Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1991, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991
33
Fréttir
Jökulsárlón
í hættu
Eiiiar R.agurösson, DV, Öræfum;
Landbrot sjávar við ósa Jökulsár á
Breiðamerkursandi hefur verið mjög
í sviðsljósinu síðustu vikur og mán-
uði. Menn óttast og hafa áhyggjur
af að sjórinn leggi jafnvel undir sig
brúarstæðið og breyti Jökulsárlón-
inu fagra og fræga í óbrúanlegan
fjörð líkt og þekkist og gerst hefur á
Grænlandi. Bent hefur verið á að ef
það gerist þá yrði að nota bílfeiju til
að tengja saman hringveginn.
Það er auðvitað von allra að til slíks
komi ekki en sá möguleiki er þó
vissulega fyrir hendi. Til að sýna
hverju má búast við eru hér 30 ára
gamlar myndir, sem Sigurður
Bjamason á Hofsnesi í Öræfum tók
1961, og þær sýna hvernig Öræfmgar
fóru að áður en Jökulsá var brúuð
1967. Við stýrið á bátnum situr hinn
kunni náttúrufræðingur Hálfdán
Björnsson á Kvískeijum en Kví-
skerjamenn sáu um að feija fólk og
tæki yfir ána. Við jeppann stendur
Sigurjón Gunnarsson á Litla-Hofi en
hann var ásamt þeim Gunnari
Bjarnasyni, Hofi, Jóni Gunnarssyni,
Það er stutt úr fjörunni að brúnni. Myndin tekin vestan megin 18. febrúar sl.
DV-mynd Einar
Beðið eftir ferjunni 1961.
DV-mynd Sigurður
Svínafelli, og ljósmyndaranum okk-
ar Sigurði Bjarnasyni, Hofsnesi, á
leið austur yfir ána og var förinni
heitið til Akureyrar, - ungir piltar
þá á leið í sitt fyrsta sumarfrí árið
1961.
Við afhendingu Menningarverðlauna í dag verður boðið upp á hörpuskelfisk i hvitlaukssmjöri, geirnyt í fenn-
elsósu og sæbjúgu með ostrusósu.
Sæbjúga að austur-
lenskum hætti
- viöafhendinguMennmgarverölaunaDV
Sem fyrr leikur matarlistin stórt
hlutverk við afhendingu Menning-
arverðlauna DV. Að venju er leitað
eftir hráefni úr hafinu sem er óal-
gengt á borðum hérlendis en er
engu að síður hreinasta hnossgæti.
Síðustu vikur hafa Matreiöslu-
menn Hótel Holts þreifað sig áfram
með hugmyndir og uppskriftir að
nýstárlegum réttum.
í dag verður boðiö upp á hörpu-
skelfisk með hvítlaukssmjöri í for-
rétt, borinn fram í skelinni. í aðal-
rétt verður fiskur sem heitir geir-
nyt, stundum kallaður rottufiskur,
og er hann borinn fram með fenn-
elsósu, grænmeti og sæbjúgum að
austurlenskum hætti. Með þessu
verður drukkið hvítt Chateau de
Rions en það er framleitt í Borde-
aux í Frakklandi af íslendingnum
Jóni Ármannssyni.
Að sögn Eiríks Inga Friðleifsson-
ar, yfirmatreiðslumeistara Hótel
Holts, eru geirnytin gufusoðin í 2-3
mínútur enda er fiskurinn við-
kvæmur fyrir ofeldun. Ferskt fenn-
el er maukað og jafnað út með
ijóma svo úr verði bragðmikil sósa.
Sæbjúgu eru vel þekkt í Austur-
löndum, aðallega Kína, en þar
þykja þau hin mesti herramanns-
matur og nokkurs konar þjóðar-
réttur sem er þó á fárra færi að
veita sér nema við hátíðleg tæki-
færi. Gestir í Kína vita aö þeir eru
mikils metnir fái þeir sæbjúgu hjá
gestgjafa sínum. Kínverska heitið
yfir sæbjúgu þýðir sjávarginseng
en sæbjúgun eru talin allra meina
bót. Þau auka þrek og heilastarf-
semi og lengja lífið. Matreiðslu-
maðurinn Ríkarður Chan, frá Mal-
asíu, eldar sæbjúgun að hætti aust-
urlenskra. Ríkarður segir íslensku
sæbjúgun nánast eins og þau sem
veiðast í hlýrri sjó. Þau eru ívið
minni en bragðið er það sama.
Þurrkuð sæbjúgu eru snöggsoð-
in, síöan látin bíða í soðinu í 12 tíma
og margfalda þau þá rúmmál sitt.
Rétt fyrir eldun eru þau hreinsuð,
skorin í strimla og síðan léttsteikt
í olíu á pönnu ásamt bambus-
strimlum. Þetta er bragðbætt með
salti, pipar og ostrusósu og borið
strax fram.
Máltíðinni lýkur að venju með
kaffi. konfekti og Novok púrtvíni.
JJ
Jökulsárbrú séð úr fjörúnni austan árinnar.
DV-mynd Einar
Hálfdán á Kviskerjum ferjar ieppa yfir Jökulsárlón 1961. DV-mynd Sigurður
Aukablað
Hljómtæki
DV-hljómtæki, sérstakt aukablað um hljómtæki, er
fyrirhugað miðvikudaginn 27. febrúar nk.
í DV-hljómtælgum er ætlunin að segja frá hljómtæig-
um, sem eru á markaðinum, og skýra út fyrir lesend-
um hin mismunandi gæði hljómtækja.
Bent er á að auglýsingum í þetta upplýsingablað þarf
að skila í síðasta lagi fimmtudaginn 21. febrúar.
ATH.! Póstfaxnúmerið okkar er 27079
og auglýsingasíminn 27022.