorvaldur Guðmundsson, forstjóri í Síld og fiski.
Ólyginn
sagði...
Paul
McCartney
er öskuillur út í Michael Jackson
fyrir að nota gömul og klassísk
Bítlalög í auglýsingar. Bítilhnn
fyrrverandi er svo þreifandi
vondur að hann vill ekki einu
sinni'koma á tónleika þar sem
Jackson kemur fram. Eitt sinn
voru þeir hins vegar góðir vinir
og komu fram saman og sungu
saman inn á plötu. Svona breyt-
ast nú viðhorf manna í garð hvers
annars.
Tammy Sue
dóttir falspredikarans Jims Bak-
ker ætlar að sitja nakin fyrir hjá
karlablaðinu Playboy. Tammy er
19 ára og afar hrifin af pabba
gamla sem hún telur að sitji blá-
saklaus í fangelsi. Því ætlar hún
að grípa tækifærið og vinna sér
inn dágóða summu svo hún geti
keypt sér einhvern góðan lög-
fræðing sem gæti unnið að því
að fá þann gamla lausan úr stein-
inum. Mamma hennar er hins
vegar dýróð yfir uppátæki dóttur
sinnar og hótar henni öllu illu.
Sú stutta ætlar hins vegar ekki
að láta sig.
Johnnie Ray
látinn
Johnnie Ray, sem sló í gegn á
sjötta áratugnum með vasaklútalög-
um eins og Cry, The little white cloud
that cried og Real tears, lést á laugar-
daginn. Var það lifrin sem gaf sig en
Johnnie var 63 ára. Meðal aðdáenda
hans var m.a. Elísabet Bretadrottn-
ing.
Frægð sína þakkaði Johnnie að
hluta til slysi sem hann varð fyrir tíu
ára að aldri. Hann var að leika sér
meö nokkrum vinum sínum er þeir
fleygðu honum upp í loftið á teppi,
en svo illa vildi til að hann skall á
harða jörðina með höfuðið á undan
með þeim afleiöingum að hann missti
hálfa heyrnina. Það liðu fimm ár
þangað til að það uppgötvaðist að
hann var heyrnarskertur og á þeim
tíma var hann mikið einn.
Johnnie fór til Hollywood árið 1949,
ákveðinn í því að verða frægur kvik-
myndaleikari. Eftir að hafa unnið
sem barþjónn, píanóleikari og allt
þar á milh ákvað hann að freista
gæfunnar í New York. Á leiðinni yfir
Bandaríkin vann hann á ýmsum
stöðum og það var í Detroit í Mic-
higan sem plötusnúður nokkur
heyrði í honum og fékk umboðsmann
Columbia Records til að hlusta á
hann.
Það var síðan í framhaldi af því
sem Johnnie söng inn á tvær plötur
sem náðu vinsældum í miövestur-
ríkjum Bandaríkjanna, eða þangað
til nokkrar útvarpsstöövar ákváðu
að banna þær vegna tvíræðra texta.
Og þá komst Johnnie loksins til New
York.
í New York söng hann inn á plötur
lögin Cry, The httle white cloud thát
cried, Please Mr. Sun, og Broken-
hearted. Lögin voru gefin út 1950 og
1951 og urðu gífurlega vinsæl.
Á sjöunda áratugnum dvínuðu vin-
sældir Johnnies mjög er tónlist hans
átti ekki lengur upp á pallborðið hjá
fólki. Og upp úr því fór hann að
drekka. Honum fannst hann vera
einn og yfirgefinn, gleymdur og graf-
inn.
Johnnie hélt tuttugu og eina tón-
leika í Ástrahu á ferli sínum, met
sem enginn Bandaríkjamaður hefur
enn slegið.
Johnnie Ray lést um síðustu helgi. Hann var hvað þekktastur fyrir að gráta
er hann flutti vasaklútalögin sín.
Nancy Reagan
var gráðug kona sem vildi gera
allt til að klæðast 'sem best á
meðan hún var forsetafrú Banda-
ríkjanna. En hún vildi hins vegar
ekki þurfa að greiða úr eigin vasa
háar fúlgur fyrir þann fatnað sem
hún klæddist. Hún fór því fram á
það við bestu fatahönnuði Banda-
ríkjanna að þeir léðu henni allan
þann fatnað sem hún vildi án
þess að borga krónu fyrir hann.
Fatahönnuðirnir tóku þessu boði
feginshendi þvi það fylgdi því
óhjákvæmilega mikið auglýs-
ingagildi að forsetafrú Bandaríkj-
anna klæddist fótum sem þeir
höfðu búið til. En það fóru vist
að renna á þá tvær grímur þegar
frúin neitaði alfarið aö borga
krónu. Nýlega upplýsti einn
þeirra að Nancy heföi fengið
ókeypis föt fyrir um eina milljón
dollara á meðan hún var forseta-
frú.