Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Side 1
íCí’i HAÍJVjÁo ..81 ííUOAaUTftÖ’iT
CS
'■■■■■.•. :
\ \ ' s s'vC, * ^
'í : ■
. : .:
■®MÆ®Mimm
Leikfélag MH:
Rocky Horror Show
Atriði úr Rocky Horror Show sem Leikfélag MH sýnir um þessar mundir.
Leikfélag Menntaskólans viö
Hamrahlíö frumsýnir söngleikinn
Rocky Horror Show eftir Richard
O’Brian sunnudaginn 20. janúar kl.
20.30. Sýningar verða í Iönó og
veröa þær alls 20.
Söngleikurinn Rocky Horror var
fyrst frumsýndur í Bretlandi í litlu
leikhúsi „The Theatre Upstair“ á
miðju ári 1973 og sló samstundis í
gegn. Sýningin var fljótlega flutt í
stærra húsnæði og ekki minnkuðu
vinsældirnar. Gerð var kvikmynd
eftir verkinu árið 1975 og gengur
hún enn í bíóhúsum um víða ver-
öld.
Leikfélag MH tók Iðnó á leigu
fyrir sýninguna og er þetta gamla
hús heppileg umgjörð utan um
kastala þeirra Transylvaníubúa
Frank-N-Furters, Riffs-Raffs og
Magnetu.
Rocky Horror er nú leikinn í
fyrsta sinn á íslensku en áður hafa
lög úr söngleiknum verið tekin til
flutnings af ýmsum aðilum. Þýð-
ingu gerði Veturliði Guðnason fyrir
Leikfélag MH. í sýningunni taka
þátt 84 menntaskólanemar auk
þeirra sem lagt hafa hönd á plóg
við hönnun og útfærslu leikmynd-
ar. Leikstjóri er Kolbrún Halldórs-
dóttir, tónlistarstjóri Jón Ólafsson,
leikmyndin er unnin af nemendum
undir leiðsögn Guðrúnar Sigríðar
Haraldsdóttur, Ástrós Gunnars-
dóttir er danshöfundur og Egill
Ingibergsson hannaði lýsingu. Sig-
urður Bjóla Garðarsson annast
hljóðstjórn sýningarinnar. Aðal-
hlutverk leika Páll Óskar Hjálm-
týsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir,
Guðjón Bergmann, Steinunn Þór-
hallsdóttir, Katrín Kristjánsdóttir,
Jón Atli Jónasson, Bergur Már
Bernburg, Dofri Jónsson, Guðlaug-
ur Ingi Harðarson og Gestur Sva-
varsson.
Leiklistarskóli íslands frumsýnir:
STÓRSÝNINGIN
Leik-
soppar
Nemendalpikhúsið frumsýnir í
kvöld leikritið Leiksoppa eftir Cra-
ig Lucas. Lucas þessi er rúmlega
þrítugur Bandaríkjamaður. Leik-
soppar, sem á ensku nefnist Reck-
less, var fyrst frumsýpt í New York
árið 1988. Craig Lucas er lærður
leikari en hefur alfarið snúið sér
að skriftum og gengið vel. Hann var
meðal annars útnefndur til Tony
verðlaunanna 1989 fyrir Broad-
way-smelhnn „Prelude to a Kiss“.
Leiksoppar fjallar á grátbrosleg-
an hátt um píslargöngu Rakelar
Fitsimmons í gegnum lífið, frá
leigumorðingjum og jólasveinum
til sálfræðinga og sjónvarpsmanna.
Sumir vilja kalla verkið ádeilu á
bandarískt þjóðfélag, aðrir segja
það fjalla um konuna sem eyland
og enn öðrum finnst það ævintýri
með nútíma formerkjum.
Þýðandi verksins er listmálarinn,
rithöfundurinn, útvarpsmanhatt-
arinn og nú þýðandinn, Hallgrímur
Helgason. Leikstjóri er Halldór E.
Laxness en hann er nú kominn
heim eftir áratugar fjarveru í út-
löndum við nám og vinnu í leik-
húsum beggja vegna Atlantsála.
Leikmynd og búninga hannaði Elín
Gunnarsdóttir en hún er aldurs-
forseti sýningarinnar en þó aðeins
34 ára. Lýsingu annaðist Egill Ingi-
bergsson en hann er starfandi
tæknimaður Leiklistarskóla ís-
lands. Tónlist er í höndum selló-
leikarans, popparans og töfra-
mannsins Eyþórs Arnalds. Hann
samdi lög, fann til lög og vann leik-
Úr sýningu Nemendaleikhússins á
Leiksoppum eftir Craig Lucas.
hljóðin öll sem setja punktinn yfir
i-ið.
Átta nemendur eru í Nemenda-
leikhúsinu þetta árið en í sýning-
unni tekur einnig þátt 1. bekkur
skólans, bæði sem aukaleikarar og
tæknifólk.
Sýningar eru allar í Lindarbæ og
hefjast þær klukkan 20.00. Hægt er
að panta miða allan sólarhringinn
í síma 21971.
BREIÐVANeU
Skemmtistaður á heimsmælikvarða
I MJCDD
Borðapantanir í síma 77500
Miðaverð kr. 3.900. Eftir kl. 23.30 kr. 700. Snyrtilegur klæðnaður
Skemmtistaður á heimsmælikvarða
Ásamt stórhljóm-
sveit Gunnars
Þórðarsonar
Stórkostleg
18 manna sýning
Glæsilegur matseðill
Laugardags-
kvöldið
19. janúar
Fólkið segir:
„Þvílík skemmtun."
„Við höfum ekki
skemmt okkur eins vel í fleiri ár."
„Stemningin var
rosaleg."