Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Page 7
FÖSTUDAGUR 18, JANÚAR T-99L . 27 Iþróttir helgajrinnar: Hafnar fj ar ð arliðin slást í Kaplakrika Reikna má meö aö fjölsóttasti íþróttaviðburöur helgarinnar verði viðureign Hafnarfjarðarliöanna Hauka og FH í 1. deild karla í hand- knattleik klukkan 16.30 á morgun, laugardag. Um heimaleik Hauka er að ræða, en þrátt fyrir það hefur hann verið fluttur af þeirra heima- velli í íþróttahúsinu við Strandgötu og verður leikinn í höfuðvígi FH- inga í Kaplakrika. Búast má við þétt setnum bekkjum en um 1800 manns sáu fyrri leik hðanna í vetur á sama stað. Hafnarfjarðarliðin eru jöfn að stigum, eru bæði með 20 stig eftir 16 leiki, og eru í 4.-5. sæti. Bæði eru nánast örugg um sæti í úrslitakeppninni. Fyrsti leikur 17. umferðar fer fram í kvöld þegar KA og Stjarnan mætast á Akureyri klukkan 20.30. Hinir fjórir eru alhr á dagskrá klukkan 16.30 á morgun, þá leika Fram og Víkingur í Laugardals- höh, Selfoss og KR á Selfossi, Grótta og ÍR á Seltjarnarnesi og Valur og ÍBV á Hhðarenda. Síðari Evrópuleikur Fram og Byásen Síðari leikur Fram og Byásen frá Noregi í 2. umferð Evrópukeppni meistarahða í kvennaflokki fer fram í Laugardalshöhinni á sunnu- daginn. Þar er nánast um forms- atriði að ræða því Byásen vann fyrri leik hðanna um síðustu helgi, 34-16, í Þrándheimi. HinsVegar er ástæða til að hvetja handknatt leiksáhugamenn til að fjölmenna því Byásen er eitt besta félagshð heims. Það verður fróðlegt að sjá hvemig Framstúlkunum gengur á móti þeim á heimavelh. í 1. deild kvenna fara fram fjórir leikir um helgina. ÍBV og Valur mætast tvisvar í Eyjum, klukkan 20 í kvöld og 13.30 á morgun. Þá leika FH og Selfoss í Kaplakrika á morgun klukkan 15 og á sama tíma leika Grótta og Stjaman á Selfjam- amesi. í 2. dehd karla em tveir leikir um helgina, Þórsarar koma frá Akur- eyri og leika við ÍS í Laugardals- hölhnni klukkan 13.30 á morgun og við Aftureldingu að Varmá klukkan 14 á sunnudag. Slagur norðanliðanna á Sauðárkróki Keppni í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik líeldur áfram í kvöld en þá mætast Njarðvík og KR í Njarð- vík klukkan 20. Síðan fara þrír leik- ir fram á sunnudaginn. Norðanlið- in Tindastóll og Þór mætast á Sauö- árkróki klukkan 16 og þar verður án efa hart barist eins og í fyrri leikjum þeirra. Á sama tíma leika Snæfell og Njarðvík í Stykkis- hólmi. Loks mætast Valur og Kefla- vík að Hhðarenda klukkan 20 um kvöldið. í 1. deild karla mætast UÍA og ÍS í mikUvægum leik á Egjlsstöðum klukkan 14 á morgun og á sama tíma leika Víkveiji og Breiðablik í íþróttahúsi Hagaskóla í Reykjavík. íslandsmótið í innanhússknattspyrnu íslandsmótið í innanhússknatt- spymu heldur áfram um helgina og keppni í meistaraflokki karla lýkur í íþróttahúsi Seljaskóla í Reykjavík, þar sem keppt verður í 3. og 4. deUd. Sextán hð keppa í 3. deUd og 24 í 4. dehd. Keppni í 4. deUd hefst klukkan 16.30 í dag og lýkur um klukkan 19 á laugardags- kvöld. í 3. deUd er síðan keppt á sunnudag frá klukkan 10 til 19. Þá hefst keppni í yngri Uokkun- um um helgina í íþróttahúsinu í Garðabæ. Þar er keppt í 4. Uokki karla og 3. Uokki kvenna. Bestu kvennaliðin mætast í blakinu Á íslandsmótinu í blaki verður þýðingarmikiU leikur í 1. deild kvenna á morgun, laugardag. Þá mætast Breiðablik og Víkingur í Digranesi klukkan 16.30 en þessi lið beijast um íslandsmeistaratitiUnn. Tveir aðrir leikir verða í kvenna- deUdinni, HK og KA leika í Digra- nesi klukkan 14 á morgun og Vík- ingur leikur við HK í Hagaskóla klukkan 16 á sunnudag. í 1. deUd karla leikur efsta hðið, KA, tvo leiki sunnan heiða. Gegn HK 1 Digranesi klukkan 15.15 á morgun og gegn Fram í Hagaskóla klukkan 14.45 á sunnudag. -VS Þorgils Óttar Mathiesen, þjálfari FH, skorar gegn Haukum í fyrri leik liðanna í vetur. Það verður örugglega hart barist þegar liðin mætast í Kaplakrikanum á morgun. Sýningar Grafík-Gallerí Borg Síðumúla 32 Þar er nú blandað upphengi: grafíkmynd- ir eftir um það bil 50 höfunda, litlar vatns- lita- og pastelmyndir og stærri olíumál- verk eftir marga af kunnustu listamönn- um þjóðarinnar. Gallerí List Skipholti í Gallerí List er komið nýtt, skemmtilegt og nýstárlegt úrval af hstaverkum: hand- unnið keramik, rakúkeramik, postulín og gler í glugga, skartgripir, grafík, ein- þrykk og vatnslitamyndir eftir íslenska listamenn. Opið kl. 10.30-18. Hafnarborg Þar stendur nú yfir sýning á verkum eft- ir nemendur við Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Sýningin var opnuð 20. des. sl. í tilefni af útskrift nýstúdenta frá skól- anum sem fram fór í Hafnarborg. Hér er um aö ræða sýnishom af vinnu nemenda í myndmenntavah síðasta áratuginn. Sýningin stendur til 27. janúar. í kaffi- stofu Hafnarborgar er sýning á verkum eftir tólf hafnfirska listamenn. Öll verkin á sýningunni era til sölu á staðnum. Listamennimir eru: Aðalheiöur Skarp- héðinsdóttir, Elín Guðmundsdóttir, Gest- ur Þorgrímsson, Gunnlaugur Stcfán Gíslason, Janos Probstner, Jóna Guð- varðardóttir, Kristrún Ágústsdóttir, Pét- ur Bjamason, Rúna, Sigríður Erla, Sig- ríður Ágústsdóttir og Sverrir Ólafsson. í Sverrissal em til sýnis verðlaunatillögur úr samkeppni er fram fór um byggingu tónlistarskóla og safnaðarheimilis við Hafnarfjarðarkirkju. Opið er í Hafnar- borg er frá kl. 14-19 alla daga nema þriðjudaga. Kaffístofan er opin daglega kl. 11-19. J. Hinriksson , Maritime Museum Súðarvogi 4 Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miöviku- daga, fimmtudaga, föstudaga og laugar- daga. Listasafn Einars Jónssonar er lokað í janúar. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega kl. 11-16. Katel Laugavegi 20b (Klapparstigsmegin) Til sölu era verk eftir innlenda og er- lenda listamenn, málverk, grafík og leir- munir. Kjarvalsstaðir v/Miklatún Þar standa yfir tvær sýningar. í vestur- sal og vesturforsal er Hallgrimur Helga- son með sýningu á málverkum. í austur- sal er Amgunnur Ýr með sýningu á málverkum og skúlptúr. Kjarvalsstaðir era opnir daglega kl. 11-18 og er veitinga- búðin opin á sama tíma. Listasafn Háskóla íslands í Odda Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum verkum í eigu safnsins. Opið er daglega kl. 14-18. Aðgangur að safninu er ókeypis. Listasafn íslands Fríkirkjuvegi 7 Þar stendur yfir sýning sem nefnist Ald- arlok. Þetta er fyrsta sýningin á íslandi á sovéskri samtímalist. Listamennimir era Andrej Fílíppov, Sergej Mírónénko, Vladimir Mírónénko, Oleg Tístol og Konstantín Reúnov. Hér er um að ræða samvinnuverkefni milli íslands og Sovét- ríkjanna. Listasafn íslands er opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18. Kaffistofa safnsins er opin á sama tíma. Aðgangur er ókeypis. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga 70 í Listasafni Siguijóns í Laugamesi er nú til sýnis úrval af andlitsmyndum Sigur- jóns frá tímabilinu 1927-1980. Safnið er opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 og þriðjudaga kl. 20-22. Kaffistofa safns- ins er opin á sama tíma. Mokkakaffi, Skólavörðustíg Kristján Jón Guðnason sýnir mynd- skreytingar við ljóð Gyrðis Eliassonar og nokkrar litkrítarmyndir frá Grikklandi. Norræna húsið, v/Hringbraut Á morgun verður opnuð sýning í and- dyri Norræna hússins sem fjallar um frönsku byltinguna og 200 ára afmæli hennar. Sýningin nefnist: Franska bylt- ingin í myndum og er byggð upp á teikn- ingum eftir franska iistamanninn Jean- Louis Prieurs af atburðum byltingarinn- ar árin 1789-1792. Sýningin verður opin daglega til 10. febrúar. í sýningarsölum í kjallara hússins verður finnska arki- tektasýningin FRÁ FINNUM opnuð að nýju og stendur til 2. febrúar. Nýhöfn, Hafnarstræti 9, Lísbet Sveinsdóttir opnar málverkasýn- ingu í Listasalnum Nýhöfn á morgun kl. 14-16. Á sýningunni gefur að lita málverk sem listakonan málaði á sl. tveimur árum í Portúgal. Sýningin sem er sölusýning, er opin virka daga kl. 10-18 og um helgar kl. 14-18. Lokað á mánudögum. Sýning- trnni lýkur 6. febrúar. Sjóminjasafn íslands Vesturgötu 8 Hafnarfirði, simi 52502 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis Álfabakka 14 Þar stendur yfir sýning á verkum Daða Guðbjömssonar. Listamaðurinn sýnir 16 myndir, þar af 10 olíumálverk sem flest era máluð á sl. tveimur árum. Daði hefur haldið fjölda einkasýninga innanlands og erlendis. Auk þess hefur hann tekið þátt í samsýningum viða um lönd og hér á landi. Sýningin verður opin til 22. febrúar á afgreiðslutíma útibúsins, kl. 9.15-16, frá mánudegi til fóstudags. Sýningin er sölu- sýning. Póst- og símaminjasafnið Austurgötu 11 Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangur ókeypis. Vinnustofa Ríkeyjar Hverfisgötu Þar era til sýnis og sölu postulinslág- myndir, málverk og ýmsir Utlir hlutir. Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið- vikudaga, fimmtudaga og föstudaga og á laugardögum kl. 10-16. Þjóðminjasafnið Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-16. Minjasafnið á Akureyri Aðalstræti 58, sími 24162 Opið sunnudaga kl. 14-16. Myndlistarsýning í menntamálaráðuneytinu Nýlega var opnuð myndlistarsýning í menntamálaráöuneytinu, Sölvhólsgötu 4. Þar sýna þijár myndlistarkonur verk sín sem flest eru unnin á síðasta ári. Berglind Sigurðardóttir sýnir 26 olíumál- verk og pastelmyndir, Hrafnhildur Sig- urðardóttir og Ingiríður Óðinsdóttir sýna 10 textilverk hvor. Sýningin verður opin alla virka daga kl. 9-17 fram til 23. febrú- ar. Slunkaríki, ísafirði Á morgun opnar Haraldur Ingi sýningu á vatnslitamyndum og grafík. Myndimar era málaðar á seinni hluta árs 1989 og 1990.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.