Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1991, Page 5
20
MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 1991.
MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 1991.
21
Markahæstir
| Hans Guömundsson, KA
§ Valdimar Grímsson, Val
I Konráð Olavsson, KR
| Stefán Kristjánsson, FH
§ Gústaf Bjarnason, Selfossi
Mörk utan
at velli
Mörk úr
vftaköstum
129
24
116
18
114
íþróttir
íslandsmótið
í innanhúss*
knattspyrnu
Síðari hluti íslandsmótsins i
meistaraflokM karla í innan-
hússknattspyrnu fór fram í Selja-
skóla í Reykjavík um helgina en
þar var keppt i 3. og 4. deild.
3. deild
Það voru Þróttur frá Neskaup-
stað, Víkverji úr Reykjavík,
Sindri frá Homafirði og Hvöt frá
Blönduósi sem sigruðu í riðlum
'3, deiidar og tryggðu sér þar með
sæti í 2. deild. í stað þeirra féllu
í 3. deildina Skallagrímur, Ár-
mann, KS og Bolungarvík, sem
urðu neðst í 2. deildar keppninni
um fyrri helgi.
A-riðill:
ÞrótturN .....3 3 0 0 12-5 6
Njarðvík .....3 2 0 1 10-6 4
ValurRf. 3 1 0 2 4-7 2
Baldur 3 0 0 3 2-10 0
B-riðffl:
Víkverji ..... 3 3 0 0 17-8 6
Hafnir 3 1 1 1 12-9 3
Kormákur... 3 1 1 1 11-10 3
Stokkseyri.. .....3 o: 0 3 8-21 0
C-riðilI:
Sindri 3 3 0 0 19-6 6
Dalvík .....3 2 0 1 9-6 4
Snæfeli 3 1 0 2 11-11 2
TBA .....3 0 0 3 2-18 0
D-riðill:
Hvöt 3 2 0 1 11-5 4
Magni 3 1 1 1 8-11 3
TindastóIL.. 3 1 1 1 11-12 3
Afturelding. 3 1 0 2 9-11 2
• Baldur frá Hvolsvelh, Stokks-
eyri, TBA frá Akureyri og Aftur-
elding úr Mosfellsbæ féllu í 4.
deild.
4. deild
Þaö voru Pjölnir úr Reykjavík,
SM úr Eyjafirði, Reynir frá Sand-
gerði og Höttur frá Egilsstöðum
sem tryggðu sér sæti i 3. deild á
næsta ári. Þessi fjögur hð urðu
hlutskörpuat í úrsUtakeppni
þeirra sex Uða sem unnu riðla 4.
deildarinnar.
A-riðill:
TBR............3 3 0 0 19-6 6
AustriE........3 1 1 112-10 3
Huginn.........3 1 1 1 14-14 3
Emir...........3 0 0 3 7-22 0
B-riðiil:
SM.............4 4 0 0 15-8 8
FramS..........4 1 1 2 13-14 3
Vísir..........4 0 1 3 10-16 1
BÍ mætti ekki til leiks.
C-riðili:
Höttur. 3 3 0 0 8-5 6
Leiftur ......3 1 1 1 12-10 3
LeiknirF 3 1 0 2 9-10 2
Grundarfj... 3 0 1 2 10-14 1
D-riðill:
Fjölnir 3 3 0 0 32-3 6
Trausti 3 1 1 1 28-9 3
Eyfellingur 3 1 1 1 24-6 3
Ösp 3 0 0 3 1-67 0
E-riðill:
ReynirS 3 2 1 O 14-4 5
UMSE-b 3 2 1 0 12-10 5
Súlan 3 1 0 2 11-11 2
NeistiD ..... 3 0 0 3 4-16 0
F-riðffl:
Ægir 3 2 1 0 14-9 5
Hrafnkell.... 3 2 0 1 16-7 4
Léttir 3 1 1 1 8-12 3
Geislinn 3 0 0 3 4-14 0
Úrslitakeppni:
Fjöinir-Ægir..............5-3
Fjölnir - SM...............4-1 •
SM-Ægir..................3-1
pjölnir......2 2 0 0 9-44
SM...........2 10 14-52
Ægir.........2 0 0 2 4-8 0
Höttur-ReynirS...........7-j
TBR-Höttur................5-4
ReynirS. -TBR............7-2
Höttur.......2 1 0 1 11-9 2
ReynirS......2 1 0 111-9 2
TBR..........2 1 0 1 7-112
-VS
______íþróttir
Sport-
stúfar
Nokkur óvænt úrsht
Utu dagsins ljós í
bandarísku NBA-
deildinni í körfuknatt-
leik um helgina. Boston tapaði á heimavelli fyrir New Jersey Nets og San Antonio Spurs lá heima gegn Charlotte Hornets, svo eitt- hvað sé nefnt. Philadelphia 76ers mátti sætta sig við að tapa tvisvar á heimavelli og Detroit vann sig- ur í Houston en tapaði síðan í Phoenix. Úrsiit helgarinnar urðu annars sem hér segir: Houston - Dfttroit 91 -97
Sacramento - LA Lakers. Boston-NJNets Cleveland -Utah ... 78-93 ...106-111 ... 99-106
Miami - NY Knicks ...107-86
76ers - Golden State Atlanta-Chicago ...138-141 ...114-105
Dallas - LA Clippers SA Spui-s - Charlotte Milwaukee - Orlando Phoeníx - Detroit ...112-119 ...110-117 ...125-106 ...103-102
LA Lakers - Seattle Portland - Washington.... Atlanta-NJ Nets ...105-96 ...123-99 ...114-84
Indiana-Utah..... ...117-104
76ers - NY Knicks ... 97-112
Minnesota - Golden State Dallas - Charlotte ...121-113 ...110-95
Houston-LA Clippers Denver- SA Spurs Seattle - Washington Sacramento - PhoenLx ...107-96 ...108-117 ...111-89 ...101-97
Buffalo leikurtil
úrslita í „Super-Bowl“
Buffalo Bills vann yfirburðasigur
á Los Angeles Raiders, 51-3, í
undanúrslitum NFL-deildarinn-
ar í ameríska fótboltanum í gær-
kvöldi. Buffalo mætir sigurvegar-
anum i viðureign San Francisco
49ers og New York Giants í úr-
slitaleiknum, „Super-Bowl“ á
sunnudaginn kemur. Gífuriegar
varúðarráðstafanir eru nú í gangi
vegna þess leiks. VöUurinn var
innsiglaður á miðvikudag og síð-
an hefur öryggisgæslan þar verið
mjög ströng en Bandaríkjamenn
óttast hryðjuverk íraka vegna
Persafiöastríðsins.
Sviarnir fara
ekki til Japan
Sænsku heimsmeistar-
amir í borðtennis,
Jan-Ove Waldner,
Jörgen Persson og
Mikael Appeigren, tilkynntu í
gær að þeir yrðu ekki með i stór-
móti sem hefst í Japan í dag, Þeir
ætla að sifja heima vegna
ástandsins við Persaflóann og
hættunnar á sprengjutilræðum á
alþjóða flugleiðum. „Öryggi okk-
ar skiptir meira máh en pening-
ar,“ sagði Applegren i samtaii við
sænska útvarpið í gær.
Þjóðverjar unnu
mótið í Noregi
(t , Þjóðverjar stóðu uppi
! 'jr" sem sigurvegarar á al-
I /O þjóðlegu móti í hand-
knattleik karla sem
lauk í Noregi í gær. Þeir sigruðu
Austurríkismenn, 25-17, í loka-
umferðinni og unnu alla sina
leiki. Austur-þýskir leíkmenn
voru í aðalhlutverkum í þýska
liðinu. Norðmenn björguðu and-
litinu með sigri á Tékkum i gær,
21-17, en áður höfðu þeir tapaöi
óvænt fyrir Austurríkismöimum
og einnig fyrir Dönum. Danir
unnu Hollendinga, 24-14. Loka-
staðan varð þessi:
Þýskaland ....5 5 0 0 105-76 10
DanmÖrk.....5 4 0 1 104-87 8
Noregur.....5 2 0 3 99-90 4
Tékkósl.....5 2 0 3 105-105 4
Austurríki....5 2 0 3 100-118 4
Holland.....5 0 0 5 80-117 0
• Þorbergur Aðalsteinsson,
landsliðsþjáifari íslands, og Ein-
ar Þorvarðarson, aöstoðarmaður
hans, fylgdust með mótinu en ís-
land mætir Noregi, Hollandi og
Danmörku i B-keppninni í Aust-
urríki eftir rúmt ár.
KR sótti dýrmæt
stig á Selfoss
- sigraði þar heimamenn, 16-20
Sveinn Sigurðsson, DV, Selfossi:
KR-ingar náðu í dýrmæt stig í bar-
áttunni um sjötta sæti 1. deildar þeg-
ar þeir sigruðu Selfyssinga á laugar-
daginn, 16-20.
KR náði undirtökunum með því að
gera síðustu fjögur mörk fyrri hálf-
leiks og leiddi 7-9 í hléi. Síðan breytti
Reykjavíkurliðið stöðunni úr 12-12 í
12-15 og síðan 14-18. Selfoss lagaði
stöðuna í 16-18 en missti þá tvo menn
af leikvelli og átti ekki möguleika
eftir það.
Segja má aö hraðaupphlaup KR-
inga hafi skilið á milh liðanna en
þeir nýttu þau vel. Sigurður Sveins-
son var bestur í liði KR og lék geysi-
lega vel í síðari hálfleik. Þá varði
Leifur Dagfinnsson markiö ágætlega.
Hjá Selfossi stóð enginn upp úr, þetta
var einn lakasti leikur hðsins í vetur
og leikmenn voru þreytulegir. Gísli
Felix varði þó þokkalega og hefur
alltaf góð áhrif á samherja sína.
Mörk Selfoss: Einar G. Sigurðsson
5, Gústaf Bjarnason 4/2, Stefán Hall-
dórsson 2, Sigurjón Bjarnason 2, Ein-
ar Guðmundsson 2, Sigurður Þórðar-
son 1.
Mörk KR: Konráð Olavsson 7/1,
Sigurður Sveinsson 6, Páll Ólafsson
4/1, Willum Þórsson 2, Haukur
Olavsson 1.
Dómarar voru Gunnar Kjartans-
son og Árni Sverrisson og virtust
ekki vera komnir í æfingu eftir fríið.
l!!li ííííí Staóan
1. dcild 1 2. deild 1
M KA-Stiarnan 24-24 i ÍS-ÞórAk 22-28 i
:i Fram- Víkingur 24-27 i Aftureldine - Þór Ak 22-23 1
Í Selfoss - KR 16-20 1
Grótta ÍR 21-21 i ÞórAk 14 12 1 1 340-286 25 |
ss Haukar - FH 19-21 i HK 13 11 1 1 337-222 23 i
g Valur- ÍBV 24-28 1 UBK 13 10 1 2 278-214 21 1
i Njarðvík... 14 7 2 5 311-294 16 i
1 Víkingur... 17 17 0 0 429-353 34 g Keflavík.... 15 6 2 7 315-328 14
Valur.. 17 13 1 3 418-374 27 i ÍH 16 5 2 9 337-354 12 1
Stjarnan.... 17 11 1 5 420-400 23 | É
Í FH 17 10 2 5 405-395 22 1 Aftureld.... 16 5 0 11 313-364 10 Í
ii Haukar 17 10 0 7 403-406 20 i Völsungur 13 4 2 7 267-283 10 i
I kr 17 6 6 5 395-388 18 ! Armann.... 13 3 2 8 248-276 8 |
i IBV 17 6 4 7 410-404 16 | ÍS 15 1 1 13 254-389 3 g
Í KA 17 6 2 9 398-380 14 i i
®; Selfoss. 17 3 3 11 343-391 9 i • Armann og HK mætast í Laug- i
í| Grótta.. 17 3 2 12 372^104 8 i ardalshöllinni klukkan 19.45 í 1
| ÍR 17 2 3 12 364-412 7 | kvöld. 1
i Fram... 17 1 4 12 349-399 6 | 1
Égbiðst
afsökunar!
- hroðaleg dómaramistök í leik KA og Stjömunnar
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég gerði mistök. Ég sá ekki Jó-
hannes koma að línunni og þess
vegna dæmdi ég töf á KA, þetta voru
mistök," sagði Egill Már Markússon
dómari niðurlútur eftir jafntefli KA
og Stjörnunnar á Akureyri um helg-
ina. Úrslitin 24-24 og það er ekki of-
sagt að Stjarnan hafi fengið stigið á
silfurfati. Áhorfendur urðu ofsareið-
ir og biðu fjölmargir þeirra eftir dóm-
urunum sem þorðu ekki að ganga til
búningsklefa fyrr en nokkru síðar
og þá með fylgd.
Mistök Egils Más voru ljót. KA-
menn fengu boltann þegar um 30
sekúndur voru eftir af leiknum, voru
marki yfir og fóru sér skiljanlega
hægt. En þegar 15 sek. voru eftir var
boltinn gefmn á Jóhannes Bjarnason
sem stefndi að línunni og átti greiða
leið að marki Stjörnunnar aleinn, en
þá dæmdi Egill Már töf. Óskiljanleg
mistök og þaö var þungt hljóðið í
KA-mönnum eftir leikinn.
„Þeir dæmdu ekki illa í heildina,
en mistökin á síðustu mínútunni
voru hroðaleg,“ sagði Pétur Bjarna-
son fyrirliði. „Þessi sami dómari
færði Stjörnunni sigur hér í fyrra og
auðvitað á hann ekki að komast upp
með þetta ár eftir ár.
Leikurinn sjálfur var jafn og
spennandi allan tímann. Stjarnan
yfir lengst af, 12-10 í hálfleik, en KA
jafnaði af og til í síðari hálíleík, síð-
ast 23-23 þegar 3 mín. voru eftir.
Pétur Bjarnason kom KA yfir, 24-23,
minútu síðar og eftir það gekk mikið
á. Þegar leiktíminn rann út var dæmt
umdeilt víti á KA og Magnús Sig-
urðsson jafnaði.
KA hefði svo sannarlega þurft og
verðskuldað bæði stigin. Axel Stef-
ánsson í markinu var besti maður
hðsins, þá var Hans Guðmundsson
góöur í síðari hálfleik og skoraði þá
8 mörk og Pétur Bjarnason átti góðan
leik.
Skúh Gunnsteinsson var langbesti
maður Stjörnunnar og Axel Björns-
son var sterkur í horninu.
Mörk KA: Hans 10/1, Pétur 6/3, Sig-
urpáll 3/1, Erlingur 2, Jóhannes 1,
Andrés 1 og Guðmundur 1.
Mörk Stjörnunnar: Skúli 8, Axel 4,
Guðmundur 3, Sigurður 3, Magnús
2/2, Patrekur 2, Hilmar 1, Magnús
Eggertsson 1.
Deildatitillinn
nánast í höf n
- eftir sigur Víkings á Fram, 24-27
Víkingur sigraði Fram, 24-27, í 1.
deild íslandsmótsins í handknattleik
í Laugardalshöllinni á laugardaginn,
eftir aö staðan hafði verið 10-11, Vík-
ingum í vil, í leikhléi. Þetta var 17.
sigur Víkinga í jafnmörgum leikjum
og þar með eru þeir nánast búnir að
tryggja sér deildameistaratitilinn.
Handknattleikurinn, sem liðin
buðu upp á, var ekki burðugur og
Víkingar virtust heillum horfnir í
leiknum. Á21. mínútu var Sovétmað-
urinn í liði Víkings, Alexej Trufan,
rekinn af velli i þriðja sinn og kom
því ekki meira við sögu. Viö það
vöknuðu Víkingar til lífsins.
í síðari hálfleik náðu Víkingar
strax afgerandi forystu, 10-15, og
gerðu út um leikinn með því að kom-
ast í 14-23. Það var ekki fyrir stórleik
Víkinga sem þeir náðu þessari yfir-
burðastöðu, heldur sendu leikmenn
Fram hvað eftir annað boltann í lúk-
ur Víkinga, sem þökkuðu fyrir sig
og svöruðu að bragði með hraðaupp-
hlaupum.
Síðustu tíu mínútur leiksins voru
nánast endaleysa og Framarar náðu
að minnka muninn, enda kæruleysi
Víkinga þá með endemum.
Bestir í liði Víkings voru Birgir
Sigurðsson og Dagur Jónasson, sem
var drjúgur er hann fyllti skarð Truf-
ans. Hjá Fram áttu bestan leik þeir
Karl Karlsson og Egill Jóhannesson,
sem hefur ekki leikið betur í annan
tíma í vetur.
Leikinn dæmdu Hákon Sigurjóns-
son og Guðjón L. Sigurðsson og voru
þeim mislagðar hendur.
Mörk Fram: Karl Karlsson 10/3,
Páll Þórólfsson 4/1, Egill Jóhannes-
son 4, Gunnar Kvaran 2, Gunnar
Andrésson 2, Andri Sigurðsson 1,
Jón G. Sævarsson 1.
Mörk Víkings: Birgir Sigurðsson
5, Bjarki Sigurösson 5, Árni Friðleifs-
son 5/4, Dagur Jónasson 4, Björgvin
Rúnarsson 3/2, Guðmundur Guð-
mundsson 2, Alexej Trufan 2, Karl
Þráinsson 1.
-GG
Stóribróðir
hafði betur
- FH sigraði Hauka í spennandi leik, 19-21
• Stefán Kristjánsson átti stórleik þegar Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar áttust við. Hér er eitt af tíu mörkum Stefáns í fæðingu og Haukamennirnir Oskar
Sigurðsson, til vinstri, og Snorri Leifsson koma engum vörnum við. FH hafði betur í leiknum og sigraði, 19-21. DV-mynd Brynjar Gauti
„Þetta var geysilega skemmtilegur
leikur og um leið erfiður en ég held
að sigur okkar hafi verið sanngjarn.
Það er erfitt að leika gegn Haukum,
þeir eru harðir i vörninni og Maggi
bróðir var okkur sérstaklega erfiður.
Annars var ég mjög ánægður með
varnarleikinn hjá okkur og ég get
ekki verið annað en bjartsýnn á
framhaldið eftir þessa góða byijun á
nýju ári,“ sagði Guðjón Árnason, fyr-
irhði FH, í samtali við DV eftir að
FH hafði sigrað nágranna sína úr
Haukum, 19-21, í 1. deild karla á ís-
landsmótinu í handknattleik en leik-
urinn fór fram í Kaplakrika að við-
stöddum um 1500 áhorfendum sem
skemmtu sér konunglega.
Leikurinn var æsispennandi frá
fyrstu mínútu til hinnar síðustu og
það var ekki fyrr en á lokamínútun-
um sem „stóri bróðir“, FH, tryggði
sér sigurinn. Fyrstu 20 mínútur
leiksins var jafnt á öllum tölum en
þá náðu FH-ingar í fyrsta sinn
tveggja marka forskoti, 5-7. Haukar
skoruðu þrjú næstu, komust í 8-7,
en Guðjón Árnason átti síðasta orðið
í fyrri hálfleik og staðan í leikhléi 8-8.
Síðari hálfleikur var nánast keim-
líkur þeim fyrri. Liðin skiptust á að
skora og þegar sex mínútur voru til
leiksloka var staðan enn jöfn, 16-16.
Stefán Kristjánsson fór á kostum í
hði FH síðustu mínútumar. Hann
skoraði tvö mörk í röð, breytti stöð-
unni í 16-18, og hann skoraði fjögur
af síðustu fimm mörkum liðsins.
Haukar náðu tvívégis að minnka
muninn í eitt mark en 10 sekúndum
fyrir leikslok tryggði Stefán sigur FH
með marki úr vítakasti og skoraði
um leið sitt 10. mark í leiknum.
„Það var mjög svekkjandi að tapa
þessum leik því við áttum svo sann-
arlega möguleika á að vinna. Þeir
voru heppnir í lokin en jafntefli hefði
verið sanngjörn úrslit. Við eigum
eftir að mæta FH í úrslitakeppninni
og þá ætlum við okkur sigur,“ sagði
Magnús Árnason, markvörður
Hauka, eftir leikinn.
Varnarleikur FH-inga var með
besta móti og þar fóru fremstir í
flokki Gunnar Beinteinsson, Hálfdán
Þórðarson og Pétur Petersen. í sókn-
inni fór Stefán Kristjánsson á kost-
um og skoraði mörg glæsileg mörk,
Guðjón Árnason var mjög ógnandi
og Þorgils Óttar, sem ekkert lék í
fyrri hálfleik, var drjúgur í síðari
hálfleik og skoraði þýðingarmikil
mörk. Guðmundur Hrafnkelsson
varði vel á köflum og alls 16 skot í
leiknum.
Haukar fóru illa að ráði sínu á loka-
mínútunum og manni fannst eins og
þeir hefðu ekki trú á sigri. Magnús
Árnason var besti maður liðsins,
varði 19 skot og mörg þeirra úr opn-
um færum. Vörn liðsins var sterk
fyrir og þeir Petr Bamrauk og Stein-
ar Birgisson sem klettar. í sókninni
léku hornamennirnir Óskar Sigurðs-
son og Sveinberg Gíslason best og
Petr Bamrauk lék ágætlega en var
þó nokkuð trekktur.
• Mörk Hauka: Bamrauk 5/1',
Sveinberg 4, Óskar 3, Sigurjón 3,
Snorri 2/1, Jón Örn 1 og Pétur 1.
• Mörk FH: Stefán 10/4, Guðjón 4,
Óttar 3, Pétur 2, Gunnar 1 og Öskar
Á. 1.
• Leikinn dæmdu þeir Sigurgeir
Sveinsson og Gunnar Viðarsson.
Þeir höfðu ágæt tök á leiknum en
voru oft nokkuð fljótir á sér að flauta.
-GH
IBVfór
á kostum
Grótta glopraði
niður forystunni
- ÍR rétt búiö aö sigra, úrslit 21-21
Grótta og ÍR geröu jafntefli, 21-21,
í fallbaráttuslag á Seltjarnarnesi á
laugardag. Leikurinn var ekki burð-
ugur og baráttan var í algleymingi
en lítið fór fyrir gæðum handboltans.
Leikurinn var allan tímann jafn og
spennandi en ÍR-ingar höfðu frum-
kvæðið lengst af og höfðu yfir í leik-
hléi, 10-12. í seinni hálfleik náðu
Gróttumenn undirtökunum og virt-
ust vera með unninn leik í höndun-
um. Þegar 3 mínútur voru eftir höfðu
þeir tveggja marka forystu, 21-19, en
IR-ingum tókst að jafna og voru
reyndar klaufar að tryggja sér ekki
sigurinn á síðustu sekúndunum en
Frosti Guölaugsson skaut þá í slána
úr dauðafæri. Bæði lið hefðu þurf
sigri að halda í botnbaráttunni ei
heildina var jafnteflið sanngjamt.
Þeir Halldór Ingólfsson og Þorlá
ur Árnason stóðu helst upp úr I
Gróttu en hjá ÍR-ingum voru Jóhai
Ásgeirsson og Róbert Rafnsson ;
kvæðamestir.
Dómarar voru Þorgeir Pálsson
Guðmundur Kolbeinsson og vo
þeir frekar slakir.
Mörk Gróttu: Halldór 8/3, Stef;
6/4, Svafar 3, Páll 3 og Guðmundur 1
Mörk ÍR: Jóhann 5/3, Róbert 5, C
afur 4, Guðmundur 3, Magnús
Frosti 1 og Njörður 1.
vann öruggan sigur á Val á Hlíðarenda, 24-28
Eyjamenn gerðu sér lítið fyrir og unnu
óvæntan en glæsilegan sigur á Valsmönn-
um að Hlíðarenda á laugardaginn, 24-28.
Þar með eygja þeir enn möguleika á sæti
í úrslitakeppninni um íslandsmeistaratit-
ilinn, og ef þeir leika áfram eins og á laug-
ardaginn eiga þeir fullt erindi í þá keppni.
„Þetta voru mjög mikilvæg stig en við
hugsum bara um einn leik í einu. Það kom
okkur til góða að þetta var þriðji leikur
okkar á einni viku á meðan Valsmenn
voru að spila sinn fyrsta leik á árinu og
vantaði leikæfinguna," sagði Sigurður
Gunnarsson, þjálfari og leikmaður ÍBV, í
samtali við DV eftir leikinn.
Leikurinn var hnífjafn þar til Eyjamenn
gerðu fiögur mörk í röð seint í fyrri hálf-
leik. Þeir leiddu 11-14 í hálíleik og juku
síðan forskotið þegar leið á síðari hálfleik.
Þegar sex mínútur voru eftir stóð 18-26
en Valsmönnum tókst að laga stöðuna
aðeins á lokamínútúnum.
Vörn og markvarsla
lykilatriði hjá ÍBV
Öflugur varnarleikur og frábær mark-
varsla Sigmars Þrastar í síðari hálfleik
lögðu grunninn að sigri ÍBV. Sigbjörn
Óskarsson átti stórleik í vörninni og Gylfi
Birgisson gaf honum lítið eftir. Sigmar
Þröstur varði 18 skot, þar af 12 í síðari
hálfleik og alls þrjú vítaköst. í sókninni
var Sigurður Gunnarsson drifljöðrin og
Sigurður Friðriksson sýndi glæsileg tilþrif
í síðari hálfleik. Annars var liðsheildin
hjá ÍBV sterk og liðið ræður yfir ágætri
breidd því alhr 10 útispilararnir komu
talsvert við sögu í leiknum.
Valsmenn náðu sér aldrei á strik og vilja
eflaust gleyma leiknum sem fyrst. Þeir
áttu í mestu erfiðleikum með að komast í
gegnum öíluga Eyjavörnina og aðeins góð
markvarsla Arna Þ. Sigurðssonar á fyrsta
kortérinu kom í veg fyrir að ÍBV styngi
strax af. Einar Þorvarðarson var ekki í
marki Vals þar sem hann var í Noregi á
vegum HSÍ.
Mörk Vals: Valdimar Grímsson 7/3, Júl-
íus Gunnarsson 4, Jakob Sigurðsson 3,
Brynjar Harðarson 3/2, Jón Kristjánsson
2, Ólafur Stefánsson 2, Finnur Jóhannsson
1, Dagur Sigurðsson 1, Ingi Rafn Jónsson 1.
Mörk ÍBV: Gylfi Birgisson 10/5, Sigurður
Friðriksson 7, Sigurður Gunnarsson 6,
Helgi Bragason 2, Sigbjörn Óskarsson 1,
Guðfinnur Kristmannsson 1, Þorsteinn
Viktorsson 1.
Stefán Arnaldsson og Rögnvald Erlings-
son dæmdu leikin ágætlega.
-VS