Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1990, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990.
Fréttir
DV
Félagsmálaráðherra með róttæka breytingu á Húsnæðisstofnun:
Fólk úti á landi á ekki
að þurfa að leita þangað
„Ég hef gert tíllögur um breytingar
vegna þess að ég vil færa þjónustuna
út tíl fólksins og auðvelda þessi sam-
skiptí til þess að fólk úti á landi þurfi
ekki að leita til Húsnæðisstofnunar
með sína þjónustu og viðskipti,“
sagði Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra þegar hún var spurð
hvort hún væri ánægö með það
hvemig Húsnæðisstofnun ríkisins
hefur staðið sig að undanfórnu. Sem
kunnugt er hefur komið fram mikil
gagnrýni á stofnunina vegna hús-
bréfadeildarinnar.
Félagsmálaráðherra sagði að hún
hefði gert tillögu um að þessi þjón-
usta færi inn í bankana, til dæmis
segir Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra
mat á lánshæfni og þjónusta með
húsbréfaviðskipti. í öðru lagi hefur
hún sett fram tillögur í fnnnvarps-
fonni um umdæmisskrifstofur en
þar er lagt til að öli þjónusta, upplýs-
ingaþjónusta og ráögjöf verði færð
út á landsbyggðina. „Það sýnir sig
þegar ég er með slíkar tillögur að ég
vil þreyta þama um,“ sagði Jóhanna.
Að sögn ráðherra er verið að vinna
að samningi við bankana og skýrist
væntanlega um mánaðamótin
hvernig gangurinn verður í því og
hve langan tíma tekur að koma þessu
inn í bankana. Breytingin sem varð-
ar umdæmisskrifstofurnar varðar
stjómsýslulega stöðu Húsnæðis-
stofnunar og er nú verið að senda
það mál til þingflokkanna en Jó-
hanna segist vera búin að fá sam-
þykki ríkisstjórnarinnar fyrir því.
- En er með þessu verið að gefast
upp á Húsnæðisstofnun og láta bara
aðra sjá um hiutverk hennar?
„Ég vil ekki fallast á að menn hafi
gefist upp á Húsnæðisstofnun, ég vil
ekki orða það svo. Menn vilja færa
þjónustuna út á landsbyggðina. Þetta
er auðvitað eitt skref í valddreifingu
og byggðastefnu. Það er auðvitað það
mikið mnfangið í sambandi við hús-
næðismál aö það hefur sýnt sig að
ein stofnun á höfuðborgarsvæðinu
annar þessu ekki. Það er ekki eöli-
legt að fólk á landsbyggðinni þurfi
að leita á einn stað á höfuðborgar-
svæðinu,“ sagði félagsmálaráðherra.
Fasteignasalarnir liggja
með tilboðin
Jóhanna sagði að starfsfólk Hús-
næðisstofnunar hefði verið undir
„ómanneskjulegu“ álagi undanfarið
og sagði að ekki væri hægt aö kenna
því um biðina sem hefði myndast.
Hún vildi reyndar kenna fasteigna-
sölum að nokkru um'.
„Það er þannig að kauptilboð eru
eklti alltaf send á sama tima og frá
þeim er gengið. Það er þá einhver töf
sem verður hjá fasteignasölum. Það
er látinn líða töluverður tími þangað
til Húsnæðisstofnun fær þessi kaup-
tilboð. Það var til dæmis gerð stikk-
prufa nú í ágúst á því hvað liði lang-
ur tími frá því að kauptilboð væru
undirrituð þar til Húsnæðisstofnun
fengi þau í hendurnar frá fasteigha-
sölunum. Meðaltíminn í ágúst var 11
dagar,“ sagði Jóhanna.
Ráðherra sagöi einnig að fólk stæði
rangt að mati á kaupgetu sinni. Það
er að segja það veldi sér fyrst íbúð
áður en það léti meta sig. Þetta gæti
stuðlað að óþolinmæði hjá fólki sem
væri þá stundum farið að bíða eftir
einhverri ákveðinni íbúð á meðan
matiðfærifram. -SMJ
MCO*B. Vlre.y, íf l|j/
wí.'m
AcOOZiNG -iári.-rt
(ourlíi h» b«n li
oui ln llu; oojd .,■
MMBÍtt'SlSSÍ...
M >n hií rtKnp,
Jtu„gCr,
W;y hot*!, d^‘r
> wd W»*
SAfíhra."”1 “"■r"'"1'
! WANBÍR
í ‘hiuJdn't h.v,
.M camt on ft
■m
Viðtalið sem birtist í skoska blaðinu Daily Record í gær og lýsir raunum
ungs islendings i Glasgow.
f*M:
Tmmm
‘>IS htiry Iii.t.l
M Uti nntiðti
■
mtt
iino&w wfuuua y J;
wtt»n
MJ tii
Ungur íslendlngur:
Úti í kuldan-
um í Glasgow
Ungur Islendingur, sem skrapp til
Glasgow síðastliðinn laugardag, lenti
í vandræðum eftir að hann fór út að
skemmta sér og gleymdi á hvaða
hóteli hann bjó.
í blaðinu Daily Record birtist í gær
viðtal við hann þar sem hann lýsir
hremmingum sínum í borginni.
í viðtahnu segist íslendingurinn
hafa skilið farangur sinn og vegabréf
eftir á hótelherberginu á laugardags-
kvöldið. Þegar hann ætlaði að snúa
til baka um nóttina mundi hann ekki
nafnið á hótelinu né hvemig það leit
út. Sunnudeginum kveðst hann svo
hafa eytt á göngu milli hótela í borg-
inni til að spyrjast fyrir um hvort
haim byggi á viðkomandi hóteli.
Eftir komuna til Glasgow seint á
laugardag fór hann á hótel sem leigu-
bílstjóri mælti með. Eftir að hann
hafði fengið herbergi á leigu fór hann
út til að kanna næturlífið.
í greininni í Daily Record er svo
haft eftir honum: „Ég veit að ég hefði
ekki átt að gera þetta en mig langaði
bara svo til að skemmta mér. Það er
svo dýrt aö drekka á íslandi en ódýrt
að drekka hér. Ég varð svo drukkinn
að ég gat ekki munað hvar hótelið
mitt var.“
í viðtahnu kemur fram að lykhhnn
sé ómerktur og síðan er haft eftir
íslendingnum: „Nóttinni eyddi ég
svo í að leita að hótehnu. Ég þarf að
fá farangurinn minn til baka og vega-
bréfið mitt svo að ég komist aftur úr
landi.“
Með viðtahnu við manninn fylgir
og mynd af honum þar sem hann
veifar lykhnum að hótelherbergi
sínu og í lok þess segist hann vonast
til að einhver þekki lykihnn því að
það sé eina leiðin til að hann geti
haft uppi á hótehnu aftur. Svo er
gefið upp símanúmer sem hótelhald-
arinn eða einhver sá sem veit hvar
hann bjó getur haft samband við.
-J.Mar
KriEtján Bennburg, DV, Belgíu;
í frétt belgíska dagblaðsins, Het
Niewsblad, í morgun segir að ís-
lenski landshðsmaöurinn Arnór
Guðjohnsen sé á förum til
franska 1. deildar hðsins Tou-
louse.
Verschuren, framkvæmda-
stjórí Anderlecht, staðfestir þessa
frétt blaðsins í morgun og segir
að Anderlecht muni ekki standa
í veginum fyrir að samningar
takist á allra næstu dögum.
Verschuren segir ennfremur að
útilokað sé að Amór komi aftur
til félagsins, hann geri of miklar
kaupkröfur.
Áhugi franska liðsins Toulouse
er til kominn vegna ábendinga
Stefan De Mol en hann leikur
með franska liðinu en var seldur
til þess fyrir þetta keppnistímabil
frá Anderlecht Argentínskur
leikmaöur að nafni Marrico leik-
ur einnig meö íranska hðinu en
öðlast franskan ríkisborgarétt í
þessari viku og af þeim sökum
opnast leið fyrir Amór að gera
samning við félagið en aðeins
mega tveir útlendingar leika
hverju sinni með frönskum fé-
lagshðum,
Verschuren segir að lokum í
frétt belgiska blaðisns að Tou-
Iouse eigi næsta skref í þessu
máh og muni hefja samningaviö-
ræöur strax viö Arnór Guðjo-
hnsen.
Þess má geta aö Toulouse er um
miðja 1. deild, hefur hlotið átta
stig en Marseille er efst með 16.
747 milUónir
Tap Álafoss hf. var 747 milljónir
króna á síðasta ári. Þetta kom
fram á aðalfundi fyrirtækisins
sem haldinn var í gær. Á fundin-
um var jafnframt sagt frá 165
milljóna króna tapi félagsins á
fyrstu sex mánuöum þessa árs.
Að sögn Ólafs Ólafssonar, for-
stjóra Álafoss, í samtali við DV i
morgun má rekja 314 milljónir
af 747 milljóna króna tapi síðasta
árs beint til afskrifta, niður-
færslna vörubirgða og viðskipta-
krafna. Þá voru nettóvaxtagjöld
félagsins um 150 mihjómr króna.
Sovétmenn skulda Álafossi á
annað hundrað mihjónir króna.
Ekki hafa komið þaöan greiðslur
fráþvíímaí. -JGH
136 tóku þátt í Esjuþolgöngu:
Sigurvegarinn upp
á tæpum hálftíma
- fimm ara stúlka rúman klukkutíma upp
„Eg tok a öhu sem eg atti á leið-
inni upp. Þetta var svohtið erfitt en
ég er í mjög góðri æfingu og því gekk
þetta vel. Eg vona bara að það verði
betra veður næsta ár því ég ætla að
reyna að ná betri tíma,“ sagði Sigur-
geir Svavarsson, 23 ár Siglfirðingur,
sem sigraöi í Esjuþolgöngu Flug-
björgunarsveitar Reykjavíkur, Rad-
íóbúðarinnar og Apple-umboösins á
sunnudag.
Sigurgeir er í landshði íslands í
skíðagöngu. Æfir hann stíft með
göngum og hlaupum í fjöUum á
sumrin og er því í mjög góðri þjálf-
un. Hafði hann skíðastafi sér til
hjálpar og komu þeir að góðum not-
um þar sem snjó hafði náð að festa
efst í Esjunni.
136 manns á aldrinum 5-55 ára tóku
þátt í Esjuþolgöngunni og komust
langflestir upp. 267 manns skráöu sig
reyndar til þátttöku en þar sem Esjan
var orðin gráleit aö ofanverðu virð-
ast margir hafa hætt við.
Lagt var af stað frá landi MógUsár.
Lá leið göngumanna um Kerhóla-
kamb og upp á ÞverfeUshom í 760
meta hæð yfir sjávarmáh.
Fyrstur var Sigurgeir á 28 mínút-
um og 51 sekúndu og hlaut hann
Macintosh tölvu í verðlaun. Næstur
var Jóhann Ingibergsson úr
Garðabæ á 29,23 og þriðji Halldór
Matthíasson, Reykjavík á 30,07.
Sigurður Kristjánsson var elstur
göngumanna, 55 ára og fór upp Esj-
una á 65 mínútum og 24 sekúndum.
Ekki langt á eftir honum kom yngsti
Sigurgeir Svavarsson hleypur upp
Esjuna með skíðastafina góöu sér
til aðstoðar.
keppandinn. Það var Helga Sjöfn
Jóhannesdóttir, 5 ára, sem fór upp á
73 mínútum og 20 sekúndum. Hún
fær sérstaka viðurkenningu fyrir
árangur sinn í dag.
Aðstandendur Esjuþolgöngunnar
era mjög ánægðir en að fenginni
reynslu segjast þeir ætia að hafa
hana fyrr næsta sumar. Voru þeir
hissa á hve fljótir keppendur voru
upp fjallið en með rösklegri göngu
er björgunarsveitarmaður um
klukkutíma að fara þessa leið.
-hlh
Vantaði 60 milljóna veð
- segirlngólíurVestmann
„Eg er ekkert bitur þó að þetta
hafi farið svona. Við ætiuðum að
gera þessa hluti frá hreinu viðskipta-
legu sjónarmiði og ætluðum ekki aö
leita neinnar póhtískrar fyrir-
greiðslu. Okkur var hins vegar ekki
treyst fyrir þessu og við féhum á
tíma,“ sagði Ingólfur Vestmann Ing-
ólfsson, tæknifræðingur í Hafnar-
firði, en hann sendi sjávarútvegs-
ráðuneytinu tilkynningu í gær um
að hann gæti ekki uppfyht tilboð sitt
í ríkistogarann Hafþór fyrir tilsettan
tíma.
Ingólfur sagði að fyrst og fremst
hefði brugðist að afla veðs upp á 60
mUljónir en ráðuneytið vildi ekki
heinúla hærra veð en 100 miUjónir í
togaranum sjálfum. Ingólfur sagöist
ekki geta upplýst hverjir hefðu staðið
að tilboðinu með honum. „Það eru
þó engir stórlaxar né póhtíkusar,“
sagði Ingólfur. Hann bætti því við að
ekki væri frekar á döfinni að leita
fyrir sér í útgerö heldur væri hann
nú búinn að sækja um vinnu.
Næsthæsta tilboðið í togarann er
frá Ujósavík í Þorlákshöfn en það er
upp á 233 miUjónir króna. Útborgun
þar er 40 miUjónir eða helmingi lægri
en í tilboði Ingólfs.
-SMJ