Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1991, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1991, Blaðsíða 7
7 .Ui IJD.wJfUM.'-. FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991. dv Sandkom Bugaðist loksins Sandkornsrit- ariheyrðiaf lækninokkram semgetiðhafði sérgottorðá sjukrahiisum ;i; útiíhinum stóraheimi. har hióhann ásamt konuog börnumog hafðiþaðað sögn allgott Vegna þróunar í heims- málum varð umræddur læknir fyrir þ vi að vinna við heldur óskemmtileg- um kringumstæður þar sem aldrei var vitað hvað næsti dagur eða næsti klukkutimi bæri í skauti sér. Þótti reynsla sú er maðurínn hlotnaðist ógurleg og álagið svo mikið að vel- flestir hefðu hrdnlcga bugast undan álaginu. Til að gera langa sögu stutta þá komst læknirinn þó á endanum til fósturjarðarinnar og hóf að sinna sínum störfum á hérlendu sjúkra- húsi. Við tók dagleg rútína þar sem óvæntar uppákomur eða áföli voru ekki daglegt brauð. En þar kom að lækninum féllust hendur og hann næstum bugaðist. Ekki var þaö vegna sprengjuárása eða sundurlimaðra búka, sveltandi barna eða annarra hörmunga. Ó nei. Það sem áfallinu olli var ekki annað en venjulegt hvítt umslag frá launaskrifstofu ríkisins. Vel kvæntur ; Mögulegur slagurumfor- mannssa.'ti í Sjallstfcðis- : flokknumhef- urveriðmjög tii umfjöllunar síðustudaga. Biðamenn. spenntireftir því hvortDavíð fariiÞorstein og Þorsteinn fari í Davíö svo úr verði hinn myndarlegasti hanaslagur. Ein- hverjir Davíðsmanna eru sagðir hafa gengið út frá þ ví sem vísu að Þor- steinn drægi sig tfl baka áður en á hólmínn værikomið. Færi jafnvel eins og með Friðrik Sóphusson hér um árið. Segja kunnugir að þar hafi ákafir Daviðsmenn tekið heldur bet- ur skakkan pól í hæðina. Hafl þeir ekki tekið með í reikninginn að Þor- steinn er gifturinn í Rafnarættina. Rafnarfólídð mun að sögn vera þekkt tyrir allt annað en að gefast upp og lyppast niður þó gefi á bátinn. Sérsveitir í kráarölt Einsoggefttr aðskitjaþýðir ekkiaðvera mcðnciimhalf- kæringþogar menn eru í þjónustusér- sveitafjár- málaráðherra. t>;erverða m; sendaráým.sa þástaðiþar sem grirnur leikur á að menn fitlí við vaskinn. Meðal staða eru einhver öldurhús og aðrir samkomustaðir gleðinnar. Heyrst hefur að úrvals- deild sérsveitanna setji nú á sig slifsi og klæðist jakka, vopnaðir opinber- mn fjármunum. Er þeim þá uppálagt að kaupa drykki og þjónustu á áður- nefndum stöðum og fylgjast með hvort sjóðsvélar mali í réttum tón. Hefur einnig komið til tals að heim- sækja ýmsa þá karlaldúbba sem feng- ið hafa lítt klæddar stúlkur til að hafaofanaffyrirsér. Starfþetta virðisthafaá sérskemmti- legriogæsi- legrihliðaren mennáttuvon á. Erspáði hvortekkisé , löngröðum- sækjendafyrir utan Arnar- hvol þessadag- ana. Hljóti allir að vera óhnir í að kaupa drykki og þjónustu upp á svo fín bíttt Þá hafa menn velt því míkið fyrir sér hvort ekki megi eiga von á liðhlaupi úr öörum sérsveitum á launaskrá hins opinbera sem oftar en ekki hafa séð blöðum fyrir fyrir- sögnum. Umsjón: Haukur L. HðUksson Fréttir Júlíus Sólnes: Ástand sorphirðu þjóðinni til vansa - vill verja 100 milljónum árlega til úrbóta Sorphirðu- og endurvinnslunefnd umhverfismálaráðuneytisins leggur til að Alþingi komi sér upp sjóði til að aðstoða sveitarfélög við sorp- hirðu, að sveitarfélög fái árlega 100 milljónir úr ríkissjóði til að standa straum af stofnkostnaði vegna sam- eiginlegrar sorphirðu í byggðasam- lögum og að fórgun úrgangs skuli greidd af þeim sem honum valda. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá nefndinni sem Júlíus Sólnes um- hverfisráðherra kynnti á blaða- mannafundi í vikunni. í skýrslunni er einnig lagt til að sérstakt umhverfisgjald verði lagt á vörur sem innihalda hættuleg efni og að settar veröi hertar reglur um merkingar hættulegra efna. JúIíusSólnes segiraðástandsorp- fórgunar hér á landi sé mun lakara en tíðkast í ffágrannalöndunum og sé það þjóöinni til vansa. Hann segir ástandið slæmt og jafnvel mjög slæmt á einum 32 stöðum á landinu en einungis þolanlegt á 10 stöðum. -kaa JúlíusSólnes segiraðástandsorphirðumálaséeinungisþolanlegtálOstöðumálandinu. DV-myndGVA Landleiðin Reykjavlk-Akureyri: Saxast á slæma kaflann í Öxnadal Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii: Vegarkaflinn frá Bægisá í Hörgár- dal aö Norðurárdal í Skagafirði er mörgum þyrnir í augum sem aka landleiðina milh Reykjavíkur og Akureyrar, enda er þetta eini langi kaflinn á leiðinni sem ekki er lagður bundnu slitlagi. Á hverju ári styttist þessi kafli hinsvegar og í sumar verður unnið að tveimur vegarköflum á þessari leið og eiga þeir báðir að vera tilbún- ir undir bundið slitlag í haust. Annarsvegar er um að ræða kafl- ann frá Bægisá að Þverá. Þar vinna starfsmenn Jarðverks sf. aö upp- byggingu 8,8 km langs kafla sem á að vera tilbúinn undir bundið sfitlag 15. september, og Vegagerðin áform- ar að leggja shtlag á þann kafla í haust ef aðstæður leyfa. Þá hafa nú verið opnuð tilboð í næsta kafla sem er frá Þverá, um Hólana í Öxnadal aö bænum Engi- mýri, en þessi kafli er um 3,8 km langur. Afls bárust 15 tilboð í þetta verk, en um er að ræða byggingu brúar yfir Þverá og uppbyggingu vegarins að öðru leyti. Kostnaðar- áætlun hljóðaði upp á 56 milljónir króna, en lægsta tlboðið í verkið átti Sveinn Guðmundsson í Reykjavík sem vill vinna verkið fyrir 38,6 millj- ónir eða 69% af kostnaðaráætlun. Þessu verki á að vera lokið um miðjan október en bundið slitlag verður ekki sett á þennan kafla fyrr en á næsta ári. íslendingar draga ekki úr ferðum til Englands - á sama tíma eru erlendlr feröamenn hræddlr íslendingar hafa sárahtið dregið úr ferðalögum til Englands síðustu vik- urnar þrátt fyrir að fjöldi erlendra feröamanna til heimsborgarinnar London hafi stórlega minnkað af ótta við hryðjuverk í borginni. Margrét Hauksdóttir, upplýsinga- fulltrúi hjá Flugleiðum, segir að fé- lagið hafi ekki hætt að fljúga tif Lon- don frekar en önnur flugfélög. „Önnur flugfélög hafa dregið úr ferðum þangað vegna færri bókana. Hjá okkur er ekki um neina verulega fækkun að ræða og því höfum við ekki séð ástæðu til að dragauir flugi til London." Margrét segir að engin fækkun hafi orðið á fjölda farþega hjá Flug- leiðum í janúar boriö saman við jan- úar í fyrra en hins vegar hafi orðiö vart viö lítiis háttar fækkun í febrúar á öllum hefðbundnum Evrópuleið- um. „Það er fjölgun á Atlantshafsleið- inni hjá okkur í febrúar en á hefð- bundnum Evrópufeiöum hefur að- eins dregið úr fjölda farþega. Okkur virðist að það hafi einna helst dregið úr viðskiptaferðum," segir Margrét. -JGH Það voru sárafáir farþegar á Heathrow-flugvelh i London a manudaginn. Um morguninn hafði sprengja sprungið á Viktoríu-járnbrautarstöðinni og þennan dag var líka tilkynnt um sprengju á Heathrow. Það reyndist vera sprengjugabb. Simamynd Reuter Kvennalistinn: Framboðslistinn íReykjavík Framboðslisti Kvennaiistans i Reykjavík til komandi afþingis- kosninga hefur verið ákveðimi. Efstu sæti fistans skipa: 1. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, 2. Kristín Einarsdóttir, 3. Kristin Ástgeirsdóttir, 4. Guðrún J. Hall- dórsdóttir, 5. Guðný Guðbjörns- dóttir, 6. Þórhildur Þorleifsdóttir, 7. Sigrún Helgadóttir, 8. ína Gis- surardóttir, 9. Hólmfriður Garð- arsdóttir, 10. Sólveig Magnús- dóttir, 11. Drífa Hrönn Kristjáns- dóttir, 12. Anna Jónsdóttir, 13. Þóra Kristín Jónsdóttir, 14. Margrét Ögn Rafnsdóttir, 15. Guðrún Erla Geirsdóttir, 16. Magdalena Schram, 17. Margrét ívarsdóttir og 18. Margrét Pálma- dóttir. -hlh Framboðslistinn í Norðuriandi eystra öm Þórarinssan, DV, ökrum: Gengið hefur verið frá fram- boðslista KvennaUstans á Norð- urlandi vestra til komandi al- þingiskosninga. Efstu sæti listans skipa: 1. Guörún Lára Ásgeirsdóttir, 2. Sigríöur Friðjónsdóttir, 3. Anna Hlín Bjarnadóttir, 4. Kristín Líndal, 5. Steinunn Erla Frið- þjófsdóttir og 6. Inga Jóna Stef- ánsdóttir. Alþýöuflokkurinn: Framboðslistinn áVesturlandi Framboösfisti Alþýðuflokksins í Vesturlandskjördæmi var ákveðinn á fundi kjördæmisráðs um helgina. Efstu sæti listans skipa: 1. Eiður Guðnason, 2. Gísli S. Ein- arsson, 3. Sveinn Þór Elínbergs- son, 4. Guðrún Konní Pálmadótt- ir og 5. Ingibjörg J. Ingólfsdóttir. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.