Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Side 27
FIMMTUDAGUR 1. MARS 1990. 35 H>V Nadia Comaneci: Misþyrmt af Nicu Ceausescu Nicu Ceausescu mun hafa misþyrmt fimleikadrottningunni Nadiu Comaneci þannig að móðir hennar vill horfa á hann hengdan upp á tungunni. Nadia Comaneci var barin og mis- þyrmt á allan hátt af stórmennsku- bijálæðingnum Nicu Ceausescu, syni Nicolae Ceausescu. Meðal þess sem hann gerði var að láta rífa af henni neglurnar. Upplýsingar þessar komu fram í viðtah við móður fim- leikastjömunnar, Alexandrinu Co- maneci, nýlega. Alexandrina sagði að í fimm ár hefði Nicu stjórnað dóttur hennar, bæði andlega og líkamlega, og mar- tröð hennar lauk ekki fyrr en hún strauk til Bandaríkjanna, viku fyrir byltinguna. Nicu mun hafa notað Nadiu eins og leikfang til skemmtun- ar og auk þess að rífa neglurnar af henni mun hann hafa veitt henni áverka á andlit, líkama og læri. í augum Nicu var Nadia eign hans og henni var gert að heimsækja hann þegar honum hentaði, hvort sem var á nóttu eða degi. Hann lét einnig taka fyrir launagreiðslur til hennar svo að hún yrði honum enn háðari. Eftir að Nicolae Ceausescu skipaði son sinn ráðherra æskunnar gerði Nicu hana að þjálfara í fimleikum. Nadia þurfti á vinnu að halda því að allt sem hún haföi þénað var notað af Ceausescu-fjölskyldunni. Fljótlega byijaöi Nicu að hringja í hana þegar hann var dauðadrukkinn, og þegar Nadia vildi ekki þýðast hann hafði hann í hótunum. Að lokum átti hún ekki annarra kosta völ en taka boði hans. Árið 1988 flutti Nadia aö heiman og bjó um tíma með bróöur sínum en martröðin hélt áfram og að lokum flúði hún land. Samkvæmt upplýs- ingum Reuterfréttastofunnar hefur Nadia bæði hringt heim og skrifað eftir að hún fór til Bandaríkjanna. Móðir hennar sagði að Nadia væri mjög hamingjusöm og hefði fullan hug á því að heimsækja Búkarest fljótlega. Þegar Alexandrina var spurð hvernig ætti að hegna Nicu stóð ekki á svarinu: „Ég myndi vilja sjá hann þjást eins og hún gerði. Ég myndi hengja hann upp á tungunni og horfa á hann deyja.“ í marsblaði Láfe er viðtal við Nadiu sjálfa og þar eru henni ekki vandaðar kveðjurnar. Hún er sögð vera spilltur krakki og lygari, og þar að auki þjást af óstöðvandi matarlyst. í viðtalinu staðfestir Nadia að hún hafi reynt að stytta sér aldur þegar hún var 15 ára með því að drekka klór. Hún sá ekki eftir því vegna þess að hún varð að liggja á sjúkrahúsi í tvo daga, sem þýddi að hún þurfti ekki að æfa á meðan. Blaðamaðurinn, sem tók viðtalið fyrir Life, sagði að Nadia væri óstöðvandi átvagl. Hún æti sinn mat og annarra líka og eftir hveija máltíð færi hún á snyrtinguna, styngi fingr- inum ofan í kokið og kastaði öllu saman upp. Einnig tók blaðamaður- inn fram að Nadia hefði aldrei sagt „viltu gjöra svo vel“ eða „þakka þér fyrir“. Adrian, bróðir Nadiu, mun hafa sagt aö systir sín væri erfið í um- gengni og viðkvæm. Hún þyrfti stöð- ugt að heyra það að hún væri falleg og góð. Bette Midler tekur á móti Grammy-verðlaunum fyrir Wind beneath my wings. Grammy-verðlaunin yeitt Þaö hefur verið talsvert að gera hjá þotuhðinu að undanfórnu því nóg hefur verið af verölaunaaf- hendingum. Ekki er langt síðan Golden Globe og American Music verðlaunin voru veitt og í síðustu viku voru hin frægu Grammy- verðlaun afhent. Einn af þeim sem fengu viður- kenningu þá var Paul McCartney sem fékk sérstaka viðurkenningu fyrir ævistarf sitt. Við þaö tækifæri sagði Palli aö miklar líkur væru á því að þeir Bítlar, sem væru á lífi, hæfu aftur samvinnu. Þeir eru nú að vinna saman að mynd um feril Bítlanna sem kallast A long and winding road, og má vænta að þeir semji ný lög fyrir myndina. Aörir sem fengu viðurkenningu voru t.d. Michael Bolton fyrir How am I supposed to hve without you, sem komst á topp bæöi bandaríska og íslenska vinsældahstans, Linda Ronstadt og Aaron Neville fyrir Don’t know much, Don Henley fyr- ir The end of innocence og Bette Midler fyrir Wind beneath my wings. Einnig voru Milh Vanihi valdir bestu byijendurnir, þótt litlu munaði að annar aðili Milh Vanihi kæmist ekki inn á svæðið vegna útgangsins á sér. Stytta af Rocky Balboa: list eða ekki list? Deilur miklar standa nú yfir í borg- inni Philadelphia í Bandaríkjunum vegna styttu af Rocky Balboa, hetju Rocky-myndanna, en nú er sú fimmta á leiðinni. Sylvester Stallone, sem sjálfur er frá Philadelphia, gaf borginni stytt- una eftir að hún haföi verið notuð í Rocky HI. Og það sem menn greinir nú helst á um er hvar styttan eigi að standa. Stallone er búinn aö ráða sér lögfræðing sem á að tryggja að styttan fái að standa fyrir framan Philadelphia Museum of Art. En ekki eru allir jafnhrifnir af þeirri hugmynd. Forráðamenn safnsins líta svo á að styttan sé hluti leikmyndar en ekki list og því ahs óhæf til að standa á svo virðingar- verðum stað. Borgarstjórinn er þó á annarri skoðun. Hann telur að stytt- an eigi fullan rétt á sér fyrir framan safnið sem tákn um alla þá sem risið hafa upp úr meðalmennskunni. Samkvæmt skoðanakönnunum er helmingur borgarbúa með því að setja styttuna þar en hinn helming- urinn á móti. Miklar deilur hafa rislð I Phlladelphia út af Rocky-styttu. Sviðsljós Ólyginn sagði... Prince - sem hvað frægastur er fyrir tón- list sína - er víst enginn sælkeri og heldur kresinn á mat. Carmen nokkur Bonilla var einkakokkur prinsins um tíma og bar honum ekki vel söguna í viðtali við dag- blað í Minneapolis í Minnesota en þar býr kappinn. Carmen gafst reyndar upp á starfinu eftir að- eins fimm vikur og fylgdi það sögunni að aðalástæðan fyrir uppsögninni hefði verið fæðuval Prince. Hann er nefnilega meira gefinn fyrir ruslfæði en stórsteik- ur og finni mat. í sérstöku uppá- haldi hjá honum eru t.d. köku- krem og ostamakkaróní. Carmen taldi að Prince hefði ekki haft tíma til að þroska með sér al- mennilegan matarsrnekk og héldi sig því við þann mat sem hann ólst upp við. linda Evans - sem einhveijir muna ef til vill eftir úr Dynasty þáttunum - var að ganga um borð í flugvél í Was- hington D.C. ekki alls fyrir löngu, er henni snerist allt í einu hugur og krafðist þess að fá töskurnar sínar aftur. Og hver var ástæðan? Jú, hún var handviss í sinni sök að flugvélin myndi hrapa. Hún tilkynnti starfsmönnum flugfé- lagsins að hinn 5000 ára gamli andi Zarutha hefði varað hana við. Flugvélin tafðist um 20 mín- útur að þessum sökum meðan verið var að ná í töskur Lindu. Það fylgir sögunni aö vélin komst heil á leiðarenda. Michael Jackson - sem brenndist Ula um áriö er hann lék í Pepsi-auglýsingu - er enn ekki öruggur er eldur er ann- ars vegur. Hann tók alla vega enga áhættu er hann var að horfa á flugeldasýningu í Las Vegas á dögunum. Áður en sýningin byij- aöi rennbleytti hann nokkur handklæði og vafði þeim um höf- uöið. Svo sat hann þama eins og múmía.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.