Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1991, Page 17
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991.
25
DV
íþróttir
gærkvöldi og skoraði sex mörk. Hálfdán Þórðarson kemur engum vörnum við.
DV-mynd Ingi T. Björnsson, Eyjum.
11 bikarkeppninni í handknattleik:
li í Eyjum
29-25, og leikur til úrslita gegn Víkingi
unni en dómarar leiksins voru vissir um
að boltinn hefði farið í stöngina. Þegar
þrettán mínútur voru til leiksloka náðu
FH-ingar tveggja marka forystu, 21-23.
Eyjamenn voru ekki af baki dottnir og
skoruðu sex mörk í röð meðan FH skor-
aði ekki eitt einasta.
Þessi leikkafli réð baggamuninn og sig-
ur Eyjamanna var kominn í örugga
höfn. Að ÍBV er komið í úrslit í bikarn-
um er besti árangur meistaraílokks í
sögu félagsins frá upphafi. Þetta er frá-
bær árangur þegar litið er á þá stað-
reynd að handknattleikur hefur ekki
verið iðkaður af alvöru í Eyjum í nema
15 ár eða frá því að íþróttamiðstöðin var
tekin í notkun 1976. Að auki hafa Eyja-
menn tryggt sér sæti í úrslitakeppninni
um íslandsmeistaratitilinn.
Sigurður Friðriksson var bestur í liði
Ejjamanna í annars jöfnu og góöu liði.
Óskar Ármannsson var yfirburðamaður
í FH-liðinu.
„Það var sterkt fyrir okkur að leika á
heimavelli og áhorfendur eiga þakkir
skildar fyrir frábæran stuðning. Þetta
var týpískur bikarleikur og ekkert gefið
eftir. Við erum í góðu formi um þessar
mundir og það gerði útslagið í þessum
leik. Ég hef fimm sinnum leikið til úr-
slita í bikarkeppni og aldrei tapað, en í
öll þessi skipti lék ég með Víkingum en
núna gegn þeim,“ sagði Sigurður Gunn-
arsson, þjálfari og leikmaður ÍBV, í sam-
tali við DV eftir leikinn í gærkvöldi.
„Við lékum illa undir lokin, liðið spil-
aði ekki sem heild heldur hver fyrir sig.
Markið, sem ég skoraði, var fullkomlega
löglegt, upp úr því náði ÍBV hraðaupp-
hlaupi og skoraði, sem þýddi nánast tvö,
sem hefði hæglega-getað ráðið úrslitum
þegar upp var staðið,“ sagði Þorgils Ött-
ar Mathiesen, þjálfari og leikmaður FH.
• Óli Olsen og Gunnlaugur Hjálmars-
son dæmdu leikinn.
• Mörk ÍBV: Sigurður Friðriksson 7/3,
Gylfi Birgisson 6, Jóhann Pétursson 6,
Sigbjörn Gunnarsson 5, Sigurður Gunn-
arsson 3, Þorsteinn Viktorsson 2.
• Mörk FH: Óskar Ármannsson 8,
Stefán Kristjánsson 6, Þorgils Óttar 4,
Hálfdán Þórðarson 3, Pétur Petersen 2,
Gunnar Beinteinsson 1.
-JKS
ilkur íslandsmeistarar
stúlkna kominn í örugga höfn. Víkingar
unnu HK í gærkvöldi, 3-0. Hrinurnar
fóru. 15-12, 15-3, 15-6. Víkingur sýndi
mikla yfirburði og þurfti ekki aö hafa
mikið fyrir sigrinum.
Einn leikur var í 1. deild karla er HK
sigraði Fram, 3-0. 15-8, 15-9, 15-6.
-JKS/gje
Undanúrslitin 1 bikarkeppninni 1 handknattleik:
Einstefna
- ótrúlega léttur sigur Víkinga á Haukum, 21-32
„Þetta var góður leikur hjá okkur
og það kom mér á óvart hve auðveld-
ur sigurinn var. Ég held að við eigum
mjög góða möguleika í úrslitaleikn-
um en það verður örugglega erfiður
leikur,“ sagði Sovétmaöurinn Alexej
Trufan, leikmaður Víkings, eftir að
Hæðargarðsliðið haíði rassskellt
Hauka, 21-32, í undanúrslitum bikar-
keppninnar í Hafnarfirði í gær-
kvöldi. Yfirburðir Víkinga voru al-
gerir og liðið sýndi í þessum leik að
það er engin tilviljun að það er lang-
efst í 1. deild og í úrslitum bikar-
keppninnar.
Strax í upphafi var ljóst hvert
stefndi. Víkingar náðu strax 3 marka
forystu og þrátt fyrir mikla baráttu
náðu Haukamenn ekki að halda í við
þá. Karl Þráinsson og Trufan léku
sér að vörn Hauka og skoruðu að
vild í fyrri hálfleik á meðan heima-
menn klúðruðu hverri sókinni á fæt-
ur annarri. Munurinn jókst jafnt og
þétt og í hálfleik var staðan 9-17,
Víkingum í vil.
Seinni hálfleikurinn var nánast
formsatriði. Víkingar komust í 11-23
en Haukum tókst að minnka muninn
í 8 mörk. Undir lokin keyrðu Víking-
ar aftur upp hraðann og tryggðu sér
11 marka sigur.
„Við komum öflugir í leikinn og
náðum að keyra yfir þá í byrjun. Mér
líst vel á úrslitaleikinn gegn Eyja-
mönnum og við ætlum þá að hefna
ófaranna frá því á dögu'num, sagði
Víkingurinn Ami Friðleifsson eftir
leikinn.
„Þeir léku mjög vel en við gerðum
of mörg mistök í sókninni og vorum
oft óheppnir. Ég var samt ánægður
með baráttuna hjá okkur,“ sagði
gamla kempdh, Steinar Birgisson,
leikmaður Hauka, óánægður með
tapið gegn sínum gömlu félögum.
Haukaliðið var mjög slakt í þessúm
leik og leikmenn liðsins náðu sér
aldrei á strik gegn geysisterku Vík-
ingsliði. Petr Bamruk var í strangri
gæslu en hornamennirnir ungu, þeir
Sveinberg Gíslason og Óskar Sig-
urðsson voru atkvæðamestir í liðinu.
í mjög sterku Víkingsliði voru þeir
Trufan og Karl Þráihsson bestu
menn en Birgir Sigurðsson og Hrafn
Margeirsson, markvörður voru
einnig mjög öflugir.
• Mörk- Hauka: Óskar Sigurðsson
5, Sveinberg Gíslason 5, Siguijón Sig-
urðsson 3, Steinar Birgisson 2, Petr
Bamruk 2, Sigurður Árnason 2,
Snorri Leifsson 1/1 og Pétur Árnason
1- ■
• Mörk Víkinga: Alexej Trufan 8,
Árni Friðleifsson 6/4, Karl Þráinsson
5, Birgir Sigurðsson 4, Bjarki Sig-
urösson 3, Björgvin Rúnarsson 2,
Dagur Jónasson 2, Hilmar Sigur-
gislason 1 oglngimundurHelgason 1.
• Dómarar voru Gunnar Kjart-
ansson og Árni Sverrisson og kom-
ust þeir vel frá leiknum.
-RR
• Árni Friðleifsson skoraði sex mörk fyrir Vikingsliðiö gegn Haukum i
Hafnarfirði í gærkvöldi. Á myndinni er eitt þeirra í uppsiglingu og vörn
Hauka kemur engum vörnum við. Víkingar mæta ÍBV í úrslitaleik bikar-
keppninnar í Laugardalshöllinni 2. mars næstkomandi.
DV-mynd Brynjar Gauti
England - bikarkeppnin:
Dramatík á Goodison Park
- æsipennandi leik Everton og Liverpool lauk, 44
• Tony Cottee skoraði tvö af mörk-
um Everton gegn Liverpool i gær-
kvöldi.
Everton.og Liverpool hafa marga
hildi háð á knattspyrnusviðinu en
viðureign liðanna í gærkvöldi sló lík-
lega öll met.
Liðin áttust við öðru sinni í 16 liða
úrshtum bikarkeppninnar og skildu
jöfn, 4-4, og þurfa því að mætast í
þriðja skiptið og vann Everton hlut-
kesti og verður leikið á Goodison
Park 27. febrúar.
Eftir venjulegan leiktíma í gær-
kvöldi var staðan 3-3. Peter Beard-
sley kom Liverpool yfir á 32. mínútu
eftir harða sókn. Graeme Sharp jafn-
aði í upphafi síðari hálfleiks meö
skalla en Beardsley kom Liverpool
aftur yfir um miðjan hálfleikinn.
Sharp jafnaði aftur, 2-2, skömmu síð-
ar en áður höfðu hðin sótt á víxl og
spennan var gífurleg.
Cottee jafnaði
á lokamínútunni
Ian Rush skoraði þriðja mark Liv-
erpool en einni mínútu undir lok
venjulegs leiktíma jafnaði Tony
Cottee, 3-3. Peter Barnes kom Liv-
erpool í 3^4 í fyrri hluta framlenging-
ar en Cottee var aftur á ferðinni í
síðari hlutanum og þar við sat.
38 þúsund áhorfendur voru á
Goodison Park í gærkvöldi og hafa
ekki veriö fleiri á heimaleik liðsins í
vetur. Þrátt fyrir að völlurinn hafi
verið þungur og erfiður yfirferðar
kom það ekki að sök því að oft sýndu
liðin bestu hliöar sínar.
Spennan verður örugglega ekki
síðri þegar hðin mætast í þriðja
skiptið eftir viku. Það lið, sem sigrar,
mætir West Ham United á Upton
Park í Lundúnum í átta hða úrslitum
keppninnar.
• í gærkvöldi var einn leikur í 2.
deild þegar Brighton sigraði Leicest-
er á heimavelh, 3-0. Smah, Wilkins
og Wade skoruðu fyrir Brighton.
-JKS
2. deild
Middlesboro-WBA..............3-2
Swindon-Sheff. Wed...........2-1
Sampdoria áfram
Sigurganga Sampdoria í ítölsku
knattspyrnunni heldur áfram en lið-
en hún varð Evrópumeistari í ís-
dansí fyrir mánuði, getur nú tekið
gleði sína á ný.
3. deild Bury-Leyton Orient 1-0 ið er nú í efsta sætí í 1. deild. í fyrra- kvöld lék Sampdoria gegn Torino í Klimova var tekín í lyíjapróf eftir sigurinn á EM og var fyrra sýnið,
Shrewsbury-Huddersfield Southend-Reading 0-0 1-2 bikarkeppninni og sigraði 3-2 eftir vítaspyrnukeppni. Þetta var önnur sem rannsakað var i Búlgaríu, „gruggugt“. Það síðara sem rannsak-
4. deild Aldershot-Darhngton....... 0-2 viðureign liðanna en fyrri leiknum lauk með jafntefli, 1-1. að var í Köln reyndist lúns vegar hreint og því var Klimova sýkn- uð. Einn forráðamanna alþjóða sam- bandsins sagðist ekki skhja hvernig slik mistök gætu átt sér stað. Það kom mjög á óvart á sínum tima er
Scarborough-Cardiff. Walsah-Lincoln Skoska úrvalsdeildin St. Johnstone-Ðundee Utd 12 0-0 0-1 Kl imova getur tekið gleði sína á ný • Sovéskihsthlauparinnáskautum, Marina Klimova frá Sovétríkjunum,
St. Mirren-Dunfermline 2-2 það var gefið út að Klimova hefði fall-
ið á Iyfjaprófinu enda eru hstdansar-
ar á skautum taldir hafa lítil not fyr-
ir slfkan óþverra. Sjálf neitaði
Khmova jafnan lyfjanotkun og bætti
því við á sínum tíma að hún væri
andstæðingur pilluáts og tæki ekki
einu sinni pillur við höfuðverk.
Engin óvænt úrslit
í NBA-deíldinni
• Nokkrir leikir fóru
fram í NBA-deildinni í
körfuknattleik í fyrrinótt
og var óvenju lítið um
óvænt úrslit. Helst var að það kæmi
á óvart að Boston Celtics tapaði á
heimavelh sínum gegn Phoenix
Suns.
Örsht urðu þessi:
Charlotte-Indiana....
NJ Nets-Sacramento...
NYKnicks-Atlanta.....
76ers-Seattle........
Phoenix-Boston.......
Chicago-Washington...
Houston-LA Lakers....
Milwaukee-Miami Heat
Portland-Dallas......
.....102-115
.......97-83
.....102-110
,104-107(írl.)
.....109-105
...118-113
.....110-112
......116-90
.....107-100