Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1990, Blaðsíða 28
36
MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 1990.
Merming
DV
Tónlist Hafliða
Á sumartónleikum í Skálholti nú um helgina voru
einir tónleikar með verkum Hafliða Hallgrímssonar
eingöngu. Flytjendur auk Hafliða sjálfs, sem lék á
selló, voru þau Helga Ingólfsdóttir semballeikari og
Kolbeinn Bjarnason flautuleikari auk sönghópsins
Hljómeykis.
I efnisskrá tónleikanna var að fmna prógrammatí-
skar lýsingar höfundarins á verkunum og er það vafa-
laust til gagns fyrir þá sem eiga erfitt með að festa
hendur á óhlutkenndu eðli tónlistarinnar. Fyrir aðra
er þaö óþarfi því að tónverk Hafliða sem þarna voru
flutt voru einkar skýr og töluðu sínu eigin máli. Þau
bera þess merki að vera afurð manns sem gjörþekkir
vestræna tónhstarhefð af eigin reynslu. Andinn er
rómantískur og tónmiðjur eru áberandi í tónamálinu
og minna á Bartok, þótt það að öðru leyti sé ómblíð-
ara og meira heyrist af þríhljómum. Hefðbundin stef-
ræn uppbygging mótar formið og er það ef til vill
helsti veikleiki sumra verkanna sem þarna voru flutt,
að stundum skorti á fjölbreytni í úrvinnsluaðferð-
um.
Sembalverkið Strönd hljómaði mjög fallega og var
ef til vill best lukkaða verkið. Vefur tónklasa skapar
bakgrunn fyrir laglínu sem þróast á skemmtilegan
hátt. Flutningur Helgu Ingólfsdóttur var mjög góður.
Verse 1 fyrir flautu og selló er áheyrilega rómantískt
og var prýðilega flutt af Hafliða og Kolbeini Bjarna-
syni. Þá var frumflutt verkið Flug Ikarusar sem er
einleiksverk fyrir flautu. Miklar kröfur eru gerðar til
einleikarans í því verki en Kolbeinn haföi það allt vel
á valdi sínu og sýndi á köflum mjög góð tilþrif.
Þjóðlagaútsetningar Hafliða eru ágætlega gerðar en
mest tilþrif eru í útsetningu hans á Veröld fláa sýnir
Tórúist
Finnur Torfi Stefánsson
sig. Hljómeyki flutti þessi lög undir stjórn Hafliða og
svo var einnig um verk hans Triptych, sem samið er
við ljóð Salvatore Quasimodo. Hljómeyki er mjög góð-
ur kór og enn einn vitnisburðurinn um ágæti íslenskr-
ar söngmenningar. Hefur kórinn greinilega góðu söng-
fólki á að skipa og samvinna kórs og stjórnanda var
ágæt. Einkum tókust þjóðlögin vel.
Ekki spillti þaö fyrir þessum tónleikum aö veður-
blíða í Skálholti var mikil og eftir tónleikana mátti sjá
tónleikagesti reika um túnin í brakandi þerrinum til
að fegurð staðarins mætti taka þar við sem tónlistin
hætti.
Einleikur á gítar
Á sumartónleikum í Skálholti um helgina lék Einar
Kristján Einarsson einleik á gítar. Á efnisskrá hans
voru verk eftir John Dowland, Hafliða Hallgrímsson,
Karólínu Eiríksdóttur og Benjamín Britten.
Gítarinn nýtur vaxandi vinsælda. Ekki aðeins í dæg-
urmúsík heldur einnig í alvarlegri tónlist. Gegnir það
nokkurri furðu þar sem eiginleikar gítarsins eru um
flest mjög ólíkir því sem margir telja einkenna tuttug-
ustu öldina framar öðru, sem er ópersónulegur hávaði
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
og hamagangur. Heimur gítarsins er hljóður og nálæg-
ur. Hans eru blæbrigði þess Finlega, sem njóta sín
best þegar spilað er veikt. Gítarinn krefst af áheyrend-
um virðingar, þagnar og þolinmæði.
Skálholtskirkja er ákjósanlegur staður til að leika á
þetta kröfuharða hljóðfæri. Helgi staðarins gerir menn
reiðubúnari til að sýna hljóðfærinu fulla lotningu og
hljómburður kirkjunnar hentar ágætlega. Að minnsta
kosti virtist það svo á tónleikum Einars. Fyrsta lagið,
Fantasía Johns Dowland, leið að vísu nokkuð fyrir það
að hljóðfærið var illa stillt. En þegar flytjandinn hafði
lagfært það fór allt að færast til betri vegar. Jakobs-
stigi Hafliða er einkar snoturt verk og naut sín ágæt-
lega þama. Sömu sögu er aö segja um verk Karólínu
Eiríksdóttur. Hvaðan kemur lognið? en það var frum-
flutt þama. Tónamál Karólínu í þessu verki er nokkuð
sérstakt og ekki auðheyrt á hveiju það byggist. Gefur
það verkinu mjög ferskan persónulegari stíl. Að öðru
leyti er notast við heföbundna stefjaúrvinnslu og er
það að vissu leyti athyglisvert að öll verkin á þessum
tónleikum áttu þetta sameiginlegt. Var ekki unnt að
heyra teljandi mun að þessu leyti á tuttugustu aldar
verkunum og verki sextándu aldar mannsins Dow-
Einar Kristján Einarsson.
lands.
Tónleikunum lauk á verki Brittens Nocturnal. Tón-
list Brittens er nýklassík með rómantísku ívafi og yfir-
leitt frekar sæt en djúpfógur. Þannig er þetta verk
einnig, kunnáttusamlega samið með mörgum lagleg-
um hugmyndum, en er hvorki sérlega frumlegt né rist-
ir djúpt. Það er trúlega einnig fulllangt. Það fannst að
minnsta kosti tveim ungum fegurðardísum sem sátu
í fangi móður sinnar þarna í kirkjunni. Þær hlustuðu
með djúpri athygli á verk Hafliða og Karólínu en þeg-
ar tók að líða á Britten fóru þær að ókyrrast og önnur
gat jafnvel ekki stillt sig undir lokin um aö gretta sig
ofurlítið framan í virðulegan gagnrýnanda DV sem
þama sat.
Einar Kristján komst vel frá þessum tónleikum.
Leikur hans var ekki snurðulaus en honum tókst oft
að skapa ágæta stemningu.
inni. Hann gegndi því starfi til ársins
1977, er hann var skipaður deildar-
stjóri birgðabókhaldsins. Eftirlifandi
eiginkona hans er Kristín Sigur-
björnsdóttir. Þau hjónin eignuðust
fimm böm. Þorsteinn eignaðist einn
son fyrir hjónaband. Útfór hans
verður gerð frá Hafnarfj arðarkirkj u
í dag kl. 13.30.
Ólafur Önundarson lést 27. júlí. Hann
var fæddur á Norðfirði 21. september
1915. Foreldrar hans voru Anna
Marta Lárusdóttir og Önundur Jó-
sefsson. Eftirhfandi eiginkona hans
er Bergþóra Magnúsdóttir. Þau hjón-
in eignuðust einn son. Ólafur starfaði
lengst af við að leggja parket á gólf.
Útfór hans verður gerð frá Aðvent-
kirkjunni í Reykjavík í dag kl. 13.30.
Tórúeikar
Tónleikar á Akranesi
Tónleikar verða haldnir í safnaðarheim-
ilinu Vinaminni á Akranesi þriöjudaginn
14. ágúst kl. 20.30. Þá munu Sigurður
Halldórsson sellóleikari og Daníel Þor-
steinsson píanóleikari flytja „Arpeggi-
one“, sónötu Schuberts, sónötu í F-dúr
eftir Brahms ásamt verkum eftir Fauré
og Hindemith. Á tónleikum í byrjun árs
1983 hófst áralangt samstarf þeirra Daní-
els og Sigurðar á sviöi fijálsrar spunatón-
listar. Reyndist það hinn ákjósalegasti
jarðvegur er þeir fóru að spila saman sí-
gilda tónlist fyrir þremur árum, eftir að
hafa stundað hefðbundið tónlistarnám.
hvor í sínu horni frá unga aldri. Daniel
lærir nú við Sweelinck Tónlistarháskól-
ann í Amsterdam undir leiðsögn Willems
Brons en Sigurður lauk námi fyrir
nokkru frá Guildhall School of Music and
Drama í London og sækir enn tíma hjá
aðalkennara sínum þar, Raphael Som-
mer.
Tilkyiiningar
Hið íslenska náttúrufræðifé-
lag
Helgina 25.-26. ágúst er áformaö að fara
upp að Húsafelli og gista þar eina nótt. Á
Húsafelli verða skoðaðar jarðmyndanir í
Húsafellseldstöðinni. Margt fleira er þar
markvert að sjá. Aðalleiðsögumaður
verður Kristján Sæmundsson jarðfræð-
ingur sem gjörþekkir þessi svæði. Lagt
verður af stað frá Reykjavík kl. 9 á laug-
ardag og ekið um Hvalöörð og Borgar-
fjörð en síðdegis á sunnudag haldið heim
um Kaldadal og Þingvelli. Fjöldi þátttak-
enda er takmarkaður við 100 manns. öll-
um er heimil þátttaka en nauðsynlegt er
að skrá sig í ferðina fyrir 21. ágúst nk.
Tekiö er á móti pöntunum í síma 624757
milli kl. 10 og 12 alla virka daga.
Bók og bílæti
Dagana 13. til 17. ágúst verður haldið í
Reykjavík norrænt myndfræðilegt mál-
þing, hið 12. í röðinni. Frá upphafi 1968
hafa myndfræðileg málþing veriö haldin
annað hvert ár, til skiptis á Norðurlönd-
um utan íslands. Nú þótti hins vegar
æskilegt að þingiö yröi haldið hér á landi,
enda hafa íslendingar upp á ýmislegt for-
vitnilegt að bjóða á þessu sviði þar sem
eru íslensku handritin í stofnun Árna
Magnússonar og merkir kirkjugripir, ís-
lenskir og erlendir, í Þjóðminjasafni ís-
lands og íslenskum kirkjum. En einmitt
með þetta í huga var málþinginu valið
nafnið Bók og bílæti.
Andlát
Jón Þorleifsson, Heiðarholti 30,
JrfCeflavik, lést í sjúkrahúsi Keflavíkur
aðfaranótt 10. ágúst.
Jarðarfarir
Axel Blöndal læknir, sem lést í Borg-
arspítalanum 6. ágúst, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni miðviku-
daginn 15. ágúst kl. 10.30.
Útfor Sigríðar Einarsdóttur, Safa-
mýri 65, Reykjavík, fer fram frá Ás-
kirkju þriðjudaginn 14. ágúst kl.
13.30.
Útför Ævars Arnar Magnússonar,
-,Lindarbyggð 11, Mosfellsbæ, fer fram
frá Bústaðakirkju í dag, 13. ágúst, kl.
13.30.
Útfór Halldórs M. Sigurðssonar, Dal-
braut 31, Akranesi, fer fram frá
Akraneskirkju þriðjudaginn 14.
ágúst kl. 11.
Útför Magnúsar B. Pálssonar
glerslípunarmeistara, Skipholti 9,
'Reykjavík, fer fram frá Háteigs-
kirkju, þriðiudaginn 14. ágúst kl. 15.
Kristín Ottósdóttir, Vogalandi 7,
Reykjavík, sem andaðist þriðja þessa
mánaðar, verður jarðsungin þriðju-
daginn 14. ágúst. Kveðjuathöfn verð-
ur frá Bústaðakirkju kl. 10.30. Jarð-
sett verður að Breiðabólstað í Fljóts-
hlíð sama dag kl. 14. Bílferð frá Bú-
staðakirkju.
Stefán Reykjalín byggingameistari,
Akureyri, verður jarösunginn frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 13.
ágúst kl. 13.30.
Útför Jóns Gests Benediktssonar
hárgreiðslumeistara, Víghólastíg 12,
Kópavogi, fer fram frá Dómkirkjunni
í Reykjavík þriðjudaginn 14. ágúst
kl. 13.30.
Geirfríður Jóelsdóttir, Breiðumýri,
Reykjadal, áður til heimihs á Siglu-
firði, verður jarðsungin frá Húsavík-
urkirkju mánudaginn 13. ágúst kl. 14.
Þorsteinn H. Þorstcinsson lést 5.
ágúst. Hann var fæddur 25. desember
1917, sonur hjónanna Þorsteins Júl-
íusar Sveinssonar og Kristínar Tóm-
asdóttur. Þorsteinn starfaði um ára-
bil hjá Landsbanka íslands en í júní
1963 hóf hann 9törf hjá Vamarliðinu,
sem bókari í birgðabókhaldsdeild-
Fjölmiðlar
Þriðja flokks myndir
Efnisval sjónvarpsstöðvanna á
biómyndum er oft á tíðum á þann
háttað maður spyr sjálfan sig hvort
innkaupastjórar séu aö versla fyrir
eigin smekk, Sérstaklega er Stöð 2
undarlegað þessu leyti. Spennu-
myndir og þá sér staklega lögreglu-
myndir, þar sem fíkniefni eru aðal-
máliö, haía að mínu viti verið svo
yfirgnæfandi á Stöð 2 að maður spy r
sjálfan sig oft hvort innkaupastjór-
inn sé örugglega i lagi. Góðar mynd-
ir em undantekningar á báðum
sj ónvarpsstöðvum og hefur það ver-
iðþannigialltsumar.
Þessi árstími er aö vísu sá sem
fólk horfir hvað minnst á sjónvarp
og halda mætti að sjónvarpsstöðv-
amar báðar væru að spara i inn-
kaupum og geyma góðu bitana til
haustsins. Þessar stöövar mega þó
ekki gleyma því að margir eru þeir
sem ekki eiga heímangengt og sjón-
varpið styttir þessu fólki stundir
hvort sem er að sumri eða vetri.
Föstudagsmynd Sjónvarpsins
byijaði ágætlega en þegar frá leið
fór áhorfandinn að missa af sögu-
þræðinum þar sem hann óð úr
draumaheimi aöalpersónunnar yfir
í veruleikann og loks vissi maöur
ekki hvort var hvaö. Týpísk þriðja
flokks mynd.
í gærkvöldi hófst breskur þáttur
sem allt í lagi var að horfa á en at-
buröarásín þó heldur dauf. Stöð 2
sýndi myndina Brúöur mafíunnar
undir miðnætti, ágæt mynd að því
leyti aö þar sá maður kunnugleg
andlit svo sem litlu stúlkuna úr
Húsinu á Sléttunni, sem allt í einu
var orðin fullvaxta kona, sem átti í
höggi við eyturlyfjasmyglara.
Eg vildi gjarnan sjá meira af göml-
um myndum, gamanmyndum og
gömlu svart-hvítu myndunum.
Sjónvarpið var nokkuð duglegt að
skella þessura myndum á miðviku-
dagskvöld sl. vetur og vonast ég til
að svo verði einnig nú þegar fer að
hausta. Reyndar vonar maður aö
sjónvarpsdagskráin fari upp úr
þessu að lagast - það er jú farið að
dimmaákvöldin.
Elín Albertsdóttir