Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1990, Page 25
ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990.
25
Svidsljós
Hljómsveitin Islandica hélt útgáfutónleika á Hótel Borg á sunnudag. Þar var kynnt ný plata sveitarinnar sem
ber nafniö Rammíslensk. Islandica er skipuö Hérdísi Hallvarðsdóttur, Gisla Helgasyni, Inga Gunnari Jóhanns-
syni og Guðmundi Benediktssyni. Aöstoðarmenn hljómsveitarinnar á þessum tónleikum voru Sigurður Rúnar
Jónsson og Ásgeir Tómasson sem reyndar glittir í á bak við trommusettið á þessari mynd. DV-mynd RaSi
Heiti potturinn hélt sitt siðasta djasskvöld i Duushúsi á sunnudagskvöld en framvegis verður leikið á nýjum
veitingastað hljómlistarmanna við Vitastíg. Á sunnudaginn komu fram ýmsir hljómlistarmenn, meðal þeirra
voru harmóníkuleikararnir Ólafur Stephensen og Guðmundur Ingólfsson. DV-mynd RaSi
Ted Danson fékk Emmy-verðlaunin eftir langa bið.
Ted Danson fékk
Emmy-verðlaunin
í áttundu tilraun
- Candice Bergen vann annað árið í röð
Emmy-verðlaunin voru afhent í
Pasadena í Kaliforníu á sunnudag.
Eins og við var að búast mætti fjöldi
fólks til athafnarinnar en miðinn á
dýrðina kostaði litla 500 dollara
stykkið. AUir mættu auðvitað í sínu
fegursta pússi og verðlaunahafar
þökkuðu vel og lengi fyrir sig, eins
og reyndar þykir orðið hefð á slíkum
samkundum.
Hæst bar að Ted Danson hlaut
Emmy-verðlaun fyrir hlutverk sitt
sem barþjónninn Sam Malone í gam-
anþáttunum Cheers. Þetta var í átt-
unda skipti sem Ted var útnefndur
en ekkert hefur gengið fyrr en nú.
Candice Bergen fékk hliðstæða við-
urkenningu fyrir hlutverk Murphy
Brown og er þetta annað árið í röð
sem hún fær sæmdarheitið.
Að baki þessari verðlaunaafhend-
ingu standa samtök sem heita The
Academy of Television Arts and Sci-
ences en félagar eru u.þ.b. 4500 og
starfa allir í sjónvarpsiðnaðinum
með einum eða öðrum hætti.
Candice Bergen hampar hér
Emmy-styttunni góðu. Bergen vann
annað árið sem besti kvenleikari í
gamanþætti.
Gamla brýnið Peter Falk þótt standa
sig vel í hlutverki Columbo og fyrir
vikið var gaukað að honum þessari
Emmy-styttu. Falk þótt besti karlleik-
ari í dramaseriu.
Söngkonan Paula Abdul virðist harla
ánægð með Emmy-verðlaunin. Abd-
ul fékk viðurkenningu fyrir fótfimi
sína og sumir segja raunar að hún
sé miklu betri dansari en söngvari.
Barbara Hershey þótti sýna snilldar-.
takta i mini-seriunni „A Killing in a
Smail Town“ og frammistaða þar
kom henni á verðlaunapall. Leikkon-
an brosti auðvitað sina breiðasta við
afhendinguna en ekki fylgdi sögunni
hvort einhver tár hefðu fallið, það
þykir þó ekki fjarri lagi.
Spænsk
snót
fegurst
í Japan
Ungfrú Spánn, Silvia De Esteban,
sést hér veifa til mannfjöldans eftir
að hafa verið kosin Miss Internatio-
nal 1990. Fegurðarsamkeppnin var
haldin í bænum Osaka sem er í
vesturhluta Japans.
Það er greinilegt að ekki er öllum Spánverjum í blóð borið að vera nauta-
bani. A.m.k. virðast þessir herramenn ekki líklegir til að leggja þá atvinnu-
grein fyrir sig, enda stukku þeir allir upp í næsta staur þegar þessi ungi
tarfur fór á bæjarröltið í Segovia á Spáni.