Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1990, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990.
Dans-
staðir
Bjórhöllin
Gerðubergi 1
Lifandi tónlist alla fimmtudaga,
fóstudaga og laugardaga.
Danshúsið Glæsibær
Álfheimum, sími 686220
Dansleikur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Danshöllin
Um helgina er diskótek á 1. hæö
og Dansdúett Önnu Vilhjálms
leikur fyrir dansi á 2. hæð.
Casablanca
Diskótek fóstudags- og laug-
ardagskvöld.
Dans-Barinn
Grensásvegi 7, sími 688311
Opiö fimmtudags-, föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld.
Tónlist sjöunda áratugarins í há-
vegum höfö.
Gikkurinn
Ármúla 7, sími 681661
Lifandi tónlist um helgar.
Hollywood
Ármúla 5, Reykjavík
Diskótek föstudags- og laug-
ardagskvöld.
Hótel Borg
Pósthússtræti 10, Reykjavík,
simi 11440
Diskótek fóstudags- og laug-
ardagskvöld.
Skálafell, Hótel Esju,
Suðurlandsbraut 2, Reykja-
vík, sími 82200
Guðmundur Haukur leikur
föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld og nk.
fimmtudagskvöld. Opið öll
kvöld vikunnar.
Hótel ísland
Ármúla 9, simi 687111
Sumarkabarett Hótel íslands,
„Miðnæturblús", verður frum-
sýndur laugardaginn 23. júni nk.
Hljómsveit hússins leikur fyrir
dansi.
Hótel Saga
Göran Palms kvartett spilar á
Mímisbar í kvöld.
Keisarinn,
Laugavegi 116
Opiö öU kvöld. Diskótek og
hljómsveitaruppákomur um
helgar.
Laguna og café
krókódíll
Diskótek um helgina.
Ölver
Álfheimum 74, s. 686220
Opið fimmtudags-, föstudags-,
laugardags- og sunnudags-
kvöld.
Úrval
- verðíð hefur
lækkað
19
Toyota-dagurinn:
Trjárækt og
skemmtihátíð
Greifamir hefja hring-
ferð í Næturklúbbnum
Greifarnir eru að koma fram á
sjónarsviðið á ný. Á næstu dögum
er væntanleg hljómplata með þeim
og í kjölfarið verður farin hringferð
um landið. Ferðalagið hefst í
Reykjavík næstkomandi föstudags-
og laugardagskvöld, nánar tiltekiö
í Næturklúbbnum.
Fyrir þá sem ekki kannast viö
Næturklúbbinn skal þaö tekið fram
að hann er á efstu hæð Sport-
klúbbsins við Borgartún 32 þar sem
Klúbburinn var í gamla daga. Und-
anfarna daga hafa unglingar
skreytt staðinn að vild, enda er
hann eins og sniðinn að kröfum
Greifanna sem eru vandir að vdrð-
ingu sinni. Næturklúbburinn verð-
ur þvd opnaður með heilmikilli vdð-
höfn þegar Greifarnir geysast um
svdöið 22. og 23. júní næstkomandi.
Landsmót harmóníkuunnenda:
Allar nikkur þandar
til hins ýtrasta
Jóhaimes Siguijónsson, DV, HúsavBc
Það er vdst óhætt að segja að nikk-
ur í hundraðatab verði þandar til
hins ýtrasta dagana 22.-24. júní en
þá fer fram landsmót Félags har-
móníkunnenda að Laugum í S-
Þing. Þetta mun vera fjórða lands-
mót félagsins.
Ellefu harmóníkufélög munu
koma fram á tónleikum á föstudag
og laugardag og öll félögin munu
síðan koma fram með hljómsveitir
á dansleikjum bæði kvöldin. Góður
gestur mun koma fram á mótinu,
sænski harmóníkusnillingurinn
Nils Flacke, og mun hann halda
tvenna tónleika.
Á Laugum er öll aðstaða til móts-
haldsins hin ákjósanlegasta- og
væntanlega verður veðriö gott,
eins og á hinum fyrri landsmótum.
Hótel Saga:
Sænskur harmóníku-
djass á Mímisbar
I kvöld, fóstudagskvöldið 22. júni,
mun sænskur djasskvartett leika á
Göran Palms-kvartettinn sem
skemmtir gestum Mímisbars á
Hótel Sögu.
Mímisbar á Hótel Sögu. Það er
Göran Palms-kvartettinn sem leik-
ur. Það sem gerir þennan kvartett
nokkuð sérstakan er að leiðandi
hljóðfærið í hljómsveitinni er
harmóníka.
Hljómsveitin hefur leikið saman
frá árinu 1980 og leikur að mestu
hefðbundinn djass frá árunum
1950-1960. Göran Palm, sem fer fyr-
ir kvartettinum, er harmóníkuleik-
arinn og þykir mjög ílinkur á sitt
hijóðfæri. Vakti hann strax mikla
athygli þegar hann kom fyrst fram
í dagskrá sænska útvarpsins en þar
er hijómsveitin tíður gestur.
Stuðmenn verða meðal skemmtikrafta á útihátiðinni í Varmalandi.
Þrír Spaugstofumenn, Sigurður Sigurjónsson, Örn Árnason og Karl
Ágúst Úlfsson.
í gegnum grínmúrinn
Gamanleikurinn í gegnum grin-
múrinn, sem er afkvæmi Spaug-
stofunnar, verður sýndur á þremur
stöðum um helgina. í kvöld verður
sýning í Skálavík í Bolungarvík,
annað kvöld í Alþýðuhúsinu á
ísafirði og sunnudagskvöld í Fé-
lagsheimihnu, Hvammstanga.
I gegnum grínmúrinn er eftir
Spaugstofuleikarana Karl Ágúst
Ulfsson, Pálma Gestsson, Randver
Þorláksson, Sigurö Siguijónsson
og Örn Árnason.
Um er að ræða tæplega tveggja
stunda gleðileik sem byggður er
upp á laustengdri röð spaugilegra
atriða sem tengd eru söng, hljóð-
færaslætti og ljósagangi. Meðal
persóna, sem koma fram í sýning-
unni, eru Pétur Tryggvason frétta-
stjóri, Kristján Ólafsson neytenda-
frömuður, rónamir Bogi og Örvar,
Friðmar C. Gauksson matreiðslu-
maður, Ragnar Reykás og Erlendur
fréttamaður, Friðrik Eyjólfsson
íþróttafréttamaður og margir fleiri.
Þá verður einnig haldið áfram leit-
inni að léttustu lundinni sem er
samstarfsverkefni Spaugstofunnar
og Samstarfshóps um sölu lamba-
kjöts.
í tilefni 25 ára starfsafmælis á
þessu ári efnir Toyota á íslandi til
tijáræktar- og skemmtihátíðar aö
Varmalandi í Borgarfírði laugar-
daginn 23. júní. Dagurinn veröur
helgaður gróðri og landgræðslu og
ætlar Toyota á íslandi aö gróður-
setja víðsvegar um landið um fjórt-
án þúsund plöntur eða eina plöntu
fyrir hvern Toyota-eiganda í
landinu.
Skemmtihátíðin verður svo í
Varmalandi í Borgarfirði. Boðið
verður upp á fjölbreytta dagskrá
meö skemmíiatriðum, gönguferö-
um, gróðursetningu, tónlist, íþrótt-
um, leikjum og grillveislu. Það er
því tilvalið að taka daginn snemma
og eiga ánægjulega dagstund í Var-
malandi.
Skemmtidagskráin sem stendur
frá kl. 15-18 á laugardaginn verður
fjölbreytt. Þeir sem koma fram eru
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra sem flytur ávarp. Ann-
að ávarp mun fulltrúi frá Toyota í
Japan flytja. Þá fer fram gróður-
setning. Eftir að búið er að gróöur-
setja koma fram Jóhannes Kristj-
ánsson, eftirherma, Stuðmenn,
Toyota-tríóið (Steindór Hjörleifs-
son, Valdimar Örnólfsson og Flosi
Ólafsson) og Jón Páll Sigmarsson.
Þá veröur börnum boöiö á hestbak
og listflug framiö. Að lokum verður
boðið til mikillar grillveislu.
Það er alveg víst að ef veðurguðir
lofa ætti að ríkja mikil útihátíðar-
stemmning að Varmalandi á laug-
ardaginn eins og sjá má af upptaln-
ingu á því sem er á dagskrá.
Sálin hans Jóns míns.
Sálin í Stapa og Lyngbrekku
Sáhn hans Jóns míns heldur um
helgina áfram landsyfirreið sinni
og kemur fram á tvennum miðnæt-
urhljómleikum um helgina. Á
föstudag heldur sveitin á Suður-
nesin og leikur þar um kvöldið í
Félagsheimilinu Stapa.
Á laugardagskvöld verður hljóm-
sveitin í Vesturlandsfjórðungi og
treður upp í Félagsheimilinu Lyng-
brekku. A efnisskrá eru að vanda
lög af útkomnum plötum sveitar-
innar en einnig verður kynnt nýtt
efni sem væntanlegt er á næstunni.
Heilmikil stækkun hefur orðið á veitingastaðnum Tveir vinir og einn i fríi.
Tveir vinir og einn 1 trn
Iifandi tónlist í
stækkuðum húsakynnum
Um síðustu helgi var opnaðurnýr
og stærri salur í veitingahúsinu
Tveir vinir og einn í fríi að Lauga-
vegi 45. Nýi salurinn er rúmgóður
með sviöi fyrir skemmtikrafta, litlu
dansgólfi og þægilegri koníaks-
stofu. Þama verður sem fyrr boðið
upp á lifandi tónlist öll kvöld þar
sem þekktir tónlistarmenn
skemmta.
Salurinn er opinn öll kvöld frá
kl. 18 og á matseðli verður áhersla
lögð á fondue-rétti. Litli salurinn
verður áfram opinn á daginn með
kaffl og léttum veitingum.