Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1990, Síða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990.
Merming
Mel Gibson og Goldie Hawn eru hér á flótta í gamalli rellu sem endar
sitt skeið í skóglendi.
Laugarásbíó - Á bláþræði: ★★
Stórstjörnur í
vandræðum
Á bláþræði (Bird on a Wire) hefur allt sem aðsóknarmynd á bandarísk-
an mælikvarða þarf að hafa, stórstjörnurnar Mel Gibson og Goldie Hawn,
söguþráð þar sem spennu, húmor og rómantík er blandað saman og
hvorki meira né minna en fimm eltingaleiki.
Hvers vegna skyldi myndin þá ekki vera nema rétt í meðallagi? Það eru
sjálfsagt margar skýringar en fyrst og fremst hlýtur það að vera sú hættu-
lega stefna sem þróast eingöngu í Hollywood, þar sem aliir ætla sér að
gera metaösóknarmynd samkvæmt einhverri formúlu.
Þegar hugsaö er á þennan hátt og farið eftir forskrift sem á að duga, þá
er spumingin hvort leikstjórinn hafi metnað til að gera góða kvikmynd
eða verksmiðjuframleiðslu. Leikstjóri Á bláþræði er John Badham. Hann
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
hefur áður sýnt að hann getur gert ágætar hasarmyndir og er honum
sérlega tamt að leikstýra þyrlum, eins og þeir sem séð hafa Blue Thund-
er minnast. Þá tókst honum ágætlega upp í Stakeout þar sem húmorinn
var í fyrirrúmi. í Á bláþræöi er þessu blandað saman en allt kemur fyr-
ir ekki, meðalmennskan er allsráðandi.
Nú er það svo að Á bláþræði byijar nokkuð þokkalega af gamanmynd
að vera. Goldie Hawn leikur lögfræðing nokkum sem sér gamlan elsk-
huga, Mel Gibson, sem löngu á aö vera dauður. Hann er við afgreiðslu á
bensínstöð. Það kemur í ljós að gamli kærastinn hafði vitnað gegn glæpa-
mönnum sem nú em lausir úr fangelsi og hafa fullan hug á hefndum.
Eftir að myndin nær þessu stigi hverfur húmorinn smátt og smátt og
myndin snýst upp í eltingaleiki. Endar myndin í dýragarði einum þar sem
Gibson átti aö hafa unnið í. Þar fer söguþráðurinn svo kirfilega yfir strik-
iö í vitleysunni að maður er þeirri stundu fegnastur þegar myndinni lýkur.
Það er lítið hægt að segja um stjömumar tvær, Mel Gibson og Goldie
Hawn. Bird on a Wire er engin skrautfjöður í hatt þeirra. Virðast sjálf
vera hálfrugluð á öllum hamaganginum og vita varla í hvom fótinn á
að stíga. Þeim verður samt ekki kennt um útkomuna. Það er frekar að
jafnfær leikstjóri og John Badham ætti að skammast sín því stærsti gall-
inn er hversu yfirhlaðin myndin er.
Á BLÁÞRÆÐI (BIRD ON A WIRE)
Leikstjóri: John Badham.
Handrit: David Seltzer, Louis Venosta og Eic Lerner.
Aðalhlutverk: Mel Gibson, Goldie Hawn, David Carradine og Joan Severance.
Nauðungaruppboð
Annað og síðara á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins,
Miðbraut 11, Búðardal, á neðangreindum tíma. Búðarbraut 3, Búðardal,
þingl. eigandi Kristjana Guðmundsdóttir. Uppboðsbeiðandi er Sparisjóður
Hafnarfjarðar, fimmtud. 20. sept. kl. 11.00.
Sýslumaður Dalasýslu.
Nauðungaruppboð
Annað og síðara á eftirtöldum fer fram í dómsal embættisins, Miðbraut
11, Búðardal, á neðangreindum tíma, Hóll, Hvammshreppi, Dalasýslu,
þingl. eigandi Júlíus Baldursson og fl. Uppboðsbeiðandi Landsbanki Is-
lands, veðdeild, Tryggvi Bjarnason hdl., fimmtud. 20. sept. kl. 13.30.
Sýslumaður Dalasýslu.
Nauðungaruppboð
Annað og síðara á eftirtöldum fer fram í dómsal embættisins, Miðbraut
11, Búðardal, á neðangreindum tíma. Sunnubraut 11, Búðardal, þingl. eig-
andi Svavar Garðarsson. Uppþoðsbeiðandi er Gísli Kjartansson hdl.,
fimmtud. 20. sept. kl. 10.30.
Sýslumaður Dalasýslu.
Nauðungaruppboð
Annað og síðara á eftirtöldum fer fram í dómsal embættisins, Miðbraut
11, Búðardal, á neðangreindum tíma. Skarðsá, Skarðshreppi, þingl. eig-
andi Unnsteinn B. Eggertsson. Uppboðsbeiðandi er Samvinnubanki Is-
lands og innheimta ríkissjóðs í Dalasýslu, fimmtud. 20. sept. kl. 10.30.
Sýslumaður Dalasýslu.
Frjosemi fjorunnar
Sæmundur Valdimarsson sýnir á Kjarvalsstöðum
Sæmundur Valdimarsson hefur á liðnum árum ver-
ið iðinn við að nýta þau kynstur af reka sem berst hér
á fjörur. Rekaviðinn sækir Sæmundur að mestu á
Strandir, enda Vestfirðingur að uppruna. Eins og þeir
vita, sem séð hafa til Sæmundar, er hann laginn við
að laða fram persónuleika í sjórekið og ormstungið
hráviðið og ber auk þess gæfu til að fá núttúruna þar
sér til fulltingis. Það má ef til vill segja að list Sæmund-
ar sé eins raunsæ og frekast er hægt að hugsa sér frá
landfræðilegu sjónarmiði; það virðist liggja beint við
að ævintýragjam eyjarskeggi sjái helst sköpunarþörf
sinni fullnægt í rannsókn á því sem rekur á fjörur
hans og er ef til vill komið frá annarri álfu þar sem
vel er hægt að ímynda sér að ævintýr gerist... Fjaran
hefur jafnan verið okkur Frónbúum uppspretta
ímyndunaraflinu, enda hún í sífelldu þrátafli við óút-
reiknanleg máttarvöld hafsins. Fíaran hefur í aldanna
rás gegnt hlutverki fréttastofu, myndhstarsalar, kjör-
búðar og kirkju - allt í senn. Frá örófi hefur hún ver-
ið bæði tengiliður okar við umheiminn og björg í harð-
indum.
Alþjóðlegir minnisvarðar
Sty ttur Sæmundar Valdimarssonar geta skoðast sem
minnisvarðar um fjöruna, nægtabrunn eyþjóðar við
norðurheimsskautsbaug. Samkvæmt framansögðu
ætti hér að vera um að ræða svo þjólegan listamann
sem frekast mætti hugsa sé. En Sæmundur velur sér
ekki svo auövelda undankomuleið. Hér er ekki um að
ræða tilvísanir í útskurðarhefð okkar eða fomar súlur
sem flutu á land. „Fólkið“ hans Sæmundar á nefnilega
enga sína líka og það meira að segja virðist vita full-
vel af því. Jafnvel sjálf „Mona Lísa“ kímir hér á áður
óþekktan máta. Reyndar virðist svo sem Sæmundur
sé sífellt að auka á heimsborgaralegt yfirbragð þessa
fjörumannkyns. Á sýningu hans á Kjarvalsstöðum
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
fyrir tveimur og hálfu ári mátti sjá nokkur heiti úr
ásatrúnni á styttum. Nú fyrirfinnst ekkert slíkt, en
hins vegar eru þama þeir kumpánar Abbullah og
Mustafa auk sjálfrar drottingarinnar af Saba. Hennar
konunglega tign mun reyndar vera fyrrum bryggju-
stólpi hjá Áburðarverksmiðjunni. Þama lætur Sæ-
mundur dökka tjömsoðninguna gefa tóninn og útkom-
an er austrænn þokki.
Frjósemistákn á
nærklæðum
Annað nýnæmi hjá Sæmundi er að hann virðist nú
óhræddari en áður við að mála á viðinn. Málningin
gegnir þó sem fyrr einungis samskonar hlutverki og
annar aukabúnaður, s.s. ýsuorðs- eða þangnærklæðn-
aður. Það sem einna síst gengur upp hiá Sæmundi er
þegar aukahlutirnir verða of veigamiklir, en það ger-
ist örsjaldan. Að venju vandar Sæmundur hvað mest
til höfuðbúnaðar. Hvað hann varðar er skemmtilegur
„Geimfari" á sýningunni, sem og „Þijár systur". Síðar-
nefnda verkið er að mínu viti eins konar hátindur
þessarar sýningar, ekki hvað síst vegna verðlauna-
paflsuppstilhngarinnar. Kyntöfrar styttunnar „Fyrsta
ballið" fara heldur ekkert á milli mála fyrir mifligöngu
spegils sem leynist að óvömm undir pilsum þessarar
þrýstnu heimasætu. Fijósemin er sem rauður þráður
í list Sæmundar Valdimarssonar og hvet ég alla sem
sjóvettlingi valda að líta inn á Kjarvalsstöðum fyrir
mánaðamót og fá sér snúning.
Sæmundur Valdimarsson við eitt verka sinna.
Fréttir
Pósthús á Austurlandi:
Greiðari aðgangur fatlaðra
Sgrím Björgvmsdóttir, DV, Egilsstöðum:
Hjá Pósti og síma á Austurlandi eru
nú hafnar framkvæmdir til að auð-
velda fólki í hjólastólum aðgang að
húsum fyrirtækisins. Þór Reynisson,
stöðvarstjóri á Egilsstöðum, sagði aö
þetta væri gert til samræmis við lög
og reglugeröir. Steyptar verða halla-
brautir með snjóbræðslukerfi við
fjögur hús og vonir standa til að
hægt verði að ljúka framkvæmdum
að ári.
Á Egilsstööum standa hús Pósts og
síma og Búnaðarbankans hlið við
hliö. Samkomulag hefur tekist á mifli
þessara stofnana um að leggja hita-
lögn í gangstéttina milli húsanna.
Verður það til mikilla bóta fyrir afla
þá er þar eiga leið um og hafa undan-
fama vetur þurft að kafa snjó og tipla.
Allir þeir sem fara um I hjólastól eiga með góðu móti að komast I pósthúsið
á Egilsstöðum eftir aö framkvæmdum lýkur.
DV-mynd Sigrún Björgvinsd.
áklakabunkummánuðeftirmánuð. og sími á Egilsstöðum viðurkenn-
Þess má geta aö í fyrra fékk Póstur ingu fyrir snyrtilega lóð.