Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1990, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 1990.
Fréttir
Alþjóðlega skákmótið í Gausdal:
Hannes Hlvfar náði
stórmeistaraáfanga
- sigraðiámótinumeð7,5vinningaaf9mögulegum
„Mér líöur bara mjög vel en þetta
er fyrsti áfangi sem ég næ,“ sagði
Hannes Hlífar Stefánsson eftir aö
hafa náð fyrsta sæti og jafnframt
stórmeistaraáfanga á alþjóölegu
skákmóti sem haldið var í Gausdal í
Noregi. Lauk keppni nú um helgina.
Hannes hlaut 7 'A vinning af níu
mögulegum og var hann einn um
efsta sætiö. Hann vann sjö skákir í
röð eftir aö hafa tapað þeirri fyrstu.
- Hverju þakkar þú þennan góöa
árangur nú?
„Ég er í mjög góðu líkamlegu jafn-
vægi núna og hér eru aðstæður mjög
góðar. Umhverfið hefur mikið að
segja en ég hef farið í göngutúra og
haft gott næði til að tefla.“
_ - Hvað tekur við hjá þér þegar þú
kemur heim?
„Ég æfla að einbeita mér að ís-
landsmótinu sem hefst á Hornafirði
Hannes Hlífar Stefánsson náði fyrsta sæti á alþjóðlegu skákmóti sem hald-
ið var í Gausdal í Noregi.
28. ágúst en Margeir Pétursson og
Jón L. Árnason keppa þar sennilega
líka.“
Hannes tók þátt í tveimur mótum
ytra og fékk 5 vinninga af níu í því
fyrra, en að hans sögn var það mjög
erfitt mót og teflt i 10 klukkustundir
í senn. Eftir tveggja daga hvíld hófst
seinna mótið og fór hann þar með
sigur af hólmi, sem fyrr segir.
Af 84 keppendum voru 7 stórmeist-
arar og 20 alþjóðlegir. Auk Hannesar
var einn annar íslendingur, Amþór
Einarsson, meðal keppenda. Hann
hefur verið búsettur í Svíþjóð í 14 ár
og er áhugamaður í skák.
Hannes er væntanlegur heim í dag
en spjallið gat ekki orðið lengra þar
sem hann þurfti að hraða sér tii að
taka á móti sigurlaununum.
-tlt
Mikiðbálí
gasgrilli
Mikill eldur kom upp í gasgrilli
á svölum flölbýlishúss við Furu-
grund í Kópavogi á laugardag.
Húsráðandi var að reyna grillið
í fyrsta skipti. Kveikti hann á
grillinu eftir leiðbeiningum og
skrapp inn i íbúðina meðan það
var að hitna. Skyndilega gaus upp
mikih eldur og fyrir snör handtök
húsráðanda var stórslysi afstýrt.
Honum tókst að skrúfa fyrir gasið
en þá hafði rúðan út á svalirnar
sprungið. Slökkti hann eldmn
með slökkvitæki og að sögn lög-
reglu mátti ekki tæpara standa
þar sem gaskúturínn var orðinn
heitur. Hefði sprenging haft ófyr-
irsjáanlegar afleiðingar.
Ekki er vitað hvers vegna eld-
urinn gaus skyndilega upp en
grillið var splunkunýtt og ónotað.
Málið er í rannsókn hjá Ransókn-
arlögreglu. -hlh
í svifdreka
Maður féll í svifdreka við Kefla-
víkurflugvöll á föstudag og slas-
aðist töluvert. Var hann fluttur á
sjúkrahúsið í Keflavík þar sem
gert var aö meiðslum hans.
Maðurinn var að æfa flugtak á
svifdreka sínum. Stökk hann til
þess frá „rampi“ ekki langt frá
Leifsstöð. Missti hann stjóm á
drekanumogfélltiljarðar. -hlh
Uttekt á tekjum flölmiðlafólks:
Einkareksturinn örlátari en sá ríkisrekni
Ómar Ragnarsson trónir á toppi
listans. Þaö þarf ekki að koma á óvart
því hann er mikill vinnuhestur og
fékk góðan samning þegar hann var
keyptur yfir á Stöð 2. Þá fær hann
einnig tekjur sem skemmtikraftur
og þær vart af verra taginu. Hins
vegar verður að athuga að það er
greinilega áætlað á hann þannig að
fara verður varlega í allar fullyrðing-
ar um tekjur hans.
Það vekur hins vegar athygli að
Stöð 2 virðist borga sínu fólki mun
betri laun er ríkisrekna stöðin. Þann-
ig var Jón Óttar með nærri tvöfalt
meiri tekjur en Markús Örn og Páll
Magnússon er einnig vel fyrir ofan
Boga Ágústsson.
Herdís Þorgeirsdóttir
Kári Jónasson
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Stefán Jón Hafstein
Sigurveig Jónsdóttir
Páll Þorsteinsson
Atli Rúnar Halldórsson
Bogi Ágústsson
Markús örn Antonsson
Páll Magnússon
Jón Óttar Ragnarsson
Ómar Ragnarsson
100 200 300 400 500 600 700 800
Laun í ágúst 1989 Q Framreiknuð laun á verðlagi í ágúst 1990
Tekjurá mán. '89 i þús. kr. Á verðl. ágúst '90 í þús. kr.
Ómar Ragnarsson,* Stöð 2 ■ 625 724
Jón Óttar Ragnarsson, Stöð 2 500 580
Páll Magnússon, Stöð 2 331 383
Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri 272 315
Bogi Ágústsson, Sjónvarpinu 217 251
Atli Rúnar Halldórsson, Útvarpinu 208 241
Páll Þorsteinsson, Bylgjunni 208 241
Sigurveig Jónsdóttir, Stöð 2 200 232
Stefán Jón Hafstein, Útvarpinu 197 228
Sigmundur Ernir Rúnarsson, Stöð 2 184 213
Kári Jónasson, Útvarpinu 179 208
Herdís Þorgeirsdóttir,' Heimsmynd .125 145
'Áætlað á viðkomandi
Næstir á eftir Ómari, sjónvarps-
stjórunum og fréttastjórunum koma
síðan þrír útvarpsmenn. Neðst á list-
anum er Herdís Þorgeirsdóttir en það
er greinilega áætlað á hana.
í fyrri dálkinum eru sýndar skatt-
skyldar tekjur á mánuði árið 1989. í
seinni dálkinum eru þessar sömu
cúmlor fromrDÍl/nQf\ar fil
verðlags í ágúst 1990. Þá er miðað við
hækkun frandærsluvísitölu sem
nemur 15,86% frá meðaltali ársins
1989 til ágústmánuöar 1990. Það verð-
ur að hafa í huga að tekjur þeirra
þurfa ekki að fylgja framfærsluvísi-
tölu svo að laun þeirra nú gætu ver-
ið önnur en framreiknunin sýnir.
-PÍ
Þaö fór betur en á horfðist þegar Lada bill valt á Grensásvegi, á móts við
Breiðagerði, í gær en hér sést hjúkrunarfólk vera að stumra yfir bílstjóran-
um sem slasaðist sem betur fer ekki mikið. DV-mynd S
Hraðfrystihús Stokkseyrar:
Glímir við mikla
rekstrarerfiðleika
Hraðfrystihús Stokkseyrar glimir
enn við mikla rekstrarerfiðleika. At-
vinnutryggingarsjóður hafði lofað
fyrirtækinu á milli 90 og 100 milljón
króna aðstoð en það hefur ekki enn
fengið það ijármagn.
„Það fer eftir ýmsu hvenær Hraö-
frystihús Stokkseyrar fær pening-
ana. Við samþykktum aðstoð í fram-
haldi af tillögum hlutaijársjóðs en
þau skilyrði sem við settum fyrir
greiðslunni hafa ekki enn verið upp-
fyllt. Hraðfrystihúsið fær enga að-
stoð frá okkur fyrr en staða þess telst
viðunandi,“ segir Gunnar Her-
mannsson, forstöðumaður Atvinnu-
tryggingarsjóðs.
Upphaflega hafði Atvinnutrygging-
arsjóður neitað fyrirtækinu um að-
stoð þar sem það væri í raun gjald-
þrota. Þá leitaði fyrirtækið til hluta-
fjársjóðs sem lagði um 130 milljónir
til fyrirtækisins. Auk hlutafjársjóðs
á Byggðastofnun hlut í fyrirtækinu
en hún tók hlutdeildarskírteini
sjóðsins upp í skuld fyrirtækisins við
stofnunina. Loks á Stokkseyrar-
hreppur 15 milljónir í fyrirtækinu en
Byggðasjóöur lánaði þá íjármuni.
-J.Mar