Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1990, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990.
3
pv___________________________________________________________________________________________Fréttir
Harður árekstur í fljúgandi hálku á Fagradal:
Bif reið hjóna fór þrjá
metra niður í gil
Fólksbíll fór fram af brú og um þijá
metra niður í gil skammt frá sælu-
húsinu í Fagradal, á milli Egilsstaða
og Reyðarfjarðar, síðdegis á laugar-
dag. Slæmt skyggni var á þessum
slóðum, þokuslæðingur og íljúgandi
hálka.
Ökumaður var að snúa bifreið
sinni við á veginum rétt hjá hand-
riðslausri brú er aðra bifreið bar að.
Tókst ökumanni ekki að hemla í
tæka tíð og skullu bílarnir harkalega
saman. Hjón voru í öðrum bílnum.
Fór sá bíÚ fram af brúnni og niður
í árfarveg í gih fyrir neðan. Fólkið
sakaði ekki aö ráði en maðurinn
kvartaði undan töluverðum eymsl-
um í hendi og baki seinna um kvöld-
ið. Bílarnir eru mikið skemmdir.
Ljóst er að þarna hefði getað farið
mun verr.
Um svipað leyti var bifreið ekið inn
í hrossahóp á Vallavegi, skammt fyr-
ir sunnan Egilsstaði. Höfðu hross
sloppið út úr girðingu. Hópurinn var
á veginum þegar fólksbíl bar að og
náði ökumaður ekki aö hemla í tæka
Sundahverfi:
Glugga-
gægir lagði
áflótta
Karlmaður varð uppvís aö því að
vera aö kíkja á glugga að næturlagi
í íbúðarhúsi í Sundahverfi um helg-
ina. Stúlka vaknaði upp þegar maö-
urinn var að kíkja á gluggann hjá
henni. Foreldri heyrði angistaróp
stúlkunnar og hljóp út. Sást þá á eft-
ir manninnum þar sem hann lagði á
ílótta. Kallað var á lögreglu en ekki
náðist í manninn.
Að sögn talsmanns lögreglunnar
næst oftast að lokum í menn með
svona afbrigðilegar hvatir. Er þeim
þá komiö til viðeigandi aðila, svo sem
lækna, þar sem reynt er að fyrir-
byggja að slíkt komi fyrir aftur.
-ÓTT
Lögreglu-
maður skaut
mink í Mos-
fellsbæ
- örugglega búrminkur
„Þetta var örugglega búrminkur.
Hann var tinnusvartur með gljáandi
feld. Þetta var gæfur hvolpur og
hann var að gæða sér á skinkubita
þegar ég kom að honum. Maður sem
varð var við hann fyrst kastaði til
hans bita,“ sagði Benedikt Lund, lög-
regluvarðstjóri í Mosfellsbæ, í sam-
tali við DV.
Vart varð við ferðir minksins í
Mosfellsbæ fyrir síöustu helgi. Lög-
reglan var kölluð til og var sá íjór-
fætti skotinn við götuna Lágholt.
Talið er að minkurinn hafi sloppið
frá minkabúi í grennd við Mosfells-
bæ. Benedikt hefur nokkra reynslu
af því að leita uppi minka. Hann
sagði að sá minkur sem var á ferð-
inni í Mosfellsbæ hefði örugglega
ekki verið villtur. „Þetta var gæft og
rólegt grey,“ sagði hann í samtali -við
DV.
-ÓTT
- miklar skemmdir á fjórum bílum á laugardagskvöld
tíð. Lenti eitt hrossið á vinstri fram- samstundis við höggið. Bíllinn Nokkru síðar valt bifreið á Egils- um. Mennirnir sluppu ómeiddir en
enda bílsins, skall á vélarhlífinni, skemmdist töluvert mikið. Ökumann staðanesi, við afleggjarann að flug- bíllinn er töluvert skemmdur.
framrúðu og toppi bílsins og drapst sakaði ekki. vellinum, með fimm ungum mönn- -ÓTT
Hafðu samband við sölumenn strax í dag. Söludeildin
er opin alla virka daga kl. 9-18 og laugardaga
kl. 13-17. Síminn er: 42600.
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2, sími 42600
Ath.: Praktik er framleiddur sem sendibíll frá verksmiðju ogtollafgreiddur sem slíkur. Hér er því ekki um
breyttan fólksbíl að ræða.
ODYR SENDIBILI
Praktik er lipur sendibíll í minni
stærðarflokki, sérstaklega gerður
fyrir hverskonar atvinnurekstur.
Hann hentart.d.iðnaðarmönnum,
heildsölum, verslunum, matsölu-
stöðum o g öðrum sem leita að
hagkvæmri lausn.
ASTÆÐAN:
★ Lítil fjárbinding ★ Ódýrírekstri
★ Burðarmikill ★ Auðveld hleðsla frá 3 hliðum
NIÐURSTAÐAN ER:
HAGNÝTUR BÍLL
FYRIR HAGSÝNA KAUPENDUR!
KR. 373.000 ÁN VSK