Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Blaðsíða 2
24
LAUGARDAGUR 11. ÁGIjST 1990.
BOar
Sportbíllinn Nissan 300ZX:
„Villidýr" með
mjúka takta, yfir-
drifið afl og
frábæra aksturs-
eiginleika
Citroén BX 14, '88, beinsk., 4
dyra, blér, ek. 36.000. V. 660.000.
Mjög góður.
Suzuki Swift ’89, ss., 4 dyra, blár,
ek. 25.000. V. 670.000.
Lada Sport ’87, 4ra g., 2ja d.,
hvítur, ek., 15.000, v. 470.000.
Globusn
Citroén AX 14, '90, beinsk., 2
dyra, hvítur, ek. 7.000. V. 695.000.
Allir bílar ytirfarnir og
í 1. flokks ástandi
OpSð í dag 10-14
„Villidýrið" frá Nissan er réttnefni á þessum sportbíl sem skilar sér í hundrað kílómetra hraða á sex sekundum og
fer létt með það að koma sér i 250 kilómetra hraða á þýsku hraðbrautunum.
Það er nokkuð sérstæð tilfinning
að sitja undir stýri á aflmiklum
sportbíl á hraðbraut með vísinn á
hraðamælinum kominn vel yfir 260
kílómetra hraða og finna að enn er
afgangs afl undir vélarhlífinni.
Til að forðast allan misskilning þá
átti þessi „glæfraakstur" undirritaðs
sér ekki stað hér á landi heldur á
þýskri hraðbraut á dögunum og bíll-
inn, sem hér um ræðir, er toppbíll
Nissanverksmiðjanna japönsku,
Nissan 300ZX.
Þaö er nokkrum vandkvæðum
bundið að reynsluaka sportbílum
sem gerðir eru fyrir mikinn hraða í
landi sem leyfir hæst 90 kílómetra
hraða í vegakerfinu. Því var brugðið
á það ráð af hálfu umboðsaðila Niss-
an hér á landi, Ingvars Helgasonar
hf., að leyfa okkur að reyna nokkra
bíla við betri aðstæður í Hollandi og
með smáviðkomu í Þýskalandi til
þess að komast þar á hraðbraut með
ótakmörkuðum hámarkshraða.
Bílarnir, sem við fengum að reyna,
voru sportbílarnir 300ZX og 200SX
ásamt Maxima, en auk þess fengum
við að reyna lúxusjeppann Pathfind-
er, sem í Evrópu er kallaður Terr-
ano, í akstri í hinu marflata Hollandi.
Viö byijum í dag á þvi að segja frá
viðkynningunni við „villidýrið"
300ZX, en síðar kemur röðin að 200SX
og Maxima. Jeppanum hafa þegar
verið gerð skil hér í DV Bílum, en
kannski endurnýjum við þau kynni
á næstunni með nýju fimm dyra út-
gáfunni af Pathfinder.
Samband manns og vélar
Þegar 300ZX var kynntur fyrir evr-
ópskum blaðamönnum fyrr á þessu
ári þá var herra ZX, eins og sumir
vilja kalla manninn á bak við þennan
sportbíl, Shigeyuki Yamaoka, einn
þeirra sem kynnti bílinn fyrir við-
stöddum. Þegar hann kynnti bílinn
varð honum tíðrætt um þá aksturs-
ánægju sem skapast af sambandinu
sem verður á milli manns og vélar í
akstri. Þetta samband getur skapast
á tvennan hátt að mati Yamaoka.
Þaö eru til bílar sem eru fyrirfram
þannig gerðir að þeir skapa minni-
máttarkennd hjá þeim sem ætla að
aka þeim, jafnvel áður en sest er
undir stýri. Þá eru einnig á hinn
bóginn til bílar, jafnvel óhemju
Bíladelld
Lágmúla 5, sími 91-681555
Þetta er fyrst og fremst tveggja manna far þótt tvö sæti séu til viðbótar aftur
i. Það fer vel um ökumann og farþega i framsætunum enda spillir mjúkt
leðrið ekki.
kraftmiklir, sem jafnvel óreyndir
ökumenn ráða vel við strax á fyrstu
metrunum.
Nissan 300ZX er einmitt slíkur bíll.
Ég hef ekki mikla reynslu í akstri
kraftmikilla sportbíla, en hef þó gam-
an af því að aka hratt þegar þess er
kostur eins og til dæmis á hrað-
brautunum í Þýskalandi. Félagar
mínir kalla það jafnan „lágflug" þeg-
ar þeir eru að ferðast með mér á
þeim slóðum í Evrópu. En þetta var
útúrdúr. Snúum okkur aftur að
300ZX.
Ekta sportbílar hafa það oftast sem
einkenni að þeir eru fyrst og fremst
ætlaðir fyrir tvo, jafnvel þótt aftur-
sæti fyrir aðra tvo sé einnig til stað-
ar. Svo er því einmitt farið með þenn-
an bíl, því vel fer um ökumann og
einn farþega í framsætum en frekar
þröngt er um þá sem ætla að fá sér
sæti í djúpum og þröngum aftursæt-
unum. Þau eru annars þannig í lag-
inu að þegar á annað borð er sest inn
í bílinn er nánast erfitt að koma sér
út aftur.
Allt innan seilingar
í bíl sem hægt er að aka á meira
en tvö hundruð kílómetra hraða á
klukkustund er nauðsynlegt að ekki
þurfi að leita langt frá stýrishjólinu
til að sinna öðrum stjórntækjum
Mælaborö og stjórntæki liggja vel við enda nauðsyn þegar ekið er á mikl-
um hraða í þungri umferð að þurfa ekki að leita að tökkunum.
Þrátt fyrir að afturhlerinn opnist vel upp er farangursrýmið ekki stórt en
nýtist þó ef aöeins tveir eru á ferð.