Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1990, Qupperneq 28
36 FIMMTUDAGUR 1. MARS 1990. Jarðarfarir Magnús Friðrik Óskarsson, til heim- ilis í Skálagerði 7, Reykjavík, sem lést 18. febrúar, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 2. mars kl. 13.30. Anna Hjartardóttir frá Geirmundar- stöðum, Víðigrund 6, Sauðárkróki, sem andaöist 19. febrúar, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 3. mars kl. 14. Björk Einarsdóttir frá Hafranesi, síð- ast til heimilis á Hrafnistu, Reykja- vík, verður jarðsungin frá Hafnar- íjarðarkirkju í dag, fimmtudaginn 1. mars, kl. 13.30. Skarphéðinn Jónsson, fyrrv. bif- reiðastjóri, Hvassaleiti 28, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 1. mars, kl. 15. Ólafur Jónsson bifreiðastjóri, Sól- völlum 7, Akureyri, verður jarðsung- inn frá Akureyrarkirkju í dag, 1. mars, kl. 13.30. Óskar Jónsson lést 19. febrúar sl. Hann fæddist 4. júní 1960 og ólst upp í Klömbrum í Aðaldal, S-Þingeyjar- sýslu. Hann var sonur hjónanna Önnu Sigríðar Gunnarsdóttur og Jóns Sveinbjamar Óskarssonar. Eft- irlifandi kona hans er Ester Svein- bjamardóttir. Þau eignuðust tvo syni. Útfór Óskars verður gerð frá Seltjamarneskirkju í dag kl. 13.30. Fimdir JC-Garðar verður með kynningarfund á JC-hreyf- ingunni í kvöld, fimmtudag, kl. 20.30 í Strýtunni, Goðatúni 2, Garðabæ. Ungt fólk á aldrinum 18-40 ára er hvatt til að koma og kynna sér starfsemi hreyfmgar- innar. Tónleikar Rannveig og Jónas í Borgarneskirkju Tónlistarfélag Borgarfjarðar stendur fyr- ir tónleikum í Borgarneskirkju nk. laug- ardag, 3. mars, kl. 16. Rannveig Fríða Bragadóttir söngkona og Jónas Ingi- mundarson píanóleikari flytja þar mjög fjölbreytta efnisskrá. Rannveig Fríða Bragadóttir er hér nú í stuttri heimsókn en hún býr í Austurríki þar sem hún er fastráðin söngvari við Ríkisóperuna í Vínarborg. Námskeið Sebastian námskeið 5. og 6. mars nk. verða haldin Sebastian námskeið. Hingað til lands kemur Terha Weeks sem er í hinu fræga Sebastian Artistic team. Fyrri daginn, 5. mars, verður námskeið haldið 1 Súlnasal Hótel Sögu og hefst kl. 20 og stendur til kl. 23. Það er fyrir allt fagfólk. Terha mun sýna það allra nýjasta frá Sebastian. Verð kr. 3.500. Seinni daginn, 6. mars, verður námskeið haldið í nýjum húsakynnum að Laugavegi 178 (eystri inngangur) og er það eingöngu fyrir stofueigendur eða staðgengla þeirra sem nota og/eða selja Sebastian vörur. Hefst það kl. 14 og stend- ur til kl. 17. Þar verður farið yfir það helsta varðandi rekstur og stjórnun á stofum. Tilkyimingar Mosfellsprestakall í Kjalar- nesprófastsdæmi laust Biskup íslands hefur auglýst Mosfells- prestakall í Kjalamesprófastsdæmi laust til umsóknar með umsóknarfresti til 18. mars nk. í prestakallinu er nú aðeins ein sókn, Lágafellssókn, en tvær kirkjur, Lágafells- og Mosfellskirkja. Séra Birgir Ásgeirsson, sem hefur þjónað presta- kallinu frá 15. ágúst 1976, fær lausn frá embætti 1. maí nk. þar sem hann hefur verið ráðinn prestur við Borgarspítalann í Reykjavík. Við Borgarspítalannn hefur sr. Sigfinnur Þorleifsson þjónað undan- farin fimm ár þannig að eftir að sr. Birg- ir hefur þar störf verða tveir sjúkrahús- prestar þjónandi þar. Flóamarkaður félags einstæðra foreldra verður haldinn í Skeljahelli, Skeljanesi 6, laugardagana 3., 10., og 17. mars nk. Spennandi vamingur á spottprís. Leið 5 að húsinu. Ný deild innan ITC Ný deild innan Landssamtaka ITC á ís- landi var nýlega stofnuð á Vopnafirði og hlaut hún nafnið Dögun. Deildarforseti er Sigrún Oddsdóttir og em fundir haldn- ir 1. og 3. fimmtudag í hverjum mánuði í Austurborg og hefjast ki. 21. Hin nýja deiid mun tilheyra Öðm ráði á islandi en forseti þess er Alexía Gísladóttir. Markmið ITC er að efla hæfileika til sam- skipta og forystu, auka starfsafköst og styrkja sjálfstraust félaga sinna. Málþing um störf sjálfboða- jjða í þágu aldraðra Öldmnarráð íslands gengst fyrir mál- þingi um störf sjálfboðaliða í þágu aldr- aðra fóstudaginn 2. mars í Ársal Hótel Sögu (nýbygging 2. hæð). Málþingið er haldið í samvinnu við þau félagasamtök Stúdíó-brauð opnað á ný Stúdíó-brauð í Austurveri hefur nú hafið starfsemi sína á ný en sem kunnugt er kviknaöi þar f 5. jan. sl. Nú er lokið end- urbyggingu staðarins og hefur Stúdió- brauð nú á boðstólum úrval veislurétta við hvers kyns tækifæri, t.d. fermingar- . veislur, skimarveislur, hanastélsboö, erfidrykkjur og fl. Kristínu Guðmunds- dóttur hefur nú bæst góður liðsauki, matreiðslumaðurinn Gylfi Ingason, og munu þau ásamt fleira starfsfólki verða til þjónustu reiöubúin alla daga vikunnar frá kl. 10-20. í Stúdíó-brauði er á boðstól- um úrval skyndirétta og smurt brauð í huggulegu umhverfi. sem einna mest hafa skipulagt og starfað að þeim málum, þ.e. Rauða kross íslands og þjóðkirkjuna, Kiwanis- og Lyons- hreyfmgarnar og Soroptimista. Fjallað verður um starfsemi þessara aðila, tilurð og tilgang og framtíðarsjónarmið skoðuð. Fundarstjóri á málþinginu verður Hólm- ffíður Gísladóttir RKI. Aöalframsöguer- indið flytur Þórir Guðbergsson: Sjálf- boðahðar í þágu aldraöra í þátíð, nútíð og framtíð. Málþingið er öllum opið og era menn hvattir til að mæta. Aðgangs- eyrir er kr. 1.500 en kr. 500 fyrir ellilífeyr- isþega. Kaffi er innifalið. Húnvetningafélagið Félagsvist spiluð laugardag 3. mars kl. 14 í Húnabúð, Skeifunni 17. Allir vel- komnir. Árshátíð Átthagasam- taka Héraðsmanna verður í Borgartúni 6 laugardaginn 3. mars. Húsið verður opnað kl. 19, hátíðin sett kl. 20. Miðasala í Domus Medica 1. og 2. mars kl. 17-19. Heilsudagar í Kringlunni Frá 1.-17. mars nk. verða heilsudagar í Kringlunni undir kjörorðinu „Bætt heilsa - betra líf‘. Margir aðilar, sem starfa að heilsuvernd og heilbrigðismál- um, munu miðla til viðskiptavina upplýs- ingum um heilbrigðara líferni og bætt heilsufar. Einnig em íþrótta- og danssýn- ingar f göngugötunum. Um 30 félagasam- tök og opinberir aðilar kynna starfsemi sína og veita ráögjöf fyrir almenning. Gefm verða út þrjú fréttabréf með ráð- leggingum og fróðleik um bætt mataræð- i, heilsufar og breyttan lífsstíl, sem dreift er í Kringlunni. Þetta er í þriðja sinn sem Kringlan efnir til kynningar sem þessar- ar. Verslanir í Kringlunni em opnar mánudaga til fóstudaga til kl. 19 en til kl. 16 á laugardögum. Skyndibitastaðirn- ir em opnir alla daga til kl. 20 og Hard Rock Café til kl. 23.30. í tilefni heilsudag- anna bjóða 'matsölustaðirnir upp á holl- usturétti á kynningarverði. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Danskennsla fyrir eldri borgara í Nýja danskólanum fellur niður laugardaginn 3. mars. Árið sem aldrei kom Þótt endurtekningar séu ávallt leiðinlegar verður stundum ekki hjá þeim komist, einkum ef menn skilja ekki eitthvað til fulls í fyrstu atrennu. Undirritaður skrifaði litla grein um tímatal okkar í DV þann 23. jan. sl. Sú grein varð tilefni annarr- ar sem Óskar Þór Karlsson ritaði í DV 15. feb. og nefndist „Enn um tímatalið". í grein sinni leitast Óskar viö að færa rök að þeirri skoðun sinni að ný öld hefjist um áramótin 1999 og 2000. Hann vitnar m.a. í grein mína en virðist eitthvað hafa misskilið hana. - Alltént kannast ég ekki við sumt af því sem Óskar segir mig hafa sagt, jafnvel þótt hann setji það innan gæsalappa. Kennitala Krists Við Óskar eigum sameiginlegt hugðarefni, þ.e.a.s. tímatalið. Óskar vill miða tímatalið við fæð- ingu Krists. Á því viðhorfi er þó einn augljós galli: Enginn veit hvaða ár Jesús frá Nasaret fædd- ist! Þetta kom ágætlega fram í grein Þorsteins Sæmundssonar um sama efni í DV 19. jan. Tímatalið er að nafninu til miðað við fæðingu mannsins frá Galíleu en kennitala hans er hulin eilíföarmóðu. Óskar telur að tvö viðhorf séu ríkjandi um viðmiðun á núllpunkti tímatalsins. Annars vegar miði sumir við fæðingu Krists. Hins veg- ar miði aðrir (þ. á m. ég) við 1. jan- úar „ári eftir fæðingu Krists". - Þarna skjátlast Óskari illilega. í grein minni sagði ég að núllpunkt- urinn væri miðaður viö „1. janúar árið 1 e. Kr.“ en ekki „ári eftir fæð- ingu Krists“. Á þessu er regin- munur. Hvað á árið að heita? Ef við nú miðum fæðingu smiðs- KjaUarinn Baldur Ragnarsson kennari ins frá Nasaret við tímatalið hefði hann fæðst 1. janúar árið 1 eftir Krist. Ekki gat hann fæðst árið núll því árið núll er ekki til og hef- ur aldrei verið til. En eitthvaö varð árið að heita. Þarna (og hvergi ann- ars staðar) liggur hundurinn graf- inn. Af grein Óskars er augljóst að hann gerir ráö fyrir árinu núll. Hann segir að .....árið 1 verður ekki til fyrr en eitt ár er liðiö frá fæðingu Krists... “ Hvað heitir þá fyrsta árið? í þessu liggur villa Óskars (og annarra). Þegar eitt ár er liðið frá einhverjum atburði fór- um við að ganga á annað árið. Sam- tímis hefst ár númer tvö og þegar því lýkur byrjar þriðja áriö, ár númer þrjú. Eins og sjá má af þessu er enginn munur á raðtölum og frumtölum í timatalinu (né annars staðar). Tí- unda ár hvers áratugar er ár núm- er 10,20,30 o.s.frv. Tugárið verður þó að líða áður en nýr áratugur (eða ný öld) hefst. Þann 1. janúar árið 2001 verða því 2000 ár „liðin og fullgerð" frá upphafi tímatals- ins. Af þessum sökum verður árið 2000 (og allir dagar þess) að líða áöur en 21. öldin getur hafið göngu sína. Rétt og rangt Af þessu má ljóst vera að við- horfin tvö til tímatalsins grund- vallast á því hvort menn reikna með árinu núll eður ei. Hvort held- ur menn telja mínútur, klukku- stundir, ár, aldur manna, kaffibolla eöa eitthvað annað byggja menn á stærðfræðinni. Og í stærðfræðinni er núll nákvæmlega ekki neitt. Því er annað viðhorfið rétt en hitt rangt. Það getur ekki verið annað en rangt að bæta einu ári við tíma- talið, ári sem afdrei var til. Ég vona að Óskar og skoðana- bræður hans megi sem oftast skála fyrir nýjum áratugum í framtíðinni - jafnvel þótt þeir geri það á vitlaus- um tíma. Og með þeim óskum læt ég þessari annarri (og vonandi síð- ustu) grein minni um þetta bless- aða eilífðarmál hér með lokið. Baldur Ragnarsson „Þann 1. janúar árið 2001 verða því 2000 ár „liðin og fullgerð“ frá upphafi tímatalsins.“ Fjölmiðlar Utvarpsþáttur í sjónvarpi Þaö sem hæst bar í sjónvarpi á sviði innlendrar dagsrárgerðar í gærkveldi var þáttur Ólínu Þor- varöardóttur, Gestagangur. Að þessu sinni var gestur hennar Jón Múh Ámason. Þátturimi var sá besti sem sést hefur af þessu tagi hjá Ófínu enda viðmæfandi hennar hress og kátur. Hitt er svo annað máf að þættir af þessu tagi, þar sem tveir eða þrír sitja og spjaffa, á ekk- ert erindi í sjónvarp. Þetta eru út- varpsþættir í beinni sjónvarpsút- sendingu. Á meöan kostir sjón- varpsíns sem miðils eru ekki nýttir á neínn hátt í þætti sem þessum er óþarfi að sjónvarpa þeim og kosta tifþessoffjár. Þar að auki eru þessir þættir stutt- ir og oft vaðiö úr einu í annað sem verður til þess að engin heildar- mynd næst af viðkomandi persónu eða ferli hennar, Ég var svona að velta því fyrir mér á rneöan ég sat yfir Gestagangi í gærkveldi hvort ekki hefði verið nær að draga einn ákveðinn þátt út úr lífsferli Jóns í stað þess að rey na aö þræöa nær allan hans æviferil á um 40 mínút- um. í gærkveldi var svo athyglisverð- ur þáttur á Aðalstöðinni, Sálartet- rið, þar sem Inger Anna Aikman tók á móti gestum í hljóðstofu. Og var umfiöllunarefnið sorg og sorgarvið- brögð. Sorgin er og veröur óhjá- kvæmilegur hluti af lífi okkar aflra jafnvel þó við forðumst yfirleitt að ræða hana. Gestir Inger voru þrír og var rætt um hinar ýmsu birting- armyndir sorgarinnar og hvernig við bregðumst við henni. Þátturinn var mjög afslappaður og ekki annað hægt að segja en stjórnandi og þátt- takendur kæmust vel frá sínu. Mað- ur gekk þess ekki dulinn oftir aö hafa hlustað á þáttinn að ef maður vissi meira um sorgina og hvernig líkami og sál bregðast við henni væri auðveldara aö sætta sig vlð hana. Jóhanna Margrét

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.