Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1990, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 15. JÚNl 1990.
35 v
LífsstOl
TOMATAR
Mlkll- Nóatún
garöur ■
■ ■
99 329
GURKUR
Mikllgaröur
Bónus
■ I
135 295
SVEPPIR
Mlkll-
garöur
Nóatún
II
498 697
VINBER
FJaröarkaup
Hagkaup g&Sj
PAPRIKA
Nóatún
Bónus
I I
260 648
KARTOFLUR
ftfllrpi
Bónus
Nóatún
56 124.50
199 315
—“=i íi
Tómatar hafa snarhækkað í verði frá síðustu viku, um heil 66%.
DV kannar grænmetismarkaðinn:
Tómatar snar-
hækka í verði
Tómatar hafa snarhækkaö í verði
frá því í síðustu viku og nam hækk-
unin 66%. Meðalverð á kílói af tómöt-
um var 133 krónur en er nú 221
króna. Ódýrustu tómatarnir fást í
Miklagarði við Hringbrautina þar
sem þeir eru seldir á tilboðsverði, 99
krónur kílóið. Eru þeir orðnir nokk-
uð þroskaðir en samt ætilegir. Dýr-
astir eru þeir í Nóatúni á Laugaveg-
inum þar sem 1 kg poki er seldur á
329 krónur. Rétt hjá mátti fá tómata
tvo og fjóra saman og kostaði kílóið
þá 330 krónur og 375 krónur. Munur-
inn á lægsta og hæsta verði er í þessu
tilviki 232%. í Bónus í Faxafeni fæst
1/2 kg poki á 89 krónur, eða 178 kíló-
ið. Hagkaup í Kringlunni selur kílóið
á 249 krónur og það er krónu dýrara
í Fjarðarkaupum.
Gúrkumar hafa einnig hækkað ht-
illega í verði, eða um 5 krónur, og
er meðalverðið núna 240 krónur.
Ódýrustu gúrkurnar fást í Bónus þar
sem þær eru seldar á 59 krónur
stykkið, eða 135 krónur kílóið. Gúrk-
umar eru 118% dýrari í Miklagarði
þar sem þær em dýrastar, á 295 krón-
ur kílóið. Fíarðarkaup selja kílóið á
250 krónur og Hagkaup og Nóatún
eru með gúrkukílóið á 259 krónur.
Sveppirnir hafa lækkað aðeins í
verði þar sem íslenskir sveppir eru
nú að verða allsráðandi. Meðalverð
á sveppum er núna 572 krónur en
var 610 krónur. Ödýrastir eru þeir í
Miklagarði, á 498 krónur kílóið, en
dýrastir í Nóatúni, á 697 krónur kíló-
ið. Munur á hæsta og lægsta verði
er því 40%. í Fjarðarkaupum kosta
sveppimir 535 krónur kílóið og í
Hagkaupi eru þeir á 559 krónur.
Hagkaup selur ódýrustu vínberin
þessa vikuna, á 199 krónur kílóið.
Dýrust eru þau í Fjarðarkaupum, á
315 krónur kílóið. í Miklagarði kosta
þau 285 krónur kílóið og í Nóatúni
299 krónur kílóið. Meðalverð á vín-
berjum hefur lækkað um 23% frá
síðustu viku.
Paprikan í Bónus er ódýrust þar
sem hún kostar 33 krónur stykkið
eða 260 krónur kílóið. Dýrust er
paprikan í Nóatúni, á 648 krónur
kílóið, og munurinn því 149%. Með-
alverð á papriku hefur lækkað um 5
krónur, úr 422 krónum í 417 krónur.
Og þá eru það kartöflumálin. Sé
fólk fyrst og fremst að leita að ódýr-
um kartöflum og lætur gæðin skipta
sig minna máh þá fæst 5 kg poki af
gömlum hollenskum kartöflum í
Bónus á 280 krónur - kílóið á 56 krón-
ur. Mikligarður er með 3 kg poka af
rauðum íslenskum á 219 krónur -
kílóið á 73 krónur, Hagkaup selur 5
kg poka af þýskum kartöflum á 395
krónur - 79 krónur kílóið, Fjaröar-
kaup selja 2 kg poka af gömlum
hollenskum á 172 krónur - 86 krónur
kílóið, en Nóatún er aðeins með nýj-
ar búlgarskar á 124,50 krónur kílóið
sé keyptur 2 kg poki. Aðrar verslanir
bjóða að sjálfsögðu einnig upp á nýj-
arerlendarkartöflur. -GHK
Sértilboð og afsláttur:
Af rússnesku kexi
og öðru kexi
í Bónus er nú farið að selja rúss-
neskt kex á hlægilega lágu verði og
hægt að gera kjarakaup, t.d. kostar
pakki með 300 g aðeins 30 krónur.
Þar fást einnig fjórir pakkar af Li-
bero bleium, 30 stykki í hveijum, á
2.268 krónur. Ritz kexpakki kostar
75 krónur, sex stykki af Trópí kosta
244 krónur og heildós af ferskjum
kostar 79 krónur.
Fjarðarkaup hafa tekið upp þá nýj-
ung að á fostudögum milli kl. 15 og
17 er hægt að fá valdar vörur á til-
boðsverði. í dag verður hægt að fá
300 g af Victoria kexi á 59 krónur og
Knorr hrísgrjónarétti á 95 krónur en
þeir kosta venjulega 230 krónur.
Fjarðarkaup bjóða einnig á tilboðs-
Sparigrís vikurtnar:
Verslunin
BÓNUS
torgi sínu upp á 200 g af Prince kexi
á 77 krónur, 150 g af Pims kexi á 89
krónur og 200 g af Candi kexi á 95
krónur. Þar er líka hægt að fá 3 kg
af Dixan þvottaefni á 598 krónur og
Shine uppþvottalög á 62 krónur.
I Hagkaupi er nú hægt að fá blóm-
kál á tilboðsverði og er það selt á 149
krónur kílóið. Einnig fást 121 af kóki
á 885 krónur, eða tæplega 74 krónur
htrann, 300 ml Emphathy hárþvotta-
lögur á 189 krónur, 300 g af Wasa
bruðum á 99 krónur, 300 g af Hob
Nobs súkkulaðikexi á 99 krónur og
375 g af Ota havre fras á 159 krónur.
í Miklagarði er nú verið að selja
Orville örbylgjupopp á 199 krónur,
Balsen club kex á 75 krónur, VA 1
af RC Cola á 98 krónur, 800 g af Happy
quick kakómalti á 287 krónur og M
kaffiá94krónur. -GHK
1 500- ð Tómatar ” Verð í krónum
Okt.Nóv.Oas.Jan Fab.MarrtprllMal Júnl
Okt.Nóv.Daa.Jan.Fab.MarskprllMal Júnl
Okt.Nóv.Dsa. Jan.Fab.MarakprllMal Júnl
700 '§» Vínber « Verð í krónum
500- A
/V
J L\
i \
/
o'kt.N'óv.DBS.ján.Fsb.Mara^prllMit Júnl
Paprika
Okt.NóvOaa.Jan.Fab.MarakprllMal Júnl
Kartöflur
130-. Verð í krónum