Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1990, Side 11
MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 1990.
11
PV_______,_______Útlönd
Fjöldahandtökur
BÁRUSTÁL
Yfirvöld í Pakistan réöust til atlögu
gegn stuðningsmönnum Benazir
Bhutto, fyrrum forsætisráðherra,
um helgina og voru að minnsta kosti
átta handteknir. Fyrir dögun í gær
réðst lögregla inn á heimili að minnst
kosti fimmtíu þekktra stuðnings-
manna Bhutto. Að sögn lögregluyfir-
valda hafa margir félagar í Þjóðar-
flokknum, flokki ráðherrans fyrr-
verandi, farið í felur.
Bhutto var rekin úr embætti for-
sætisráöherra síðastliðinn mánudag
og segja sumir stuðningsmanna
Benazir Bhutto, tyrrum forsætisráðherra Pakistan, hefur lýst því yfir að hún
muni leita til dómstólanna vegna brottvísunar sinnar úr embætti.
Símamynd Reuter
29 ár síðan Berlínarmúrinn var reistur:
Tákn liðinna tíma
Þjóðverjar beggja vegna landa-
mæranna söfnuðust saman við Ber-
línarmúrinn í gær til að minnast
þess að í dag eru 29 ár frá því að
hann var reistur. í fyrsta sinn í tugi
ára ríkti gleði í stað sorgar í brjóstum
þýsku þjóðarinnar á þessum degi.
Þegar kommúnistastjórn Austur-
Þýskalands hóf að reisa hinn 160
kílómetra langa múr, 13. ágúst 1961,
var það til að koma í veg fyrir flótta
vestur á bóginn. En frelsisþrá Aust-
ur-Þjóðverja reyndist of sterk og líf-
seig fyrir þáverandi stjórnvöld og
þann 9. nóvember í fyrra reis al-
menningur gegn stjórnvöldum. í dag
er lítið eftir af þessu tákni kalda
stríðsins, sérstaklega í gamla miðbæ
Berlínar, þangað sem flestir ferða-
menn sækja.
Varðhundar, leitarljós og varð-
menn einkenndu landamæri ríkj-
anna í borginni og fáum tókst að
brjóta sér leið gegnum múrinn. Átta-
tíu manns létu lífið þegar þeir reyndu
að flýja til frelsisins vestan megin
yfir múrinn. Nú eru landamærin
opin og sameining þýsku ríkjanna í
sjónmáli.
Reuter
Þetta var algeng sjón í Berlín í nóvember í fyrra, Þjóðverjar á Berlínarmúrn-
um fagna falli hans. Símamynd Reuter
hennar að herinn hafi átt þar hlut
að máii. Um helgina sagðist Bhutto
sjálf mundu leita réttar síns fyrir
dómstólum. Þá lýsti hún því yfir að
flokkur sinn styddi ekki hina nýju
bráðabirgðastjórn landsins undir
forsæti síns helsta pólitíska óvinar,
Ghulam Mustafa Jatoi.
Jatoi hefur sakað stjórn Bhuttos
um spillingu og sagt að yfirvöld
mundu rannsaka stjórn hennar. Svo
getur farið að Bhutto fái ekki að
bjóða sig fram í boðuðum kosningum
í október næstkomandi. Margir telja
að stjórnin, sem nýtur stuðnings
hersins, muni reyna hvað hún getur
til að koma í veg fyrir að Bhutto taki
þátt í kosningunum. Fjölmiðlar í
Pakistan, fyrir utan þeir ríkisreknu,
hafa tekið æ harðari afstöðu gegn
brottvísun Bhuttos og nýju bráða-
birgðastjórninni síðustu daga. Þeir
hafa gagnrýnt forsetann fyrir að
velja Jatoi til að stýra bráðabirgða-
stjórninni í stað þess að velja hlut-
lausanforsætisráðherra. Reuter
Sígilt form - Litað og ólitað
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000
5 s. GUDLAL1GS50
100
AGÚtU
EINDAGI
STAÐGREIÐSLUFJÁR
ER 15. HVERS MÁNAÐAR
Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og
reiknuðu endurgjaldi í hverjum mánuði. Með gírókerfi staðgreiðslu er unnt
að greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum.
Eindagi staðgreiðslufjárer 15. hvers mánaðar.
i::—
Munið að gera skiltímanlega!
ÚISAI
30^0%
AFSIÍTHIR
Austurstræti 14 - sínii 12345
W Uttj