Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1990, Qupperneq 1
Fjölbreytt dagskrá í til-
efni afmælis Kópavogs
Kópavogskaupstaður minnist 35
ára afmælis síns í dag með marg-
'víslegum hætti. Afmælishátíðin
verður kl. 14.00 í Félagsheimili
Kópavogs í dag. Þar verða útnefnd-
ir bæjarlistamenn Kópavogs, út-
gáfunefnd Lionsklúbbs Kópavogs
kynnir útgáfu á Sögu Kópavogs í
þremur bindum, Samkór Kópavogs
syngur, nýstaðfest aðalskipulag
bæjarins verður kynnt og opnuð
verður sýning á því í Félagsheimili
og bókasafni.
Þennan sama dag halda nemend-
ur Tónbstarskóla Kópavogs tón-
leika í skólanum í Hamraborg 11,
þar sem eingöngu verður tlutt ís-
lensk tónlist, og daginn eftir, laug-
ardaginn 12. maí, heldur Skólakór
Kársness afmælistónleika í Lang-
holtskirkju í Reykajvík. Á þeim
tónleikum koma fram um tvö
hundruð börn og unglingar.
Allan laugardaginn frá kl. 10-16
stendur bæjarbúum og öðrum gest-
um til boða að skoða ýmis mann-
virki og stofnanir í bænum. Skipu-
lagssýning verður í bókasafninu,
nýja sundlaugin á Rútstúni við
Urðarbraut verður opin og ókeypis
verður í gömlu laugina þar sem
félagar úr sunddeild Breiðabliks
bjóða gestum upp á kaffi og með-
læti.
Náttúrufræðistofa Kópavogs
verður opin og athafnasvæðið við
Kársneshöfn sömuleiðis. Þar verö-
ur boðið upp á stuttar bátsferðir.
Kl. 14.00 verður opnuð sýning í
Snælandsskóla á verkum nem-
enda.
Á sunnudaginn kl. 14.00 verður
hátíöarguðsþjónusta Kársnes- og
Digranessókna í Kópavogskirkju.
Séra Árni Pálsson þjónar fyrir alt-
ari og séra Þorbergur Kristjánsson
prédikar. Þann 15. maí verður svo
opnuö sýning í' bókasafninu á
myndbst og verkefnum barna á
leikskólanum Grænatúni. Loks má
geta um umfangsmikla kynningu á
starfsemi leikskóla og skóladag-
heimila í Kópavogi frá 12. maí og
út mánuðinn. Þar er um að ræða
„opið hús“ og margvíslegar
skemmtanir og uppákomur sem
börnin standa sjálf fyrir undir leið-
sögn fóstra dg starfsfólks stofnan-
anna.
Skólakór Kársness, sem sést hér fyrir framan Kópavogskirkju, heldur
tónleika á morgun og er það einn liður i hátiðahöldunum.
Á laugardaginn verða opnaðar tvær sýningar að Kjarvalsstöðum. I Vestursal opnar Steinunn Þórarinsdóttir sýn-
ingu á höggmyndum og í austursal opnar Myndlista- og handíðaskólinn sýningu á útskriftarverkum nemenda. Á
myndinni er Steinunn Þórarinsdóttir ásamt nokkrum höggmyndum sinum. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega frá
kl. 11.00-18.00. DV-mynd BG
Nýhöfn:
Sýning Vignis Jóhannssonar
Vignir Jóhannsson opnar sýningu
í hstasalnum Nýhöfn, Hafnarstræti
18, laugardaginn 12. maí kl. 14-16. Á
sýningunni verða listaverk unnin úr
ýmsum efnum á þessu og síðasta ári.
Vignir er fæddur á Akranesi 1952.
Hann stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1974-1978 og
framhaldsnám í Rhode Island School
of Design í Bandaríkjunum. Vignir
hefur búið lengi erlendis og núna er
hann búsettur í Santa Fe í Nýju
Mexíkó þar sem hann vinnur alfarið
að list sinni.
Hann hefur haldið fjölda einkasýn-
inga hér heima og erlendis og tekið
þátt í samsýningum víða um heim.
Sýningin er opin virka daga frá kl.
10-18 nema mánudaga og frá kl. 14-18
um helgar. Sýningunni lýkur 30. maí.
Sveinn Bjömsson í Hafnarborg:
.Sýning í tilefni fjöru-
tíu ára málaraferils
Sveinn Björnsson opnar mál-
verkasýningu í Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar,
laugardaginn 12. maí. Tilefnið er 65
ára afmæli listamannsins og 40 ára
málaraferill. Á sýningunni verða um
sextíu olíumálverk og klippimyndir.
Sýningin er opin frá kl. 14-19. Sýn-
ingin stendur til 27. maí.
Sveinn Björnsson fæddist á Skál-
um á Langanesi 1925. Stundaði hann
nám í Det Kongelige Akademi í
Kaupmannahöfn, einnig í Róm, Flór-
ens og París. Sveinn hefur haldið
íjölda einkasýninga og samsýninga.
Einkasýningar: í Listamannaskálan-
um í Reykjavík og í Vestmannaeyj-
um 1954, Reykjavík, Hafnarfirði og
átta öörum stöðum 1958-1977, Gallerí
M í Kaupmannhöfn 1966, Kjarvals-
stöðum 1975, Den Frie Udstilling,
Kaupmannahöfn, 1978, Svart á hvítu
1982, Kjarvalsstöðum 1983, Ðen Frie
Udstilling 1985. Kgl. Lyngby, Dan-
mörku, 1988 og síðasta sýning hans
var á Kjarvalsstöðum í fyrra.
íslenska hljómsveitin:
Frumraun ungs stjómanda
íslenska hljómsveitin heldur Guðmundur er fæddur 1961.
tónleika í Langholtskirkju sunnu- Hann stundaði nám við Tónlistar-
daginn 13. maí og hefjast þeir kl. skóla Reykjávíkur og síðan við tón-
17.00. Á dagskrá eru fiögur tónverk: listarskólann í Utrecht í Hollandi.
Oktett fýrir blásara eftir Igor Stra- Þaðan lauk hann prófx í hljómsveit-
vinsky, Áttskeytla eftir Þorkel Sig- arstjórn í janúar síöastliðnum. Að-
urbjörnsson, Appalachian Spring alkennarar hans voru þeir David
eftir Aaron Copland og The Unan- Porvelin og Kenneth Montgomery.
swered Question eftir Charles Ives. Guðmundur hefur einnig sótt
Stjórnandi er Guðmundur Óli einkatíma hjá Jorma Panula í
Gunnarsson og er þetta j fyrsta Kaupmannahöfn.
sinn sem hann stjórnar íslensku Eins og sést á upptalningu á verk-
hljómsveitinm. unum á tónleikunum er eitt ís-
lenskt verk, Áttskeytla Þorkels Sig-
urbjörnssonar. Var verkið samið
að tilhlutan íslensku hljómsveitar-
innar og frumflutt undir stjórn
höfundar á tónleikum í maí 1985.
Lykillinn að Áttskeytlu felst í titlin-
um. Verkiö er samið fyrir átta
hljóðfæraleikara. í leikþeirra vísar
tónskáldið til kveðskaparmála með
tónrænum hugmyndum um rím,
stuðla og höfuðstafi.
Hér má sjá nokkur verka Sveins á sýningu hans i Hafnarborg.
DV-mynd BG