Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1990, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1990, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (91 )27022 - FAX: (91)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð i lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Fleiri bera sök Ákvöröun ríkisstjómarinnar um aö fresta gildistöku kjarasamnings Bandalags háskólamenntaöra rikis- starfsmanna aö þvi er varðar launahækkun 1. júlí næst- komandi er umdeild svo vægt sé til orða tekið. Bandalag- ið hefur aö sjálfsögðu bmgðist hart við og fleiri málsmet- andi menn taka undir þá skoðun að samningar skuli standa. Það er vissulega siðleysi að skrifa undir samn- inga um kaup og kjör og víkja sér síðan undan því að standa við skuldbindingar. Það á ekki síst við um ríkis- valdið sem á að ganga á undan með góðu fordæmi og virða þau réttindi sem almenn félagasamtök eða við- semjendur ríkisins hafa öðlast. Ef sjálft ríkisvaldið og ríkisstjórnin telur sig geta svikist undan efndum hvað þá um hinn almenna borgara? Hvers konar réttarríki og réttarvitund festir rætur í þjóðfélagi þar sem viðsemj- endum ríkisins er einfaldlega tilkynnt að samningar þeirra séu að engu hafandi? Hitt er aftur á móti rétt að minna á að ákvörðun ríkis- stjórnarinnar er ekki sú fyrsta sinnar tegundar. Hvað eftir annað hefur það viðgengist að kjarasamningum sé breytt með lögum eða íhlutun stjórnvalda og sjálfsagt kemst ríkisstjórnin upp með það einu sinni enn, sérstak- lega í ljósi þess að ákvörðun hennar gengur ekki út á að afnema launahækkunina heldur fresta henni. Það er semsé gefið í skyn að hækkunin muni koma til fram- kvæmda síðar. Þess vegna má halda því fram að hér séu hvorki brotin lög né samningar heldur beðið með að hrinda umsömdum hækkunum í framkvæmd. Það sem er óvanalegt við þetta mál er hins vegar að hér er ekki um almenna aðgerð að ræða af hálfu stjórn- valda. Hér er ekki gripið inn í allsheijarkjarasamninga heldur á í hlut eitt tiltekið stéttarsamband og ein tiltek- in hækkun. Enn óvenjulegra er einnig hitt að svo virð- ist sem Alþýðusamband íslands og verkalýðshreyfmgin sem shk hafi ekki aðeins lagt blessun sína yfir ákvörðun ríkisstjórnarinnar heldur og hótað illu ef hún kæmi ekki til framkvæmda. Hefur þá verið vísað til þjóðarsátt- arinnar margfrægu en hún var gerð eftir að samið var við BHMR. Ríkisstjórnin hefur greinilega staðið frammi fyrir þeim vanda að láta skammirnar um samningsbrot yfir sig ganga ellegar sprengja allan vinnumarkaðinn í loft upp. Af tveim slæmum kostum hefur sá illskárri verið valinn. Hvað sem stjórnarandstaðan hefur uppi mikla gagn- rýni má líklegt þykja að sami kostur hefði verið tekinn hver svo sem setið hefði við völd. Enginn stjórnmála- flokkur er saklaus af því að hafa gripið inn í samninga nema þá Kvennahstinn sem aldrei hefur fengið tæk- ifæri til þess. Bandalag háskólamanna getur að vonum verið í hefndarhug. Viðbrögð af þess hálfu eru skiljanleg. En Bandalagið getur engu að síður sjálfu sér um kennt. í texta samningsins stendur skýrum stöfum að standa skuh „að umræddum breytingum með þeim hætti, að ekki valdi röskun á hinu almenna launakerfi í landinu". Þetta er það skjól sem ríkisstjórnin skýlir sér á bak við og öllum mátti ljóst vera að eftir þjóðarsáttina og samn- inga á miklu lægri nótum yfir alla línuna mundi allt að 9% hækkuniauna til BHMR valda verulegri röskun. Siðferðið í kjarasamningum hefur enn einu sinni beðið hnekki. En sökin hggur ekki aðeins hjá þeim sem svíkja samningana heldur og þeim sem beita þrýstingi á bak við tjöldin og samningsmönnum BHMR sem skrif- uðu undir áðurnefndan texta. EUert B. Schram Allt frá stofnun Sovétríkjanna hafa Sovétríkin og Rússland veriö eitt og hið sama, ekki aðeins í augum margra heldur í raun og veru. Rússland var það ríkjanna 15 sem hafði minnst sjálfstæði, þar var ekki sérstök ríkisstjóm, sérstakur kommúnistaflokkur eða sjálfstæð- ar ríkisstofnanir eins og í hinum ríkjunum 14. - Rússland var stjórn- arfarslega sameinað yfirstjóm Sov- étríkjanna. Nú er þetta allt gjörbreytt og Rússland hefur allt í einu lýst yfir fuilveldi sínu og sérstöðu. Áður hafði rússneska þingið, sem er lýð- ræðislega kjörið, lýst rússnesk lög rétthærri þeim sovésku. Rússland hefur ekki lýst yfir sjálfstæði sínu eins og Litháen en í fullveldisyfir- lýsingunni er minnst á rétt ríkisins til að segja sig úr Sovétríkjunum. - Þetta em tímamót í sögu Sovét- ríkjanna, eftir þetta veröur ekkert Boris Jeltsín, nýkjörinn forseti Rússlands. -,,... með aðeins fjögurra atkvæða meirihluta en lýðræðislega kjörinn engu að síður og getur með réttu sagst vera fulltrúi almennings í Rússlandi." Tímamót í Rússlandi eins og það var. Ein veigamesta spurningin sem vaknar er hvor hefur meiri völd, forseti Sovétríkj- anna eða forseti Rússlands? Umboö þjóðarinnar í síðasta mánuöi var Boris Jeltsin kosinn forseti Rússlands á ný- kjörnu þingi ríkisins sem kosiö var í lýðræðislegum kosningum í mars. Hann var kjörinn í þriðju tilraun, með aðeins fjögurra atkvæða meirihluta, en hann er lýðræðis- lega kjörinn engu að síður og getur með réttu sagst vera fulltrúi al- mennings í Rússlandi. Þetta eitt setur Jeltsín í sterka aðstöðu gagn- vart Gorbatsjov Sovétforseta. Gor- batsjov er ekki kjörinn til eins eða neins, ekki einu sinni á sovéska þingið. Hann var valinn til for- mennsku í sovéska kommúnista- flokknum og yfirsfjóm ríkisins af klíku í stjórnmálaráðinu, á sama hátt og alÚr fyrirrennarar hans, og hann var tilnefndur af kommúni- staflokknum á þing, ekki kosinn neinni kosningu. Síðan hefur hann tekið sér viðtæk völd sem forseti og aukið stórlega völd forsetans, án fulltingis þjóöarinnar, með naumum meirihluta á þingi, sem ekki er lýðræðislega kjörið nema að hluta til. Það verður sífellt vafasamara hvort Gorbatsjov hefur þann stuðning þjóðarinnar sem nauð- synlegur er til að koma raunveru- legum umbótum í verk og um leiö er vafasamt hvort umbótatillögur hans koma að gagni nema öllu sov- éska kerfinu sé umbylt og til þess er Gorbatsjov ekki reiðubúinn enn. Þaö er Jeltsin aftur á móti. Fullveldið Það er þegar ljóst að Jeltsin stefnir að svo miklu sjálfstæði Rússlands að ef stefnumál hans komast í framkvæmd mun Rúss- land taka við mörgum málum sem nú heyra undir alríkisstjórnina undir forsæti Gorbatsjovs. - Til dæmis hefur hann sagt að sam- skipti Rússlands við önnur Sovét- ríki eigi að byggjast á tvíhliða samningum og hunsar þar með al- gerlega sovésku stjórnarskrána. Að auki segir Jeltsin að efnahags- legt sjálfstæði Rússlands byggist á því að ríkið ráði yfir öllu landi og öllum fyrirtækjum innan Rúss- lands. Með þessu er hann að gera kröfu til yfirráöa yfir þremur flórðu hlutum af heildariðnfram- leiðslu Sovétríkjanna því að Rúss- land er langmesta iðnríkið. Einnig eigi Rússland að hafa sinn eigin seðlabanka og yfirráð yfir gjaldeyr- istekjum sínum sem eru um 80 pró- sent af gjaldeyristekjum-allra Sov- étríkjanna. Rússland framleiðir yfir 90 ;;rósent af allri olíu Sovét- ríkjanna. Ofan á allt annað hefur Jeltsin talað um rétt Rússlands til sjálf- stæðrar utanríkisstefnu. í því felst KjaUaiinn Gunnar Eyþórsson fréttamaður meðal annars að Rússland gæti gert friðarsamning við Japan, sem strandar á yfirráðum yfir Kúrileyj- um, sem Sovétmenn tóku af Japön- um 1945 og hafa æ síðan neitað að skila. - Kúrileyjar tilheyra Rúss- landi og eru þar meö á valdsviði Jeltsíns. Jeltsín stefnir í stuttu máh að því að gera Rússland sjálfstætt og full- valda á flestöllum sviöum, nema nokkrum sem alríkisstjórn Gor- batsjovs mundi sjá um, svo sem vamarmál. Sovésk lög eigi að gilda því aöeins að þau stangist ekki á við rússnesk lög. Alræði kommúnlsta í eðli sínu eru fyrirætlanir Jelts- íns sams konar og áform sjálfstæð- issinna í Litháen en sá reginmunur er á að sovéska sflórnin hefur eng- in tök á því að kúga Rússland til hlýðni, nær væri hið gagnstæða. Jeltsín talar heldur ekki um fullt sjálfstæði, aðeins fullveldi. En þessi þróun mála er það mesta áfall sem Gorbatsjov hefur orðið fyrir á fimm ára stjómarferli sínum, í fyrsta sinn er stööu hans alvarlega ógnað og þar með alræði kommúnista- ílokksins í Sovétríkjunum. Allt fram til þessa hefur Gor- batsjov getað sagt að ekki væri um neinn annan kost að velja en for- ystu hans og kommúnistaflokksins en það gildir ekki lengur. Hann kom breytingum af stað, nú virðist hann hafa misst tök á framvindu mála. Breytingamar em vaxnar honum yfir höfuð og þær munu halda áfram, hvort sem hann situr að æðstu völdum eða einhver annar. Pólitískt frelsi Upphaf og endir allra efnahags- vandræða Sovétríkjanna er alræði kommúnistaflokksins, án þess að breyting verði þar á og Leninism- anum varpað fyrir róða verða efna- hagsumbætur ekki nema hálfkák. Svo hefur enda verið hingað til. Perestrojkan hefur mistekist vegna þess að ekki er tekið á grundvallar- atriðum áætlunarbúskaparins. Hugmyndir um skref í átt til mark- aðsbúskapar ganga of skammt, þær gera ráð fyrir að hækka laun og verðlag án þess að gefa víxlverkun- ina frjálsa og án þess að losa fram- leiðendur úr viöjum áætlunarbú- skapar. Með þessu er kynt undir verð- bólgu, verðhækkunum og atvinnu- leysi án þess að framleiðsla og framleiðni aukist. Samt hefur Gor- batsjov í hyggju að leggja þessar áætlanir fyrir þjóðina í þjóðarat- kvæðagreiðslu sem gæti orðið hans banabiti ef af yrði. En frjáls mark- aðsbúskapur, jafnvel með þátttöku ríkisins að hætti margra jafnaðar- mannastjórna í Vestur-Evrópu, er óþekktur í Sovétríkjunum og fram- andi þeim hugsunarhætti sem þar ríkir. - Sovétríkin geta ekki tekið það stökk í einu lagi, einhvern milliveg verður að finna. Það er ekki lengur víst að Gor- batsjov sé rétti maðurinn til að finna þann milliveg, hann er enn sem fyrr sannfærður kommúnisti og Lenínisti og allar hans umbætur byggjast á þeim grundvelli. En hann hefur lagt grunn að áður óþekktu pólitísku frelsi í Sovétríkj- unum. í krafti þess frelsis eru nú að koma upp fiöldahreyfingar sem hugsanlega gætu, áður en langt um líður, leyst kommúnista af hólmi. Margir ráðamenn í kommúnista- flokknum sjá nú engin önnur úr- ræði en deila völdum með lýðræð- islega kjörinni sfiórnarandstöðu. En fyrir kommúnista að deila völd- um með öðrum er slík bylting á öllu sovésku aö óvíst er hvort Gor- batsjov er rétti maðurinn til for- ystu miklu lengur. Það sem gerst hefur með fullveldisyfirlýsingu Rússlands er fyrirboði mikilla tíð- inda, þróunin í Sovétríkjunum get- ur úr þessu orðið miklu örari og óvæntari en nokkurn órar fyrir nú. Gunnar Eyþórsson „I eðli sínu eru fyrirætlanir Jeltsíns sams konar og áform sjálfstæðissinna í Litháen en sá reginmunur er á að sovéska stjórnin hefur eiigin tök á því að kúga Rússland til hlýðni, nær væri hið gagnstæða.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.