Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1991, Síða 3
FÉIMj,ÁR:'‘Í99í. Q r 19
r>v Laugardagur 2. mars
SJÓNVARPIÐ
Fréttum frá Sky verður endurvarpað frá
8.00 til 12.20 og12.50 til 14.30.
8.30 Yflrllt erlendra frétta.
14.30 íþróttaþátturinn. 14.30 Úr einu í
annað. 14.55 Enska knattspyrnan.
Bein útsending frá leik Manchester
United og Everton. 16.45 Hand-
knattleikur. Bein útsending frá úr-
slitaleiknum í bikarkeppni karla í
Laugardalshöll. 17.50 Urslit dags-
ins.
18.00 Alfreð önd (20). Hollenskur
teiknimyndaflokkur. Leikraddir
Magnús Ólafsson. Þýðandi Ingi
Karl Jóhannesson.
18.25 Kalli krít (13). (Charlie Chalk).
Myndaflokkur um trúðinn Kalla.
Þýðandi Ásthildur Sveinsdóttir.
Leikraddir Sigrún Waage.
18.40 Svarta músin (13). Franskur
myndaflokkur fyrir börn. Þýðandi
Ólöf Pétursdóttir.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Poppkorn. Umsjón Björn Jr. Frið-
björnsson.
19.30 Háskaslóðir (20). (Danger Bay).
Kanadískur myndaflokkur fyrir alla
fjölskylduna. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 ’91 á Stöðinni. Æsifréttamenn
Stöðvarinnar brjóta málefni sam-
tíðarinnar til mergjar.
21.00 Fyrirmyndarfaðir (21). Banda-
rískur gamanmyndaflokkur um
Cliff Huxtable og fjölskyldu hans.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
21.25 Fólkið í landinu. Hvað ætlarðu
að verða þegar þú ert orðin stór?
Sigrún Stefánsdóttir ræðir við
Rannveigu Rist, deildarstjóra í ál-
verinu í Straumsvík. Framhald
21.55 Punktur punktur komma strik.
íslensk bíómynd frá 1981, byggð
á samnefndri sögu Péturs Gunn-
arssonar. í myndinni segir frá
bernsku og unglingsárum Andra
Haraldssonar á tímabilinu 1947 til
1963. Leikstjóri Þorsteinn Jóns-
son. Aðalhlutverk Pétur Björn
Jónsson, Hallur Helgason, Krist-
björg Kjeld og Erlingur Gíslason.
Áður á dagskrá 25. desember
1987.
23.20 Rocky II. Bandarísk bíómynd frá
1979. Hnefaleikakappinn Rocky
Balboa þráir að vinna meistaratitil
en læknir hans ráðleggur honum
að hætta keppni. Rocky kann ekki
við sig utan keppnishringsins til
lengdar og ákveóur að hafa ráð
læknisins að engu. Leikstjóri Syl-
vester Stallone. Aðalhlutverk Syl-
vester Stallone, Talia Shire, Carl
Weathers, Burt Young og Burgess
Meredith. Þýðandi Gunnar Þor-
steinsson.
1.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Að
dagskrá lokinni verður fréttum frá
Sky endurvarpað til klukkan 2.30.
srm
9.00 Með Afa. Afi og Pási eru strax
farnir að hugsa til páskanna og
hlakka mikið til þeirra. Afi ætlar að
segja ykkur sögur, syngja og spila
og auðvitað gleymir hann ekki að
sýna ykkur skemmtilegar teikni-
myndir.
10.30 Bibliusögur. Teiknimynd.
10.55 Táningarnir í Hæðagerði. Fjörug
teiknimynd.
11.20 Krakkasport. Það er alltaf eitt-
hvað spennandi að sjá í þessum
þætti sem er tileinkaður börnum
og unglingum. Umsjón: Jón Örn
Guðbjartsson.
11.35 Henderson krakkarnir. Leikinn
ástralskur framhaldsmyndaflokkur
um sjálfstæð systkini.
12.00 Þau hæfustu lifa (The World of
Survival). Athyglisverður dýralífs-
þáttur.
12.25 Selkirk-skólinn (The Class of
Miss MacMichel). Fröken Mac-
Michel er áhugasamur kennari við
skóla fyrir vandræðaunglinga. Hið
sama verður ekki sagt um skóla-
stjórann enda lendir þeim illilega
saman. Aðalhlutverk: Glenda
Jackson, Oliver Reed og Michael
Murphy.
13.55 Örlög i óbyggðum (Outback
Bound). Hér segir frá ungri konu
sem á velgengni að fagna í lista-
verkasölu en gæfa hennar snýst
við þegar viðskiptafélagi hennar
stingur af til Brasilíu með sameig-
inlega peninga þeirra. Aðalhlut-
verk: Donna Mills, Andrew Clarke
og John Meillon.
15.25 Falcon Crest. Bandarískur fram-
haldsþáttur.
16.15 Popp og kók. Hress tónlistarþáttur
um allt það nýjasta í heimi popp-
tónlistar. Umsjón: Bjarni Haukur
Þórsson og Sigurður Hlöðversson.
16.45 Knattspyrnuhátíö Olis '91.
Knattspyrnuveisla í beinni útsend-
ingu þar sem átta af bestu liðum
síðastliðins árs mætast í innan-
hússknattspyrnu og leika eftir nýj-
um breyttum reglum sem gerir leik-
ina skemmtilegri á að horfa. Um-
sjón: íþróttafréttadeild. Stöð 2
1991.
19.19 19:19.
20.00 Séra Dowling.
20.50 Fyndnar fjölskyldumyndír.
21.20 Tvídrangar (Twin Peaks). Missið
engan þátt úr.
22.10 Sjálfsvíg (Permanent Record).
Alan Boyce er hér í hlutverki tán-
ingsstráks sem á framtíðina fyrir
sér. Hann er fyrirmyndarnemandi
og virðist ganga allt í haginn. Þeg-
ar hann tekur sitt eigið líf grípur
um sig ótti á meðal skólafélaga
hans og kennara. Ef strákur eins
og hann telur sig ekki eiga annarra
kosta völ hver er þá óhultur? Aðal-
hlutverk: Alan Boyce, Keanu Ree-
ves og Michelle Meyrink. Leik-
stjóri: Marisa Silver.
23.40 Rauður konungur, hvítur riddari
(Red King, White Knight). Hörku-
spennandi njósnamynd þar sem
segir frá útbrunnum njósnara sem
fenginn er til að afstýra morði á
háttsettum embættismanni. Aðal-
hlutverk: Max von Sydow, Tom
Skerritt, Helen Mirren og Tom
Bell. Leikstjóri: Heoff Murphy.
Framleiðandi: David R. Ginsburg.
Stranglega bönnuð börnum.
1.20 Rikky og Pete. Rikky er söngelsk-
ur jarðfræðingur og bróðir hennar
Pete er tæknifrík sem elskar að
hanna ýmiss konar hluti sem hann
notar síðan til að pirra fólk. Þegar
Pete hefur náð að gera alla illa út
í sig vegna uppátækja sinna fer
hann ásamt systur sinni á flakk og
lenda þau í ýmsum ævintýrum.
3.00 CNN: Bein útsending.
6>
Rás I
FM 92,4/93,5
HELGARUTVARPIÐ
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Jens H.
Nielsen flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 Á laugardagsmorgni. Morgun-
tónlist. Fréttir sagðar kl. 8.00, þá
lesin dagskrá og veðurfregnir
sagðar kl. 8.15. Að þeim loknum
verður haldið áfram að kynna
morgunlögin. Umsjón: Sigrún Sig-
urðardóttir.
9.00 Fréttir.
9.03 Spuni. Listasmiðja barnanna. Um-
sjón: Guðný Ragnarsdóttir. (Einn-
ig útvarpað kl. 19.32 á sunnudags-
kvöldi.)
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Þingmál. Endurtekin frá föstu-
degi.
10.40 Fágæti.
11.00 Vikulok. Umsjón: Einar Karl Har-
aldsson.
12.00 Útvarpsdagbókin og dagskrá
laugardagsins.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.
13.00 Rimsírams. Guðmundar Andra
Thorssonar.
13.30 Sinna. Menningarmál í vikulok.
Umsjón: Þorgeir Ólafsson.
14.30 Átyllan. Staldrað við á kaffihúsi,
að þessu sinni í Reykjavík.
15.00 Tónmenntir. Tvö tónskáld kvik-
myndanna, Wim Mertens og Mic-
hael Nyman. Lárus Ýmir Óskars-
son segir frá. (Einnig útvarpað
annan miðvikudag kl. 21.00.)-
16.00 Fréttir.
16.05 íslenskt mál. Guðrún Kvaran flyt-
ur þáttinn. (Einnig útvarpað næsta
mánudag kl. 19.50.)
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Útvarpsleikhús barnanna,
framhaldsleikritiö. „Góða nótt,
herra Tom" eftir Michelle Magor-
ian Sjötti þáttur af sjö. Útvarpsleik-
gerð: Ittla Frodi.
17.00 Leslampinn. Meðal efnis í þættin-
um er kynning á bókinni „La defa-
ite de la pensée", Hugsun á fall-
anda fæti, eftir A. Finkielkraut.
Umsjón: Friðrik Rafnsson.
17.50 Stélfjaðrir. Billy Vaughn, Ramsey
Lewis og Magnús Kjartansson
leika.
18.35 Dánarfregnir. Auglýsingar.
18.45 Veöurfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Djassþáttur. Umsjón: Jón Múli
Árnason. (Endurtekinn frá þriðju-
dagskvöldi.)
20.10 Meðal annarra oröa. Undan og
ofan og allt um kring um ýmis
ofur venjuleg fyrirbæri. Umsjón:
Jórunn Sigurðardóttir. (Endurtek-
inn frá föstudegi.)
21.00 Saumastofugleði. Umsjón og
dansstjórn: Hermann Ragnar Stef-
ánsson.
22.00 Fréttir. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.20 Lestur Passíusálma. Ingibjörg
Haraldsdóttir les 30. sálm.
22.30 Úr söguskjóðunni. Umsjón:
Arndís Þorvaldsdóttir.
23.00 Laugardagsflétta. Svanhildur
Jakobsdóttir fær gest í létt spjall,
að þessu sinni Reyni Jónasson
harmónikkuleikara.
24.00 Fréttlr.
0.10 Sveiflur.
1.00 Veðurfregnir.
1.10 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
é»
FM 90,1
8.05 ístoppurinn. Umsjón: Óskar Páll
Sveinsson. (Endurtekinn þátturfrá
sunnudegi.)
9.03 Þetta líf. Þetta líf. Vangaveltur
Þorsteins J. Vilhjálmssonar í viku-
lokin.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Helgarútgáfan. Helgarútvarp rás-
ar 2 fyrir þá sem vilja vita og vera
með. Umsjón: Þorgeir Ástvalds-
son.
16.05 Söngur villiandarinnar. Umsjón:
Þórður Árnason.
17.0É»Með grátt í vöngum. Gestur Ein-
ar Jónasson sér um Þáttinn. (Einn-
ig útvarpað í næturútvarpi aðfara-
nótt miðvikudags kl. 01.00.)
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Á tónleikum með „The Electric
Light Orchestra“ og „Wolf" lif-
andi rokk. (Endurtekinn þáttur frá
þriðjudagskvöldi.)
20.30 Safnskífan - „Metal Ballads".
Ýmsar rokkhljómsveitir flytjar
mjúkar málmballöður. - Kvöld-
tónar.
22.07 Gramm á fóninn. Umsjón: Margr-
ét Blöndal. (Einnig útvarpað kl.
02.05 aðfaranótt föstudags.)
0.10 Nóttin er ung. Umsjón: Glódís
Gunnarsdóttir. (Einnig útvarpað
aðfaranótt laugardags kl. 01.00.)
2.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
NÆTURÚTVARPIÐ
2.00 Fréttlr.
2.05 Nýjasta nýtt. Umsjón: Andrea
Jónsdóttir. (Endurtekinn þáttur frá
föstudagskvöldi.)
3.00 Næturtónar.
5.00 Fréttir af veöri, færö og flug-
samgöngum.
5.05 Tengja. Kristján Sigurjónsson
tengir saman lög úr ýmsum áttum.
(Frá Akureyri) (Endurtekið úrval
frá sunnudegi á rás 2.)
6.00 Fréttir af veðri, færð og flug-
samgöngum. (Veðurfregnir kl.
6.45.) - Kristján Sigurjónsson
heldur áfram að tengja.
8.00 Hafþór Freyr Sigmundsson. Laug-
ardagsmorgunn að hætti hússins.
Afmæliskveðjur og óskalögin í
síma 611111. Tipparar vikunnar
spá leiki dagsins.
12.00 Fréttir.
12.10 Brot af því besta.Eiríkur Jórísson
og Jón Ársæll kynna það besta
úr slnum þáttum.
13.00 Þráinn Brjánsson með laugardag-
inn í hendi sér.
15.30 íþróttaþáttur. Valtýr Björn leiðir
hlustendur í sannleikann um allt
sem erað gerast í íþróttaheiminum.
18.00 Haraldur Gislason.
22.00 Kristófer Helgason alveg á fullu á
næturvaktinni. Óskalögin og
kveðjurnar beint í æð og síminn
opinn, 611111.
3.00 Heimir Jónasson fylgir hlustend-
um inn í nóttina.
9.00 Arnar Albertsson spilar tónlist sem
skiptir máli, segir það sem skiptir
máli og fer ekki í grafgötur með
hlutina.
13.00Björn Sigurðsson. Það er laugar-
dagur og nú er fylgst með enska
boltanum.
16.00 íslenski listinn. Bjarni Haukur leið-
ir hlustendur í allan sannleikann
um vinsælustu lögin.
18.00 Popp og kók.,
18.30 Ólöf Marín Úlfarsdóttir er fjall-
hress.
22.00 Jóhannes B. Skúlason og öll bestu
lögin.
3.00 Næturpopp til morguns.
FM#957
09.00Jóhann Jóhannsson er fyrstur fram
úr í dag. Hann leikur Ijúfa tónlist
af ýmsum toga.
10.00 Ellismellur dagsins. Nú er rykið
dustað af gömlu lagi og því brugð-
ið á fóninn, hlustendum til ánasgju
og yndisauka.
11.00 Litið yfir daginn. Hvað býður borg-
in upp á?
13.00 Hvað ert’að gera? Valgeir Vil-
hjálmsson og Halldór Backman.
Umsjónarmenn þáttarins fylgjast
með íþróttaviðburðum helgarinn-
ar, spjalla við leikmenn og þjálfara
og koma að sjálfsögðu öllum úr-
slitum til skila. Ryksugurokk af
bestu gerð sér um að stemningin
sé á réttu stigi.
14.00 Hvað ert’aö gera í Þýskalandi?
Slegið á þráðinn til íslendings í
Þýskalandi.
15.00 Hvað ert’að gera í Svíþjóö? Frétta-
ritari FM í sænsku paradísinni læt-
ur í sér heyra.
15.30 Hvemig er staöan? Litið inn í
íþróttahallir og á velli landsins.
Gengi ensku knattspyrnuliðanna
kannað.
16.00 Hvemig viðrar á Hawaii? Talsmað-
ur sólbrúnna eyjaskeggja slær á
þráðinn og rabbar um lífið og til-
veruna við Valgeir og Halldór.
16.30 Þá er aö heyra í íslendingi sem
býr á Kanaríeyjum. Hvernig skyldi
það vera að lifa og starfa þar?
17.00 Auöun Ólafsson kemur þér í sturtu.
Auðun hitar upp fyrir kvöldið.
Sumarið nálgast og nú er um að
gera að skemmta sér vel.
19.00 RagnarMárVIIhjálmssonerkomin
(teinóttu sparibrækurnar því laug-
ardagskvöldið er hafið og nú skal
tónlistin vera í lagi. Óskalagalínan
er opin eins og alltaf. Sími
670-957.
22.00 Páll Sævar Guðjónsson er sá sem
sér um að koma þinni kveðju til
skila. Láttu í þér heyra. Ef þú ert í
samkvæmi skaltu fylgjast vel með
því kannski ertu í aðalsamkvæmi
kvöldsins.
23.00 Úrsiit samkvæmisleiks FM verða
kunngjörö. Hækkaðu.
3.00 Lúövík Asgeirsson er rótt nývakn-
aður og heldur áfram þar sem frá
var horfið.
FmI909
AÐALSTÖÐIN
9.00 Loksins laugardagur. Umsjón Jó-
hannes Kristjánsson.
12.00 Hádegistónlistin á laugardegi.
Umsjón Randver Jensson.
13.00 Gullöldin. Umsjón Ásgeir Tómas-
son/Jón Þór Hannesson. Rykið
dustað af gimsteinum gullaldarár-
anna.
15.00 Á hjólum. Bílaþáttur Aðalstöðvar-
innar. Allt um bíla, nýja bíla, gamla
bíla, viðgerðir og viðhald bíla.
17.00 Inger Anna Aikman sér um þátt-
inn.
22.00 Viltu meö mér vaka? Umsjón
Halldór Backman. Hlustendurgeta
beðið um óskalögin í síma
62-60-60 - og við reynum bara
aftur ef það er á tali.
0.00 Nóttin er ung. Umsjón Pétur Val-
geirsson. Næturtónar Aðalstöðvar-
innar.
FM 104,8
12.00 Þáttur um sifjaspell endurtekinn.
14.00 Fjölbraut í Breiðholti. Laugar-
dagsfiðringur.
16.00 Menntaskólinn í Reykjavík.
18.00 Partý-Zone Dúndrandi danstón-
list í umsjón Helga og Kristjáns.
22.00 Fjölbraut í Ármúla. Stuðtónlist
fyrir þá sem eru að fara út á lífið.
1.00 Næturvakt Útrásar í umsjá MR.
Þú hjálpar til viö lagavalið í
gegnum síma 686365.
ALFA
FM-102,9
10.30 Blönduð tónlist.
12.00 ístónn. Leikinn er
kristileg íslensk tónlist. Gestur
þáttarins velur tvö lög.
13.00 Kristinn Eysteinsson.
15.00 Eva Sigþórsdóttir.
17.00 Með hnetum og rúsínum. Um-
sjón Hákon Möller.
19.00 Gleðistund. Umsjón Jón Tryggvi.
20.00 Eftirfylgd. Sigfús Ingvason og
Jóhannes Valgeirsson.
22.00 Ljósgeislínn. Síminn opinn fyrir
óskalög og kveðjur, sími 675320.
★ ★ ★
EUROSPORT
★ ★
*★*
6.00 Barnaefni.
7.00 Grínlöjan.
9.00 Mobil 1 Motor Sport News.
10.00 lce Speedwau.
11.00 Saturday Alive. Skíði, bobbsleða-
keppni, golf, hjólreiðar, siglingar.
18.00 International Motor Sport.
19.00 Skíði.
20.00 Hnefaleikar.
22.00 Heimsbikarmótið á skíðum.
23.00 Heimsbikarmótið á bobbsleð-
um.
23.30 Hjólreiðar.
0.30 Golf.
6.00 Elephant Boy.
6.30 The Flying Kiwi.
7.00 Fun Factory.
11.00 The Bionic Woman.
12.00 Beyond 2000. Nýjasta tækni og
vísindi.
13.00 Combat. Framhaldsmyndaflokk-
ur.
14.00 Fjölbragðaglíma.
15.00 Cool Cube.
17.00 Chopper Squad.
18.00 Parker Lewis Can’t Lose.
18.30 The Addams Family.
19.00 Free Spirit.
19.30 In Líving Color.
20.00 China Beach.
21.00 Designing Women.
21.30 Murphy Brown.
22.00 The Happening.
23.00 Monsters.
0.00 Twist in the Tale.
0.30 Pages from Skytext.
SCREE /VSPOfíT
7.30 Hippodrome.
8.00 Snóker.
10.00 Tennis. Innanhúsmót Volvo.
12.00 Trukkakeppni.
13.00 NBA Körfubolti..
15.00 Knattspyrna í Argentínu.
16.00 Kraftaíþróttir.
17.00 Pool-Billiard.
18.00 íþróttafréttir.
18.00 Auction Auto.
18.35 Íshokkí. Bein útsending.
21.35 Weekend Live US PGA. Bein
útsending og geta aðrir liðir því
breyst.
23.30 Siglingar.
0.30 Pro Box.
2.30 Auction Auto.
5.00 Íshokkí.
Myndin greinir frá uppvaxtarárum Andra á eftirstridsárun-
um í Reykjavík.
Sjónvaxpið kl. 21.55:
I kvöld verður sýnd ís-
lenska kvikmyndin Punkt-
ur punktur komma strik
sem gerð er eftir samnefndri
sögu Péturs Gunnarssonar
rithöfundar. Bókin aflaöi
höfundi sínum þegar lands-
frægðar og fann hljóm-
grunn hjá öllum aldurs-
hópum, sérstaklega þó þeim
er uxu úr grasi á svipuðum
tíma og Andri, aðalsögu-
hetja bókarinnar.
Árið 1981 gerðu aðstand-
endur kvikmyndafélagsins
Óðins, þeir Þorsteinn Jóns-
son og Örnólfur Árnason
kvikmynd eftir bókinni og
skrifaði Þorsteinn handri-
tið.
Sagan segir frá Andra,
dreng sem elst upp í hinni
ört vaxandi Reykjavík eftir-
stríðsáranna. Saga hans er
í raun þriskipt; Fyrsti hlut-
inn rekur aðdragandann að
fæðingu hans og fjölskyldu-
sögu á þeim tima; annar
hlutinn heíst þar sem Andri
er tíu ára gamall; og þriðji
hlutinn er helgaður ungl-
ingsárunum.
Skólr lífsins leiöir Andra
jafnt og þétt gegnum ýmsar
staðreyndir tilverunnar,
skilnað, hersetu, bítlaæði,
stelpur og dauðann sjálfan.
Inn í hina persónulegu upp-
vaxtarsögu fléttast síðan
ýmsir lands- og heimsvið-
burðir áranna 1947-1960, er
áhrif höföu á líf og tilveru
reykvísks æskulýðs á þess-
um tíma.
Með aðalhlutverk í mynd-
inni fara Pétur B. Jónsson,
Hallur Helgason, Kristbjörg
Kjeld og Erlingur Gislason.
Leiksfjóri var Þorsteinn
Jónsson en tónhst er eftir
Valgeir Guðjónsson.
Sjónvarpið kl. 23.20:
Rocky II
Seinni mynd sjónvarpsins
að þessu sinni er önnur
myndin sem Silvester Stall-
one gerði um hnefalei-
kakappann Rocky Balboa.
En fyrsta myndin leit dags-
ins ljós fyrir réttum 15 árum
síðan.
í mynd númer tvö sem við
fáum nú að sjá og gerð var
árið 1979, er Stallone sjálfur
leikstjóri og handritshöf-
undur. Er hér er komið sögu
hefur hetja hringsins borið
lægri hlut fyrir höfuðand-
stæðingi sínum, þungavigt-
armeistaranum Ápollo Cre-
ed, eftir tvísýna og hat-
ramma baráttu. Rocky ligg-
ur á sjúkrahúsi og læknar
meina honum frekari af-
skipti af hnefaleikum, sök-
um alvarlegra meiðsla á
auga.
Rocky freistar þess að
hefja eðlilegt líf við hliö
Rocky hefur verið bannað
að halda áfram að stunda
hnefaleika vegna alvar-
legra meiðsla á auga.
konu sinnar, en honum
gengur illa að fóta sig í
hversdagslegri tilveru þar
sem ekki er lengur rúm fyr-
ir hnefaleika.
Stöð 2 kl. 23.40:
Flest morð eru eingöngu
glæpir en önnur eru Itluti
mannkynssögunnar. Það
kemur vel fram í myndinni
Rauðm* konungur, hvítur
riddari, sem sýnd verður í
kvöld. Sovéski KGB-njósn-
arinn, Tulvey er af gamla
skólanum. Honum finnst
sér ógnað af perestrojkunni
og er ákveðinn í að halda
stöðu sinm innan kerfisins
hvaö sem þaö kostar.
Tulvey fær Clancy, leigu-
moröingja úr IRA, til að-
stoðar við sig. Clancy á aö
niyröa valdamesta rnann
Sovétrikjanna. Bandaríska
leyniþjónustan kemst á
snoðir um þetta og reynir
að afstýra þessu ódæðis-
verki með aðstoö hins út-
brunna njósnara, Stone.
Stone er töluvert gefinn fyr-
ir sopaim og þegar gömul
kærasta birtist allt í einu er
ekki viö góðu að búast.
Clancy virðast liggja allar
leiðir opnar til að koma ætl-
unarverki sínu í fram-
kvæmd.
Leikstjórí myndarinnar er
Geoff Murphy en hún var
að mestu kvikmynduð í
Ungverjalandi árið 1989.
]