Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1990, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjalst, ohaö dagblaö
ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990.
Hjálpar Arafat?:
Öllum vel-
komið að f ara
til Bagdad
- segir Steingrímur
„Það er alltaf spurning hvort þess-
ar tilraunir bera tilætlaðan árangur.
Við höfum stuðst mjög við Svía í
þessu máli og beðið þá aðstoðar en
það hefur ekki gengið hingað til
sagði Steingrímur Hermannsson for- ■
sætisráöherra við DV. Steingrímur
hefur sent Yassir Arafat bréf þar sem
hann biður um aðstoö við lausn Gísla
Sigurðssonar læknis frá írak.
- Er ekki vænlegast að senda ís-
lenska sendimenn til Bagdad til að
fá Gísla lausan?
„Ég vil ekkert um það segja. Það
er að sjálfsögöu öllum velkomið aö
’ fara og gera það sem þeir geta. Við
myndum styðja við bakið á slíkum
tilraunum." -hlh
Slys á Selfossi:
Áttaáradreng-
urlærbrotnaði
Átta ára drengur lærbrotnaði þeg-
ar hann varð fyrir fólksbíl á götunni
Lágengi á Selfossi um klukkan átta
*\ gærkvöldi. Drengurinn hljóp út á
götuna en ökumanninum tókst ekki
að afstýra slysi. Fariö var með dreng-
inn á Landsspítalann í Reykjavík.
Annað óhapp varð á Selfossi í gær
og má rekja orsökina til leikaraskap-
ar. Grind frá Vegagerðinni, sem not-
uð var til að auðkenna endann á veg-
riði Ölfusárbrúar, var dregin þvert
fyrir akstursstefnuna. Lögreglunni
var tilkynnt um uppátækið. í sama
mund varö óhapp á brúnni. Einn
ökumaður varð ekki var við grind-
ina, ók á hana og skemmdist bifreið-
in töluvert. -ÓTT
Bléslífií
dóttursína
LOKI
,Gerir perlu úr Arafat/
eins og þjóðskáldiö
sagði!
Ekki deila
um peninga
-heldur grundvallaratriði, segir Guðjón A. Kristjánsson
„Við höfnuðum því að skrifa
undir það tilboð sem kom frá
Landssambandi íslenska útvegs-
manna. Við viljum að sjálfsögðu fá
það sama íyrir alla sjómenn og út-
gerðarmenn á Vestfjörðum sömdu
um við sína menn með fullu sam-
þykki Landssambandsins. Annað
kemur ekki til greina,“ sagði Guð-
jón A. Kristjánsson, formaður Far-
mannasambandsins, í samtali við
DV í morgun.
Formannafundur Farmanna-
sambandsins hafnaði í gær að bera
tilboð Landssambands íslenskra
útvegsmanna undir atkvæði í fé-
lögunum. Deilan snýst nú um að
aörir sjómenn en Vestfirðingar fái
slippfararkaup og sömu hækkun á
timakaupi.
„Þetta er ekki lengur deila um
peninga. Þetta er orðiö að grund-
vallaratriði hjá okkur sem við
hvikum ekki frá. Það er óþolandi
að sjómenn, sem eru að veiða hlið
við hlið, séu verðlagðir mishátt af
útvegsmönnum," sagði Guðjón A.
Kristjánsson.
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
Bylgjan á Vestíjöröum samþykkti
með yfir 90 prósent greiddra at-
kvæöa samning þann sem samn-
inganefnd félagsins geröi við út-
vegsmenn á Vestljörðum á dögun-
uro.
Nú virðist sem stefni í verkfall
20. nóvember hjá öðrum yfirmönn-
un á fiskiskipaflotanum en þeim
vestfirska.
-S.dór
Tveggja ára gömul stúlka féll í litla
tjörn við Suðurvelli í Keflavík síð-
degis í gær. Faðir telpunnar kom að
henni þar sem hún lá meðvitundar-
laus í vatninu. Hóf hann þegar í stað
aðgerðir til að blása lífi í stúlkuna.
Honum hafði tekist það þegar sjúkra-
bíll og lögregla komu á staðinn.
Foreldrarnir höfðu verið i heim-
sókn í húsi í götunni. Sáu þeir barn-
ið síðast við anddyri hússins. Stuttu
síðar var stúlkunnar leitað og fann
faðirinn hana við hús í nágrenninu.
4-5 mínútur þarna á milli
Stúlkan var síðan flutt á Borgar-
spítalann til frekari aðhlynningar.
-ÓTT
Stórum grjóthnullungi var kastaö inn í bil Arnórs Péturssonar, starfsmanns hjá Tryggingastofnun ríkisins, um klukk-
an tvö í gær. Arnór var viö jarðarför í Fossvogskapellu þegar innbrotsþjófurinn kastaði steininum inn um hliðar-
rúðu bilstjóramegin. Þjófurinn tók tvær töskur með sér sem voru í bilnum. í annarri þeirra, skjalatösku, var pen-
ingaveski með eitt þúsund krónum, Visa- og Eurokort, ávísanahefti og vegabréf. I hinni töskunni voru personuleg-
ir munir. Lögregla varar ökumenn eindregið við því að skilja verðmæti sem sjást utan frá eftir í bilum smum.
myndinni er Arnór með lögregluþjónunum Guðmundi Ásgeirssyni og Rúnari Þór Arnasyni a bilastæðinu við
Fossvogskapellu. Rannsóknarlögregla ríkisins hefur málið í rannsókn. DV-mynd Brynjar Gauti
Veðriðámorgun:
Norðaustan-
hvassviðri
fyrir vestan
Á morgun verður hvöss norð-
austanátt á Vestfjörðum en hæg-
ari í öðrum landshlutum. Líklega
verður suðvestlæg átt sunnan-
lands en austlæg eða suðaustlæg
átt norðanlands. Rigning eða
skúrir verða víða um land, helst
aö verði þurrt í innsveitum norð-
anlands. Hiti verður yfirleitt á
bilinu 4-7 stig.
Vestmannaeyjar:
Rannsókn
vegna láts
ungs Svía
Rannsóknadeild lögreglunnar í
Vestmannaeyjum hefur haft mál til
meðferðar vegna dauða ungs Svía
sem lést síðastliðinn fostudag. Mað-
urinn bjó í verbúð en hann hafði
unnið í fiskvinnslu í nokkrar vikur
í Eyjum. Að sögn lögreglumanns hjá
rannsóknadeild var talið að maður-
inn hefði fengið heilahimnubólgu.
Nokkur kurr kom upp á meðal
samstarfsmanna mannsins þar sem
læknir kom ekki strax í verbúðina
þegar tdlkynnt var um veikindi hans
á fóstudagsmorgun. Að sögn lögreglu
töldu félagar mannsins að hann væri
með mislinga vegna útbrota á líkama
hans. Sjúkrabíll kom nokkru síðar
og náði í manninn. Hann lést nokkr-
um klukkustundum eftir að hann
kom á sjúkrahús. Svíinn mætti til
vinnu á fimmtudag en á fóstudags-
morgun var hann farinn að veikjast
og fór ekki í vinnuna. -ÓTT
Krossanes:
Tilbúin fyrir
loðnuna
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Krossanesverksmiðjan á Akureyri
verður tilbúin til móttöku á loðnu
síðari hluta vikunnar, að sögn Jó-
hanns Péturs Andersen, fram-
kvæmdastjóra verksmiðjunnar.
Jóhann Pétur sagði að um helgina
hefðu vélar verksmiðjunnar verið
ræstar og þær látnar ganga án þess
að um bræðslu hefði verið að ræða.
Hann sagði að eins og gera hefði
mátt ráð fyrir hefði ýmislegt smáveg-
is komið upp á en ekkert stórvægi-
legt og ekkert óeðlilegt. Því verður
mjög fljótlega farið í hina raunveru-
legu prufukeyrslu og ef allt fer að
óskum ætti fyrsta loðnan að geta
borist til verksmiðjunnar fyrir viku-
lokin.
Keflavik:
Vinnuslys í
Samkaupum
Stór hillusamstæða féll á konu þar
sem hún var við vinnu á lager í versl-
uninni Samkaupum í Keflavík um
klukkan hálfþrjú í gær. Ýmiss konar
varningur var í hillunum og féll
hann yfir konuna. Hún slasaðist á
hálsi en slapp við meiðsl að öðru
leyti. -ÓTT
D'OR
Sími: 91-41760