Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1991, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1991, Side 3
FÍMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991. 31 DV Fréttir Fyrirhugað áætlunarflug Flugfélags Norðurlands til Keflavíkurflugvallar: Ræður ekki við afgreiðslugjöldin - sem eru þrisvar sinnum hærri en í Reykjavík og gætu komið í veg fyrir áætlunarflug FN til Keflavikur Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Há afgreiðslugjöld á Keflavíkur- flugvelli geta hugsanlega komið í veg fyrir að Flugfélag Norðurlands hefji áæflunarflug á milli Akureyrar og Keflavíkur, en samkvæmt áæflun á þetta flug að hefjastum mánaðamót- in mars/apríl. „Það er rétt að afgreiðslugjöldin í Keflavík eru það há að við getum ekki hafi þetta flug samkvæmt þeim,“ segir Siguröur Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Norð- urlands, en hann viidi að öðru leyti ekki mikið tjá sig um málið á þessu stigi. Samkvæmt upplýsingum DV nema afgreiðslugjöldin í Keflavík 368 doll- urum eða um 20 þúsund k'rónum fyr- ir 20 sæta vél eins og FN hyggst nota á flugleiðinni. Til samanburðar má geta þess að afgreiðslugjöld fyrir samskonar vél í Reykjavík hafa verið 2.700 krónur en eru að hækka um þessar mundir í 6 þúsund krónur svo þarna munar verulegu. Flugleiðir hafa einkaleyti á af- greiðslu flugvéla á Keflavíkurflug- velli. Félagið gerði samning við fyrir- tæki hlaðmanna sem þar starfa um afgreiðslu allra flugvéla, og sam- kvæmt heimildum DV er sá samn- ingur mjög óhagstæður þeim aðilum sem fljúga til Keflavíkur á minni flugvélum. „I rauninni má segja að þetta mál sé fast vegna afgreiðslugjaldanna og óvissa með það hvort við getum haf- ið þetta flug, við getum ekki greitt það sem upp er sett. Hinsvegar er rétt að benda á að við erum í viðræð- um við Flugleiðir um þetta mál og meðan svo er, höfum við von um að málið leysist," sagði Sigurður Aðal- steinsson. NISSAN PRIMERA FÆDDUR SIGURVEGARI Sýning laugardag og sunnudag kl. 14-17. ■ BlLL ÁRSINS I DANMÖRKU ■ ■ BlLL ÁRSINS I FINNLANDI ■ ■ BlLL ARSINS I í NOREGI ■ ■ GULLNA STÝRIÐ I ÞÝSKALANDI BlLL ÁRSINS I PORTÚGAL 1. VERÐLAUN I ENGLANDI 1. VERÐLAUN Á ÍTALÍU Ingvar Helgason hf. Sævarhöfði 2, Sími 67 40 00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.