Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1991, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1991, Page 4
28 MANUDAGUR 25. MARS 1991 MANUDAGUR 25. MARS 1991. 29 Iþróttir Iþróttir Úrslitakeppni úrvalsdeildar í körfuknattleik: Robinson var allt í öllu - þegar Njarðvík vann Grindavík öðru sinni Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum; „Það var mjög gott að geta kláraö þetta dæmi hér í Grindavík og viss léttir að sleppa við þriðja leikinn. Þetta var mjög sanngjarn sigur hjá okkur og Njarðvíkurliðið er í góöri æfingu um þessar mundir. Við erum á siglingu þessa dagana og í topp- formi á réttum tíma,“ sagði Friðrik Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkinga, eftir sigur sinna manna í öðrum leik liðanna í úrslitakeppni úrvalsdeild- ar. Njarðvíkingar sigruðu 82-93 í skemmtilegum og vel leiknum leik. Staðan í leikhléi var 37-45, Njarðvík í vil. Leikurinn var mjög jafn og spenn- andi í fyrri hálfleik og þegar sex mín- útur voru til leikhlés var staðan 26-28, Njarðvík í vil. Gestirnir juku forskotið fram að leikhléi og höfðu ellefu stiga forskot þegar nokkrar sekúndur voru eftir af fyrri hálfleik. Dan Krebbs: „Sársvekktur og leiður“ Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: „Ég er sársvekktur og leiður yfir þvi að hafa tapað þessum leik og það var dapurlegt að komast ekki í úrshtaleikina," sagði Dan Krebbs, Bandaríkjamaðurinn í liði Grindvíkinga, í samtali við DV eftir leikínn gegn Njarövík en hann var besti leikmaður Grind- víkinga í leiknum.. „Þrátt fyrir úrslitin í þessum leik er þetta samt búið að vera gott tímabil hjá Grindavíkurlið- inu. Það tekur tíma fyrir unga leikmenn liösins að öðlast þá reynslu sem er nauðsynleg í svona úrslitakeppni og ég er þess fullviss að í framtíðinni á lið Grindavíkur eftir að verða mun betra. Það býr mikið í þessu liði,“ sagði Krebbs. Hann heldur í dag til Ástralíu þar sem hann mun halda áfram að leika körfuknatt- leik. En kemur hann aftur til Grindvíkinga fyrir næsta keppn- istímabil? „Ég hef áhuga á að leika áfram með Grindavík og mér hefur liðiö mjög vel hér. Ég á í viðraéðum við forráðamenn liðsins og við verö- um að bíða og sjá hvað gerist." Hjálmar Hallgrímsson skoraði þá þriggja stiga körfu frá miðjum vellin- um og staðan í leikhléi því 37^5. Njarðvíkingar héldu forskoti sínu lengst af síðari hálfleiks en um miðj- an hálfleikinn var staðan orðin 62-66. Þá héldu margir að í hönd færu spennandi lokamínútur en Grindvík- inga skorti einfaldlega þrek til að standa í Njarðvíkingum til loka leiks- . ins. Léku Njarðvíkingar af öryggi á lokamínútunum og sigur þeirra var aldrei í hættu þrátt fyrir að lykil- menn liðsins hafi verið komnir með margar villur. Rondey Robinson var besti leik- maður vallarins, var allt í öllu í leik Njarðvíkinga, og átti hann stóran þátt í þessum sæta sigri Njarðvík- inga. Sætur var hann vissulega vegna þess að það voru einmitt Grindvíkingar sem gerðu bikar- araum Njarðvíkinga að engu í Grindavík á dögunum. Teitur Örl- ygsson lék einnig vel í liði Njarðvík- inga en annars var það sterk liðs- heild sem átti stærstan þátt í sigrin- um. í liði Grindvíkinga var Dan Krebbs bestur en þeir Guðmundur Braga- son, Sveinbjörn Sigurðsson og Hjálmar Hallgrímsson átti einnig góðan leik. • Stig Grindavíkur: Dan Krebbs 29, Guðmundur Bragason 19, Svein- björn Sigurðsson 10, Jóhannes Krist- björnsson 10, Hjálmar Hallgrímsson 8, og Rúnar Árnason 6. • Stig Njarðvíkur: Rondey Robin- son 37, Teitur Örlygsson 15, Friðrik Ragnarsson 11, ísak Tómasson 11, Kristinn Einarsson 10, Hreiðar Hreiðarsson 4, Gunnar Örlygsson 3, og Ástþór Ingason 2. • Leikinn dæmdu þeir Jón Otti Ólafsson og Kristinn Óskarsson og komust þeir mjög vel frá leiknum. Rondey Robinson: „Gaman að fara í úrslit“ Ægir Már Káxason, DV, Suöumesjum; „Ég hef áður sagt að það sé mjög erfitt að leika hér á heima- velli Grindvíkinga og það varð engin breyting þar á núna. Þetta var mjög erfiður leikur þrátt fyr- ir að við hefðum nokkuð gott tak á þeim allan leikinn,“ sagði Rond- ey Robinson, Bandaríkjamaður- inn í liði Njarðvikinga, í samtali viðDV. Robinson fór á kostum i leikn- um, skoraði 37 stig, og tróð nokkrum sinnum knettinum í körfuna með miklum tilþrífum. Robinson er greinilega einn snjallasti körfuknattleiksmaður- inn sem hér hefur leikið og verö- ur gaman að fylgjast meö honum í úrslitaleikjunum. „Það var gott að sigra í þessum leik og mér finnst meiri háttar gaman að vera kominn alla leið í úrslitaleikina. Ég á von á þvi að við mætum KR-ingum í úrslit- unum og það verða hroðalega erfiðir leikir enda eru KR-ingar hrikalega sterkir um þessar mundir,“ sagði Robinson eftir leikinn á laugardag. Gunnar Þorvarðarson: „Njarðvíkingar voru mun betri“ Ægir Máx Káiason, DV, Suðumesjum; „Það er svo sem lítið um þessi úrslit að segja. Njarðvíkingarnir voru einfaldlega mun betri en mínir menn og því fóru þeir með sigur af hólmi að þessu sinni,“ sagði Gunnar Þorvarðarson, þjálfari Grindvíkinga, eftir leik- inn gegn Njarðvík. Gunnar lék sem kunnugt er með Njarðvík- ingum í mörg ár. „Þegar við vorum komnir með leikinn niður 1 fjögur stig geröu strákarnir mjög mikið af mistök- um og þeir átti einfaldlega ekki meira eftir enda fóru miklir kraftar hjá strákunum í að vinna upp forskot Njarðvíkinga. Ég er hins vegar nokkuö ánægður með mitt lið í þessum leik þvi strák- arnir gáfu sig alla í þetta. Ég er mjög ánægður meö keppnistíma- bilið í vetur og leik liösins. Þrátt fyrir að ekki ynnist titill í vetur er bjart framundan hjá Grindvík- ingum í körfuknattleiknum og menn þurfa engu að kvíöa,“ sagði Gunnar Þorvarðarson, þjálfari þeirra Grindvíkinga, aö lokum. Bow fór á kostum - er KR-ingar unnu Keflvíkinga, 71-84, í Keflavík Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: KR-ingar unnu mjög öruggan og sannfærandi sigur á Keflvík- ingum í Keflavík á fóstudags- kvöldið. Lokatölur urðu 71-84 eft- ir að staðan í leikhléi hafði verið 30-43, KR í vil. Bandaríkjamaðurinn Jonathan Bow fór á kostum í liði KR og skoraði 2 stig. Átti hann stærstan þátt í sigrinum. Hjá Keflavík var Tyron Thornton stigahæstur en hann hefði getað leikið betur í vörninni. • Stig ÍBK: Tyron Thornton 31, Sigurður Ingimundarson 14, Fal- ur Harðarson 11, Guðjón Skúla- son 7/Jón Kr. Gíslason 4, Hjörtur Harðarson 2, og Albert Óskars- son 2. • Jonathan Bow 32, Axel Niku- lásson 21, Guöni Guðnason 17, Lárus Ámason 8, Páll Kolbeins- son 3, og Hörður Gauti Gunnars- son 3. • Keflvíkingar voru ánægðir með sig eftir leikinn gegn KR í Laugardalshöllinni í gærkvöldi og ekki að furða. Lið ÍBK sýndi frábæran leik í síðari hálfleik og KR-ingar eru nú í slæmum málum. Liðin leika þriðja leikinn á miðvikudagskvöld- ið og liðið sem sigrar þá mætir Njarðvíkingum í úrslitum úrvalsdeildar. DV-mynd GS Enn er óljóst hvaða lið mætir Njarðvlkingum í úrslitum úrvalsdeildarinnar: Hrunadans KR-inga - ótrúlegar sveiflur er Keflvíkingar sigruðu KR í Laugardalshöfl, 75-92. Leikið tdl þrautar á miðvikudag Það er enn óvíst hvort það verður KR eða ÍBK sem mætir Njarðvík í úr- slitum úrvalsdeildarinnar í körfu- knattleik. Keflvíkingar sýndu mikinn styrk í Laugardalshöllinni í gærkvöldi er þeir gersigruðu KR-inga í öðrum leik liðanna. Lokatölur 75-92 og þriöji leikur liðanna fer fram í Keflavík á miðvikudagskvöldið. Þá verður leikið til þrautar. KR-ingar fóru illa að ráði sínu í gærkvöldi, voru með gott forskot í leikhléi en leikur KR hrundi sem spilaborg í síöari hálfleik. Enn einu sinni náðu KR-ingar góðu forskoti strax í byrjun og komust í 20-5 og síðar í 29-13 og ekkert virtist geta komið í veg fyrir stórsigur KR. Keflvík- ingar virtust heillum horfnir og ein- hvern veginn hafði maður á tilfinning- unni að þeir heföu ekki nægilega trú á sjálfum sér til aö vinna upp gott for- skot KR-inga. Staðan í hálfleik var 49-35, KR í vil, og léttur síðari hálfleik-i ur virtist blasa við KR-ingum. En eftir nokkrar mínútur höföu Keflvíkingar skorað 19 stig gegn 7 frá KR og leikur- inn var orðinn æsispennandi. En hann var ekki lengi spennandi. Keflvíkingar voru komnir í hörkustuð og voru þeir alveg óstöðvandi það sem eftir lifði leiks. Það tók þá að vísu nokkrar mín- útur að jafna og komast yfir en þegar þeim áfanga var náð gat ekkert stöðvað Keflvíkinga. KR-ingar voru sem áhorf- endur síðustu mínútumar og þegar flautað var til leiksloka hafði KR tapað niður 15 stiga forskoti í leikhléi í 17 stiga tap. • KR-ingar virtust missa alla ein- beitingu í síðari hálfleik. Leikmenn gerðu sig seka um að taka skot úr slæmum færum og reyndustu menn liðsins héldu einfaldlega ekki haus, voru alltof æstir í stað þess að leika yfirvegað og nota langar sóknir. Því verður ekki á móti mælt að það veikti KR-liðið, sérstaklega varnarleikinn, að Matthías Einarsson lék ekki með vegna veikinda. Þá fékk Axel Nikulás- son 4. villuna þegar 15 mínútur voru eftir og þá 5. þegar 6 mínútur voru eft- ir. Þá var staðan 71-75, ÍBK í hag. • Keflvíkingar voru fjandanum daufari í fyrri hálfleik en engu líkara en nýtt lið mætti til síðari hálfleiks. Þá „kviknaði í“ Bandaríkjamanninum Tyron Thornton og Guðjón Skúlason sýndi gamla takta, skoraði þrjár þriggja stiga körfur með litlu millibili og engu líkara en komið væri gamlárs- kvöld í Höllinni. Þvílíkur stuðkarl. Keflvíkingar hreinlega trylltust inni á vellinum og ekkert lið hér á landi hefði staðið í þeim í síðari hálfleik. Varnar- leikurinn glimrandi góður og KR skor- aði aöeins 26 stig í síðari hálfleik. Og í sókninni var oft hrein unun að horfa á Keflvíkinga vinna stigin sín 57. • Stig KR: Jonathan Bow 26, Páll Kolbeinsson 12, Guðni Guðnason 10, „Næsti leikur verður upp á líf og dauða“ „Eins og gefur að skiija er ég í sjöunda himni með þennan sigur. Þessi leikur þróaöist með sama hætti og hinir fyrri en nú náðum við baráttunni upp á mikilvæg-í u augnabliki, fórum einnig að hitta vel og þetta lagði grunninn að sigrinum,“ sagði Jón Kr. Gíslason, þjálfari og leíkmaður Keflvíkinga, eftir sigurinn á KR-ingum í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. „Dæmið lítur vei út núna, við eigum heimaleik á þriðjudag og sá leikur verður upp á lif og dauöa. Okkur vantaði sjálfstraust en með þessum sigri mætum við með sjálf- straustið í lagi í leikinn á þriðjudagskvöldið," sagöi Jón Kr. Gíslason. -JKS „Unnum þennan leik á sterkri liðsheild“ „Þessi sigur hafðist á baráttunni einni saman. Vörnin small saman um miðjan síðari hálfleik og það skilaði sér í sóknarleiknum um leið. Mér leið ekkert vel á tímabili þegar KR-ingar voru komnir með gott forskot. Viö Unnum þetta á liðsheildinni,'1 sagöi Guðjón Skúlason, leikmaður Keflvíkinga, í samtali við DV. „Mér líst vel á þriðju viðureignina en við höfum sannað það fyrir okk- ur aö við getum þetta þegar baráttan er í lagi. Nú er um að gera að ná sér niður á jörðina og fara að undirbúa sig fyrir leikinn mikilvæga á þriðjudagskvöldiðsagði Guðjón Skúlason. -JKS „Hittum mjög illa og misstum einbeitinguna" „Við hættum að hitta úti á vellinum og misstum einbeitinguna eftir að hleyptum Keflvikingum inn í leikinn og því fór sem fór. Það kom í ljós að við söknuðum Matthíasar Einarssonar í vamarleiknum en hann gat ekki leikið vegna veikinda," sagði Birgir Guðbjörnsson, liðsstjóri KR-inga i samtali við DV. „Það er alltaf erfitt að leika í Keflavik og það er öruggt mál að viðureign- in á þriðjudagskvöldiö verður mjög spennandi," sagði Brigir Guðbjöms- son liösstjóri. -JKS o q l ^ Körftiboltí Keppni er mjög spennandi í 1. deild kvenna í körfuknattleik og þar berjast Haukar og ÍS um ís- landsmeistaratitilinn. Einn leikur fór fram um helgina en þá sigraði hð Keflvíkinga liö nágrannanna úr Grindavík ör- ugglega með 103 stigum gegn 39. Aðeins eiga topplið ÍS og Hauka ólokið einum leik. ÍS mætir ÍR í Seljaskóla og Haukar leika gegn Keflavík í Keflavík. Vinni bæði liðin verður ÍS íslandsmeistari. Staðan er þannig: Grindavík-Keflavík......39-103 ÍS.........14 11 3 747-605 22 Haukar.....14 11 3 770-566 22 Keflavík...14 10 4 963-631 20 ÍR.........13 7 6 663-633 14 KR.........13 2 11 563-703 4 Grindavík... 14 0 14 439-1007 0 Valurhélt sætinu Það fór eins og margan grunaði að Valsmenn héldu sæti sínu í úrvalsdeildinni í körfuknattleik en um helgina lék Valur gegn Víkverja sem hafnaði í öðra sæti í 1. deild. Valur sigraði öragglega með 31 stigs mun, 106-75. Úrslit í NBA-deildinni Úrslitin um helgina: Atlanta-Miami Heat........108-93 Cleveland-NJ Nets.........108-82 Orlando-Dallas............105-93 Washington-76ers..........102-99 Chicago-Indiana..........133-119 Houston-NYKnicks..........111-98 Milwaukee-Denver.......140-136 Utah-Minnesota'..........95-89 Golden State-LA Clippers 104-107 Sacramento-Phoenix........95-100 Hörður Gauti Gunnarsson 8, Lárus Árnason 8, Axel Nikulásson 7, og Her- mann Hauksson 4. • Stig ÍBK: Tyron Thornton 28, Guð- jón Skúlason 15, Falur Harðarson 15, Jón Kr. Gíslason 12, Sigurður Ingi- mundarson 11, Albert Óskarsson 6, og Júlíus Friðriksson 5. • Leikinn dæmdu þeir Kristinn Al- bertsson og Kristján Möller og voru hreint frábærir í þessum leik. -SK Verð 220 kr. stk. med áletrun Einnig mikið úrval af bikurum og öðrum verðlaunagripum. Pantið tímanlega. GULLSMIÐIR Sigtryggur & Pétur. Brekkugötu 5 - Akureyri. S. 96-23524 Fax 96-11325

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.