Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1990, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1990, Qupperneq 9
MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 1990. 9 Utlönd Mikil óvissa ríkir á mörkuðum Irösk stjórnvöld hafa varaö aðild- arriki OPEC, Samtök olíuútflutn- ingsríkja, viö því aö auka framleiðslu sína og fylla þannig upp í fram- leiöslutap það sem innrás íraka í Kúvæt hefur orsakaö. Heimildir herma að ráðamenn sumra aðildar- ríkja OPEC hafi rætt um það sín á milli að auka framleiðsluna en fram- leiðslutap vegna innrásarinnar nem- ur fjórum milljónum tunna á dag. Framleiðsla Kúvæt nam 1,5 millj- ónum tunna daglega áður en írakar réðust inn í landið. En hvorki írakar né Kúvætar hafa framleitt ohu síðan í síðustu viku þegar Sameinuðu þjóð- irnar settu viðskiptabann á báðar þjóðirnar. Heimildir herma að OPEC-ríkin kunni að auka fram- leiðslu sína sem nemur helmingi framleiðslutapsins. Heimsmarkaðsverð á oliu hækkaði gífurlega í kjölfar innrásarinnar og á fóstudag var tunnan skráð á 26,23 dollara. í síðustu viku var tunnan seld á allt að 28 dollara en verð lækk- aði á ný þegar fréttist að Saudi- Arabía hygðist auka framleiðslu sína. Ekki er enn ljóst hvort svo verð- ur. Seint í júh samþykktu olíumála- ráðherrar OPEC-ríkjanna að tunnan skuli seld á 21 dollar. Hvert verðið verður þessa vikuna er undir ástand- inu við.Persaflóa komiö og búast flestir við miklum sveiflum í verði. í morgun hækkaði olíuverð um næst- um einn dollar vegna ótta um að olíu- lindir Saudi-Arabíu, heimsins stærsta ohuframleiðsluríkis, myndu verða illa úti komi til átaka. Þá hefur verðbréfamarkaðurinn ekki síður verið sveiflukenndur síð- ustu daga og hafa verðbréf fallið í verði. Verðfallið hélt áfram á mörk- uðum í morgun og í Tokýo féh Nik- kei-verðbréfavísitalan um fimm pró- sent á fyrstu mínútum viðskipta. í fyrsta sinn í tvö ár var vísitalan skráð á undir 26,000 stig. Reuter S. 17440 - 689017 UTSALA w A w II HATOLURUM 25 TIL 30% LÆKKUN PRODEX: CX-1000,120 W CX-2000,150W HT-1700,170 W HT-2000,200W MX-5000, 100 W Verð áður Kr. 21.640,- Kr.26.190,- Kr.20.160,- Kr. 26.950,- Kr. 25.440,- Verð nú parið Kr. 15.150,-stgr. Kr. 18.335,-stgr. Kr. 14.115,-stgr. Kr. 18.865,-stgr. Kr. 17.800,-stgr. WHARFDALE 990, 100W Kr. 22.800,- Kr. 15.960,-stgr. ALTEC LANSING: AL-85,80 W AL-55,80 W AL-101, 100W AL-301, 200 W AL-401,250 W AL-508,250 W Kr. 22.200,- Kr. 24.560,- Kr. 36.420,- Kr. 79.665,- Kr. 101.970,- Kr. 15.540,-stgr. 17.200,-stgr. Kr. 27.000,-stgr. Kr. 59.750,- stgr. Kr. 76.480,-stgr. •Kr. 79.890,- stgr. Kr. 106.525,- (Bassabotn með innbyggðum 100 W magnara.) PSW-10, 100W Kr.85.015,- Kr. 63.760,-stgr. Sendum í póstkröfu 3 [\dCUO Ármúla 38, símar 31133 og 83177,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.