Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1990, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 1990.
35
LífsstLlI
Virðisaukaskattur:
Ný reglugerð um endurgreiðslur
vegna viðgerða og viðhalds
Endurgreiðsla virðisaukaskatts nær nú til viðgerða og viðhalds á húsnæði en þær breytingar urðu eftir setningu
bráðabirgðalaga í síðasta mánuði.
Með setningu bráðabirgðalaga í
síðasta mánuði hefur breyting orðið
á reglum varðandi endurgreiðslur
virðisaukaskatts vegna vinnu við
endurbætur húsnæðis. Nú ná endur-
greiðslur ekki eingöngu til vinnu
vegna endurbóta heldur einnig til
vinnu vegna viðgerða og viðhalds
Neytendur
húsnæðis en svo var ekki áður. Að
auki hefur verið falhð frá svokallaðri
7% reglu en hún kveður á um að ein-
ungis skuli endurgreiða virðisauka-
skatt vegna greiddrar vinnu ef heild-
arkostnaður nær í það minnsta 7%
af fasteignamati íbúðar. Þótti þetta
of hátt mat þar sem fáir náðu þessu
marki. Sem fyrr er greitt til baka
miðað við ár.
Vinnuþáttur endurgreiðsluhæfur
Áður en virðisaukaskatturinn kom
til sögunnar var vinna við viðhald
og endurbætur undanþegin sölu-
skatti. Með tilkomu virðisauka-
skattsins varð þessi sama vinna
skattskyld en nú hefur orðið breyting
þar á sem má teljast eðlileg í ljósi
þeirra reglna sem áður voru við-
hafðar og einnig vegna þess að bygg-
ingarkostnaður, svo og kostnaður
við viðgerðir, jókst verulega. Var
mikil óánægja með þetta fyrirkomu-
lag og er breytingin því kærkomin
þeim sem standa í viðgerðar- og við-
haldsframkvæmdum.
Endurgreiðslur ná til þeirrar vinnu
sem hefur verið innt af hendi á þessu
ári. Er nauðsynlegt að allar upplýs-
ingar komi fram á reikningum sem
fylgja endurgreiðslubeiðni. Eru til
skýrar reglur sem kveða á um það.
Vill stundum brenna við að ekki
hefur verið gengið frá þeim á þann
hátt að vinnuþáttur og efnisþáttur
hafi verið aðskildir. Þetta getur vald-
ið vandkvæðum þar sem aðeins er
endurgreiddur virðisaukaskattur af
vinnu en ekki efniskostnaði. Þessi
getur til að myndá verið raunin í
þeim tilfellum sem verk hefur verið
boðið út og greitt hefur verið fyrir
ákvæðisvinnu en ekki borguð tíma-
laun.
Geta skattayfirvöld kraflst þess að
fá að sjá alla reikninga og er nokkuð
strangt eftirlit með því. Fyrir þá sem
ekki hafa sundurliðaða reikninga tii
að byggja umsókn sína á er nauðsyn-
legt að leita til þeirra aðila sem sáu
um vinnuna og fá þá til að leiðrétta
reikningana þannig að þeir séu gildir
til að fylgja umsókninni.
Það sem ennfremur þarf að koma
fram er að vinnan hafi verið innt af
hendi á byggingarstað. Endur-
greiðslan nær aðeins til þeirrar
vinnu sem framkvæmd er á staðnum
en ekki þeirrar sem fram fer annars
staðar, svo sem á verkstæði. Ekki
nær endurgreiðslan til sérfræðiþjón-
ustu sem fengin er.
Umsókn berist skattstjóra
í fyrsta sinn kemur til endur-
greiðslna á næsta ári og skulu þeir
sem þann rétt eiga senda skattstjóra
í því umdæmi, þar sem þeir eiga lög-
heimili, greinargerð í því formi sem
ríkisskattstjóri ákveður um greidda
vinnureikninga á viðkomandi upp-
gjörstímabili. Þar sem nokkuð er í
það að endurgeiðslur hefjist liggur
sérstakt eyðublað ekki enn fyrir. Er
verið að vinna að uppsetningu þess
á vegum embættis ríkisskattstjóra
og mun það væntanlega verða tilbúið
á næstunni. Ný reglugerð er heldur
ekki fullgerð enn.
Greinargerð vegna endurbóta, við-
gerða og viðhalds, sem til fellur inn-
an eins almanaksárs, þarf að berast
skattstjóra í síðasta lagi 15. janúar
árið eftir.
Skattstjóri er sá aðili sem fer yfir
endurgreiðslubeiðnina og getur
hann farið fram á að skoðuð verði
öll gögn sem beiðnin er grundvölluð
á. Að lokum tilkynnir skattstjóri
samþykkta endurgreiðslu inn-
heimtumanni ríkissjóðs sem síðan
annast hana.
Dæmi um viðgerð og endurgreiðslu
getur verið á þá leið að fyrir viðgerð
á íbúð, þar sem heildarkostnaður
nemur 300 þúsundum, er vinnuhlut-
fallið um 65%. Eru því greiddar um
195 þúsundir fyrir vinnuþáttinn og
myndi endurgreiðslan koma til með
að vera tæpar 40 þúsund krónur.
-tlt
SA-L-A-T
GEVMIST vm tf~4-c
"Iliii IMEWimo«roii.oi , 100 „ „
f fifk, KJ vm tol).
1 “• >« 8. WMn a <3, MvmíI » B.
m~o 7 «•»<!■»« •
OACUft
OmASirt
sWimtUKí
Spottinn, sem fannst í hangikjötssalatinu, varö til þess að konan missti
matarlystina. DV-mynd JAK
Spotti í salati
Það getur verið hvimleitt að eyða
peningum í matvæli sem reynast
svo vera óæt. Ekki alls fyrir löngu
keypti kona sér hangikjötssalat frá
SS í kjörbúð og ætlaði að gæða sér
á því þegar heim var komið. Lystin
hvarf eins og dögg fyrir sólu þegar
hún fékk sér bita og komst að því
að spotti leyndist í salatinu.
Óskemmtileg reynsla en ekki er
vitlaust í tilfellum sem þessum að
fara í verslunina, þar sem varan
er keypt, til að fá vöruna bætta
þegarístað. -tlt
Verðmunur á túnfiski
Það hefur sýnt sig hvað eftir annað
að það borgar sig fyrir neytendur að
vera meðvitaðir um verðlag á þeirri
vöru sem þeir kaupa. Ekki er alls
staðar borguð sama upphæð fyrir
sömu vöruna. Það sannaðist hér um
daginn þegar keyptur var túnfiskur
í tveimur verslunum á höfuðborgar-
svæðinu. Um sömu vöru var að ræða
frá sama framleiðanda. í öðrum til-
vikinu kostaði túnfiskurinn frá
Neptuna 79 krónur og var það verðið
í Hagkaupi. Verri kost var að finna
í Kaupstað í Mjódd þar sem túnfisk-
urinn kostaði 95 krónur. Munaði um
16 krónur á dósunum sem gerir 20%
hækkun í síðara tilvikinu.
20% verðmunur var á túnfiski milli tveggja verslana. DV-mynd JAK
Sterkar plastlagðar borðplötur
með ávölum kanti
Ódýrar hillur fyrir heimili, geymslur
og vinnustaði. Innlend framleiðsla
HF.OFNASMIDJAN
Háteigsvegi 7. s 21220, 105 Reykjavik