Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1990, Page 1
Evrópa heldur velli:
Renault Clio kjörinn
bíll ársins 1991 í Evrópu
Þegar Nissan Primera var kjörinn
bíll ársins í Danmörku var þaö í
fyrsta sinn sem japanskur bíll (les:
japanskt merki) varö þess heiöurs
aönjótandi. Þá urðu margir spenntir:
verður Primera fyrstur japanskra
bíla kjörinn bíll ársins í Evrópu?
Ekki rénaöi eftirvæntingin þegar
Primera fékk gullna stýrið í flokki
bíla með vélarstærðina 1601-2000
rúmsentímetra.
En evrópskir bílar héldu velli. Nýi
smábíllinn frá Renault, Renault Clio,
fékk glæsilega kosningu sem bíll árs-
ins 1991 í Evrópu. Bíllinn fékk gullna
stýrið í flokki bíla með vélarstærð
undir 1600 rúmsentímetrum. í um-
fjöllun um Renault Clio í DV bílum,
eftir stutta kynningu á bílnum fyrir
íslenska bílablaðamenn í Frakklandi
í haust, segir aö það séu einkum flög-
ur atriði sem virðast einkenna Renó
Clio:
1. Kraftur og góöir aksturseigin-
leikar.
2. Mikið innanrými
3. Þægileg og góð innrétting.
4. Hve hljóðlátur hann er.
Þessi atriði eru einmitt þau sem
fyrirferöarmest urðu í mati dóm-
nefndarinnar sem valdi bíl ársins í
Evrópu 1991.
10 stig mest á hvern bíl
í nefndinni, sem hefur það vanda-
sama verk með höndum að velja bíl
ársins í Evrópu, eiga sæti 58. blaða-
menn frá jafnmörgum blöðum sem
fjalla um bíla í 17 Evrópúlöndum.
Hve margir eru frá hverju landi fer
að nokkru eftir fólksfjölda landanna.
Flestir eru frá Frakklandi, Þýska-
landi, Ítalíu og Bretlandi, 7 frá hverju
landi, en fæstir frá Danmörku, Finn-
landi, Grikklandi, írlandi, Noregi og
Júgóslavíu, 1 frá hverju landi. ísland
á ekki fulltrúa í nefndinni.
Hver nefndarmaður hefur 25 stig
til umráða. Þessum stigum verður
hann að dreifa milli fimm bíla. Mest
má gefa einum bíl tíu stig.
Stigagjöfin í ár fór á þessa leið:
1. Renault Clio..............312 stig.
2. Nissan Primera............258 stig.
3. Opel Calibra..............183 stig.
4. Mazda Miata...............158 stig.
5. Peugeot605................158 stig.
6. Toyota Previa..............91 stig.
7. Ford Escort............86stig.
8. Lancia Dedra...........68 stig.
9. Rover 100 ..........54 stig.
10. Fiat Tempra................38 stig.
11. Rover Metro 100........stig.
12. Toyota Starlet.......lOstig.
13. ToyotaMR....................7 stig.
15. Toyota Celica...............2 stig.
Verðlaunin afhent í janúar
Verðlaunagripur fylgir útnefningu
bíls ársins í Evrópu og verður sá af-
hentur Raymond H. Lévy, forstjóra
Renault, 14. janúar 1991 við hátíðlega
athöfn í Rómaborg en það er einmitt
ítalska tímaritið A.M. sem annast
hefur skipulagningu kosningarinnar
í ár.
Renault er ekki að taka á móti þess-
um heiðursverðlaunum í fyrsta sinn.
Árið 1966 fékk Renault 16 þessi verö-
laun, 1982 var það Renault 9. Sigur-
vegararnir síðan eru þessir: Audi 100
(1983), Fiat Uno (1984), Opel Kadett
(1985), Ford Scorpio (1986), Opel
Omega (1987), Peugeot 405 (1988), Fiat
Tipo (1989), Citroen XM (1990).
Renault Clio er væntanlegur hing-
að til lands öðrum hvorum megin við
næstu áramót.
S.H.H.
Á.
-V--- í 'í>' h
Renault Clio - státar nú þegar af gullna stýrinu og titlinum Bíll ársins í Evrópu 1991
í hvaða bílum verða
flest banaslys?
- Sjá sænska könnun á bls. 32
Nissan Primera - billinn sem margir héldu að yrði bíll ársins í Evrópu varð
að láta sér lynda annað sætið.
Saab 900i ’87, sjálfsk., vökvast., 5 d., rauður, ek.
27.000, toppeintak. V. 1.060.000.
Globusa
Lágmúla 5, sími 91-681555
Biladeild
Chevrolet Blazer- S10 ’87, svart-
ur/rauður, 5 g., lúxusinnrétting, ek.
46.000, veltistýri cl, raf. rúðuvindur,
góður bíll, v. 1.750.000.
1.6 ’88, blár, 4ra d.,
4ra g„ ek. 50.000. V. 870.000. Gott
eintak.
Allir bílar yfirfarnir og
í 1. flokks ástandi
Opið í dag 10-14
Lada Sport ’88, ek. 35.000, 5 g., létt- Citroén BX 1.4 ’87, grár, ek. 61.000.
stýri, dökkbiár, v. 580.000. Tilboðsv. 595.000.