Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1991, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 21' JANÚAR 1991.
>19
Litlu liðin
slógu í gegn
- í ítölsku knattspymunni í gær
Mörg óvænt úrslit litu dagsins ljós
í 1. deild ítölsku knattspyrnunnar í
gær. Litlu liðin Genoa, Parma og Pisa
sigruðu stórliðin Juventus, AC
Milano og Roma en lið Inter Milan
vann stórsigur á Lecce, 5-0, og er
með forystu í deildinni.
Þjóðveijatríóið hjá Inter var á
skotskónum sem fyrr. Andreas
Brehme skoraði á 2. mínútu, Mattha-
us skoraði 2 mörk í upphafi síðari
hálfleiks, Pizzi skoraði á 80. mínútu
og Jurgen Klinsmann innsiglaði
stórsigur með marki á 90. mínútu.
Hrakfarir Napoli halda áfram og í
gær tapaði liðið á útivelli fyrir Bo-
logna, 1-0. Tékkinn Thomas Sku-
hravy tryggði Genoa sigur á Juvent-
us og Vialli skoraði mark Sampdoria
í jafntefli gegn Lazio. HM-hetjan Sal-
vatori SchiRaci hjá Juventus var rek-
in af velli þegar lið hans lá óvænt
heima gegn Genoa.
• Fyrir leikina í ítölsku knatt-
spymunni ávarpaði innanríkisráð-
herra landsins knattspymuáhuga-
menn og bað þá að halda ró og spekt
á áhorfendapöllunum þar sem lög-
gæsla var ekki sem skyldi vegna
Persaflóastríðsins. Fimmtíu þúsund
lögreglu- og hermenn em í viðbrags-
stöðu í landinu vegna hættu á
hryðjuverkum og því þurfti að skera
niður gæslu á knattspyrnuvöllum
landsins. Úrslit í deildinni urðu
þannig í gær:
Atalanta-Torino..............0-1
Bari-Cagliari....'...........4-1
Bologna-Napoli...............1-0
Fiorentina-Cesena............2-0
Inter Milano-Lecce...........5-0
Juventus-Genoa...............0-1
Parma-AC Milan...............2-0
Roma-Pisa....................0-2
Sampdoria-Lazio..............1-1
• Staða efstu liða er þannig:
Inter...........17 10 4 3 35-20 24
Juventus ..17 8 6 3 26-15 22
Parma ..17 8 6 3 20-12 22
ACMilan ..16 8 5 3 17- 9 21
Sampdoria ..16 7 6 3 23-13 20
Genoa ..17 6 7 4 19-15 19
Torino ..17 6 7 4 17-14 19
Amórsvafá
nuddbekknum
- þegar Bordeaux gerði jafntefli við Nantes
Amór Guðjohnsen varð fyrir
óskemmtilegri reynslu. þegar lið
hans, Bordeaux, sótti heim Nantes í
frönsku 1. deildinni í knattspyrnu á
laugardaginn. Tveimur tímum fyrir
leikinn veiktist Arnór heiftarlega af
matareitrun og gat ekki spilað með.
„Ég missti algjörlega af leiknum
því ég fékk háan hita og steinsofnaði
á nuddbekknum inni í búningsklefa!
Það eina sem ég veit um leikinn er
að Bell, markvörður okkar, varði
vítaspyrnu," sagði Arnór í samtali
við DV í gærkvöldi, en leiknum lauk
með markalausu jafntefli.
Toppliðin töpuðu
Marseille tapaði óvænt fyrir Lille,
1-0, en heldur þó fimm stiga forystu
þar sem Mónakó og Auxerre töpuöu
líka.
Mikil öryggisgæsla var á öllum
leikjum vegna Persaflóastríðsins en
úrslit urðu þessi:
Lille - Marseille........... 1-0
Auxerre - Paris SG............0-1
Montpellier - St. Etienne.....0-0
Caen - Cannes.................0-1
Rennes - Sochaux..............1-1
Nice - Brest..................2-0
Nantes - Bordeaux.............0-0
Metz - Toulouse....'...........2-1
Toulon - Nancy................2-0
Lyon - Mónakó.................1-0
• Staða efstu hða í deildinni er
þannig:
Marseille......23 15 3 5 43-19 33
Mónakó.........23 10 8 5 27-21 28
Auxerre........23 10 7 6 32-22 27
Montpellier....22 9 6 7 36-24 24
Cannes.........23 8 8 7 19-18 24
Lille..........23 6 12 5 22-22 24
• Bordeaux er í 12. sæti með 21 stig.
-VS/GH
íslendingaliðimum gekk vel á Spáni:
SMrieikur
hjáAKreð
- skoraði 9 mörk í sigri Bidasoa
íslendingaliðin í spænska hand-
boltanum eru öll komin í 8 liða úr-
slit bikarkeppninnar eftir góða
frammistöðu í 16 hða úrslitunum um
helgina. Liðin átta sem eftir eru
keppa til úrslita í Valencia og verður
leikið frá miðvikudegi til sunnudags.
Þar mætast Kristján Arason og Sig-
urður Sveinsson því Teka dróst gegn
Atletico Madrid. Granollers leikur
við nágranna sína, Barcelona, Bida-
soa mætir Arratemg loks eigast við
Valencia og Cajamadrid.
• Alfreð Gíslason átti stórleik með
Bidasoa í gær þegar liðið sigraði
Pontevedra, 28-23. Hann var sérstak-
lega dijúgur á upphafsmínútum
leiksins og gerði ahs 9 mörk. Bidasoa
vann fyrri leikinn 24-22 og þá skor-
aði Alfreð 2 mörk.
• Atletico Madrid heimsótti Kan-
arías og sigraði örugglega, 14-21. Sig-
urður Sveinsson skoraði 3 mörk en
í fyrri leiknum, sem Atletico vann
28-19, skoraði hann 7 mörk.
• Teka vann stórsigur á Mepansa
á útivehi, 21-30, og skoraði Kristján
Arason eitt afmörkum Teka liðins.
Hann gerði 2 mörk í fyrri leiknum
sem Teka vann, 30-24.
• GranollerstapaðifyrirMichehn,
23-20, en komst naumlega áfram þar
sem hðið vann fyrri leikinn, 26-22.
Geir Sveinsson skoraði 1 mark fyrir
Granohers í gær en hann gerði 4 í
fyrri leiknum.
-GH/VS
• Ben Johnson, kanadiski spretthlauparinn sem er nýkominn úr tveggja
ára banni, tapaði á föstudag sinu öðru hlaupi í röð þegar hann beið lægri
hlut fyrir Andre Cason frá Bandarikjunum í 50 metra hlaupi á innanhússmóti
í Los Angeles. Cason hljóp vegalengdina á 5,69 sekúndum en Johnson,
sem átti lélegt viðbragð, varð annar á 5,74 sekúndum. Hér gengur Johnson
af velli eftir hlaupið. Simamynd/Reuter
• Petra Kronberger frá Austurriki (til hægri) vann tvo glæsilega sigra í
risastórsvigi kvenna i heimsbikarnum á skíðum í Meribel i Frakklandi um
helgina. Hún hefur nú unnið átta mót i vetur og hefur mikia yfirburði i stiga-
keppni kvenna. Þar er hún nú með 276 stig en næst er Caroie Merle frá
Frakklandi með 92 stig. Til vinstri er Michaela Gerg frá Þýskalandi sem
varð önnur á laugardaginn en hún er níunda í stigakeppninni.
Símamynd/Reuter
• Gernot Reinstadler, tvítugur Austurrikismaður, lést á laugardagsmorgun-
inn á sjúkrahúsi i Sviss eftir að hafa slasast illa i brunkeppni heimsbikars-
ins á skíðum i Wengen á föstudag. Reinstadler rakst utan í girðingu við
brautina og kastaðist síðan niður brekkuna. Hann var strax fluttur með
þyrlu á sjúkrahús í Interlaken en læknum tókst ekki að bjarga lifi hans.
Af þessum sökum var keppni í bruni og svigi karla í Wengen um helgina
afiýst. Símamynd/Reuter
Júlíus með f imm
- þegar Asnieres tapaði í franska handboltanum
Júlíus Jónasson og félagar í Paris
Asnieres töpuðu, 23-18, fyrir Créteil
í frönsku úrvalsdeildinni í hand-
knattleik í gærkvöldi. Leikurinn var
jafn lengst af, Créteil yíirleitt með
nauma forystu, og jók muninn undir
lokin.
Asnieres er um miðja deild og sigl-
ir lygnan sjó, á litla möguleika á að
blanda sér í toppbaráttuna en er ekki
í fallhættu. Júlíus var markahæsti
leikmaður Asnieres í leiknum, skor-
aði 5 mörk.
-VS
íþróttir
Sport-
stúfar
Lið Anderlecht heldur
uppteknum hætti í
belgísku 1. deildinni í
knattspyrnu og á laug-
ardaginn sigraði liðið St.Truiden
á útivelli, 1-2. Úrslit í Belgíu urðu
annars þessi:
Molenbeek-Standai’d........0-1
Waregem-Beerschot..........1-1
Cercle Briigge-Lierse......0-0
Lokeren-Club Briigge.......0-1
Gent-Genk..................6-1
St.Truiden-Anderlecht......1-2
Antwerpen-Ekeren...........0-1
• Gent er 1 efsta sæti með 33 stig,
Anderlecht 32, Club Brugge 29 og
Standard Liege 29.
Maradona sektaður
og ætlar að hætta
Diego Maradona var á laugardag-
inn sektaður um ríflega háifa
milljón íslenskra króna af ítalska
knattspymusambandinu fyrir að
neita að mæta á fund aganefndar
sambandsins. i síðustu viku geröi
sérstakur knattspyrnudómstóll
honum að greiða íjórar milljónir
króna fyrir að sleppa æfmgurn
og leikjum með liði sínu, Napoli,
en félagið lagði fram kröfu þar
að lútandi. Maradona lýsti því
yfir á fóstudaginn að hann ætlaði
að hætta með Napoli í vor og
leggja skóna endanlega á hilluna
í árslok.
Van Breukelen kyrr
Hans van Breukelen, hollenski
landsliösmarkvörðurinn í knatt-
spymu, hefur framlengt samning
sinn viö PSV Eindhoven til ársins
1994. Þar með era umræður um
að hann fari á ný til Nottingham
Forest í Englandi úr sögunni.
Frosnir vellir
í Hollandi
Aðeins þrír leikir fóru fram í
hollensku 1. deildinni í knatt-
spyrnu um helgina en öörum
leikjum varö að fresta vegna lé-
legra vallarskilyrða. PSV og
Groningen skildu jöfn í Eind-
hoven, 1-1. Roda sigraði Willem,
1-0, og lið Waalwijk og Fortuna
Sittard skildu jöfn, 1-1.
• PSV er í efsta sæti með 26, Ajax
er í öðm með 23 en á tvo leiki til
góða og Groningen er í þriöja
sæti með 22 stig.
Sjálfsmark færði Barce-
iona sigur á Real Madrid
Barcelona vaim sætan sigur á
Real Madrid, 2-1, í spænsku 1.
deildinni á laugardagskvöldið, og
var þetta þriðji ósigur meistara
Real í röð. Michael Laudrup kom
Barcelona yfir, Emílio Butragu-
eno jafnaði, en síðan skoraði
Júgóslavinn Spasic sjálfsmark
sem tryggði Barcelona sigurinn.
Úrslit á Spáni urðu þessi:
Real Zaragoza - Cadiz........3-0
Real Mallorca - Sociedad.....2-1
Sevilla - Logrones...........1-0
Castellon - Oviedo......’t...l-0
Barcelona - Real Madrid......2-1
Atletico Madrid - Espanol....4-0
Sporting Gijon - Valencia....l-l
Osasuna - Real Betis.........3-0
Atl.Bilbao - Valladolid......0-1
Tenerife - Burgos............1-0
• Staða efstu liða er þessi:
Barcelona...19 14 3 2 34-13 31
Atl. Madrid...l9 10 7 2 29-10 27
Osasuna.....18 9 7 2 25-12 25
Sevilla......19 10 3 6 22-14 23
RealMadrid. 19 9 3 7 24-20 21
Þjóðverjar Evrópu-
meistarar í borðtennis
Þjóðveijar sigruðu
Júgóslava, 3-0, í úr-
slitaleik Evrópu-
keppni landsliða í
borðtennis í Munchen í gær. Átta
þjóðir kepptu um titilinn í þýsku
borginni um helgina en í undan-
úrslitum sigmðu Júgóslavar Sov-
étmenn, 3-1, og Þjóðverjar lögöu
Frakka, 3-1. Svíar og Englending-
ar urðu í 5.-6. sæti og Hollending-
ar og Ungveijar í 7.-8. sæti.