Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1991, Page 4
4
FIJVIMTUDAGIJR, 7. MARS 1991.
Fréttir
Verkamannasamband fslands:
Nýrra leiða leitað
til kjarajöfnunar
- í kjarasamningum sem gerðir verða seinna á þessu ári
„Það er deginum ljósara að þær
leiöir sem reyndar hafa verið í kjara-
samningum liðinna ára, til kjarajöfn-
unar í þjóðfélaginu, hafa mistekist.
Þess vegna teljum við þær ekki koma
til greina nú. Leita verður nýrra leiða
í þeim kjarasamningum sem fram-
undan eru síðari hluta ársins,“ sagði
Karl Steinar Guðnason, varaformað-
ur Verkamannasambandsins, í sam-
tali við DV.
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður sambandsins, tók mjög í sama
streng. Hann sagði nauðsynlegt aö
bæta kjör þess fólks sem minnstan
hlut heföi haft úr þjóöarsáttarsamn-
ingunum.
„Það eru þegar komnar fram
nokkrar athyglisverðar hugmyndir
og tillögur hjá okkur í Verkamanna-
sambandinu til kjarajöfnunar í þjóö-
félaginu. Og fleiri eiga eftir að bætast
við. Síðan þarf aö vinna sem best úr
hugmyndabankanum," sagði Guð-
mundur J.
Karl Steinar var spurður hvaða
hugmyndir eða leiðir hann væri með
til að ná þessu marki. Hann sagði ef
til vill of snemmt að fara að ræða þær
nú þegar. Þó benti hann á að ná
mætti fram kjarabótum til hinna
lægst launuðu með félagfjjegum að-
gerðum. Hvað ætti að taka þar inn
vildi hann ekki nefna á þessu stigi,
enda engar hugmyndir þar um orðn-
ar fastmótaðar.
Það er Ijóst af samtölum við for-
mennina að þeir vilja báðir að Verka-
mannasambandið hafi sem frjálsast-
ar hendur í komandi kjarasamning-
um til áð leiörétta hlut hinna lægst
launuöu. Þeir telja því rétt fyrir
Verkamannasambandið að vera sem
laustengdast stóru samfloti í kjara-
samningunum.
-S.dór
Loðnugrútur í Bolungarvík:
Æðarf ugl drepst í stórum stíl
- fólk stendur í fuglaþvotti á heimilum sínum
Hlynur Þór Magnússan, DV, Vestfjöröum;
„Já, ég er með tvær kollur heima
hjá mér núna,“ sagði Magnús Ólafs
Hansson í Bolungarvík í samtali við
DV í gær en hann og fleiri, svo sem
Gunnar Leósson í Skálavík og séra
Sigurður Ægisson, hafa staðið í því
að þrífa æðarfugl sem hefur lent í
loðnugrút þar í höfninni. Til að þrifa
fuglana er notað vatn með náttúr-
legri sápu.
Grúturinn mun koma úr loðnu-
skipum sem menn hafa verið að
spúla þar í höfninni.
Töluvert af æðarfugli hefur drepist
í Bolungarvík síðustu daga af þess-
um ástæðum og tala sumir jafnvel
um stórkostlegan fugladauða. Fuglar
hafa veriö ráfandi ráðvilltir og illa
haldnir á götum uppi í bænum.
„Ég tók einn blika hérna framan
við búðina í gær en hann er dauður
í dag,“ sagði Magnús.
Loðnuskipið fræga, Júpiter, við loðnulöndum í Bolungarvík fyrir nokkru en þá var vikin fín og fal
Alþýðu-
samband
íslands
75ára
Þann 12. mars næstkomandi
verða 75 ár liðin frá stofrum AI-
þýðusambands íslands. i tilefní
þess verður opiö hús hjá ASÍ
sunnudaginn 10. mars.
í húsakynnum Alþýðusam-
bandsins verður komið fyrir
margs konar fróðleik um sögu og
starfsemi verkalýöshreyfingar-
innar í landinu. Þetta verður í
formi bæklinga og skýringar-
mynda. Þá veröur gestum afhent
afinaalisblað Vinnunnar.
Hjá Menningar- og fræðslusam-
bandi alþýðu gefst fólki kostur á
aö skoða gömul gögn sem tengj-
ast sögu verkalýöshreyfingarinn-
ar og stofnun ASÍ.
í Listasafni ASÍ stendur yfir
farandsýning á grafískum verk-
um eftir íslenska listamenn.
Veröur sýningin síöan send út á
land undir kjörorðunum List um
landið.
Mörg verkalýðsfélög innan ASÍ
munu hafa opið hús um þessa
sömu helgi í tilefni af afmælinu.
-S.dór
Deilur um blóðsýnarannsóknir frá hemum:
Rannsóknastofa
Háskólans neitar
að taka við þeim
- hef aldrei venð beðin um það, segir Margrét Guðnadóttir prófessor
„Ég neitaði að taka við sýnum frá
hemum á þvi herrans ári 1975 og
síðan þá hef ég hvorki heyrt í her-
num né verið beðin um að vinna
fyrir hann. Ég lít því á þetta seni
algert mgl,“ segir Margrét Guðna-
dóttir, prófessor í sýklafræöi og
forstöðumaður rannsóknastofu
Háskólans í veirufræði, en Ólafur
Ólafsson landlæknir hefur kvartað
við heilbrigðisráðherra vegna þess
að Margrét hefur neitað að taka við
og rannsaka sýni sem koma frá
bandaríska hemum á Keflavíkur-
flugvelh.
„Ég hef ekki fengið neina form-
lega beiðni um að vinna fyrir her-
inn og skil því ekki af hverju ég
ætti að gera það. Þegar ég var beð-
in um að gera rannsóknir fyrir
herinn 1975 gaf ég þau svör að viö
gætum litla þjónustu veitt og best
væri ef herinn sendi sín sýni út.
En svo koma allt í einu tvö sýni
svífandi hingað í vetur og-ég sendi
þau til baka þar sem herinn hefur
ekki beðið um neina þjónustu hér
hjá okkur. Það hefur enginn beðið
mig um aö rannsaka slík sýni,“
segir Margrét.
Pólitískar skoðanir Margrétar
hafa verið taldar orsakir þess að
hún neitar að rannsaka sýni frá
hernum.
„Ef ég væri með ofsóknarbrjál-
æði teldi ég þetta pólitískar ofsókn-
ir en ég lít á þetta fyrst og fremst
sem rugl. Þaö getur veriö að ein-
hvern vanti vinnu og reyni að
koma mér frá starfi með þessum
hætti," segir Margrét.
Ólafur Ólafsson landlæknir hefur
vísað þessu máh til Guðmundar
Bjamasonar heilbrigðisráðherra
en hann hefur vísaö því áfram til
stjórnar ríkisspítalanna til um-
sagnar.
„Ég hef neyðst til þess að vísa
þessu til ráðherra og sé því ekki
ástæðu til að segja neitt frekar um
þetta mál,“ segir Ólafur.
-ns
Uppsagnir leikara:
„Meirihluti
leikara styður
„Mikill meirilúuti leikara styð-
ur þessar aðgeröir þjóðleikhús-
stjórans vegna þess að langflestir
leikarar vilja, og hafa lagt á það
áherslu í mörg ár, að fóstu samn-
ingarnir í leikhúsunum séu
hreyíanlegir og færanlegir," seg-
ir ósamningsbundinn leikari sem
DV ræddi við vegna uppsagna
leikara h)á Þjóðleikhúsinu.
Leikarar leggja margir hverjir
áherslu á að leikhússtjóri hverju
sinni komi aö tómu húsi og hann
geti því ráðið það fólk sem hann
vill og mótað þannig þá lista-
stefnu sem hann vill hafa í hús-
inu.
„Leikari á ekki að vera æviráð-
inn og á ekki að hafa slíkt ör-
yggi. Atvinnurekandi leikarans
er ekki leikhúsið sjálfl heldur lík-
ami hans. En leikhúsið er vinnu-
staðurinn þar sem hann fram-
kvæmir list sina. Og ef leikari
hefur ekki stundað sinn líkama
nógu vel er hann ekki hæfur eða
í ástandi til að vera á þessum
vinnustað. Leikari á ekki að
hugsa nema um eina sýningu í
einu og hann á að reyna að standa
sig það vel aö hann fái vinnu viö
næstu sýningu. Það á ekki að
reka leikhús eins og fiskimjöls-
verksmiöju eða bílaverkstæði.
Þannig aö langstærsti hluti leik-
ara styður þessar aögerðir,1 ‘ segir
sami leikari.
Uppsagnirnar eru afar við-
kvæmt mál meðal leikara og mik-
iö er talaö um þær. Sumir leikar-
ar telja að Félag íslenskra leikara
eigi ekki að taka afstöðu í málinu
því þetta sé alfarið mál þjóðleik-
hússtjóra.
Stjórn og trúnaðannannaráð
félagsins hefur hins vegar sent
frá sér yfirlýsingu þar sem segir
að harmað sé að komið hafi til
uppsagna listamanna í fullu
starfi sem eigi aö baki margra ára
starf við Þjóðleikhúsið og reynsla
þeirra hljóti að vera leikhúsinu
mikils virði í listrænum efnum.
Þá segir í yfirlýsingunni að lýst
sé vonbrigöum með að ekki hafi
verið ráðið í lausar stöður leikara
sem voru fyrir hendi í Þjóöleik-
húsinu áður en til uppsagnanna
kom. „Á sama hátt og atvinnu-
leikhúsi er nauðsyn á hreyfan-
leika og endurnýjun er nauðsyn-
legt aö tryggja ákveöinn stöðug-
leika í leikarahópnum og at-
vinnuöryggi eins margra félags-
manna og mögulegt er hverju
sinni." -ns
Alþingi:
Málalisti rikis-
stjórnarinnar
Þegar ráðherrar þóttust hafa
skorið niður málalista sína sem
frekast þeir gátu voru eftir 54 mál
sem þeir töldu nauðsynlegt að
afgreiöa á þessu þingi. Nú er hins
vegar alveg ljóst að þessi mála-
listi mun styttast um helmingeða
meira.
„Ég tel tómt mál um að tala að
ætla að koma nema svo sem eins
og 25 málum í gegnum þingið ef
þinglok eiga að veröa 15. mars.
Þaö eru 5 vinnudagar eftir miðað
við þá dagsetningu. Þaö er ekki
lítið verk að ætla aö afgreiða 5
frumvörp á dag,“ sagöi Guð-
mundur Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra í samtali við DV i gær.
Karvel Pálmason alþingismað-
ur sagði að því miður væri það
vanalega svo að allra síöustu
daga þingsins færi allt á hvolf og
frumvörpunum væri rutt í gegn-
um þingiö. Lítill tími gæfist því
til að ræða málin til hlítar.
Ástandið nú væri því ekki nýtt,
þótt það væri ef til vill með versta
móti.
-S.dór