Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1990, Page 6
22
- FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1990.
Jack Cates (Nick Nolte) og Reggie Hammond (Eddie Murphy) eru nú aftur komnir á kreik.
Hás^ólabíó:
Aðrar 48 stundir
Háskólabíó frumsýndi í gær
mynd númer tvö um þá félaga
Reggie Hammond og Jack Cates.
Myndin ber nafnið Aðrar 48 stund-
ir (Another 48 hrs.) og sem fyrr eru
Eddie Murphy og Nick Nolte í aðal-
stundir. Nú er það Cates sem er
á leiðinni i steininn.
hlutverkum. Leikstjóri, líkt og í
fyrri myndinni, er Walter Hill.
Starfsaðferðir Cates eru nú til
endurskoðunar og hann á yfir höfði
sér fangelsisvist fyrir samskipti sín
við krimma nokkum að nafni The
Iceman, með heldur vafasömum
hætti. Við blasir að Cates verður
settur í steinninn ef honum tekst
ekki að hafa uppi á krimmanum
innan 48 stunda. Eina vísbendingin
til að fara eftir er sú að krimminn
hefur ásett sér að ná sér niðri á
Reggie Hammond sem er u.þ.b. að
sleppa úr fangelsi eftir sjö ára vist.
Hammond hafði áður hjálpað Cates
við að leysa mál og nú liggur fyrir
að sá fyrrnefndi er eina vonin til
að ná í krimmann. Cates gerir sér
þetta ljóst og jafnframt það aö þeir
myndu þá gera hvor öðrum stóran
greiða í leiðinni.
Ýmislegt hefur breyst frá því síö-
ast. Hammond fékk fimm ár til við-
bótar í steininum fyrir aðild að ráni
en nú er hann frjáls maöur og tilbú-
inn að skemmta sér ærlega. Cates
er maðurinn með vandamálin.
Hann er nærri því aö vera rekinn
úr lögreglustarfmu í kjölfar þess
að hafa fengið umræddan glæpa-
mann á heilann. Eitt leiddi af öðru
og í einni af ferðum sínum urðu
honum á mistök og hann drap
mann. En hvað um það. Nú er
Hammond laus allra mála og er til-
búinn að sækja peningana sína og
sþortbíhnn sem Cates hefur passað
fyrir hann í allan þennan tíma en
einhveijum vandkvæðum virðist
það bundið að sækja eignirnar.
Eins og við er að búast verða næstu
48 stundir ansi villtar þegar þessir
ólíku kappar hittast á ný og spenn-
an og hættan á götum San Fran-
cisco verður mikil.
Fyrri myndin um þá félaga var
gerð árið 1982 og hún kom fótunum
undir Eddie Murphy í kvikmynda-
heiminum svo um munaði. A eftir
fylgdu myndir eins og Trading
Places, Beverley Hills Cop (tvær
myndir), The Golden Child og Raw.
Síðar kom Coming to America og
Harlem Nights. Nick Nolte hefur
komið víða við. Hann lék t.d. í The
Deep, Down and Out in Beverley
Hills og Three Fugitives. Sjálfsagt
eru líka margir sem muna eftir
honum úr framhaldsþáttunum
Rich Man, Poor Man sem sýndir
voru í ríkissjónvarpinu fyrir
nokkrum árum.
-GRS
Kvikmyndahúsin - Kvikmyndahúsin
„Gremlins 2 The New Batch“ er nafn framhaldsmyndarinnar um þessar
furðuskepnur sem verður sýnd hérlendis fljótlega. Á meðfylgjandi mynd
sést þegar dýrin heimsækja Fred, hryllingsmyndakappa, en myndin
gengur út á heimsókn dýranna í risastóra skrifstofubyggingu og ekki
eru allir jafnhrifnir af þeirri heimsókn.
Laugarásbíó frumsýnir í dag mynd um lan Flemming en hann skrifaði
einmitt sögurnar um James Bond. Myndin heitir Upphaf 007 og aðal-
hlutverkið er í höndum Jasons Connery en faðir hans, Sean, lék í nokkr-
um myndum um breska njósnarann 007.
BÍÓBORGIN
Á tæpasta vaði 2 ★★★
Meira, stærra, fleiri, hærri og oft-
ar, en ekki betra en samt meira en
nógu gott. Einnig sýnd í Bíóhöll-
inni.
GE.
Þrumgnýr ★★ 'A
Ágæt skemmtun en nokkuð brokk-
gengt handrit Theresa RusseU góð
sem stressuð lögga.
HK.
Fullkominn hugur ★★★
Framtíðarmynd sera gerist á Mars.
Háspenna frá upphafi til enda.
Schwarzenegger í sínu besta hlut-
verki. Einnig sýnd í Bíóhöllinni.
HK
Stórkostleg stúlka ★★ 'h
Létt og skemmtileg mynd þrátt fyr-
ir ólrumlegt handrit. Julia Roberts
er frábær. Einnig sýnd í Bíóhöll-
inni.
HK
Handrit í molum, leikstjórn í kaos.
Að öllu leyti misheppnuö.
GE
Þrír bræður og bill
Yfirlætislaus og
bræðralagssaga.
★★
góðhjörtuö
GE
HÁSKÓLABÍÓ
Aðrar 48 stundir ★'/
Handritið er aðalgalli myndarinn-
ar. Ófyndinn Eddie Murphy getur
litlu bjargað.
; GE.
Cadillac maðurinn ★
Robin Williams er ófyndinn í hlut-
verki bilasala sem veröur fýrir
baröinu á hryðjuverkmanni. Am-
erískur hávaði og gauragangur.
PÁ.
BÍÓHÖLLIN
Fimmhyrningurinn
Leiöinleg, heimskuleg
%
mistök.
Sá hlær best ★★'/
Svört og siðferðislaus irónía sem
ristir ekki alveg nógu djúpt en Mic-
hael Caine er gallalaus aö vanda.
GE
Leitin að rauða október ★★★
Róleg uppbygging með hörku-
spennandi síðari hluta. Sean Conn-
ery gnæflr yfir aðra leikara í mynd-
inni.
HK
Shirley Valentine ★★
Losnar ekki alveg við leikritskeim-
inn og nær ekki að hafa full áhrif.
GE
Vinstri fóturinn
Ótrúlega góður leikur Daniels Day s
Lewis í hlutverki fjölfatlaðs manns
gleymist engum sem myndina sér.
HK
Paradísarbióið ★★★
Það líður öllum vel eftir að hafa séð
þessa einlægu og skemmtilegu
mynd.
HK
LAUGARÁSBÍÓ
Aftur til framtíðar III ★★★
Krafturinn í tímaflakkssögunni er
búinn en frígírinn eftir. Rennur
áfram á fornri frægð, einfold og
auömelt en mjög skemmtileg. Sjáiö
endilega hinar tvær á undan.
GE
Cry Baby *★ 'A
John Waters afgreiöir unglinga-
myndir svo um munar. Full af
skrýtnum persónum og uppátækj-
um.
GE
REGNBOGINN
Refsarinn ★*!/
Ofbeldisgnótt á yfirborðinu en
meira býr undir sem nær ekki al-
veg að skina í gegn.
GE
í slæmum félagsskap ★★★
Sálfræöiþriller i anda Hitchcocks.
James Spader frábær í hlutverki
bráðarinnar.
HK
Nunnur á flótta ★★
Ágætis afþreying þrátt fyrir lítinn
innblástur handrits. Eric Idle held-
ur velli.
GE.
Braskarar ★
Drepleiðinlegir uppar vekja enga
samúð innan starfs eða utan.
GE
Hjólabrettagengið ★★
Ágæt saga, frábært brettaflug.
GE
STJÖRNUBlÓ
Fram i rauðan dauðann ★★'/;
Lawrence Kasdan hefur áður gert
betur en góður sprettir inn á milli
gera myndina vel þess virði að sjá
hana.
HK.
Með lausa skrúfu ★'/i
Óþör f löggu viðbót, flókin til einskis
og fiflaleg. Aykroyd heldur henni á
floti.
GE
Stálblóm ★★
Áhrifamikill leikur, sérstaklega
hjá Roberts og Fields. Gott drama
en á köflum átakanlega væmið.
PÁ
Pottormur i pabbaleit ★★
Hin fúllkomna fjölskyldumynd
sem er frumleg fyrstu mínútumar
en veröur svo ósköp venjuleg.
HK